Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Blaðsíða 15
fréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 15 Vefsíðan Wikileaks hefur birt tæplega 600.000 smáskilaboð sem send voru í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001. Talsmaður Wikileaks segir að vissulega sé um tilfinningatengdar upplýs- ingar að ræða en birting skilaboðanna sé liður í óritskoðaðri umfjöllun um atburði þessa örlagaríka dags. Nýbirt smáskilaboð sem sögð eru send að morgni 11. september árið 2001 sýna vel þá örvæntingu sem fólk upplifði þegar það reyndi að ná sambandi við ástvini sína í kjölfar árásanna á Tvíburaturnana í New York og Pentagon. Vefsíð- an Wikileaks, sem gefur sig út fyr- ir að birta upplýsingar sem aðrir hafa lekið, hefur birt hátt í 600.000 skilaboð sem varpa ljósi á þá ör- væntingu, hrylling og sársauka sem fólk upplifði í hryðjuverka- árásunum á Bandaríkin þennan örlagaríka morgun. Á vefsíðunni er einnig að finna skilaboð sem send voru vegna flugvélarinnar sem brotlenti í Pennsylvaníu þann sama dag. Alls létust 2.976 manns í árás- unum auk hryðjuverkamannanna, nítján að tölu. Ótti við frekari árásir Skilaboðin sýna bæði örvæntingu þeirra sem upplifðu hina ógnvæn- legu atburði á þeim stöðum, og við þá, sem voru skotmörk hryðju- verkamannanna og hinna sem voru fjarri og reyndu að ná sam- bandi við ástvini og ættingja. Það er til merkis um þann ótta fólks, sem varð vitni að hörmung- unum, að frekari hryðjuverkaárás- ir væru yfirvofandi og að það kynni að láta lífið ef það hafði samband við ástvini sína til öryggis. Wikileaks birtir einnig skilaboð embættismanna sem sýna að við- komandi reyndu af fremsta megni að skilja hvað í raun og veru var að gerast. Skilaboðin sannreynd Samkvæmt upplýsingum frá Wik- ileaks hefur einhver hluti smá- skilaboðanna verið kannaður og enginn vafi leikur á því að um raunveruleg skilaboð er að ræða. Talsmaður síðunnar sagði í við- tali við CNN að með birtingu skila- boðanna hjálpi Wikileaks til við að viðhalda óritskoðaðri umfjöllun um atburði 11. september 2001, með meiri smáatriðum en hingað til hefur tíðkast. „Ég skil fyllilega að þetta er mjög tilfinningatengt efni en það merkir ekki að það sé ekki hluti skráðrar sögu okkar,“ sagði Daniel Schmitt, talsmaður Wikileaks, en vefsíðan hefur ekki viljað upplýsa uppruna upplýsinganna, hvort um væri að ræða heimildarmann innan ríkisstjórnarinnar, löggæsl- unnar eða almennan borgara með kunnáttu og tækjakost til að kom- ast inn í skeytasendingar. Misvísandi skilaboð og orðrómur Eins og gefur að skilja er í þessum mikla fjölda skilaboða að finna misvísandi fréttir og hreinan orðr- óm. Fólk sendi áfram fregnir af frekari árásum og reyndust sumar á rökum reistar en aðrar orðróm- ur einn. Sögusagnir lifðu góðu lífi og bárust hratt út: „Flugvél sem hefur verið rænt hringsólar yfir Dulles-flugvelli. Hringdu!“ „Óstaðfestar fregnir af flugslysi við Camp David núna.“ „Held að einni vél í viðbót hafi hugsanlega verið rænt og stefnt að þinghúsinu ...ekki viss.“ Skeytin sýna svo ekki verður um villst þá óvissu sem ríkti í kjöl- far árásanna á Tvíburaturnana, og varnarmálaráðuneytið, og þann ótta sem ríkti vegna óvissu um hvort frekari árásir yrðu gerðar á Bandaríkin. Eldsvoði og sprenging Klukkan 8.46 að morgni 11. sept- ember var fyrri flugvélinni flogið á Tvíburaturnana og fimm mín- útum síðar fóru skeytin að ber- ast en vegna óvissu um hvað ætti sér stað var talað um eldsvoða í turninum og í öðru skeyti var talað um sprengingu og viðtak- andi skeytisins beðinn að meta skaðann. Mínútu síðar bárust fregnir frá fyrstu hendi. „World Trade Center er sprungið, við sáum sprenging- arnar fyrir utan gluggann okkar. Teresa ...“ Rétt fyrir klukkan níu að morgni, eða 8.53, var sent skeyti frá aðgerðardeild New York-lög- reglunnar þar sem lögreglumenn voru boðaðir að Tvíburaturnun- um og kl. 9.03 var síðari flugvél- inni flogið á hinn turninn. Ást, ótti, söknuður „Hugsanir mínar snúast eingöngu um Nicholas, Ian og þig. Ég er dauðskelfd. Ég þurfti að segja þér að ég elska þig sannarlega. að ei- lífu, Diane,“ segir í einum SMS- skilaboðunum. Í öðru skeyti, sem var sent einni mínútu síðar, segir: „Ég þarfnast þess að halda utan um þig núna.“ „Ég veit að þú ert í nýju sam- bandi og hugsar ekki um mig. En skyldi eitthvað gerast máttu vita að ég elska þig, ástin. Saknaði þín, bless.“ „Þetta er skipulögð árás ... annarri flugvél var rétt í þessu flogið á hinn turninn,“ sagði í skilaboðum 52 sekúndum síðar. Klukkan 9.25 jókst tíðni skeytasendinga almennings auk þess sem þau einkenndust af sí- fellt meiri skelfingu. Fyrirtæki byrjuðu að senda skilaboð og báðu um talningu alls starfsfólks og fólk deildi fregnum og frásögnum sem það heyrði eða sá í sjónvarpi, þeirra á meðal frásögnum af fólki sem henti sér ofan úr turnunum. Álagið á símkerfinu var svo mikið að fjölskyldum gekk erfið- legar en ella að afla upplýsinga um afdrif ástvina. KolbEinn þorStEinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Einn þeirra lánsömu Álagið á símkerfið gerði mörgum erfitt um vik að láta vita af afdrifum sínum. Eðli málsins samkvæmt einkenndust mörg skilaboðin af fullkominni óvissu um afdrif ættingja eða ástvina. 9.25.40: „Hringdu í mig í vinnuna um leið og þú kemur á skrifstofuna. Verð að vita hvort þú sért heill á húfi.“ 9.29.38: „Veit ekki hvar þú ert. Er í lagi með þig? Hringdu eins fljótt og þú getur. Ég verð að fá að vita þetta. Þó það sé kollekt. Hringdu, Darryl.“ 11.32.56: „Ef ég hef ekkert heyrt frá þér á hádegi, þá fer ég í skólann og næ í Láru og segi henni að pabbi hennar sé dáinn.“ Sum skeytin voru stutt og gagnorð en önnur löng og ítarleg. Einn sendandi skrifaði: „Ástin, vildi segja þér hve mikið ég elska þig. Ég hafði smá áhyggjur. Ég vil ekki glata þér nú þegar ég hef fengið þig aftur. Þú ert mér allt. Þú átt hjarta mitt óskipt og líf. Ég elska þig svo mikið.“ Sumar orðsendingarnar innihéldu góðar fréttir: „Pabbi lifði af! Vinnufélagi stjúpu hringdi í mig og sagði mér að pabbi væri á lífi en það er allt sem ég veit. Ég veit ekki hvort hann er slasaður eða ekki,“ „Pabbi Abroer er á lífi,“ segir í einu skeytinu, „lifði af hrun WTC. Ég er að reyna að ná sambandi við fjölskylduna til að frétta meira.“ „Áríðandi. Þetta er Tim. Hringdu í mig heim ... ég var fyrir utan bygginguna þegar sprengingin varð, en ég er í lagi.“ „Pete er í lagi. Hann getur ekki fundið bróður sinn sem vinnur í fjármálamið- stöðinni við hliðina á WTC ...“ Fjöldi skeyta er í styttri kantinum en örvæntingin engu minni: „Ertu heill á húfi?“ „Hvar ertu?“ „HRINGDU Í MIG NÚNA!“ Klukkan 10.24 var sent skeyti sem virðist sýna að yfirvöld væru að vinna að því að tryggja forsetafjölskylduna. „VITAÐ ER UM TWINKLE OG TURQ OG ÞÆR ERU ÖRUGGAR,“ segir í einu skeyti, en Twinkle og Turquoise voru dulnefni Jennu og Barböru, tvíburadætra þáverandi forseta Bandaríkjanna, Georges W. Bush. Klukkan 10.32 var sent skeyti á vegum Öryggisþjónustunnar (e. Secret Service) sem sér um öryggi forsetafjölskyldunnar. Í skeytinu segir: „NAFNLAUS SÍMHRINGING TIL JOC SAGT AÐ ANGEL SÉ SKOTMARK.“ Skilaboðin vísa til hringingar til miðstöðvar hernaðaraðgerða þar sem komið var á framfæri hótun um árás á flugvél Bandaríkjaforseta, Air Force One, sem gekk undir dulnefninu Angel (Engill). Skilaboð örvæntingar og ótta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.