Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2009, Blaðsíða 16
Grétar S. Sigurðsson
fyrirliði meistaraflokks kr í knattspyrnu
Grétar Sigfinnur Sigurðsson er ný-
orðinn fyrirliði meistaraflokks karla
í knattspynu hjá KR, en KR-liðið fór
utan í gær og leikur seinni leik sinn
við svissnesku meistarana Basel á
morgun. KR-ingar gerðu jafntefli
við Basel á KR-vellinum um daginn
og komast í fjórðu umferð og um-
spil um riðlakeppni ef þeir ná að
slá svissneska liðið út.
Starfsferill
Grétar fæddist í Reykjavík 9.10.
1982 og ólst þar upp í Vestur-
bænum. Hann var í Melaskóla,
Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum og stundar nám
í viðskiptafræði við HR.
Grétar var skrifstofustjóri hjá
versluninni Ásborg 2006, starfaði
hjá Kaupþingi 2007, hjá Trygginga-
miðstöðinni árið 2008 og hefur
starfað hjá Skjá einum frá ársbyrj-
un 2009.
Grétar hóf að æfa og keppa í
knattspyrnu með KR er hann var
sex ára og lék með yngri flokkum
KR upp í 2. flokk. Hann lék með
meistaraflokki Sindra á Höfn í
Hornafirði sem lánsmaður frá KR
sumarið 2000, lék með meistara-
flokki KR sumarið 2001 og 2002, lék
með meistaraflokki Víkings sumar-
ið 2003 og 2004, lék með meistara-
flokki Vals sem lánsmaður sumarið
2005, með Víkingi sumrin 2006 og
2007 og hefur leikið með meistara-
flokki KR frá 2008 og er nú fyrirliði
liðsins.
Grétar varð bikarmeistari með
Val sumarið 2005 og bikarmeistari
með KR 2008.
Fjölskylda
Kona Grétars er Sonja Hlín Arn-
arsdóttir, f. 15.6. 1979, deildarstjóri
markaðsdeildar Borgunar. Hún er
dóttir Gísla Arnars Gunnarsson-
ar, f. 28.1. 1954, rafiðnfræðings hjá
Mannviti, og Höllu Guðrúnar Jóns-
dóttur, f. 15.11. 1955, þjónustufull-
trúa hjá Borgun.
Dætur Grétars og Sonju eru Íris
Grétarsdóttir, f. 6.2. 2007, óskírð
Grétarsdóttir, f. 18.7. 2009.
Sonur Sonju og stjúpsonur Grét-
ars er Vilhelm Bjarki Viðarsson, f.
15.8. 2001.
Systkini Grétars eru Heiðrún
Sjöfn Sigurðardóttir, f. 17.12. 1981;
Bjarki Rúnar Sigurðarson, f. 19.9.
1990; Elvar Schiöth Haraldsson, f.
8.8. 1996.
Foreldrar Grétars eru Sigurður
Sigurðarson, f. 25.4. 1956, ráðgjafi,
ferðalangur og rithöfundur um
gönguferðir og íslenska náttúru,
og Bergþóra Kristín Grétarsdóttir, f.
13.3. 1960, flugfreyja í Reykjavík.
Ætt
Meðal systkina Sigurðar voru Sig-
finnur hagfræðingur; Ingibjörg,
þingmaður Riksdagen í Svíþjóð og
Skúli lögfræðingur.
Sigurður er sonur Sigurðar, skip-
stjóra og skrifstofumanns Skúla-
sonar, skipstjóra í Stykkishólmi,
bróður Guðmundar í Krossanesi,
afa Heimis Þorleifssonar sagnfræð-
ings, föður Kristrúnar lögmanns.
Systir Skúla var Ragnheiður, lang-
amma Jóhanns Hjálmarssonar
skálds. Önnur systir Skúla var Ing-
veldur, amma Bergsveins Ólafs-
sonar augnlæknis. Skúli var sonur
Skúla, formanns á Hellissandi, frá
Fagurey Jónssonar. Móðir Sigurðar
skipstjóra var Guðrún Jónsdóttir.
Móðir Sigurðar ráðgjafa var
Soffía, dóttir Sigfinns, b. á Hofakri
Sigtryggssonar, b. á Sólheimum í
Laxárdal. Sigtryggur var sonur Sig-
tryggs, b. í Sólheimum Finnssonar,
b. þar, bróður Guðmundar, langafa
Guðlaugar, ömmu Snorra Hjartar-
sonar skálds og Torfa sáttasemjara
Hjartarsonar, föður Hjartar hæsta-
réttardómara og Ragnheiðar, fyrrv.
rektors MR. Finnur var sonur Torfa,
smiðs á Ketilsstöðum Þorleifsson-
ar. Móðir Sigtryggs Finnssonar
var Guðrún Jónsdóttir á Kjörseyri
Magnússonar. Móðir Sigfinns var
Steinunn Jónasdóttir Jónssonar.
Móðir Soffíu var Þuríður Magn-
úsdóttir, búfræðings í Knarrarhöfn
og á Staðarfelli, bróður Friðborgar,
ömmu Teits Jónassonar hópferða-
forstjóra. Magnús var sonur Frið-
riks, b. á Skerðingsstöðum Nikulás-
sonar, og Bjargar Grímsdóttur, b. á
Kjarlaksstöðum Guðmundssonar.
Móðir Bjargar var Ingibjörg Orms-
dóttir, ættföður Ormsættar Sig-
urðssonar. Móðir Þuríðar var Soffía
Gestsdóttir, b. á Skerðingsstöðum
Steinssonar, og Þuríðar Vigfúsdótt-
ur, b. og smiðs í Fagradalstungu
Ormssonar, ættföður Ormsættar
Sigurðssonar.
Bergþóra Kristín er dóttir Grét-
ars, lögfræðings og fyrrv. skrifstofu-
stjóra í stjórnunardeild Flugleiða
Kristjánssonar Magnusen, hrl.,
ristjóra Vísis og stjórnarformanns
Loftleiða Guðlaugssonar, pr. á Stað
í Steingrímsfirði Guðmundssonar,
b. í Syðri-Skógum í Kolbeinsstaða-
hreppi Gíslasonar. Móðir Kristjáns
var Margrét Jónasdóttir, pr. á Stað-
arhrauni Guðmundssonar. Móðir
Grétars eldra var Bergþóra Brynj-
úlfsdóttir, fyrsta íslenska tann-
læknisins Björnssonar, b. í Bolholti
í Rangárvallasýslu Brynjólfssonar.
Móðir Bergþóru var Guðrún Anna,
kennari Guðbrandsdóttir, sjó-
manns í Reykjavík Eiríkssonar, og
Bergþóru Jónsdóttur.
Móðir Bergþóru Kristínar er
Þóra Kristín Jónsdóttir kennari.
Skúli fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentaprófi
frá MH 1970 og embættisprófi í
lögfræði frá HÍ 1977.
Skúli var fulltrúi hjá yfirborg-
arfógetanum í Reykjavík 1977-78,
fulltrúi hjá bæjarfógetanum á Seyð-
isfirði og sýslumanninum í Norður-
Múlasýslu 1977-78, framkvæmda-
stjóri Félagsstofnunar stúdenta
1978-81, lögfræðingur Dagsbrún-
ar 1981-84, framkvæmdastjóri
sjúkrastöðvarinnar Vonar í Reykja-
vík 1984-86 og sjúkrastöðvar Ís-
lensku meðferðarstöðvarinnar
sf. Í Reykjavík frá 1986-90, fram-
kvæmdastjóri Avgiftningssjuk-
huset í Svartnas í Falukommun í
Svíþjóð frá 1990, var sérfræðingur
á sviði heilbrigðisþjónustufræða
hjá framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins í Lúxemborg 1997-
99, var forstöðumaður Miðstöðvar
símenntunar Suðurnesja 1999-
2003 og hefur verið framkvæmda-
stjóri Starfsgreinasambands Ís-
lands frá 2003.
Skúli sat í stjórn Stúdentafélags
HÍ 1970-71, í stjórn Verðandi 1971-
72, var fulltrúi stúdenta í deildar-
ráði lagadeildar HÍ 1975-77, sinnti
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
verkalýðshreyfinguna 1981-84 og
fyrir Alþýðubandalagið 1980-90,
m.a. í stjórn Alþýðubandalagsins
í Reykjavík og í mðstjórn flokksins,
sat í stjórn útgáfufélags Þjóðviljans
um skeið, var varaborgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
1986-90 og sat í stjórn Sjúkastofn-
anna Reykjavíkur.
Fjölskylda
Kona Skúla er Jórunn Tómasdótt-
ir, f. 21.5. 1954, menntaskólakenn-
ari og fyrrv. formaður STÍL, félags
tungumálakennara.
Skúli var áður kvæntur Valgerði
Jónsdóttur.
Dóttir Skúla og Jórunnar er
Halldís, f. 28.9. 1989.
Skúli á einnig tvo syni, Jón
Fjörni, f. 23.4. 1971, og Bolla Thor-
oddsen, f. 22.6. 1981, auk Sóleyjar,
f. 6.8. 1978, d. 8.11. 1978.
Skúli á tvær hálfsystur og tvo
hálfbræður en tvö systkinanna eru
látin.
Foreldrar Skúla voru Bolli
Skúlason Thoroddsen, f. 26.4. 1901,
d. 31.5. 1974, borgarverkfræðingur
í Reykjavík, og Una Kristjánsdóttir,
f. 22.12. 1909, d. 25..11. 1988, hús-
móðir.
Ætt
Bolli var bróðir Sigurðar verkfræð-
ings, afa Katrínar Jakobsdóttur
menntamálaráðherra. Meðal ann-
arra systkina Bolla voru Katrín,
læknir og alþm., Skúli, lögfræðing-
ur og alþm, Guðmundur lækna-
prófessor og Unnur, móðir Skúla
Halldórssonar tónskálds. Bolli var
sonur Skúla, alþm.og ritstjóra á
Ísafirði, bróður Þorvalds náttúru-
fræðings, Sigurðar landsverkfræð-
ings, föður Gunnars Thoroddsen
forsætisráðherra, og Þórðar, lækn-
is og alþm., föður Emils tónskálds.
Skúli var sonur Jóns, skálds og
sýslumanns á Leirá Thoroddsen,
og Kristínar Ólinu Þorvaldsdótt-
ur, umboðsmanns í Hrappsey Sív-
ertssen.
Móðir Bolla var Theodóra
Thoroddsen skáldkona, systir Ást-
hildar., móður Muggs. Theodóra
var dóttir Guðmundar, prófasts á
Breiðabólstað Eianrssonar, bróður
Þóru, móður Matthíasar Jochums-
sonar.
Una var dóttir Kristjáns Jóhann-
essonar, skipstjóra á Sveinseyri við
Dýrafjörð, og Ólafar Guðmundu
Guðmundsdóttur húsfreyju, síðar
á Arnarnúpi í Dýrafirði.
Skúli verður í Flatey á afmælis-
daginn.
Skúli Thoroddsen
framkvæmdastjóri starfsgreinasambands íslands
xxx
5. ágúst
30 ára
n Krzysztof Pieniazek Laugateigi 17, Reykjavík
n Elínborg Harpa Sæmundsdóttir Háahvammi 9,
Hafnarfirði
n Fríða Torfadóttir Laufásvegi 45b, Reykjavík
n Orri Eiríksson Arnarsmára 18, Kópavogi
n Rúnar Jóhannesson Hafnargötu 18, Reykjanesbæ
n Kristján Guðmundsson Brekkubraut 11,
Reykjanesbæ
40 ára
n Alma Dís Kristinsdóttir Flókagötu 39, Reykjavík
n Ásta Magnúsdóttir Ferjubakka 6, Reykjavík
n Matthías Ólafsson Seljahlíð 1e, Akureyri
n Gunnlaugur Jón Rósarsson Marteinslaug 10,
Reykjavík
n Anna María Sigvaldadóttir Vallargötu 9, Grímsey
n Bryndís Blöndal Bauganesi 6, Reykjavík
n Guðbjörg Ragnheiður Jónsdóttir Engjavegi 15,
Ísafirði
n Gunnar Kristinn Björgvinsson Selvogsgrunni 3,
Reykjavík
n Guðmunda Regína Júlíusdóttir Miðtúni 7,
Reykjanesbæ
n Frosti Þorkelsson Sólbrekku 8a, Egilsstöðum
n Árni Þór Guðmundsson Hringbraut 112, Reykjavík
n Brynjar Jónsson Löngubrekku 22, Kópavogi
n Þórhallur Halldórsson Litluvör 9, Kópavogi
n Karl Georg Klein Álfaskeiði 98, Hafnarfirði
n Hannes Blöndal Háulind 30, Kópavogi
50 ára
n Ermelinda Fjóla Jónsson Leifsgötu 32, Reykjavík
n Miroslaw Henryk Kniec Eyjabakka 1, Reykjavík
n Jón Sigurjónsson Ásgarði 20, Reykjavík
n Haukur Ingvaldsson Ásbraut 21, Kópavogi
n Guðrún Edda Jóhannsdóttir Ægisvöllum 14,
Reykjanesbæ
n Rúnar Jóhann Guðmundsson Breiðvangi 24,
Hafnarfirði
n Margrét Jónsdóttir Hávegi 63, Siglufirði
n Sölvi Bragason Hlíðarhjalla 69, Kópavogi
n Anna Jóna Jóhannsdóttir Bólstaðarhlíð 3,
Reykjavík
n Skúli Thor Palmqvist Svendsen Kirkjuvegi 1f,
Reykjanesbæ
60 ára
n Aldís Sigurðardóttir Ársölum 3, Kópavogi
n Brynjólfur Sigurðsson Norðurtúni 6, Álftanesi
n Trausti Aðalsteinn Egilsson Borgarholtsbraut 58,
Kópavogi
n Kristín Árnadóttir Nesvegi 47, Reykjavík
n Magnea Erla Ottesen Smáratúni 2, Reykjanesbæ
n Sigurbjörg Ólafsdóttir Framnesvegi 20,
Reykjanesbæ
n Örn Agnarsson Ásbúð 43, Garðabæ
n Guðrún Helga Pálsdóttir Nönnugötu 14, Reykjavík
n Benedikt Steinþórsson Svínafelli 3 Bölta, Öræfum
n Kolbeinn Andrésson Melgerði 1, Kópavogi
70 ára
n Alexey Moroshkin Laugavegi 105, Reykjavík
n Adolf Haraldsson Sóleyjarima 15, Reykjavík
n Guðbrandur Valtýsson Framnesvegi 20,
Reykjanesbæ
n Karl Steinberg Steinbergsson Reykjavíkurvegi
52b, Hafnarfirði
n Áslaug Þorsteinsdóttir Frostafold 28, Reykjavík
n Guðrún Jóhanna Jóhannsdóttir Iðnbúð 4,
Garðabæ
n Guðrún Aðalsteinsdóttir Kópavogsbraut 82,
Kópavogi
n Matthías Hjartarson Austurbrún 6, Reykjavík
n Anna M Þorsteinsdóttir Vogatungu 85a, Kópavogi
75 ára
n Magnúsína Sæmundsdóttir Garðavegi 25,
Hvammstanga
n Gísli Steingrímsson Hjaltabakka 24, Reykjavík
n Sigríður C Nielsen Háaleitisbraut 15, Reykjavík
n Ída Sigurðardóttir Böðvarsgötu 19, Borgarnesi
80 ára
n Sigurður Kristjónsson Munaðarhóli 10, Hellissandi
n Sigurborg Sigurbjörnsdóttir Einbúablá 40,
Egilsstöðum
85 ára
n Baldur Þorsteinsson Grænutungu 5, Kópavogi
Til
hamingju
með
afmælið!
fólk í fréTTum
16 miðvikudagur 5. ágúst 2009 ættfræði
6. ágúst
30 ára
n Roman Haubold Skipagötu 4, Suðureyri
n Valgarð Briem Hjarðarhaga 11, Reykjavík
n Kristján Valdimar Þórmarsson Fífuseli 7,
Reykjavík
n Atli Þór Sigurðarson Hraunbæ 42, Reykjavík
n Arnar Ragnarsson Vogagerði 8, Vogum
n Svanþór Laxdal Lautasmára 26, Kópavogi
n Dögg Júlíusdóttir Sandavaði 11, Reykjavík
n Tómas Davíð Lúðvíksson Grasarima 7, Reykjavík
n Ragnheiður Hlín Símonardóttir Kálfafelli 1b,
Kirkjubæjarklaustri
n Guðmundur Einar Jónsson Hrísalundi 2d, Akureyri
n Valdimar Karl Sigurðsson Framnesvegi 30,
Reykjavík
n Viðar Valgeirsson Stúfholti 3, Reykjavík
n Halla Rún Halldórsdóttir Langanesvegi 6,
Þórshöfn
40 ára
n Snezana Savic Faxabraut 27e, Reykjanesbæ
n Ásgeir Páll Matthíasson Svarfaðarbraut 3, Dalvík
n Anton Örn Schmidhauser Túnfit 5, Garðabæ
n Guðrún Árnadóttir Breiðvangi 9, Hafnarfirði
n Sigurður G Kristinsson Hraunteigi 26, Reykjavík
50 ára
n Feriha Morina Kleppsvegi 4, Reykjavík
n Ólöf Kristín Arnmundsdóttir Brekkustíg 3,
Bakkafirði
n Magnús Jón Smith Háaleitisbraut 85, Reykjavík
n Þór Ingi Hilmarsson Óðinsgötu 20b, Reykjavík
n Tómas Ívarsson Skipholti 14, Reykjavík
n Sveinn Yngvi Egilsson Lágholtsvegi 3, Reykjavík
n Ingvi Þór Ástþórsson Sævangi 32, Hafnarfirði
n Gerður Hauksdóttir Þóreyjarnúpi, Hvammstanga
n Sigríður Hrönn Elíasdóttir Frostafold 6, Reykjavík
60 ára
n Auðunn Kjartansson Leifsgötu 23, Reykjavík
n Ingólfur Ragnar Ingólfsson Sólheimum 17a,
Reykjavík
n Magnús Skarphéðinsson Miðvangi 41, Hafnarfirði
n Matthildur Guðmundsdóttir Grundargötu 23,
Grundarfirði
n Steingerður Hilmarsdóttir Safamýri 48, Reykjavík
n Guðrún Kjartansdóttir Suðurgötu 60, Siglufirði
n Guðni Hafsteinn Larsen Melgerði 13, Reyðarfirði
n Kári Kort Jónsson Hesthömrum 8, Reykjavík
n Árni Jörgensen Vættaborgum 142, Reykjavík
n María Guðmundsdóttir Aðalstræti 45, Patreksfirði
n Sæunn Sigríður Gestsdóttir Eyjardalsá, Fosshólli
n Jóhann Helgason Austurströnd 6, Seltjarnarnesi
n Helgi Bernódusson Granaskjóli 86, Reykjavík
n Michael Jón Clarke Grænumýri 6, Akureyri
70 ára
n Elín Þorsteinsdóttir Ásgarði 125, Reykjavík
n Ásrún H Kristinsdóttir Fellsmúla 17, Reykjavík
n Guðni Gústafsson Víkurbraut 10, Grindavík
n Magnús Stefánsson Hamarsgötu 23, Fáskrúðsfirði
75 ára
n Guðrún Lilja Árnadóttir Hraunbæ 140, Reykjavík
n Svanhvít Sigurlinnadóttir Lynghólum 20a,
Garðabæ
n Stella Finnbogadóttir Vitastíg 14, Bolungarvík
n Arnar Sighvatsson Höfðavegi 6, Vestmannaeyjum
n Sigurbjörn Ævarr Jónsson Krummahólum 10,
Reykjavík
n Walter Lúðvík Lentz Steinavör 2, Seltjarnarnesi
80 ára
n Erla Eyjólfsdóttir Bergstaðastræti 50b, Reykjavík
n Sigurhörður Frímannsson Sólvöllum 17, Akureyri
n Eggert Ólafur Ásgeirsson Bergstaðastræti 69,
Reykjavík
n Anne Marsden Merkilandi 8, Selfossi
85 ára
n Kristinn Þorleifsson Dalbæ, Dalvík
n Margrét Gísladóttir Helgamagrastræti 53, Akureyri
n Bjarnfríður Leósdóttir Stillholti 13, Akranesi
Ágústa Einarsdóttir Bragagötu 31, Reykjavík
95 ára
n Guðný Kristinsdóttir Sléttuvegi 23, Reykjavík
n Sigursteinn Ólafsson Lóurima 8, Selfossi
Til
hamingju
með
afmælið!
60 ára á morgun
NÝJUSTU
FRÉTTIRNAR