Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2009, Side 61
sviðsljós 21. ágúst 2009 föstudagur 61
Hamingjusamur
pabbi
„Ég er svo hamingjusamur,“ segir
poppstjarnan Ricky Martin um
hvernig honum finnst að vera
faðir en hann eignaðist fyrir um
ári tvíbura með staðgöngumóð-
ur. „Allt sem þeir gera. Frá því að
brosa yfir í að gráta. Þetta er allt
ein stór blessun.“ Martin ákvað að
draga sig út úr tónlistinni til þess
að sinna föðurhlutverkinu og
hann sér alls ekki eftir því. „Þetta
hafa verið einhverjir tilfinninga-
ríkustu tímar lífs míns.“
Eftir að hafa óvænt hætt saman fyrir
stuttu hafa glamúrmódelið Kim Kard-
ashian og Reggie Bush tekið saman á
nýjan leik. Þau ákvaðu að gefa ástinni
annan séns en vinur parsins segir þau
ætla flýta sér hægt og ætla að byggja
sterkan grunn saman fyrir sambandið.
„Þau taka þessu dag fyrir dag. Þau eru
ekki viss hvað framtíðin ber í skauti sér
en þau elska hvort annað nógu mikið til
þess að gefa þessu annan séns,“ sagði
vinurinn.
Slúðurmiðlar höfðu greint frá því að
Kim vildi hjónaband og börn en Reggie
vildi taka hlutunum af meiri ró. Það hafi
upprunalega verið orsök sambandsslit-
anna. Hverju sem því líður vill Kim enn-
þá börn því hún hefur margoft tjáð sig
um sterkt móðureðli í viðtölum.
Kim Kardashian og Reggie Bush:
saman á ný
Saman á ný Kim
Kardashian og
Reggie Bush.
afturendinn
eða andlitið
Kaffi, vodka, sígarettur og kampavín á matseðlinum:
Ef fyrirsætan Kate Moss var ekki
að fíflast þegar hún sagði vinkonu
sinni Lily Allen að matseðill fyrir-
sætna samanstæði af kaffi, vodka,
sígarettum og kampavíni er mesta
furða að fyrirsætur komist á efri ár.
Eflaust má til sanns vegar færa
að fyrirsætur nærist á ofannefndu,
jafnvel flestar þeirra, í einhvern
tíma. Fyrirsætur eru grannar, um
það verður ekki deilt, sumar eru
grannar að upplagi en aðrar þurfa
verulega að hafa fyrir því að halda
þessu „eftirsótta“ útliti.
En matur er forsenda lífs og ef þú
borðar ekkert deyrðu, og ef mann-
eskja borðar ekkert í einhvern tíma
mun henni jafnvel verða um megn
að rölta eina ferð fram og til baka
eftir sýningarpalli. Leiða má líkur
að því að ef fólk tileinkar sér mat-
aræði Kate Moss muni þess fljótt
sjást merki á húð viðkomandi. Það
er fráleitt að ætla að eilífðarrokkar-
inn Keith Richards hafi öðlast sitt
rúnum rista andlit með heilbrigðu
mataræði, og kannski ekki fjarri
lagi að mataræði hans hafi verið
svipað og Kate Moss.
Jerry Hall, fyrrverandi eiginkona
annars eilífðarrokkara, Micks Jagg-
er, sagði eitt sinn að á einhverjum
tímamótum yrði kvenfólk að velja
á milli andlits síns og afturenda. Til
að setja þetta á mannamál stendur
valið á milli þess að borða lítið og
skorpið andlit og beinaberan botn
og borða vel og öðlast fyllingu í
hvort tveggja. Þetta er kannski erfitt
val fyrir fjölda fólks, en manni er til
efs að nokkur hafi legið banaleguna
og hugsað: „Ansans, en sú sóun á
lífi. Ég hefði átt að passa í minnstu
fatastærð.“
Ofurfyrirsætan
Kate Moss
Staðgóð næring
virðist ekki vera
á matseðli
fyrirsætna.
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum
Háaleitisbraut 68 • Sími 568 4240
• Fimleikabolir
• Tátiljur
• Skautakjólar
• Dansskór
• o.m.fl.
Flottar jazz- og ballettvörur
í miklu úrvali