Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Síða 31
Fjölmiðlamaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, er genginn til liðs við útvarps- stöð Einars Bárðarsonar, Kanann. Gulli er enginn nýgræðingur í út- varpi en hann á 25 ára starfsafmæli í vetur. Hann segist spenntur fyrir Kananum enda sé alltaf gaman að byggja eitthvað upp frá grunni. Það hafi til dæmis verið mikið ævintýri þegar hann, ásamt Þorgeiri Ástvalds, Ólafi Laufdal og Jóni Axel Ólafssyni, stofnuðu útvarpsstöðina Stjörnuna árið 1987. Gulli segir rekstur Stjörn- unnar hafa gengið ágætlega, en eftir misheppnaða tilraun til að sameina Stjörnuna og Bylgjuna var samn- ingnum rift, Stjarnan fór í gjaldþrot og þeir félagar ákveðið að fylgja Ól- afi Laufdal á Aðalstöðina. „Jón Ól- afs eigandi Bylgjunnar var alveg viss um að við myndum snúa baki við okkar manni en við fórum með Óla og stofnuðum Aðalstöðina og fór- um með því skipi á kaf,“ segir Gulli hlæjandi þegar hann rifjar upp þessa tíma. Sjónvarpið ekki að fara neitt Eins og fram kom í vikunni vildu 365 miðlar ekki sleppa takinu á Gulla en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu af og til meðal annars sem umsjóna- maður Íslands í bítið, liðsmaður Ís- lands í dag og kynnir í raunveru- leikaþættinum Hæðinni sem Stöð 2 sýndi. Gulli segir áhugann hafa komið sér á óvart þar sem 365 menn hefðu nýlega gert honum grein fyrir að það væri ekki pláss fyrir hann hjá fyrirtækinu eins og staðan væri. „Ég er búinn að sitja á varamannabekk á Bylgjunni síðustu misserin og bara dottið inn sem afleysingamaður af og til. Ég hafði komið með nokkrar hug- myndir að þáttum sem höfðu vakið lítil viðbrögð, ekki fyrr en annar mið- ill sýndi mér áhuga. Þá voru voru þessar hugmyndir allt í einu dregnar upp á borðið og eitt tilboðið, smíða- þáttur, freistaði mín mjög mikið. Því miður verð ég líklega að afskrifa þann þátt því mér hefur verið gerð grein fyrir að það líði langur tími þar til ég fái vinnu hjá Stöð 2 aftur. Auð- vitað er eftirsjá að þessum þætti en eins og oft, þegar maður fylgir hjart- anu, brennir maður einhverjar brýr að baki sér,“ segir Gulli og bætir við að hann sé sjálfstætt starfandi fjöl- miðlamaður og gæti vel hugsað sér að starfa á báðum stöðum. „Ég sé lítinn mun á mér og Jóni Gnarr sem verður hér með okkur á Kananum auk þess að leika aðalhlutverk í vin- sælasta þætti Stöðvar tvö. Af hverju get ég ekki líka verið á báðum stöð- um? Þetta er greinilega orðið eitthvað persónulegt,“ segir hann og bætir við að Kaninn þurfi meira á honum að halda en 365. „Einar sagði mér að velja það sem hentaði mér best á meðan hinir vildu fá mig eða ekki og í rauninni fékk ég á tilfinninguna að þeir hafi bara viljað kaupa mig frá því að fara til hans,“ segir Gulli en bæt- ir við: „Ég vil samt taka skýrt fram að ég á enga óvini hjá 365. Allavega ekki svo ég viti. Ég er búinn að starfa með fólkinu þar í gegnum tíðina og mörg- um í tuttugu ár og þetta er allt í mesta bróðerni. Ég hef farið frá Bylgjunni áður og tel að sem fjölmiðlamað- ur verðirðu að skipta reglulega um fjölmiðil til að þroskast. Mér bauðst tækifæri til að vera með í uppbygg- ingu á nýrri stöð og ég veit að mín 25 ára reynsla á eftir að koma þar að góðum notum. Sjónvarpið heillar en það verður þarna áfram. Sjónvarpið er ekki að fara neitt.“ vonbrigði að Hæðin Hafi Hætt Raunveruleikaþátturinn Hæðin var sem sniðin að Gulla sem er lærð- ur smiður en hann hafði áður ver- ið með innskot í Ísland í bítið sem Gulli byggir. Þegar dagskrárstjóri Stöðvar 2 nálgaðist Gulla með hug- mynd að Hæðinni var hann á fullri ferð með sitt eigið fyrirtæki, með fjölda manns í vinnu og fjölmörg verkefni á dagskrá en ákvað, þrátt fyrir annríki, að taka þáttarstjórn- ina að sér. Hæðin sló í gegn og sér í lagi sigurvegararnir, þeir litskrúðugu og hressu Beggi og Pacas. „Hver sem er gat sigrað þessa keppni og ég var ekki viss um að Íslendingar myndu taka upp tólið og kjósa hommana því þegar upp er staðið var þetta ekki bara vinsældakosning. Verk- efnin hjá Begga og Pacas voru alltaf rosalega flott, sérstaklega á miðviku- dögum ef skiladagur var á föstudegi. Síðan fóru þeir pínulítið yfir strikið að mínu mati,“ segir Gulli hlæjandi og bætir við að þessi tími hafi verið strembinn en skemmtilegur og að í rauninni væri hægt að gera aðra ser- íu úr efni sem ekki hafi verið notað því ekki hafi vantað hugmyndirnar í hópinn. Gulli segist ekki einungis hafa verið þáttastjórnandi Hæðinnar heldur að hann hafi einnig stýrt iðn- aðarmönnum, skrifað texta og verið með puttana í framleiðslunni. „Ég neita því ekki að ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar í ljós kom að ekki yrði farið af stað með seríu tvö því ég var búinn að leggja mikla vinnu í að undirbúa hana. Ákvörðunin hafði verið tekin en ég fékk þær fréttir síð- astur manna. Á þessum tíma taldi ég að verkefnum mínum innan 365 væri lokið í bili og fannst þar af leið- andi rétt að skipta um starfsvett- vang. Áhorfið á Hæðina var gott og ég hafði fundið frábærar íbúðir til að taka þáttinn upp í en menn höfðu haft áhyggjur af fjármögnuninni og svo þegar bankarnir hrundu var allt flautað af,“ segir hann og bætir við að hann hafi einnig verið spældur yfir því að Hæðin hafi ekki verið til- nefnd til Edduverðlauna. „Ég fékk þá útskýringu að þátturinn þætti heldur of mikil auglýsing en svona þáttur er einfaldlega ekki framleiddur nema með styrkjum fyrirtækja. Snobbelít- an, sem situr með nefið upp í loft, er bara ekki í tengingu við það sem fólk- ið í landinu kann að meta. Ef Hæðin er ekki listform veit ég ekki hvað list er. Sumir eru bara ekki nógu fínir.“ Hefði ofmetnaSt á yngri árum Gulli segir hinn skyndilega áhuga á honum sem fjölmiðlamanni hafi komið honum skemmtilega á óvart. Hann hafi setið á hliðarlínunni upp á síðkastið og því hafi verið tími kom- inn á hann. „Ég kemst í tísku á 20 ára fresti,“ segir hann hlæjandi og bætir við að þegar hann hafi kynnt Fegurð- arkeppni Íslands árið 2007 hafi ver- ið 20 ár síðan hann gerði það síðast. „Það hefur ríkt mikil æskudýrkun í samfélaginu um árabil en nú er það kannski að breytast. Ég hef alls ekkert á móti ungu fólki en fóstur eiga ekki að lesa fréttir,“ segir hann brosandi. „Ég hefði kannski ofmetnast af þessu öllu saman fyrir einhverjum árum en nú hef ég fyrst og fremst bara gaman af þessu. Lífið er svo skemmtilegt og maður á að hafa gaman af því,“ segir hann og bætir við að hann ætli ekki að láta vinsældir sínar slá sig út af laginu. „Pressan á mig sem fjölmiðla- mann er jafnmikil í dag og áður enda er ég ofboðslega mikil meyja og er sjálfur minn harðasti gagnrýnandi, sem getur verið erfitt. Sérstaklega þegar maður er að smíða. Núna er ég bara að velja og hafna hugmyndum en ég fylgdist vel með þegar ég bjó í Ameríku og sogaði að mér það sem þar var í gangi. Það er óþarfi að vera finna upp hjólið, það er frekar spurn- ing um hvaða litum þú ætlar að lita það,“ segir Gulli og bætir við að hon- um þyki útvarpsbransinn ofsalega skemmtilegur. „Þessi bransi gengur út á mannleg samskipti sem ég hef mjög gaman af og ég er heppinn að geta unnið við það sem ég hef mest- an áhuga á en það er ekki sjálfgefið.“ Sleginn utan undir í beinni Gulli sló fyrst í gegn í þættinum Tveir með öllu sem hann stjórnaði ásamt Jóni Axel Ólafssyni á Fm 957 og svo á Bylgjunni þar sem þátturinn fór á flug. Hann segir stórt spurn- ingamerki yfir „kombakki“ þeirra fé- laga en með honum í nýja þættinum á Kananum verður söngkonan Lísa Einarsdóttir sem var í Idol stjörnu- leit. „Það yrði þá aldrei Tveir með öllu. Bara Jón og Gulli – gamlir karl- ar 20 árum seinna,“ segir hann hlæj- andi. Spurður um skemmtilegar sög- ur úr bransanum minnist hann á það þegar Bússi dagskrárstjóri á Fm 957 manaði hann til þess að fara í fallhlíf- arstökk í beinni útsendingu. „Ég tók inn of mikið af súrefni í frjálsa fallinu og man ekkert eftir lendingunni svo við fórum á magann og drógumst einhverja 20 metra eftir drullunni og allt í beinni. Við Jón Axel fórum líka í teygjustökk og við sendum einnig út heilan þátt á útvarspstöð ameríska hersins á Keflavíkuflugvelli, ég held við séum einu útlendingarnir sem hafa fengið þann heiður að senda út í þrjá klukkutíma á útvarpsstöð hers- ins.“ Annað eftirminnilegt atvik sem eflaust margir muna eftir átti sér stað í Íslandi í dag þegar óperusöngvar- inn Kristján Jóhannsson kom sem gestur. Mikill styr stóð um Kristján á þeim tíma en hann hafði orðið fyr- ir gagnrýni vegna launa sem hann hafði þegið fyrir tónleika til styrkt- ar veikum börnum. Svo varð úr að Kristján sló Gulla fast utan undir í beinni útsendingu. „Það var reyndar alveg æðislegt. Karlkvölin, hann var svo mikill klaufi,“ segir Gulli og hlær. Skítur undir fullt af Steinum Gulli segir ábyrgð fjölmiðla mikla í allri neikvæðinni sem ríki í samfélag- inu vegna fjármálakreppunnar. Sjálf- ur ætli hann að einbeita sér að því jákvæða í þættinum sínum á Kan- anum. „Það verður samt örugglega erfitt á meðan spilaborgin er enn að hringja. Ég spái því að komandi vetur verði mjög erfiður en að hann verði einnig upphafið að nýju Íslandi. Mér finnst algjör skandall hvað hefur lítið verið velt við grjóti því það er skítur undir fullt af steinum og það þarf að taka til. Þar koma fjölmiðlarnir sterk- ir inn frjálsir og óháðir.“ Aðspurður segist hann aldrei, á þeim miðlum sem hann hafi starfað á, hafa tekið eftir að eigendur væru að skipta sér af fréttaumfjöllun. „Hins vegar held ég að hver og einn blaðamaður hugsi sitt áður en hann segir sína skoðun á eiganda fjölmiðilsins. Sérstaklega ef eigandinn er umdeildur einstakling- ur í þjóðfélaginu.“ oruStan er rétt að byrja Gulli flutti til Bandaríkjanna árið 1991 þar sem hann lærði leiklist. Eft- ir að hafa gengið í gegnum skilnað flutti hann aftur til Íslands og kynnt- ist sama ár núverandi eiginkonu sinni, Ágústu Valsdóttur. Þau Ágústa eiga þrjú börn en fyrir á Gulli einn son með sinni fyrirverandi. Hann er því fjölskyldumaður og viðurkennir að hann sé ef til vill að taka áhættu í starfsvali sínu með því að yfirgefa gamla vinnustaðinn og takast á við ný ævintýri. Sér í lagi núna þegar allt sé svo ótraust. „Kannski er þetta nett kæruleysi, maður er náttúrlega með fullt hús af börnum. Lögfræðing- ur sagði mér hins vegar einu sinni að orðið „öryggi“ væri skuggalega ofmetið. Það mikilvægasta væri að gera það sem þig langar til að gera og mig langar til að taka þátt í uppbygg- ingu á þessari útvarspsstöð. Að mínu mati hefur lítil samkeppni ríkt í út- varpi að undanförnu, miðillinn hef- ur verið settlegur og sofandi og mig langar til að breyta þvi og gera eitt- hvað nýtt og spennandi. Orustan er rétt að byrja.“ Indíana Ása Hreinsdóttir helgarblað 21. ágúst 2009 föstudagur 31 „Kannski er þetta nett kæruleysi, maður er nátt- úrlega með fullt hús af börnum. Lögfræðingur sagði mér hins vegar einu sinni að orðið „öryggi“ væri skuggalega ofmetið.“ á 20 ára fresti bæ, bæ, bylgjan. Halló, kaninn Gulli er einn af nýju útvarpsmönnunum á útvarpsstöð Einars Bárðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.