Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Side 19
Hver er konan? „Berglind Sigur- geirsdóttir hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra.“ Hvað drífur þig áfram? „Jákvæðni, drifkraftur og samfélagið allt.“ Hvar ertu uppalin? „Í Reykjavík, nánar til tekið Grafarvoginum.“ Hvert ferðaðistu síðast? „Utan- lands fór ég til Þýskalands síðast, til Hannover. En innanlands fór ég í réttir síðast fyrir norðan.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Íslenskt hangikjöt held ég.“ Ertu búin að kaupa jólagjafirn- ar? „Já, margar hverjar.“ Hvað er kærleikskúlan? „Það er glerkúla sem er munnblásin í litlum bæ í Þýskalandi. Það er gerð ný kúla á hverju ári þannig að hver kúla er í raun listaverk. Við höfum fengið til liðs við okkur marga af frægustu listamönnum Íslands til að gera kúluna á hverju ári og í þetta skiptið, það sjöunda, er það Hreinn Friðbjörnsson sem hannaði hana. Margar fjölskyldur eru farnir að safna þessum kúlum.“ Hvert er markmiðið með kúlunni? „Þetta er verkefni sem við stöndum að til þess að auðga líf fatlaðra og lamaðra barna. Við viljum gera fleiri börnum kleift að dvelja í sumarbúðum í Reykjadal og eins koma fleirum þangað í helgardvalir. Allur ágóði kúlnanna fer í það.“ Fær einhver sérstakur fyrstu kúluna? „Já, það er afhending á miðvikudaginn. Á hverju ári er það einhver fyrirmynd úr hópi fatlaðra sem fær fyrstu kúluna.“ Hvað kostar kúlan og hvar fæst hún? „Hún verður til sölu frá 5.-19. desember í helstu gjafavöruversl- unum um allt land. Hver kúla kostar 4.500 krónur.“ Hefurðu fengið svínaflensuna? „Nei, ég er ekkert hræddur við hana.“ GEir Garðarsson 16 ÁRA NEMi „Engin svínaflensa hér. Ég er líka löngu búinn að láta sprauta mig.“ ÞórlEiFur V. Friðriksson 60 ÁRA pRENtSMiðJUStJóRi „Nei. Ég er ekki hrædd við hana. Allavega ekki eins og er.“ kolbrún lilja arnarsdóttir 21 ÁRS NEMi „Nei, og ég óttast hana alls ekki. Ég er svo rólegur.“ sölmundur Ísak stEinarsson 16 ÁRA NEMi Dómstóll götunnar bErGlind siGurGEirsdóttir er markaðs- og kynningarstjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Hjá því er að fara í sölu eins og á ári hverju kærleikskúlan sem stuðlar að því að auðga líf fatlaðra og lamaðra barna. Hver kúla er listaverk „Nei, ég var að láta sprauta mig. Ég er að deyja í handleggnum og búin að vera með mikinn höfuðverk.“ anna björG björnsdóttir 16 ÁRA NEMi maður Dagsins Bóluefnið sem fólk hér á landi er sprautað með gegn svínaflensu inniheldur meðal annars squal- ene-lýsi, eða hákarlalýsi, sem fjöldi lækna telur geta verið skaðlegt heilsu fólks. Eftir að hafa kynnt mér málið og séð svart á hvítu að erlend- ir sérfræðingar hafa margir hverjir miklar áhyggjur af squalene-lýsinu í bóluefnum eins og því sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa kosið að bjóða Íslendingum upp á fann ég mig knúinn til þess að kæra Land- læknisembættið. Ástæðan er einfaldlega sú að ég get ekki sætt mig við þann óheið- arleika sem embættið sýnir með því að gera, hvorki í einu né neinu, grein fyrir sgualene-lýsinu í bólu- efninu og hugsanlegum áhrifum þess á líkamann. Í stuttri frétt um kæru mína í DV 21. nóvember fékk ég ekki tækifæri til þess að koma helstu sjónarmið- um mínum á framfæri né heldur að vísa í öll þau gögn sem ég hef viðað að mér um málið. Haraldur Briem sóttvarnalæknir fékk hins vegar að tjá sig í öllu lengra máli og þar tel ég hann hafa talað gegn betri vitund þegar hann segir að þetta efni finn- ist í líkamanum og engar vísbend- ingar hafi komið fram um að það sé skaðlegt. Haraldur hlýtur að vera full- komlega meðvitaður um að það er munur á því hvort efni sem þessu sé sprautað í líkamann eða ekki. Þar sem þetta squalene-lýsi á ekki heima í blóðrásinni. Það ætti Har- aldi að vera fullkunnugt um og hann að sama skapi meðvitaður um þau óþægindi sem mótefnið veldur lík- amanum. Munurinn á því hvort áhrif há- karlalýsis séu góð eða slæm veltur á því hvort það sé borðað eða því sprautað í líkamann. Sé því dælt í líkamann gerir ónæmiskerfið árás á allt sem flokkast sem squalene, ekki aðeins það sem var sprautað inn heldur allt annað squalene í líkam- anum, eftir því sem dr. Joseph Merc- ola og fleiri sérfræðingar segja. samband milli squalene og gigtar Þær vísindalegu kannanir sem hafa verið gerðar með squalene á rott- um framkölluðu gigt hjá tilrauna- dýrunum, sjá American Journal of Pathology (2000). Tilraun sem þau Barbro C. Holm, Hong Wei Xu, Lena Jacobsson, Anders Larsson, Holger Luthman og Johnny C. Lorentzen gerðu árið 2001 leiddi í ljós að squ- alene var aðal orsakavaldur gigtar hjá tilraunarottum. Þetta hákarlalýsi var reyndar tek- ið út af lyfjaskrá og bannað í Banda- ríkjunum vegna mála sem komu upp varðandi bóluefnið gegn milt- isbrandi sem innihélt þessa tegund hákarlalýsis. Yfirvöld í Bandaríkjun- um hafa nú viðurkennt að umrætt efni hafi verið notað í bóluefnið. Bandarískir hermenn í Persafóla- stríðinu sem voru sprautaðir með bóluefni gegn miltisbrandi fundu einmitt fyrir ýmsum einkennum á borð við gigt, höfuðverk, minnis- leysi, svima, þunglyndi, útbrot og svefntruflanir svo eitthvað sé nefnt. Það er því ekkert athugavert við það að menn eins og ég og áhugamenn og læknar víða um heim kæri eða mótmæli notkun á þessu bóluefni gegn svínaflensu sem inniheldur hákarlalýsi. læknar kæra og mótmæla Þekktur þýskur læknir að nafni dr. Friedel Rohr hefur kært þýska heilbrigðisráðaneytið og segir mikinn blekkingarvef hafa verið spunninn til þess að halda upp- lýsingum um áhættuna sem fylg- ir squalene frá almenningi. Hann fullyrðir að vandamál komi upp hjá 30 prósentum þeirra sem hafa verið bólusettir með þessu tiltekna efni. Læknirinn Rima Laibow er ein mjög harðra andstæðinga svína- flensubóluefnisins með hákarla- lýsinu. Hún fullyrðir að fjórðungur allra bólusettra hermanna í Persa- flóastríðinu sem fengu hákarlalýsi með miltisbrandsbóluefninu hafi fengið hið svokallaða Gulf War Syndrome. Hún hefur jafnframt bent á að svínaflensubóluefnið sé mun verra en miltisbrandsbólu- efnið þar sem styrkur hákarlalýs- isins í svínaflensusprautunni sé margfaldur miðað við það sem var í miltisbrandsbóluefninu. Ekki þarf að sprauta nema örfá- um mólekúlum af hákarlalýsi í fólk til þess að líkaminn snúist gegn sjálfum sér. Læknirinn líkir þessu uppþoti í ónæmiskerfinu við það að her snúist gegn sinni eigin þjóð. Í ljósi alls þessa vara ég alla við bólu- efninu sem Íslendingum stendur til boða og hvet fólk til þess að hugsa sig tvisvar um áður en það fer í svínaflensusprautuna því það verð- ur að segjast eins og er að það hefði verið heppilegra að velja eitthvert annað bóluefni sem inniheldur ekki squalen-lýsi. Varasamt bóluefni kjallari mynDin 1 „Ég er andlega gjaldþrota“ Hjónin Sverrir Jónsson og Björk Erlingsdóttir eru búin að missa allt sem þau hafa stritað fyrir í rúmlega tuttugu ára sambandi. 2 meint ástkona tiger Woods stígur fram - neitar ásökunum um framhjáhald Konan sem er sökuð af National Enquire að hafa átt í ástarsambandi við kylfinginn tiger Woods hefur stigið fram og neitað. 3 Vinir tókust á í silfri Egils Jón Baldvin Hannibalsson og Styrmir Gunnarsson fóru mikinn í Silfri Egils á sunnudaginn. 4 Zombieland í 3d Áhugi er fyrir framhaldi af kvikmyndinni Zombieland sem sló í gegn fyrir skemmstu. Hún yrði í þrívídd. 5 tölvuleikir aðstoða við morðrannsóknir tölvuleikir eru ekki bara afþreying. tölvuleikjaframleiðendur geta líka aðstoðað við að leysa morðmál. 6 mikil hálka á vegum Hvít jörð blasti við íbúum höfuðborgar- svæðisins á sunnudaginn eftir töluverða snjókomu um nóttina. Einhver óhöpp urðu í umferðinni. 7 bandarískur umhverfissinni í þriggja ára fangelsi í kína Róttæklingurinn Justin Solondz er gefinn fyrir að kveikja í til að berjast fyrir málstað umhverfisins. mest lesið á DV.is umræða 30. nóvember 2009 mánudagur 19 ÞorstEinn scH. tHorstEinsson margmiðlunarfræðingur skrifar „Munurinn á þvi hvort áhrif hákarlalýsis séu góð eða slæm veltur á því hvort það sé borðað eða því sprautað í líkamann.“ aðventa Það mátti hæglega greina eftirvæntingu í andlitum viðstaddra þegar kveikt var á ljósum óslóartrésins svonefnda við Austurvöll í gær, á fyrsta sunnudegi aðventunnar. Það var hin norsk-íslenska mær, Hrafnhildur Sif ingólfsdóttir, sem fékk heiðurinn af því að tendra ljósin í þetta skiptið. mynd siGtryGGur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.