Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Side 13
Bógur ódýrasti veislumaturinn Stund og Staður húSfunda Sigurður helgi guðjónSSon, formaður húseigendafélagsins svarar fyrirspurnum lesenda. Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is neytendur 30. nóvember 2009 mánudagur 13 Aðalfundi húsfélaga skal halda ár hvert fyrir lok aprílmánaðar og þá ber að boða með minnst 8 daga fyr- irvara. Almennir fundir eru haldn- ir eftir þörfum og skal boða þá með minnst 4 daga fyrirvara. Í báðum til- vikum er 20 daga hámarks boðun- arfrestur. Rökin fyrir hámarkinu eru að hætt sé við að fólk gleymi fundum sem langt er í og það kunni slægir fundarboðendur að færa sér í nyt. Er hámarkið sett til að fyrirbyggja rétt- arspjöll vegna fundagleymsku. Ann- ars eru ekki í fjöleignarhúsalögun- um bein fyrirmæli um fundartíma og fundarstað en grunnsjónarmið- um og meginreglum þeirra verður hins vegar beitt þar um. Tími og staður sem hentar flestum Lög geyma fyrst og fremst megin- reglur en aldrei er unnt að sjá fyrir öll þau tilvik, afbrigði og furður sem uppátæki og mannlegt brölt getur alið af sér. Fundarboðendum ber, innan skynsamlegra marka, að taka sanngjarnt og eðlilegt tillit til að- stæðna og óska einstakra eigenda um stund og stað funda þótt seint sé unnt að mæta öllum óskum allra. Fundarboðendur verða að lesa í spil- in og horfa til þess hvað hentar flest- um eigendum og stuðla með því að góðri fundarsókn en ekki fámenn- um laumufundum. Ríkar kröfur til funda Megintilgangur húsfélags er að við- halda verðmæti og notagildi húss- ins. Í því skyni getur húsfundur yfir- leitt, án tillits til þess hversu margir sækja fund, tekið bindandi ákvarð- anir með einföldum meirihluta fundarmanna. Þegar ákvarðanir lúta að umtalsverðum endurbótum og breytingum er krafist aukins meiri- hluta og til verulegra breytinga er krafist samþykkis allra. Vegna þessa og grundvallarþýðingar samráðs við töku sameiginlegra ákvarðana gera lög ríkar kröfur til húsfunda sem eru hinn lögboðni samráðsvettvangur. Fundarseturéttur Ein mikilvægustu réttindi eiganda er aðild að húsfélagi og réttur til að eiga hlut að sameiginlegri ákvarð- anatöku. Allir eigendur eiga óskor- aðan rétt á að eiga og taka þátt í öll- um ákvörðunum um sameiginleg málefni. Sameiginlegar ákvarðan- ir skulu teknar á húsfundi. Hafi eig- andi ekki verið hafður með í ráð- um og ekki boðaður á húsfund með þeim hætti sem lög mæla fyrir um er hann ekki bundinn af ákvörðunum fundarins. Til að þessi grundvallar- réttur sé virtur verður fundur að vera haldinn á eðlilegum tíma og stað og við boðlegar aðstæður. Ber vitaskuld að velja stað og tíma þegar ætla má að allir eða flestir geti með góðu móti mætt. Ekki má beita hrekkjum og skollabrögðum í því efni. Fúll á móti Þegar afbrigðilegur staður og stund eru valin bersýnilega í því skyni að útiloka eða torvelda fundarsókn eigenda, eru allar líkur á því að fundur verði metinn ólögmætur á grundvelli meginreglna fjöleignar- húsalaga og óskráðra réttarreglna og sjónarmiða sem nefnast eðli máls og eru óskráðar meginregl- ur sem beitt er til fyllingar þegar skráðum lagareglum sleppir. Þetta eru yfirsvífandi og altumvefjandi „svoleiðis gera menn ekki“ regl- ur og sjónarmið. Að stuðla með brögðum að lélegri mætingu vekur upp grunsemdir um óhreint mjöl í pokahorni fundarboðenda, jafnvel þótt tilgangurinn sé ekki annar en að útiloka leiðindaskarfa og funda- hrelli. Fúll á móti á líka sinn rétt. Fundartími og helgidagar Húsfundur sem boðaður er að næt- urlagi og/eða á helgustu dögum myndi ekki vera lögmætur. Fundi ber að halda á þeim tíma þegar flest venjulegt fólk á gott með að mæta. Á það bæði við um fundar- dag og tíma sólarhringsins. Algeng- ast er að húsfundir séu haldnir kl. 8 eða 9 að kveldi virkra daga eða síð- degis eftir vinnu. Atvik og aðstæð- ur geta þó kallað á annað. Fundir eru yfirleitt ekki haldnir snemma morguns eða seint á kvöldin eða að næturþeli. Lög segja hvergi beint að ekki megi halda húsfundi á 17. júní, aðfangadagskvöld, jóladag, nýársdag, föstudaginn langa eða páskadag. En samt myndu fund- ir boðaðir á slíkum tímum örugg- lega teljast ólögmætir á grundvelli meginreglna fjöleignarhúsalaga og eðli máls. Árstími Fundi beri að halda á þeim árs- tímum sem almennt eru til funda fallnir. Þannig er hásumarið yfirleitt ekki góður fundatími vegna sum- arleyfa og fjarveru margra og sama má segja um páska og desember, alla vega seinni hluta hans. Hins vegar geta alltaf komið upp bráða- mál sem enga bið þola og funda verður um strax. Slík neyðarsjón- armið geta leitt til þess að fundur teljist lögmætur þótt haldinn sé á afbrigðilegum tíma og stað. Fullnægjandi staður Ekki segir heldur að fundi beri að halda í viðkomandi húsi, hverfi eða sveitarfélagi. Það fer mjög eftir efn- um og aðstæðum og stærð húsfé- laga hvar fundi er fundinn staður. Ekki er samt hægt að ætlast til þess að eigendur uni því að fundarstað- urinn sé langt í burtu eða torvelt að komast þangað. Það er mjög mikilvægt að hús- næði sé hæft til fundar þannig að hann geti þjónað tilgangi sínum. Vont húsnæði og illa til fallið getur eyðilagt fund. Best er að halda hús- fundi annars staðar en í viðkom- andi húsi nema þar sé þeim mun betri fundaraðstaða. Það hefur sýnt sig að fundir á hlutlausu svæði þar sem fullnægjandi fundaraðstaða er takast miklu betur en hinir. Furðulegir fundarstaðir Hvergi er í lögum beinlínis bann- að að halda húsfundi fjarri við- komandi húsi, undir beru lofti, á öræfum, eyjum, annesjum, úti á sjó eða í útlöndum. Lög banna heldur ekki berum orðum að hús- fundir séu haldnir á börum, nekt- arbúllum eða úti í kulda og trekki. Skrítnir fundarstaðir myndu yf- irleitt fara í bága við meginreglur laga um fjöleignarhús og eðli máls. Húsfundir eru almennt innifundir og mjög sjaldan haldnir undir beru lofti þar sem hold skelfur, pappírar fjúka og blotna og vindurinn tek- ur orðið af mönnum. Útihúsfundir gætu þó verið lögmætir í einhverj- um tilvikum. Óboðleg aðstaða Það er ekki boðlegt að halda stóra fundi í sameign húsa, í stigagangi, þvottahúsi, bílageymslum eða geymslum, við bága fundarað- stöðu. Það eyðileggur fundarform- ið og virðingu fundarins. Sama má segja um fundi inni í einstök- um íbúðum. Þeir fá ávallt á sig óformlegan blæ kaffisamsætis og eru yfirleitt langir, ómarkvissir og ómálefnalegir. Fólk betlandi kaffi, talandi og hjalandi, þvers og kruss, hvert ofan í annað með tilheyrandi þrætum, þrasi og þófi. Og þegar upp er staðið veit enginn, ekki einu sinni fuglinn fljúgandi, hvað var sagt og ósagt og hvað var samþykkt og hvað ekki. Afbrigði, grátt gaman Að lokum þetta: Samkvæmt eðli máls og meginreglum fjöleignar- húsalaga er eigendum ekki skylt að sækja húsfundi á afbrigðilegum tímum og stöðum og slíkir fundir yrðu yfirleitt taldir ólöglegir. Fund- arboðendum ber að boða fundi á stundu og stað þegar sem flestir eigendur eiga að geta mætt. Þess vegna ber að forðast, nema eitthvað mikið liggi við, að boða húsfundi um hásumar og nálægt jólum og páskum. Afbrigðilegur fundartími og fundarstaður er yfirleitt valinn til að útiloka eða torvelda fundar- sókn eða þá sem grikkur eða lið- ur í innanhússtríði. Slíkt fer í bága við orð og anda fjöleignarhúsa- laga og kemur viðkomandi í koll. Á ólögmætum fundi verða engar lögmætar ákvarðanir teknar. Þá er verr af stað farið en heima setið. Klækjarefir og gráglettnir fundar- boðendur geta skotið sig illa í fót- inn og víðar með því að velja fundi afbrigðilegan stað og tíma. Skrýtnir fundarstaðir „Hvergi er í lögum beinlínis bannað að halda húsfundi fjarri viðkomandi húsi, undir beru lofti, á öræfum, eyjum, annesjum, úti á sjó eða í útlöndum.“ Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi 17-26 okt. Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32 Opið til 22:00 alla daga Smakkaðu 200 kr ís í brauði, miðstærð Njótum aðventunnar saman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.