Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Blaðsíða 4
4 mánudagur 30. nóvember 2009 fréttir Talsmaður Arion banka, Berghild- ur Erla Bernharðsdóttir, staðfestir að launahækkanir hafi átt sér stað hjá bankanum undanfarið. Hún kall- ar hækkanirnar launaleiðréttingu því nauðsynlegt hafi verið að leiðrétta laun þeirra einstaklinga sem dregist höfðu aftur úr sambærilegum launum annarra fjármálastofnana. DV óskaði eftir nánari upplýsing- um um þessar launaleiðréttingar, öðru nafni launahækkanir, en þær fást ekki hjá bankanum þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þess efnis. Svör bankans ein- kenndust þess í stað af útúrsnúningum og staðhæfingum um að launahækk- unum hafi verið haldið í lágmarki. DV óskaði eftir upplýsingum um hversu margir einstaklingar fengu launa- hækkun, hversu há hækkunin væri, á hvaða sviðum hækkunin færi fram og hversu mikið þær kosti bankann mán- aðarlega. Frá Arion fengust engin svör. Arion banki, áður Kaupþing banki, neitar einnig að gefa upp heildarkostn- að við nafnabreytingu bankans. DV fór þess á leit og óskaði jafnframt eft- ir sundurliðun á kostnaði en þau svör fengust að slíkt fengist ekki gefið upp. Bankinn gefur hins vegar aðeins upp áætlaðan heildarkostnað vegna breyt- ingarinnar. Sú áætlun gerir ráð fyrir ríflega sautján milljóna króna kostnaði við breytinguna en það telja þeir sér- fræðingar sem DV leitaði til útilokað. Þeirra mat er að kostnaðurinn hlaupi á mörgum tugum milljóna, fimmtíu milljónir að lágmarki, og jafnvel yfir hundrað milljónir. Til viðbótar sé síð- an hægt að reikna þann mikla fórnar- kostnað sem liggur í glötuðu markaðs- efni. trausti@dv.is Talsmenn Arion banka forðast fyrirspurnir DV um launahækkanir: Arion svarar engu Loðin svör Talsmenn Arion gefa ekki upp heildarkostnað við nafnabreytinguna og launahækkanir. „Ég er búinn að biðja um fund með rektor, út af þessu og öðru. Mér finnst framganga háskólaprófessorsins furðuleg að vera með svona útgáfu- starfsemi þar sem drullað er yfir fólk,“ segir Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus. Jóhannes sakar Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor í stjórnmála- fræði við Háskóla Íslands, um að dreifa fluguritum innan háskólans. Á þeim koma fram fullyrðingar um að vina- og ættartengsl bjargi eignarhlut 1998 ehf., félagi í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar, í Högum. Þar er Jón Ásgeir nafn- greindur og myndbirtur og einnig tveir bankastarfsmenn, þau Helga Jóns- dóttir, stjórnarmaður Arion banka, og Sigurjón Pálsson, starfsmaður Arion banka. Bæði eru þau sögð vinna hörð- um höndum að því að fá milljarða skuldir félagsins niðurfelldar. Dreift á göngunum? „Hann var að dreifa þessu á göngum skólans og vitni að því hafa haft sam- band við mig. Þau segja mér að Hann- es Hólmsteinn hafi verið að rétta nem- endum þennan snepil. Sjálfur hef ég séð þessa auglýsingu og mér þykir hún ákaflega lágkúruleg,“ segir Jóhannes. Hannes Hólmsteinn vísar því aft- ur á móti á bug að hann hafi verið að dreifa þessum blöðum á göngum skól- ans. Hann viðurkennir að hafa prent- að þetta út og sýnt nokkrum samkenn- urum enda eigi myndin erindi við almenning því hún sýni vel íslenska klíkusamfélagið. „Það er alrangt að ég hafi verið að dreifa þessu. Ég fékk þetta vissulega sent í pósti og prentaði út eintak enda þótti mér þetta fyndið. Ég sýndi einhverjum það en það er fráleitt að halda því fram að ég hafi verið að dreifa einhverju. Þó svo að ég væri að dreifa einhverju væri það ekkert mál því elskulegir samkennarar mínir hafa oft verið að prenta út og dreifa ýmsu,“ segir Hannes Hólmsteinn. Allt saman satt „Það getur verið að ég hafi gleymt þessu einhvers staðar en ég hef ekki dreift neinu flugriti neins staðar. Hins vegar tel ég mig alveg hafa haft fullan rétt til að dreifa þessu því þær upplýs- ingar sem þarna koma fram eru hár- réttar. Aðalatriðið í þessu er að það sem er á blöðunum er allt rétt,“ bæt- ir Hannes Hólmsteinn við. Á sunnu- dag ritaði hann síðan færslu á blogg- svæði sitt þar sem hann birti myndina sem sýni vel klíkusamfélagið á Íslandi. Hann sagði myndbirtinguna á netinu sárabót fyrir að hafa ekki dreift henni á göngum háskólans. Jóhannes vonast til þess að há- skólarektor sjái að framgana Hannesar sæmi ekki stofnuninni. Hann útilokar ekki að grípa til annarra ráða taki rekt- or ekki hart á málinu. „Mér finnst þetta alveg ótrúlega ósmekklegt. Að vera með þennan óhróður í bloggheim- um er eitt, en að nýta sér opinberan vinnustað til að bera svona lagað út er hámark ósvífninnar. Rektor þarf að taka afstöðu til mögulegrar brottvikn- ingar því þetta er klárlega ekki stofn- uninni til framdráttar. Ég er búinn að fá algjörlega nóg af því hvað þessi op- inberi starfsmaður hefur lagt sig fram við að niðurlægja fjölskyldu mína. Ég er búinn að fá mig fullsaddan,“ segir Jóhannes. Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, hefur fengið fund með rektor Háskóla Íslands þar sem hann hyggst ræða stöðu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar stjórnmálapróf- essors. Hann fullyrðir að prófessorinn hafi dreift óhróðurspésum um son sinn innan háskólans. Sjálfur vísar Hannes þessu á bug. Flugrit Hannesar „Hins vegar tel ég mig alveg hafa haft fullan rétt til að dreifa þessu því þær upplýsingar sem þarna koma fram eru hárréttar.“ TrAusTi HAfsTeinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is fundar með rektor Hannes Hólmsteinn er sagður dreifa óhróðurspésum á göngum Háskóla Íslands en sjálfur segist hann aðeins hafa sýnt nokkrum samkennurum myndina. Alrangt Hannes þvertekur fyrir að hafa dreift myndinni þó svo hann telji sig hafa fullan rétt til þess. ekki hrifinn Jóhannes segist hafa fengið sig fullsaddan á ósmekklegri framgöngu í garð fjölskyldu sinnar. Klíkuskapur í bönkunum Hannes segir myndina eiga erindi við almenning því hún sýni vel íslenskt klíkusamfélag. síðasti séns Frestur Kaupþings til að eignast 87 prósenta hlut í Arion banka renn- ur út í dag, mánudag. Fari svo að Kaupþing eignist hlutinn verður ríkið aðeins aðaleigandi Lands- bankans að því er fram kemur á vef Ríkisútvarpsins en ríkið á nú fimm prósent hlut í Íslandsbanka. Skilanefnd Kaupþings hefur fund- að með kröfuhöfum Kaupþings í London um helgina. Átta spari- sjóðir hafa sótt um stofnfjárfram- lög til ríkisins og ef ríkið verður við því renna þeir eignarhlutar einnig til Bankasýslunnar sem fer með hluti ríkisins í fjármálafyrirtækj- um. Einnig verður athugað hvort Landsbankinn geti orðið hæfur til að fara aftur inn á hlutabréfa- markað og er stefnt að því að ríkið hafi losað um sitt eignarhald á bönkunum eftir fimm ár en þá lýk- ur starfstíma Bankasýslu ríkisins lögum samkvæmt. Par tekið með fíkniefni Karlmaður á fimmtugsaldri og kona á þrítugsaldri voru hand- tekin grunuð um aðild að fíkni- efnainnflutningi eftir húsleit í Grafarvogi fyrir helgi. Hálft kíló af kókaíni og 300 grömm af amf- etamíni fundust við húsleitina. Frá þessu var greint í kvöld- fréttum Stöðvar 2 á sunnudag. Þar kom fram að fólkið hafi verið úrskurðað í gæsluvarðhald fram á miðvikudag. Fíkniefnalögreglan hefur farið í alls fimm húsleitir vegna málsins og fundust einhver fíkniefni í þeim. Kærleikskúla fyrir börnin „Markmið okkar er að gefa fleiri börnum tækifæri á að njóta sumar- og helgardval- ar í Reykjadal,“ segir Berglind Sigurgeirsdóttir, markaðsstjóri Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra, sem nú fyrir jólin selur Kærleikskúluna í sjöunda sinn. Á hverju ári efnir Styrktar- félagið til samstarfs við nýjan listamann um hönnun Kær- leikskúlunnar, en allur ágóði af sölu hennar rennur óskiptur til fatlaðra barna og starfsins í Reykjadal. Í ár er það listamað- urinn Hreinn Friðfinnsson sem skreytir kúluna. Kúlunni er síðan pakkað af starfsmönn- um á vinnustofunni Ás, sem er verndaður vinnustaður. Líkt og síðustu ár verður kúlan seld í takmörkuðu upplagi frá 5. til 19. desember. Línubátur fékk tvö brot á sig Línuveiðibátur lagðist á hlið- ina á sunnudag er hann fékk tvívegis á sig brotsjó austur af Horni. Það var við fyrra brotið sem báturinn lagðist á hliðina og strax eftir að skipstjóra tókst að rétta hann við reið síðara brotið yfir. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Talsverður sjór flæddi niður í vistarverjur skipverja og urðu talsverðar skemmdir á eigum þeirra. Tveir menn slösuðust lítillega og þurftu að leggjast undir læknishendur við kom- una í land.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.