Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Side 11
fréttir 30. nóvember 2009 mánudagur 11
Tekin var ákvörðun um það á ein-
um og sama stjórnarfundinum
í eignarhaldsfélaginu Svartháfi
í fyrra að sækja um tæplega 200
milljóna evra lán frá Glitni, eða
sem nemur rúmum 35 milljörðum
króna á núverandi gengi, og end-
urlána það svo aftur til félaga í eigu
Karls og Steingríms Wernerssona.
Lánið sem Svartháfur endur-
lánaði strax aftur til eignarhalds-
félaga í þeirra eigu var svo notað
til að greiða hluta skuldar við fjár-
festingabankann Morgan Stanley
upp á 300 milljónir evra, sem nem-
ur um 55 milljörðum króna á nú-
verandi gengi. Morgan Stanley var
einn helsti erlendi lánveitandi Mil-
estone og fjármagnaði hluta útrás-
ar fyrirtækisins til annarra landa.
Svartháfur, sem var í eigu föður
þeirra bræðra, Werners Rasmus-
sonar, er einn af stærri skuldurum
Glitnis með skuldir upp á um 45
milljarða króna og er ljóst að skila-
nefnd Glitnis þarf að afskrifa drjúg-
an hluta þeirrar fjárhæðar. Glitn-
ir veitti Svartháfi lánið í ársbyrjun
2008 en nákvæm dagsetning er
ekki þekkt.
Sótt um lán og endurlánað
Heimildir DV herma að á stjórn-
arfundinum í Svartháfi, sem hald-
inn var í höfuðstöðvum Milestone
á Suðurlandsbraut 12, hafi verið
gerður lánasamningur við Glitni
sem nam um 200 milljónum evra.
Einnig var ákveðið að lána ætti tæp-
lega 140 milljónir evra til sænska
félagsins Racon Holding AB, sem
var dótturfélag Milestone og lán-
takandi Morgan Stanley. Veðið fyr-
ir láni Svartháfs til Racon Holding
AB var í hlutabréfum í sænska fjár-
málafyrirtækinu Invik & Co., síðar
Moderna AB. Racon notaði lánið
svo til að borga Morgan Stanley.
Jafnframt var ákveðið á stjórn-
arfundinum að lána 50 milljónir
evra til félags sem heitir Vafning-
ur ehf., sem einnig var
í eigu þeirra bræðra og
til húsa á Suðurlands-
braut 12. Ekki er vitað
til að aðrir stjórnar-
fundir hafi verið haldn-
ir í Svartháfi.
Lán upp í skuld
Milestone
Veðið fyrir láninu frá
Glitni til Svartháfs var
í eignarhaldsfélaginu
Moderna AB en eignir
Milestone voru seld-
ar inn í það félag um
áramótin 2007-2008.
Glitnir hefur nú leyst
til sín eignir Mod-
erna, meðal annars
Sjóvá og Askar Capi-
tal, og fékk bank-
inn þar eitthvað upp
í kröfuna á hendur
Svartháfi en ljóst er
að afskrifa þarf stóran hluta henn-
ar.
Milestone stofnaði til lánsins,
sem Racon borgaði síðar upp með
láninu frá Svartháfi, við Morgan
Stanley sumarið 2007 og var það
notað til að festa kaup á sænska
fjármálafyrirtækinu Invik & Co,
sem síðar var endurskírt Moderna
Finance AB.
Lánið frá Glitni sem rann inn í
Svartháf var því notað til að standa
við skuldbindingar sem Milestone
stofnaði til fyrir hönd dótturfélags
síns.
Leppurinn Svartháfur
Á þessum tíma, í ársbyrjun 2008, er
líklegt að Morgan Stanley hafi ver-
ið orðinn órólegur um að lán Rac-
on fengist ekki greitt og að þeir hafi
ekki viljað endurnýja lánasamning-
inn. Ástæðan kann meðal annars
að hafa verið sú að þá þegar voru
blikur á lofti um að mikil lægð væri
yfirvofandi í íslensku efnahags-
lífi og má áætla að Morgan Stan-
ley hafi því kippt að sér höndum.
Milestone hefur því hugsanlega
átt í erfiðleikum með að standa í
skilum við Morgan Stanley, önnur
fjármálafyrirtæki hafa ekki viljað
lána þeim og því hafi þeir orðið að
verða sér úti um lán með einhverj-
um hætti.
Heimildir DV renna því stoð-
um undir þá kenningu að eini til-
gangurinn með stofnun Svartháfs
hafi verið að leppa lánveitingu frá
Glitni, sem síðar rann til félaga
Wernerssona sjálfra. Ástæðan fyr-
ir Svartháfssnúningnum var sú að
félög í beinni eigu þeirra bræðra
máttu ekki fá meira lánað hjá Glitni
samkvæmt reglum sem Fjármála-
eftirlitið hefur sett um hámarks-
lánveitingar til einstakra aðila.
Ástæðan fyrir þessum reglum er til
að lágmarka áhættu bankans: Ekki
er heppilegt fyrir banka að eiga of
miklar útistandandi skuldir við
einstaka fyrirtækjasamstæðunnar.
Ekki er vitað hver það var innan
Glitnis sem tók ákvörðunina um að
veita Svartháfi þetta lán en líkt og
gildir í fjármálafyrirtækjum með
svo háar lánveitingar en lána- og
áhættunefndir fjármálafyrirtækja
taka yfirleitt ákvarðanir um svo
háar lánveitingar.
Á hluthafafundi Svartháfs í höfuðstöðvum Milestone var ákveðið
að sækja um lán frá Glitni og endurlána það strax aftur. Leppur-
inn Svartháfur var líklega stofnaður til að fara framhjá reglum
Fjármálaeftirlitsins um hámark lánveitinga til einstakra aðila.
IngI F. VILhjáLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
LEPPUR BORGAÐI
SKULD MILESTONE
2 miðvikudagur 14. október 2009
fréttir
Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af 45 milljarða króna skuld eignarhalds-
félagsins Svartháfs við bankann, sam-
kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á hendur Svartháfi nam 45 milljörðum
króna í sumar en samkvæmt heimild-
um DV var hún gerð upp í lok sum-
ars. Líklegast er að krafan hafi verið
gerð upp með miklum afföllum fyrir
bankann.
Skuld Svartháfs er meðal ann-
ars tilkomin vegna þess að félagið,
sem er í eigu Werners Rasmusson,
föður Karls og Steingríms Werners-
sona, fyrrverandi eigenda eignar-
haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá
Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna
til að lána eignarhaldsfélagi í eigu
bræðranna fyrir skuld við fjárfest-
ingabankann J.P. Morgan.
Svartháfur hét áður ELL 150 og
Gleypnir og var stofnað af Erlendi Gíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá
lögmannsstofunni Logos í janúar
árið 2008, samkvæmt stofnskjölum
félagsins. Svartháfur er skráður til
heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og
flest önnur eignarhaldsfélög þeirra bræðra, en lögheimili þess var skráð
í Jötunssölum 2, heimili Werners föð-
ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegar
lögheimilið var fært á Suðurlands-
brautina. Svartháfur hefur ekki skilað
ársreikningi fyrir árið 2008.
Nafnabreytingar í ársbyrjun
Í febrúar 2008 voru Werner Rassmus-
son og kona hans Kristín Sigurðar-
dóttir kjörin í stjórn og varastjórn
félagsins. Nafni félagsins var á sama
tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur.
Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um
breytinguna á stjórninni er hins veg-
ar strikað yfir nafnið Gleypnir með
penna og nafnið Svartháfur sett í
staðinn, eins og félagið hafi átt að
heita Gleypnir en að svo hafi því ver-
ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-
ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-
sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í
fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-
irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóri
Milestone, Jóhannes Sigurðsson,
skrifaði undir ásamt Werner Rasm-
usson. Tengsl Svartháfs og Milestone
eru því nokkur þó eigendurnir hafi
ekki verið þeir sömu.
45 milljarða skuld Svartháfs stend-
ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarða
króna skuld sem Milestone skilur eft-
ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggja
félaga og dótturfélaga þeirra við Glitni
nema því nærri 90 milljörðum króna.
Heildarskuldir Milestone nema
tæpum 80 milljörðum króna og var
gert ráð fyrir því í nauðasamningum félagsins, sem hefur verið hafnað, að
kröfuhafarnir fengju um 6 prósent
upp í kröfur sínar en eignir félags-
ins voru einungis metnar á um fimm
milljarða. Því má reikna með að feðg-
arnir, Werner, Steingrímur og Karl,
eigi ekki til þær upphæðir persónu-
lega sem til þarf til að greiða skuldir
Svartháfs, enda er ekki vitað til þess
að einhver þeirra sé í persónulegum
ábyrgðum vegna skuldanna.
Greiddu niður lán til J.P. Morgan
Skuldir Svartháfs við Glitni eru með-
al annars tilkomnar vegna þess að skömmu eftir að félagið tók upp
nafnið Svartháfur í febrúar í fyrra
tók félagið lán frá Glitni upp á um 20
milljarða króna til að greiða lán Rac-
on Holdings II, sem eignarhaldsfélag
Karls og Steingríms, Milestone, réð í
gegnum annað eignarhaldsfélag sitt,
Þátt, við fjárfestingarbankann J.P.
Morgan.
Lán Racon hjá J.P. Morgan var
tilkomið út af kaupum Racon á fé-
lagi sem hét Innvik, sem síðar var
endurskírt Moderna Finance AB. Á
þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-
ar orðinn órólegur um að lán Racon
fengist ekki greitt og vildu ekki end-
urnýja lánasamninginn þegar hann
gjaldféll, ástæðan var meðal annars að þá þegar voru blikur á lofti í ís-
lensku efnahagslífi og kippti bank-
inn því að sér höndum með því að
neita að endurnýja lánasamninginn.
Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem var
í eigu Kristins Björnssonar og Magn-
úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-
iðleikum í árslok 2007 og eru þeir fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-
ir marka upphaf íslenska efnahags-
hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-
on, Karl og Steingrímur, að finna
aðrar leiðir til að greiða J.P. Morgan lánið.
Wernerssona
Karl Wernersson
GLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA SKULDIR WERNERSMANNA
HvAÐ ER SvARTHáFUR?
Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félags í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra, og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni 45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hvernig uppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða Black Dogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi, meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum. Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverju Svartháfsnafnið var valið fyrir félagið.
Eitt af mörgum ELL-félögum
Svartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflega hafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum. Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er í meirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihluta í Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Exista en kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182 hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt á liðnum árum.
Werner hefur áður komið við söguWerner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra. Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young um Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarf meðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Werner kom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar. Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum.
INGI F. VILhJáLMssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og Steingríms Wernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna sem ekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernersson vill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp.
heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfur er skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voru höfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta.
Tíu prestar skrifuðu undir bréf sem
þeir sendu Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, nýverið þar sem
þeir skoruðu á hann að fara eftir lög-
um landsins. Það ætti biskup að gera
með því að hleypa séra Gunnari
Björnssyni aftur í stól sóknarprests á
Selfossi. Til enn frekari stuðnings við
séra Gunnar hefur verið boðað til
stuðningsfundar á föstudagskvöld.
Séra Gunnar var sýknaður af
ákærum um kynferðislega misnotk-
un ungra sóknarbarna hans. Bisk-
upinn hefur aftur á móti verið hik-
andi í afgreiðslu þess hvort Gunnar
fái að snúa aftur í sitt gamla starf
og því hefur presturinn verið í leyfi
fram til þessa. Leyfi Gunnars rennur
út á morgun, fimmtudag, og þá ætti
hann að snúa aftur, á 65 ára afmæl-
isdegi sínum. Heimildir DV herma
aftur á móti að Biskupsstofa leiti
sátta við séra Gunnar og verið sé að
finna honum annað starf. Biskupi
getur reynst erfitt að færa Gunnar
nema með samþykki hans og því
er beðið átekta með hver viðbrögð
prestsins verða.
Biskup í klandri
„Það liggur alveg fyrir að við viljum
fá hann til baka. Biskupsstofa getur
ekki fært hann nema með hans sam-
þykki, það er ekkert vald sem getur
breytt því. Nú er stóra spurningin
hvað séra Gunnar vill gera. Biskup-
inn er kominn í mikið klandur. Hann
má aldeilis gá að sér ef hann ætlar að
fara gegn lögum,“ segir Guðmundur
Kristinsson, stuðningsmaður séra
Gunnars Björnssonar sóknarprests
í leyfi, sem er einn skipuleggjenda
stuðningsfundarins.
Fundurinn verður haldinn klukk-
an 20 á föstudag á Hótel Selfossi og
Guðmundur segir alla velkomna.
„Það er öll þjóðin hjartanlega vel-
komin á fundinn. Þarna verður góð
stemning. Ég get lofað því að þetta
verður spennandi fundur og þang-
að ætlar fjöldi sóknarpresta af
landinu að mæta. Gunn-
ar er ánægður með fram-
takið, það hefði enginn
nema hann getað staðið
þetta af sér,“ segir Guð-
mundur.
Skiptar skoðanir
Þórir Stephensen, fyrr-
verandi dómkirkju-
prestur og stuðnings-
maður séra Gunnars, er meðal
þeirra 10 presta sem skora á biskup-
inn. Hann vonast til að geta mætt á
fyrirhugaðan stuðningsfund. „Ég er
í hópi annarra presta og við skor-
um á biskup að hlýða dómstólum.
Það voru prestar sem vildu ekki
skrifa þarna und- ir.
Menn skipt-
ast í flokka.
Mér finnst
nú sjálfum
að hlýða
eigi lands-
lögum.
Rétturinn
er Gunn-
ars meg-
in og við
styðjum
að hann fái að snúa aftur til sinna
starfa,“ segir Þórir.
„Mig langar til að mæta. Ég hef
lengi beðið eftir tækifæri þar sem
ekki bara þeir sem eru á móti Gunn-
ari fái tækifæri til að segja frá sínu
áliti.“
Biskup hefur ekki veitt prestun-
um tíu formlegt svar við áskoruninni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust
ekki svör frá Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, við vinnslu fréttar-
innar. Hið sama má segja um séra
Gunnar sjálfan.
Samkvæmt heimildum DV eru
prestarnir Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir, Guðmundur Þorsteinsson, fyrr-
verandi prófastur, Jón Ragnarsson,
prestur í Hveragerði, og séra Valgeir
Ástráðsson.
Margir prestar styðja séra
Gunnar og vilja fá hann aft-
ur. Einnig óttast sum-
ir prestar nornaveið-
ar verði dómskerfið
sniðgengið. Þannig
kynni mál séra Gunn-
ars að verða fordæmi
þess að prestar verði
hraktir úr starfi
vegna ásakana,
jafnvel þótt þeir séu
hreinsaðir af þeir.
fréttir
14. október 2009 miðvikudagur 3
UPPREISN GEGN BISKUPI
Biskup í bobba Tíu prestar skora á
biskupinn að hlíta landslögum og leyfa séra Gunnari að snúa aftur til fyrri starfa.
Gunnars Björnssonar
Karli Sigurbjörnssyni
TrauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Jafnt og þétt er þetta heldur að auk-
ast, það er alveg klárt. Það er tölu-
vert að streyma inn til okkar núna,“
segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri hjá
Vinnumálastofnun. Hann bendir þó
á að heldur minna hafi verið um at-
vinnuleysi í síðasta mánuði en ótt-
ast var.
Hjá Vinnumálastofnun hefur ver-
ið nóg að gera undanfarið og nokk-
ur aukning hefur verið síðustu vikur.
Undanfarna daga hafa nærri 50 ein-
staklingar skráð sig á atvinnuleysis-
skrá hjá stofnuninni dag hvern og
nú er svo komið að tæplega fimmt-
án þúsund einstaklingar eru á skrá,
14.909 eintaklingar nánar tiltekið.
Aðspurður segir Karl fleiri karla skrá
sig þessa dagana en konur. Hann
reiknar þó með breytingu á því á
næstunni. „Það eru aðallega eldri
karlmenn sem hafa núna verið að
skrá sig, heldur fleiri en konur. Við
erum síðan að búast við því að fari
að streyma inn úr opinbera geiran-
um og þá gætu það verið hlutfalls-
lega konur í meira mæli. Við reikn-
um með aukningu jafnt og þétt,
hlutfallslega meira af eldra fólki og
búum okkur undir að það verði kon-
ur í meira mæli,“ segir Karl.
„Sé horft yfir lengri tíma er hlut-
fallslega meira eldra fólk komið á
skrá hjá okkur. Það var eiginlega
helst í upphafi sem unga fólkið var
að skrá sig en það mynstur hef-
ur breyst. Við erum meðvituð um
að klárleg aukning er að eiga sér
stað og næstu mánuðir gætu orð-
ið þungir vegna uppsagna hjá hinu
opinbera.“
trausti@dv.is
Karlar streyma inn á skrárnar
eldri menn Undanfarið
hefur einna helst borið á ný-
skráningum eldri karlmanna.
Lánuðu ekki til venslaðra aðila
Ástæðan fyrir því að Svartháfur fékk lánið frá Glitni var sú að á þessum tíma voru eigendur Milestone, þeir Karl og Steingrímur, og félög í beinni og óbeinni eigu þeirra búnir að full-
nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni, að sögn heimildarmanns DV sem þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-
gríms. Bræðurnir voru hluthafar í Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara í kringum þetta lánaði Glitnir þessu félagi [Innskot blaðamanns: Svart-
háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði þessa peninga svo til Racon Holdings II og voru þeir notaðir til að greiða upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnir greiddi því í raun upp skuldina við J.P. Morgan en fór þennan hring til þess. Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs við Glitni,“ segir heimildarmaður DV en ekki er vitað að svo stöddu hvern-
ig hinir milljarðarnir bættust ofan á þessa tuttugu.
Heimildarmaður DV segir að þetta hafi þótt vera í lagi vegna þess að í lagalegum skilningi hafi félagið í eigu Werners, Svartháfur, ekki verið skil-
greint sem venslaður aðili við Karl og Steingrím. Félag í eigu föður Karls og Steingríms gat því fengið lánið þó svo að félög í þeirra eigu gætu það ekki út af hinum fullnýttu lánaheimildum.
Karl tjáir sig ekki
Karl Wernersson vill aðspurður og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-
manns ekki ræða um málefni Svart-
háfs í samtali við DV. Því var lögð spurning fyrir hann í SMS-skeyti þar sem hann var spurður hvað hefði orð-
ið um 45 milljarða skuld Svartháfs. Hann var spurður hvernig hefði ver-
ið gengið frá þessari skuld og hvers vegna. Svar Karls við þessari fyrir-
spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náði ekki aftur sambandi við Karl eftir þetta.
Ekki náðist í bróður Karls, Stein-
grím, né í föður hans, Werner Rasmus-
son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo stöddu liggur því ekki almennilega fyrir hvernig skuldin við Glitni var gerð upp.
ekki rætt í gögnum
um Milestone
Ekkert er rætt um málefni Svartháfs og láns félagsins hjá Glitni í gögnum um Milestone sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum, endurskoðendaskýrslu Ernst & Young og skýrslu umsjónar-
manns nauðasamninga félagsins, Jó-
hannesar Alberts Sævarssonar.
Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-
efni Svartháfs tengjast ekki beint málefnum Milestone af áðurnefnd-
um ástæðum, jafnvel þó að pening-
arnir sem Svartháfur fékk að láni hjá Glitni hafi verið notaðir til að lána fé-
lagi í eigu Milestone-manna svo það gæti staðið í skilum við erlent fjár-
málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né endurskoðendurnir höfðu aðgang að bókhaldi Racon Holdings II, félags-
ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því ekki rannsakað lánveitingarnar til og frá Svartháfi.
Samkvæmt heimildum DV veltu kröfuhafar Milestone hins vegar mik-
ið fyrir sér himinháum lánveitingum frá Glitni til félagsins áður en nauða-
samningum Milestone var hafnað og félagið var tekið til gjaldþrotaskipta fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt að málefni Svartháfs muni koma við sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfum Milestone og kunna lánaviðskipti fé-
lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona Félagið
Svartháfur er skráð á Werner Rasmusson, föður Karls og Steingríms. Félagið virðist hafa verið stofnað gagngert til að taka við láni frá Glitni upp á 20 milljarða sem bræðurnir gátu ekki tekið.
hlýtur stuðning
Séra Gunnar fær
stuðning frá öðrum
prestum og boðað
hefur verið til stuðn-
ingsfundar.
14. október 2009
Allt ákveðið í einu Samkvæmt
heimildum DV var ákveðið á
hluthafafundi Svartháfs að sækja
um lán og endurlána það strax aftur
til dótturfélaga Milestone. Faðir
Karls Wernerssonar, annars eiganda
Milestone, var eigandi Svartháfs.
„Lánið frá Glitni sem
rann inn í Svartháf
var því notað til að
standa við skuld-
bindingar sem
Milestone stofnaði
til fyrir hönd dóttur-
félags síns.”
2 dálkar = 9,9 *10
Falleg jólavara
Nýjar vörur
Stærri búð
Opið: má-fö. 12-18, Opið á laugard. til jóla frá 12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið