Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Blaðsíða 24
Walesverjinn Ryan Giggs varð 36
ára í gær en hann er á sínu nítj-
ánda tímabili með Manchest-
er United og er sá eini af öllum í
deildinni sem hefur leikið á öllum
tímabilum úrvalsdeildarinnar síð-
an hún var stofnuð. Það sem meira
er þá hefur hann skorað á hverju
einasta tímabili. Leikirnir alls fyr-
ir Manchester United eru orðnir
819 og mörkin 151 en á laugardag-
inn skoraði hann sitt hundrað-
asta mark fyrir United í deildinni,
beint úr aukaspyrnu í 4-1 sigri á
Portsmouth. Hann hafði áður fisk-
að vítaspyrnu sem kom United í
þægilega, 3-1, stöðu. Hann er fyrir
löngu orðin knattspyrnugoðsögn
á Englandi og hlýtur spurningin
að vera: Hversu lengi getur hann
haldið áfram?
Jóga og leiðindi lykillinn
Þó Giggs hafi misst hraðann sem
einkenndi hann svo hér áður er
hann engu síður mikilvægari fyrir
United. Hann gerði það sem allir
þeir bestu gera. Breytti leikstíl sín-
um og í dag notar hann höfuðið og
reynsluna meira en nokkru sinni
fyrr. Það er ekki að ástæðulausu að
hann var loks kjörinn besti leik-
maður úrvalsdeildarinnar í byrjun
síðasta árs, á þrítugasta og sjötta
aldursári.
Ferill Giggs var ekki beint
í hættu um aldamótin en það
stefndi ekki í að hann gæti hald-
ið áfram eins lengi og hann hef-
ur gert, hvað þá með sömu gæð-
um. Bakið var farið að trufla hann
mikið og átti Giggs mjög erfitt með
að ná sér á milli leikja. Það var þá
sem hann prófaði jóga. Jógað og
Giggs náðu strax saman og er það
stór ástæða þess að hann er enn
á ferðinni. Fyrir utan það auðvit-
að hversu ævintýralega vel hann
sér um sjálfan sig. Jógað hefur gert
Giggs svo gott að ungir leikmenn
í akademíu Manchester United
hefja hvern skóladag á jógatíma
sem er skylda.
Leiðindin hafa einnig haft mik-
ið að segja hjá Giggs eins og hann
lýsti sjálfur eftir sigurinn gegn
Portsmouth. „Eitt sinn gat ég leyft
mér að fara í bæinn eftir æfingar
að versla eða hitta vini mína. Það
get ég samt ekki lengur. Nú þarf
ég einn til tvo daga til að jafna mig
eftir leiki og slaka þá bara á fyrir
framan sjónvarpið. Þetta er frek-
ar leiðinlegt líf en ég verð að gera
þetta til að halda líkamanum í
lagi,“ sagði Giggs.
Lofsöngur
Wayne Rooney er óneitanlega
skærasta stjarna Manchester Un-
ited í dag. Hann, eins og allir
aðrir, líta þó upp til Giggs
fyrir allt það sem hann
hefur afrekað. „Ég hef
alltaf sagt að ég vilji
enda feril minn
hjá United. Ef ég
kemst nálægt því
að afreka jafn-
mikið og Ryan
yrði það frábært.
Ég lít á hann sem
hina fullkomnu
fyrirmynd,“ sagði
Rooney eftir leik-
inn og bætti við:
„Það er ekki ann-
að hægt en að bera
mikla virðingu fyr-
ir honum hvernig
hann kemur fram.
Það sem hann hef-
ur gert og unnið
er ótrúlegt. það er
einfaldlega þannig
að það líta allir
upp til hans,“ sagði
Rooney,
Sir Alex
Ferguson sat
upp í stúku á
Fratton Park um
helgina vegna
leikbanns og sá
Giggs, leikmann-
inn sem hann fann
og ræktaði, ná enn ein-
um áfanganum. „Hann
er stórkostlegur leik-
maður, alveg einstakur,“
sagði Ferguson sem hef-
ur síðustu ár ausið lofið
yfir Giggs, eitthvað sem
hann gerði ekki lengi
framan af til þess að
halda honum á tán-
um. „Til hamingju
með afmælið. Hann
hefur átt 36
afmælisdaga
hingað til, bíð-
ið þar til hann
verður 67 ára.
Ég býst við að
hann verði
hættur þá,“
sagði Fergu-
son kíminn
um eilífa af-
mælisbarnið,
Ryan Giggs.
24 mánudagur 30. nóvember 2009
Chelsea áfram á toppnum Chelsea heldur enn fimm stiga forskoti á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa farið illa með Arsenal, 3-0, á Emirates-velli þeirra
síðarnefndu. Ekkert lát er á velgengni Didiers Drogba sem skoraði tvö mörk í leiknum, rétt
fyrir lok fyrri og seinni hálfleiks. Það var þó sjálfsmark miðvarðarins Thomasar Vermae-
len sem fór með Arsenal-menn en það kom Chelsea í 2-0 rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.
Arsenal bætti í sóknina í síðari hálfleik en tókst ekki að skora. Arsenal missti því af
tækifærinu að jafna Manchester United að stigum en það á enn leik til góða og
getur með sigri þokast upp töfluna.
UMsjón: TóMAs Þór ÞórðArson, tomas@dv.is
Enska úrvalsdEildin
portsmouth - man. unitEd 1-4
0-1 Wayne Rooney (25. víti), 1-1 Kevin-Prince Boateng (32. víti),
1-2 Wayne Rooney (48.), 1-3 Wayne Rooney (54. víti), 1-4 Ryan
Giggs (87.).
Wigan - sundErland 1-0
1-0 Hugo Rodallega (76.).
WEst ham - BurnlEy 5-3
1-0 Jack Collison (18.), 2-0 Junior Stanislas (33.), 3-0 Carlton
Cole (43. víti), 4-0 Guillermo Franco (52.), 5-0 Luis Jimenez (64.
víti), 5-1 Steven Fletcher (8.), 5-2 Steven Fletcher (74.), 5-3 Chris
Eagles (90.).
n Steven Caldwell, Burnley (90.)
man. city - hull 1-1
1-0 Shaun Wright-Phillips (45.), 1-1 Jimmy Bullard (82. víti).
Bolton - stokE 0-0
fulham - Bolton 1-1
0-1 Ivan Klasnic (35.), 1-1 Damien Duff (74.).
aston villa - tottEnham 1-1
1-0 Gabriel Agbonlahor (10.), 1-1 Michael Dawson (77.).
úlfarnir - Birmingham 0-1
0-1 Lee Bowyer (3.)
EvErton - livErpool 0-2
0-1 Joseph Yobo (12.), 0-2 Dirk Kuyt (80.).
arsEnal - chElsEa 0-3
0-1 Didier Drogba (41.), 0-2 Thomas Vermaelen (45. sm), 0-3
Didier Drogba (86.).
staðan
Lið L U J T M St
1. Chelsea 14 12 0 2 36:8 36
2. Man.Utd. 14 10 1 3 30:13 31
3. Tottenham 14 8 2 4 33:19 26
4. Arsenal 13 8 1 4 36:18 25
5. Liverpool 14 7 2 5 31:20 23
6. Aston Villa 14 6 5 3 22:14 23
7. Man.City 13 5 7 1 24:17 22
8. sunderland 14 6 2 6 21:20 20
9. stoke 14 5 5 4 13:15 20
10. Fulham 14 5 4 5 18:16 19
11. Birmingham 14 5 3 6 12:14 18
12. Burnley 14 5 2 7 19:31 17
13. Blackburn 14 5 2 7 16:28 17
14. Wigan 14 5 2 7 15:31 17
15. Hull 15 4 4 7 17:31 16
16. Everton 14 4 3 7 17:25 15
17. West Ham 14 3 5 6 24:26 14
18. Bolton 13 3 3 7 16:27 12
19. Wolves 14 2 4 8 12:27 10
20. Portsmouth 14 2 1 11 11:23 7
championship
Bristol - shEff. unitEd 2-3
c. palacE - Watford 3-0
Heiðar Helguson var í byrjunarliði Watford.
dErBy - rEading 2-1
Gylfi Sigurðsson og Ívar Ingimarsson voru í byrjunarliði Reading.
nEWcastlE - sWansEa 3-0
nott. forEst - doncastEr 4-1
pEtErBorough - m. Boro 2-2
plymouth - BarnslEy 1-4
Leik hætt eftir 60 mínútur vegna rigningar. Emil Hallfreðsson
var í byrjunarliði Barnsley og skoraði. Kári Árnason var ekki í hóp
hjá Plymouth.
Qpr - covEntry 2-2
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry.
scunthorpE - lEicEstEr 1-1
shEff. WEd - WBa 0-4
cardiff - ipsWich 1-2
staðan
Lið L U J T M St
1. newcastle 18 12 3 3 29:10 39
2. W.B.A. 18 11 4 3 39:15 37
3. Leicester 18 8 7 3 21:15 31
4. nott.Forest 18 7 8 3 23:17 29
5. Q.P.r. 18 7 7 4 31:21 28
6. swansea 18 7 7 4 15:15 28
7. Cardiff 18 8 3 7 34:22 27
8. Blackpool 17 7 6 4 27:19 27
9. Watford 18 7 6 5 27:29 27
10. Middlesbro 18 7 5 6 25:20 26
11. C.Palace 18 6 8 4 20:18 26
12. Bristol City 18 6 8 4 22:22 26
13. Preston 17 6 6 5 23:23 24
14. sheff.Utd. 18 6 6 6 29:30 24
15. Barnsley 17 6 3 8 21:28 21
16. Derby 18 6 2 10 21:29 20
17. Coventry 18 4 7 7 21:28 19
18. Doncaster 18 3 9 6 22:26 18
19. sheff.Wed. 18 4 6 8 23:29 18
20. scunthorpe 18 5 3 10 21:36 18
21. reading 18 4 5 9 18:28 17
23. Ipswich 18 2 10 6 19:29 16
22. Plymouth 17 4 3 10 16:28 15
24. Peterbro 18 2 6 10 2 1:31 12
Ryan Giggs hélt upp á afmælið sitt með stæl
um helgina. Hann varð 36 ára í gær en á laug-
ardaginn gaf hann sér snemmbúna afmælis-
gjöf. Giggs átti góðan leik, fiskaði víti og skor-
aði sitt hundraðasta mark fyrir Manchester
United í deildinni. Jóga
hefur haldið lífi í goðsögninni
á Old Trafford
síðustu árin.
EILÍFA TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSONblaðamaður skrifar: tomas@dv.is
GOÐSöGN ryan Giggs
skoraði sitt hundraðasta
mark fyrir Man. United
daginn fyrir 36 ára
afmælið.
EILÍFA
undrA-
bArnIð
1991 Giggs ungur á ferð og
flugi gegn Crystal Palace.
2001 Enn fljótur
og teknískur um
aldamótin.
Draumamark Giggs kom
Man. United í úrslitaleik
bikarsins 1999 með einu
fallegasta marki sem skorað
hefur verið á Bretlandseyjum
og þó víðar væri leitað.
2008 nýtt hlutverk í seinni tíð.
Kominn meira inn á miðjuna og
nýtir kollinn meira en hraðann.
leIKmaÐurInn
ensKI BoltInn