Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Qupperneq 4
Sandkorn n Vefmiðilinn amx.is, sem undir leiðsögn Óla Björns Kárasonar titlar sig fremsta fréttaskýringa- vef landsins, er lagstur í djúpar rannsóknir á uppruna orðsins „skrímsladeild“ Sjálfstæðis- flokksins. Tilefnið er frétt á mbl. is þar sem Gunn- ar Helgi Kristinsson stjórnmála- fræðipróf- essor notaði hugtakið um ákveðin öfl innan áðurgreinds stjórnmálaflokks. Rannsóknin hefur leitt í ljós að Össur Skarphéðinsson notaði orðið þegar árið 2006. Næst vill amx.is vita hverjir séu í um- ræddri skrímsladeild. n Annað orð yfir róttækan frjálshyggjukjarna í Sjálfstæðis- flokknum er náhirð. Þar er vísað til þeirra sem næstir stóðu og standa Dav- íð Oddssyni eftirlauna- þega. Það orð hefur náð þó nokkurri fótfestu í málinu. Nú- tímamerk- ingu þess orðs má rekja til um- fjöllunar í DV. Amx hefur verið talinn helsti hýsill sjónarmiða hirðmanna. Helstu skjald- menn hirðarinnar teljast Björn Bjarnason, Hannes Hólm- steinn Gissurarson og auðvitað varaþingmaðurinn Óli Björn Kárason. n Fyrrverandi seðlabankastjór- inn og viðskiptaráðherrann Finnur Ingólfsson skilur eftir sig mikinn skuldahala nú þeg- ar Langflug er farið á hausinn. Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 á fimmtudagskvöld nema skuldirnar um fjórtán milljörðum króna. Finn- ur var áber- andi þegar S-hópur- inn, sem naut mik- ils velvilja Halldórs Ásgrímssonar, fékk að kaupa Búnaðarbankann á sínum tíma og síðar keypti hann sig inn í Icelandair auk fleiri fyrirtækja. Sum þessara fyrirtækja heyra sögunni til eða hafa verið yfirtekin af ríkinu en eitt félag stendur líklega vel. Það er Frumherji sem á og rekur orkusölumæla Orkuveitu Reykjavíkur í Reykjavík og víð- ar, af því hefur félagið traustar tekjur. 4 föstudagur 21. ágúst 2009 fréttir Þingmenn að störfum Þingmenn fá fastar ferðakostnaðargreiðslur í hverjum mánuði. Aksturssamningum ríkisstarfsmanna verður sagt upp en óvíst er hvort það sama gangi yfir þingmenn. Síðdegis í gær ræddu þingmenn ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins. Mynd: róbert reynisson Ríkisstarfsmenn mega eiga von á því að missa í framtíðinni fastar greiðsl- ur sem þeir hafa fengið samkvæmt aksturssamningum og fá aðeins greitt í samræmi við akstursbæk- ur sem þeir verða að halda. Þetta er hluti af sparnaðaráformum stjórn- valda. Engin ákvörðun hefur ver- ið tekin um að fara sömu leið með fastar ferðakostnaðargreiðslur þing- manna sem nema tugum þúsunda á mánuði. Fastar greiðslur hverfa Aksturssamningar ríkisstarfsmanna byggjast á föstum greiðslum sem eiga að standa undir aksturskostn- aði vegna starfa þeirra. Annað form er að greiða aðeins í samræmi við akstursbækur sem starfsmenn halda. Samkvæmt sparnaðaráætlun sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudag í síðustu viku verð- ur hér eftir aðeins greitt fyrir akstur samkvæmt akstursbók og dagpen- ingar verða aflagðir. sama gangi yfir þingmenn Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, telur réttast að mæta kostnaði vegna starfa starfsmanna ríkisins með sambærilegum hætti. „Í þessu tilfelli er verið að færa greiðslu akst- urskostnaðar ríkisstarfsmanna í það horf að það sé nákvæmlega greitt fyr- ir þann kílómetrafjölda sem menn nota við sína vinnu,“ segir Þórarinn. „Það sama finnst okkur auðvitað eðlilegt að gangi yfir alþingismenn, að þeir fái greiddan þann kostnað sem af ferðalögum hlýst vegna þeirra hlutverks og vegna þeirra starfa. Við sjáum því ekkert óeðlilegt við það að sama fyrirkomulag sé notað gagnvart þeim og er notað fyrir aðra starfsmenn ríkisins, að þeir haldi akstursdagbók vegna sinna starfa og fái bara greitt samkvæmt þeim.“ engin sérréttindi Þórarinn leggur áherslu á að eitt gangi yfir alla en að ekki gildi mis- munandi reglur eftir því hvar og hvernig fólk vinnur hjá ríkinu. „Við getum náð í fordæmi sem er nýlegt. Það er eftirlaunafrumvarpið. Það er engin ástæða til þess að réttindaum- hverfi alþingismanna sé með ein- hverjum allt öðrum hætti en rétt- indaumhverfi annarra starfsmanna ríkisins. Það sem á að liggja til grund- vallar þegar menn eru að tala um kaup og kjör, og vissulega er þetta hluti af kjörum eða starfsaðstæðum, er að launasetningin á að vera með einhverjum ákveðnum hætti sem menn telja vera eðlilegan og sann- gjarnan.“ Hann telur að ákveðnir hópar eigi ekki að hafa meiri réttindi en aðrir. „Allt eru þetta starfsmenn okkar, starfsmenn samfélagsins, svo að segja. Þess vegna lítum við á það sem hið besta mál að ríkið samræmi þær reglur sem gilda um akstur rík- isstarfsmanna, hvort sem þeir heita alþingismenn eða ekki.“ Verkefnið fram undan Aðspurð hvort til standi að fella nið- ur fastan ferðakostnað þingmanna segir Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir, forseti Alþingis, það vera eitt af verkefnunum fram undan að finna út hvernig Alþingi geti skorið niður í rekstri sínum. Búast má við veruleg- um niðurskurði á fjárveitingum til Alþingis á næstu fjárlögum, eins og reyndar hjá öðrum sem fá fé úr rík- issjóði. Mestur kraftur þingmanna hefur farið í ríkisábyrgð vegna Icesa- ve-samkomulagsins að undanförnu og hefur því minni tími gefist til að skoða hvernig verði skorið niður. Ásta Ragnheiður bendir á að greiðslur til þingmanna hafi ver- ið lækkaðar undanfarið. Þannig hafi verið ákveðið að halda föstum greiðslum óbreyttum en venjulega hafa þær hækkað í samræmi við vísi- tölu. Þar við má bæta að þingfarar- kaupið var lækkað um 42 þúsund krónur eftir hrunið síðasta haust. Geta framvísað reikningum Þingmenn fá 61.400 krónar í fast- ar mánaðarlegar greiðslur vegna ferðakostnaðar. Sú fjárhæð á að standa undir ferðakostnaði í næsta nágrenni heimilis eða starfsstöðv- ar í kjördæmi sínu. Þessi upphæð á einnig að standa undir dvalarkostn- aði á ferðalögum í kjördæminu. Þetta eru þó ekki einu ferðakostn- aðargreiðslur sem þingmenn eiga rétt á. Þannig á að endurgreiða, gegn reikningum eða akstursbókum, ferð- ir á fundi eða samkomur sé vega- lengdin hvora leið meira en fimmtán kílómetrar frá starfsstöð eða heimili, einnig má greiða gistikostnað í eigin kjördæmi í eina nótt þegar sérstak- lega stendur á. Þessu til viðbótar fá þingmenn sem búa á landsbyggðinni endur- greiddan kostnað vegna ferða milli heimilis eða starfsstöðvar á lands- byggðinni og Reykjavíkur ýmist einu sinni í viku eða daglega yfir þing- tímann eftir því hvort þeir fá greidd- an kostnað vegna annars heimilis á höfuðborgarsvæðinu eða ekki. Þá skal endurgreiða ferðakostnað vegna funda sem þingmenn eru boðað- ir á í Reykjavík meðan þeir dveljast á heimili sínu sem og ferðir í önnur kjördæmi vegna fundahalda. Fljúgi þingmenn milli staða greiðir þingið fyrir farið auk leigu- bíls til og frá flugvelli gegn framvís- un reiknings. Sama á við um ferju- ferðir og ferðir með rútum. Einnig geta þingmenn, ef það er talið hag- kvæmara, fengið bílaleigubíl á veg- um þingsins. 38 milljónir á ári Föstu ferðakostnaðargreiðslurnar nema sem fyrr segir 61.400 krónum á mánuði. Það jafngildir 736.800 krón- um á hvern þingmann á ári hverju. Ef miðað er við að 52 þingmenn þiggi þessar greiðslur nemur heild- arupphæðin rúmum 38 milljónum króna á ári eða 3,2 milljónum króna á mánuði. Þá er miðað við að þeir tíu þingmenn sem eru ráðherrar og for- seti Alþingis að auki eiga rétt á bíl og bílstjóra en njóta þá ekki ferðakostn- aðargreiðslna. brynjólFur Þór GuðMundsson fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is MISSA GREIÐSLUR SEM ÞINGMENNIRNIR HALDA Aksturssamningar ríkisins við starfsmenn sína verða afnumdir og aðeins greitt fyrir akstur samkvæmt akstursbók. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að afnema fastar ferðakostnaðargreiðslur til þingmanna. Þær nema 61.400 krónum á mánuði. Ljóst er að mikill niðurskurður verður hjá þinginu á næstu fjárlögum. „Það sama finnst okk- ur auðvitað eðlilegt að gangi yfir alþingis- menn.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.