Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Blaðsíða 14
14 mánudagur 30. nóvember 2009 fréttir Klúðruðu tækifærinu Samkvæmt skýrslu frá milliríkja- nefnd öldungadeildar Banda- ríkjanna var Osama bin Laden nánast í greipum bandarískra hermanna í fjöllum Tora Bora í Afganistan í desember 2000, en sú ákvörðun var tekin af hernaðaryf- irvöldum að draga í land í aðgerð- um til að hafa hendur í hári hans. Sú ákvörðun hefur haft víð- tækar afleiðingar en talið er að Osama bin Laden hafi aldrei verið jafn berskjaldaður og þá, en hann notaði tækifærið og komst ósnert- ur inn í afskekkt svæði Pakistan. Skýrslan fer ekki mjúkum höndum um embættismenn í ríkisstjórn fyrrverandi forseta, George W. Bush, eða yfirmenn hersins á þeim tíma. Borisovka brandí Íbúar búlgarska þorpsins Kap- atovo hafa nefnt heimagerða brandíið sitt í höfuð forsæt- isráðherra landsins, Boyko Borisov. Þannig vilja þeir sýna forsætisráðherranum þakklæti sitt, en hann kom í veg fyrir að þing landsins hækkaði álögur á áfengi. Í síðasta mánuði féll ríkis- stjórnin frá fyrirætlunum um hækkun skatta á áfengi vegna reiði almennings sem áleit að hækkunin myndi ógna aldagam- alli hefð fyrir víngerð í landinu. En fjárlaganefnd þingsins lagði síðar til hækkun sem taka átti gildi á næsta ári og átti að samþykkja hækkunina í síðustu viku. Þá lét forsætisráðherrann til sín taka og fór þess á leit að fyrirætlununum yrði kastað fyrir róða og var það gert. Banvæn björgunaraðstoð Karlmaður sem ók út í kant á I- 440 Beltline milliríkjabrúnni í Ral- eigh í Norður-Karólínu í Banda- ríkjunum lést um helgina þegar hann féll á milli brúnna sem liggja hvor í sína áttina. Hinn miskunn- sami Samverji var 33 ára og sam- kvæmt lögregluskýrslu stöðvaði hann för sína til að aðstoða fólk sem lent hafði í árekstri. Ekki tókst betur til en svo að til að forðast aðvífandi bifreiðar sem reyndu að beygja til hliðar þá stökk maðurinn yfir steyptan kant, en þar var ekkert nema tóm- ið eitt og féll maðurinn til bana. Árið 2005 dó karlmaður með svipuðum hætti þegar hann hugðist aðstoða fórnarlömb áreksturs. Barack Obama Bandaríkjaforseti er nú harðlega gagnrýndur fyrir að setja ein- staklinga, sem lögðu hundruð milljóna til kosningabarátta hans, í eftirsóknar- verðar sendiherrastöður. Stöðurnar sem um ræðir geta hvort heldur sem er verið á litlum eyríkjum í Karíbahafinu eða í löndum á borð við Bretland og Frakkland sem eru öflugir bandamenn Bandaríkjanna. Stöðuveit- ingarnar hafa reitt til reiði fjöldann all- an af sendifulltrúum Bandaríkjanna. Það hefur löngum verið tíðkað í Bandaríkjunum að skipa örláta stuðn- ingsmenn í umrædd embætti í stað at- vinnumanna úr utanríkisráðuneytinu, en margir höfðu bundið við það vonir að Barack Obama myndi draga úr veit- ingu slíkra bitlinga. Sú hefur ekki orðið raunin og síð- an Obama tók við embætti hefur hann skipað í um áttatíu sendiherrastöður og í 56 prósentum hefur verið um að ræða pólitíska stöðuveitingu. Sumir stuðningsmanna Baracks Obama hafa fengið stöður í Evrópu- löndum sem verða að teljast feitir bitar í samanburði við önnur. Nýr sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi er Louis Susman sem safnaði yfir 500.000 dölum fyrir Obama. Svipað er uppi á teningnum í Frakklandi því nýr sendiherra þar er Charles Rivkin, fyrrverandi framkvæmdastjóri sjón- varpsstöðvar, en hann safnaði 800.000 dölum. Þjóðverjar fengu Philip Murphy, fyrrverandi fjármálastjóra, sem hefur gefið 1,9 milljónir dala til flokksins síð- an 1989. Aðrir velgjörðarmenn Obama hafa fengið stöður í löndum sem ekki eru eins mikilvæg út frá pólitísku sjónar- miði. En hugsanlega er hægt að setja verðmiða á nokkur ár í sólarparadís. Nýr sendiherra Bandaríkjanna á Bah- ama-eyjum er Nicole Avant, en hún safnaði að minnsta kosti 800.000 döl- um fyrir Barack Obama í kosninga- slagnum um forsetastólinn. Barack Obama gagnrýndur fyrir skipanir í embætti sendiherra: Obama launar greiðann Góður við vini sína Barack Obama gleymir ekki þeim sem gera vel við hann. Svissneskir kjósendur hafa sagt hug sinn varðandi bænaturna múslíma. Tillaga um bann við byggingu bæna- turna sem lögð var undir þjóðar- atkvæði hlaut stuðning meirihluta kjósenda. Yfir 57 prósent kjósenda, og tut- tugu og tvær kantónur af 26, greiddu atkvæði með banninu en tillagan var lögð fram af hægriöfgaflokknum SVP, svissneska þjóðarflokknum. Að mati flokksins, sem er stærsti þing- flokkurinn, eru bænaturnar merki um íslamsvæðingu. Ríkisstjórnin er andvíg bann- inu sem stjórnarliðar segja að muni skaða ímynd Sviss í alþjóðasamfé- laginu, en þó einkum og sér í lagi í heimi múslíma. Stuðningur við umrætt bann er síðasta aðgerð evrópskra kjósenda til stuðnings flokkum sem andvíg- ir eru innflytjendum og hagsmun- um þeirra og koma í kjölfar árangurs hægriöfgaflokka í Austurríki, Hol- landi og Frakklandi í kosningum síð- astliðinn áratug. Lítil þátttaka Þátttaka var reyndar aðeins 53 pró- sent og telst það ekki mikil þátttaka í svissnesku lýðræði. Andstæðingar tillögunnar líta þannig á að hin litla þátttaka endurspegli lítinn áhuga hjá fjölda kjósenda sem ekki hefðu samþykkt bannið. Ríkisstjórn landsins, fjármálageiri þess og flestar kirkjur höfðu hvatt landsmenn til að hafna tillögu SVP- flokksins, tillögu sem sögð er ganga í bága við stjórnarskrá landsins og það trúfrelsi sem hún tryggir. Höfðu mannréttindasamtökin Amnesty International varað við því áður en gengið var til kosninga um bannið. Að sögn ríkisstjórnarinnar myndi bann við byggingu bænaturna í svissnesku stjórnarskránni einungis þjóna „hagsmunum öfgahópa“. Fjórir bænaturnar fyrir 400.000 Dómsmálaráðherra landsins, Evel- ine Widmer-Schlumpf, sagði niður- stöðuna endurspegla ótta við bók- stafstrú íslams og þær áhyggjur yrði að „taka alvarlega“. Dómsmálaráðherrann reyndi þó að hughreysta svissneska múslíma og sagði að ákvörðunin væri ekki „höfnun gagnvart samfélagi mús- líma, trú þeirra eða menningu“. Í Sviss búa um 400.000 múslím- ar og hafa þeir aðgang að fjórum bænaturnum. Bænaturnar eru not- aðir til að kalla rétttrúaða múslíma til bæna fimm sinnum á dag. Þrátt fyrir að íslamstrú sé næst- útbreiddasta trúin í Sviss, á eftir kristni, fer lítið fyrir henni. Í Sviss er að finna óopinber bænaherbergi fyrir múslíma, og umsóknum um nýja bænaturna er nánast undan- tekningarlítið hafnað. Líf í ótta Tamir Hadjipolu, forseti sambands múslíma í Zürich, sagði í viðtali við BBC að ef bannið kæmi til fram- kvæmda myndi það sveipa samfélag múslíma í Sviss ótta. Stuðningsfólk bannsins full- yrðir að bænaturnar yrðu tákn um að hugmyndafræði íslamstrúar og sjaríalögum hefði vaxið fiskur um hrygg. Að annarra mati hvatti herferð- in fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni til haturs, en fyrir helgi voru unn- ar skemmdir í mosku í Genf í þriðja sinn á meðan á herferðinni stóð. Hin síðari ár hafa margar þjóðir í Evrópu tekið upp umræðu um sam- skipti þeirra við íslam og hvernig best yrði staðið að því að fella niður aðgreiningu múslíma í löndunum. Svisslendingum hugnast ekki að leyfð verði bygging bænaturna í landinu. Tillaga um bann við því var lögð undir þjóðaratkvæði og samþykkt með drjúgum meirihluta. Bann við byggingu bænaturns er talið ganga gegn ákvæðum stjórnarskrár landsins. Bann við Bænaturnum DV0911292067 DV0911297045 KOLBeinn þOrsteinssOn blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Dómsmálaráðherrann reyndi þó að hughreysta svissneska múslíma og sagði að ákvörðunin væri ekki „höfnun gagnvart samfélagi múslíma, trú þeirra eða menningu“. Bænaturn á Mahmud-moskunni í Zürich Tákn um íslamsvæðingu að mati svissneska þjóðarflokksins, SVP. Myndir AFP Auglýsing sVP, svissneska þjóð- arflokksins Hvatt til stuðnings við banni gegn bænaturnum múslíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.