Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Síða 3
FRÉTTIR 18. janúar 2010 MÁNUDAGUR 3
Ferðakostnaður Orkuveitu Reykja-
víkur, OR, vegna ferðalaga starfs-
manna fyrirtækisins til útlanda var
rúmar sextíu milljónir króna á síð-
ustu tveimur árum. Sé ferðakostnað-
ur stjórnarmanna fyrirtækisins tekinn
með í reikninginn er samanlagður
ferðakostnaður fyrirtækisins rétt tæp-
ar sjötíu milljónir.
Kostnaðurinn skiptist niður í far-
gjöld, dvalarkostnað, dagpeninga og
námskeiðs- og ráðstefnugjöld. DV
óskaði eftir nánari sundurliðun á
ferðakostnaðinum þannig að honum
væri skipt niður í hverjir fóru í ferð-
irnar, til hvaða landa hafi verið far-
ið og í hvaða tilgangi ferðirnar voru.
OR neitaði að gefa þær upplýsingar
á þeim forsendum að þar á bæ vilji
menn ekki eyða tíma í að taka þetta
saman.
Til tólf landa
Fimm stjórnarmenn Orkuveitu
Reykjavíkur og dótturfélags hennar,
Reykjavík Energy Investment, REI,
ferðuðust fyrir tæpar sjö milljónir
króna á síðastliðnum tveimur árum.
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar og stjórn-
armaður beggja félaganna, trónir á
toppnum en hún ein á nærri þriðj-
ung alls kostnaðarins eða rúmar tvær
milljónir.
Misjafnt er hvort stjórnarmenn
hafi farið einir út, tveir saman eða
jafnvel þrír. Ferðakostnaður stjórn-
armannanna fimm er að sjálfsögðu
greiddur af Orkuveitunni og REI en á
þessum tveimur árum ferðuðust full-
trúarnir til tólf landa, Bandaríkjanna,
Djíbútí, Englands, Eþíópíu, Filipps-
eyja, Indónesíu, Japans, Jemen, Nor-
egs, Slóvakíu, Svíþjóðar og Ungverja-
lands. Ekki fæst uppgefið hjá OR til
hvaða landa starfsmenn fyrirtækisins
ferðuðust og því er óljóst hvort þeir
hafi farið til fleiri eða færri landa en
stjórnarmennirnir fimm.
Hefði mátt spara
Þegar ferðakostnaður OR vegna
stjórnarmannanna var borinn undir
Hjörleif Kvaran forstjóra taldi hann að
allar ferðirnar sem farnar hafa verið
undanfarin tvö ár séu innan eðlilegra
marka og lærdómsríkar. Hann seg-
ir vissulega að í einhverjum tilvikum
hefði verið hægt að spara ferðalög.
„Ferðirnar hafa án efa komið stjórn-
armönnunum að miklu gagni því
þarna hafi fyrirtæki og aðstaða verið
skoðuð sem peningar hafa verið sett-
ir í. Það er nauðsynlegt að skoða þau
dæmi sem eru í gangi,“ segir Hjörleif-
ur.
„Það má alltaf ræða fram og til
baka hvar hefði mátt spara og hvort
í einhverjum tilvikum hefði verið
hægt að senda færri fulltrúa. Fyrir
það verða stjórnarmennirnir sjálfir að
svara en í flestum tilfellum hefur þetta
eflt víðsýni þeirra. Hjá okkur er núna
allt á bremsunni og við eyðum ekki
neinu í ferðir nema þær séu bráð-
nauðsynlegar. Hvað þessi tvö ár varð-
ar hefði hugsanlega í einhverjum til-
vikum verið hægt að spara peninga.“
Orkuveita Reykjavíkur veitir ekki upplýsingar um hvaða starfsmenn hafa ferðast, til
hvaða landa hefur verið farið og í hvaða tilgangi var farið á vegum fyrirtækisins síðustu
tvö ár. Stjórnarmenn fyrirtækisins ferðuðust til tólf landa fyrir tæpar sjö milljónir króna.
FERÐUÐUST FYRIR
SJÖTÍU MILLJÓNIR
„Hjá okkur er núna allt á
bremsunni og við eyðum
ekki neinu í ferðir nema þær
séu bráðnauðsynlegar.“
Ferð: Starfsmaður: Áfangastaður Erindi:
... Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið
... Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið
... Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið
... Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið
... Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið
... Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið Fæst ekki uppgefið
Sundurliðun ferðakostnaðar OR 2008 og 2009:
n Árið 2008: 44,2 milljónir króna.
n Árið 2009: 18,1 milljónir króna.
Ferðakostnaður OR
2008 og 2009:
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Á ferð og flugi Starfsmenn og
stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur
hafa ferðast út fyrir tæpar sjötíu
milljónir króna síðustu tvö ár.
MILLJÓNIR Í
LAUN HJÁ REI
Þórðarson var stjórnarformaður og
samningur gerður við Geysi Green
um verkefni á Filippseyjum. Enginn
minnihlutamaður átti sæti í stjórn.“
Stigum mjög rólega til jarðar
Sigrún Elsa segir að í tíð hundrað
daga meirihlutans hafi verið unn-
ið áfram í samræmi við samninga.
Reynt hafi verið að halda uppi vörn-
um fyrir fyrirtækið. „Engir pólitískir
fulltrúar sátu þá í stjórn REI. Utan-
aðkomandi aðilar komu inn og stigu
mjög rólega til jarðar á meðan skýrsl-
an okkar um REI-málið var unnin.
Ekkert tilboð var gert í filippseyska
fyrirtækið á þeim tíma. Samstarfsað-
ilar okkar á Filippseyjum vildu bjóða
miklu meira en við vildum og því
varð ekkert úr þessu.“
Sigrún segir að útrás REI hafi alls
ekki hafist hjá hundrað daga meiri-
hlutanum. „Við höfum alltaf lagt
áherslu á að selja þekkingu en ekki
vera í fjármögnun. Það er mikilvægt
að þessi þekking nýtist og við sköp-
um gjaldeyristekjur erlendis,“ segir
Sigrún Elsa og vísar til gjörða fyrsta
meirihlutans í REI-málinu. „Þetta
varð allt saman til í stjórnartíð Sjálf-
stæðisflokksins og þeir bara eiga það.
Þá hefði FL Group fengið að leika sér
með þetta sem skömmu áður hafði
styrkt Sjálfstæðisflokkinn um 30
milljónir.“
Kjartan Magnússon
Núverandi nefndastörf á vegum
Reykjavíkurborgar:
Borgarráð
Íþrótta- og tómstundaráð, formaður
Menntaráð, formaður
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
Stjórnkerfisnefnd
Laun borgarfulltrúa 404.000
Laun fyrir nefndastörf 160.000
Laun fyrir setu í borgarráði 100.000
Starfskostnaður 60.000
Stjórnarseta í OR 112.500
Stjórnarformannsseta í REI 180.000
Smt. 1.083.564
Athugið að ekki er greitt viðbótarálag
þó að menn séu formenn í fleiri en
einni nefnd.
Árslaun fyrir REI: 2.160.000
Sigrún Elsa Smáradóttir
Laun borgarfulltrúa 404.664
Starfskostnaður 60.400
Stjórnarseta í OR 112.500
Stjórnarformannsseta í REI 90.000
Smt. 683.564
Árslaun fyrir REI: 960.000
Laun alþingismanns
Landsbyggðarkjördæmi
Þingfararkaup 520.000
Starfskostnaðargreiðslur 66.400
Ferðakostnaðargreiðslur 61.400
Húsn.- og dvalarkostnaður 126.980
Samtals 774.780