Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2009, Síða 22
22 mánudagur 30. nóvember 2009 viðtal
Fyrir ellefu árum, þá aðeins þrjátíu og fjögurra ára gam-all, tók Halldór Halldórs-son, sveitastrákur úr Ögri,
við bæjarstjórastöðu stolts Vest-
fjarða, Ísafjarðarbæjar. Hann tel-
ur nú niður, eins og andstæðingar
hans, í endalokin en hann mun ekki
gefa kost á sér í sveitarstjórnarkosn-
ingum í vor. Hann horfir stoltur um
öxl þrátt fyrir erfiða tíma þar sem
fólksflótti hefur verið mikill af Vest-
fjörðum. Pólitískum ferli hans er þó
ekkert endilega lokið. Önnur sveit-
arfélög hafa haft samband við hann
um að taka að sér leiðandi sæti þar
og þá horfir Halldór einnig til hins
háa Alþingis ef svo ber undir.
Halldór er fæddur og uppalinn á
Vestfjörðum en bjó í sextán ár fyr-
ir sunnan. Draumur hans er að vera
áfram í Ísafjarðarbæ þar sem konan
hans gæti jafnvel tekið við bæjar-
stjórastólnum.
Enginn vEgur á Ísafjörð
Halldór er fæddur árið 1964 í Kálfa-
vík í Skötufirði og alinn upp í Ögri
við Ísafjarðardjúp. Þar bjuggu á
þeim tímum aðeins Halldór, for-
eldrar hans og systkini. „Í dag býr
í rauninni bara mamma þar eftir að
við fylgdum föður mínum til graf-
ar í Ögri um daginn,“ byrjar Hall-
dór að útskýra og lýsir staðháttum
í æsku sinni betur. „Þegar ég var að
alast upp endaði vegurinn hjá Ögri.
Það var enginn vegur á Ísafjörð
þannig að allar samgöngur voru á
sjó. Ég man að þegar ég fékk mitt
fyrsta hjól sex ára gamall fórum við
pabbi á opinni trillu til Ísafjarðar.
Ég man hvað ég var hræddur um að
það yrði sjóblautt hjólið og myndi
ryðga hjá mér,“ segir hann og við-
urkennir að einangrunin hafi getað
verið mikil.
„Það var einangrun á veturna
nema að djúpbáturinn Fagranes
kom tvisvar í viku. Þannig að ef
við krakkarnir þurftum að fara til
læknis þurftum við að gista nokkr-
ar nætur á Ísafirði. Manni finnst
svo langt síðan þetta var en í raun
eru þetta bara um fjörutíu ár. Þetta
voru auðvitað frekar óvenjulegar
aðstæður. Þetta þótti manni samt
bara eðlilegt. Ég man aldrei eftir
neinu öðru en að þetta hafi verið
skemmtilegt.“
Pabbi hafði mikil áhrif
Eins og komið hefur fram lést fað-
ir Halldórs fyrir skömmu, 76 ára
að aldri. „Við hefðum nú gjarnan
viljað hafa hann lengur. Hann var
samt orðinn veikur og mun veikari
en við héldum. Við systkinin vor-
um í sumar farin að sjá að það væri
af honum dregið. Síðustu vikuna
náðum við rosalega litlu sambandi
við hann. Það var svona ljóst að
minnsta kosti síðustu vikuna í hvað
stefndi. Við vorum öll hjá honum
þegar hann dó,“ segir Halldór en
þegar faðir hans lést átti hann sjö
börn og tuttugu barnabörn.
Halldór segir föður sinn hafa
haft mikil áhrif á sig. „Alveg gríðar-
leg. Hann hafði áhrif á mann með
því að gera hlutina en hann talaði
lítið um þá. Hann var fyrirmynd.
Hann sagði ekki margt. Hann sagði
bara: Annaðhvort gerirðu hlutinn
vel eða gerir hann ekki. Mitt mottó
hefur verið svona gerðu þitt besta
sem hefur væntanlega mótast af
honum,“ segir hann.
Ekki alltaf kosið
sjálfstæðisflokkinn
Aðspurður hvort hann hafi alltaf
verið mjög pólitískt þenkjandi svar-
ar Halldór að bragði: „Nei, alls ekki,“
en heldur áfram: „Það er samt rosa-
lega mikið af pólitísku fólki í minni
fjölskyldu. Pabbi var alveg frá því ég
man eftir mér í hreppsnefnd og var
líka hreppstjóri. Það tengdist samt
aldrei flokkspólitík. Þetta var bara
alvöru persónukjör. En það var oft
og mikið rætt um pólitík og það var
nú ekki hliðhollt þeim flokki sem
ég hef fylgt alla tíð. Pabbi var mik-
ill vinstrimaður en hann sætti sig
mjög vel við það að fólk fyndi sinn
eigin farveg í lífinu,“ segir hann en
faðir hans og Jón Baldvin Hanni-
balsson voru systkinabörn.
Þó að Halldór hafi alltaf verið
mikill sjálfstæðismaður hefur hann
þó ekki alltaf sett X við D. „Ætli
maður verði ekki að viðurkenna að
áður en ég byrjaði sjálfur í sveitar-
stjórnarmálunum hafði ég nú kos-
ið fleiri en eitt framboð. Ég held að
það sé þannig í sveitarstjórnarmál-
um að þú ert ekki mikið að velja
einhvern flokk. Sveitarstjórnarmál-
in eru svo praktísk og ekki mikill
munur á stefnu flokka,“ segir Hall-
dór en bætir við að hann hafi allt-
af kosið Sjálfstæðisflokkinn í lands-
málum.
ÚtgErðarkóngur ýtti
honum Út Í PólitÍk
Árið 1980 fluttist Halldór suður.
„Þarna var hallærisplanið upp á sitt
besta í bænum. Það stundaði mað-
ur grimmt eins og hina staðina hér
í bænum, Hollywood og Klúbbinn,“
segir Halldór. En var hann mikill
djammari? „Ja... svona eins og aðr-
ir bara á þessum tíma.“ Hann var
mikið í Grindavík og bjó þar lengi.
Hann starfaði hjá útgerðarrisanum
Þorbirni HF en kóngurinn á hinum
bænum í Grindavík, útgerðarrisan-
um Fiskanesi, var hinn goðsagna-
kenndi Dagbjartur Einarsson sem
eiginlega plataði Halldór út í pól-
itík.
„Það var búið að ýta aðeins við
mér í Grindavík og meira að segja
höfðu aðrir flokkar talað við mig.
Síðan ýtti Dagbjartur mér í fram-
boð en fram að því hafði ég að ég
held ekki komið inn á kosninga-
skrifstofu. Það var í raun viss þrösk-
uldur að yfirstíga að einfaldlega fara
inn um dyrnar. Dagbjartur sagði
við mig að ég ætti bara að sækj-
ast eftir öðru sætinu. Hann sagði
að ég myndi enda miklu neðar og
fara í nefndarstörf og svona. En síð-
an náði ég öðru sætinu. Þegar ég
spurði hann síðan út í þetta sagð-
ist hann bara hafa verið að ljúga og
hafa alltaf vitað að ég næði þessu
sæti,“ segir Halldór og hlær við.
konan gaf Ísa-
firði tækifæri
Halldór langaði alltaf vestur aft-
ur segir hann. Tækifærið kom svo
þegar hann sótti um starf fram-
kvæmdastjóra Fjórðungssambands
Vestfirðinga og fékk starfið. „Konan
var til í að prófa að flytja vestur. Hún
sagðist vera tilbúin að gefa þessu
ákveðinn tíma. En svo liðu aðeins
örfáar vikur og þá vorum við algjör-
lega smollin inn í bæjarfélagið. Það
er bara svo gott að flytja á Ísafjörð.
Manni er tekið svo vel þar.“
Aðeins tveimur árum síðar, árið
1998, var Halldór svo ráðinn bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar og 2002 varð
Síðustu ellefu árin hefur halldór hall-
dórsson verið bæjarstjóri í Ísafjarð-
arbæ á miklum umbrotstímum. Hann
mun ekki gefa kost á sér í sveitar-
stjórnarkosningum í vor og því tekur
nýr kafli við í lífi hans. Hann útilokar
ekkert, hvorki bæjarstjórastöðu í öðru
bæjarfélagi né jafnvel sæti á Alþingi.
Halldór ræddi við tómas Þór um Vest-
firði, uppeldið í Ögri, bæjarstjórastól-
inn og föður sinn sem hann lagði til
hinstu hvílu í þessum mánuði.
HALLDÓR HALLDÓRSSON
bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ
n Fæddur í Kálfavík í Skötulfirði 25. júlí 1964
n Foreldrar: Halldór Hafliðason bóndi (f. 1933, lést 4. nóv 2009) og María Sigríður
Guðröðardóttir, bóndi 1942
n Maki: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sagnfræðingur og MA í Hagnýtri menningar-
miðlun (f. 1966)
n Börn: Halldór Vilberg 26, Hreiðar Ingi 19, María Sigríður 17 og Hákon Ari 13.
n Störf: Sveitastörf, sjómennska, vinna í fiskvinnslu og á vinnuvélum á bilinu 1978-
1984. Verkstjóri í fiskvinnslu 1984-1987 og í afleysingum til 1991, rekstur eigin
fyrirtækis í bókhaldi, fasteignasölu ráðgjöf o.fl. 1991-1996. Framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Vestfirðinga 1996-1998. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar 1998-
n Nefndir og sambönd: Formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga,
formaður stjórnar Háskólaseturs Vestfjarða. Hefur setið í ótal nefndum og ráðum á
vettvangi sveitarstjórnarstigsins eins og launanefnd og heilbrigðisnefnd Samtaka
sveitarfélaga á Suðurnesjum, sat í ráðgjafnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og í
stjórn Varasjóðs húsnæðismála. Starfaði í björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík,
sat í stjórn þar og í varastjórn Slysavarnafélags Íslands, fyrsti formaður Björgunar-
bátasjóðs Vestfjarða. Var einnig í stjórn Rauða kross deildarinnar í Grindavík.
„Ég hef ekkert að flýja“
halldór halldórsson Hefur
verið bæjarstjóri í Ísafjarðar-
bæ síðastliðin ellefu ár.
mynd róbErt rEynisson