Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Síða 16
16 mánudagur 30. nóvember 2009 fréttir
Óhætt er að segja að emírinn í Dúbaí,
Mohammed bin Rashid Al Maktoum,
og embættismenn landsins hafi hugs-
að stórt. Dúbaí er eitt sjö furstadæma
sem saman mynda hin Sameinuðu
arabísku furstadæmi og hið fjölmenn-
asta. Hin síðari ár virtist sem ekkert
gæti bugað efnahagslegan uppgang
ríkisins, en nú rambar það á barmi
gjaldþrots.
Vangeta stjórnvalda Dúbaí til að
endurfjármagna skuldir sem til eru
komnar vegna Dubai World, stærsta
ríkisfyrirtækis landsins, vakti ótta víða
um heim um að gjaldþrot þessa fjöl-
menna ríkis myndi marka upphaf
nýrrar fjármálakreppu á heimsmæli-
kvarða.
Hugsanlega hefur þeirri hættu, ef
hún var fyrir hendi, verið bægt frá í
bili því seðlabanki Sameinuðu arab-
ísku furstadæmanna hefur tilkynnt að
bönkum í Dúbaí verði séð fyrir auk-
inni greiðslugetu, sem stendur öllum
bönkum í Dúbaí til boða, innlendum
sem erlendum.
Ferðaútgerð og fasteignir
Dúbaí býr ekki að olíuauðlindum
líkt og nágrannaríkin, til dæmis Abu
Dhabi, og í sagnfræðilegu tilliti hefur
hafnaraðstaðan verið helsti grund-
völlur tekna ríkisins. Furstadæmið
Abu Dhabi er eina furstadæmið sem
hefur yfir að ráða umtalsverðum olíu-
auðlindum og til að skapa sér sérstöðu
gagnvart Abu Dhabi var nauðsynlegt
fyrir Dúbaí að njóta sérstöðu á sviðum
sem ekki tengdust olíu. Af þeim sök-
um hafa stjórnvöld í Dúbaí, hin síðari
ár, lagt áherslu á ferðaútgerð, og mun-
að henni tengdri og fasteignir og fast-
eignaviðskipti. Glæsihótelið Burj Al-
Arab er til dæmis myndbirting þeirrar
þróunar. En af nógu er að taka.
Heimurinn í hafinu
Mikið er rætt um loftslagshlýnun,
bráðnun heimskautaíss og hækkandi
sjávarborð. Við strönd Dúbaí var bú-
inn til eyjaklasi, The World, þar sem
eyjarnar aðlaga sig breytilegri sjáv-
arhæð. Eyjaklasinn samanstend-
ur af þrjú hundruð eyjum sem sam-
an mynda heimskort. Á meðal þeirra
sem keypt hafa sér eyju í klasanum
eru knattspyrnumaðurinn David
Beckham og rokkarinn Rod Stewart.
Hægt er að nefna til sögunnar fleiri
eyjar, til dæmis The Palm, Pálmann.
Eins og nafnið gefur til kynna mynda
eyjarnar pálmatré séðar úr lofti.
Hæsta mannvirki í heimi
Burj Dubai-turninn er 818 metra hár,
en byggingu hans er ekki enn lokið.
Kostnaður vegna turnsins stendur
í 4,1 milljarði bandaríkjadala, eða
tæplega 510 milljörðum króna.
Í Dúbaí er einnig að finna Dú-
baíland, sem upphaflega var áætl-
að var að yrði fullklárað á næsta ári.
Dúbaíland mun þekja 278 ferkíló-
metra svæði.
Á meðal þess sem er í byggingu
núna í Dúbaí er neðansjávarhót-
elið Hydropolis. Upphaflega átti
það að verða tilbúið 2006, en fram-
Draumurinn búinn í Dúbaí
Það er af sem áður var í arabíska furstadæminu
Dúbaí sem áður naut mikils efnahagslegs uppgangs.
Nú er ríkið á barmi gjaldþrots og staða þess sendir
gárur í gegnum alþjóðleg fjármálakerfi. Bygginga-
framkvæmdir í Dúbaí hafa verið metnaðarfullar og
einkennst af frumleika og háum kostnaði.
Dubaí
hluti af Sameinuðu arabísku furstadæmunum
StofnanDi Maktoum bin Bati bin Suhail
ríkiSStjórn Stjórnarskrárbundið einræði
Emír Mohammed bin Rashid Al Maktoum
krónprinS Hadman bin Mohammed bin Rashid Al Maktoum
Stærð Furstadæmið 4.114 ferkílómetrar. Borgarsamfélagið 1.287 ferkílómetrar
íbúafjölDi 2.262.000
ÞjóðErni (2005)
26,1% arabar (þar af 17 %borgarar furstadæmisins)
42,3% Indverjar
13,3% Pakistanar
7,5% Bangladessar
2,5%Filippseyingar
1,5% Sri Lanka-menn
0,9% Evrópubúar
0,3% Bandaríkjamenn
5,7% af öðru þjóðerni.
Kolbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Við strönd Dúbaí var
búinn til eyjaklasi,
The World, þar sem
eyjarnar aðlaga sig
breytilegri
sjávarhæð.
burj Dúbaí-turninn
Hæsta mannvirki heims
í smíðum í apríl í Dúbaí.
loftmynd af eyjum við
strönd Dúbaí Ferðamanna-
paradís sem er eins og pálmatré
í laginu.