Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 18. janúar 2010 FRÉTTIR
Vill ekki sjá
strandveiðar
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir nýja
skýrslu Háskólaseturs Vestfjarða
um framgang og áhrif strand-
veiðanna staðsfesta að strand-
veiðar séu sóun á verðmætum.
Hann segir sóun hafa einkennt
þessar veiðar hvar sem á sé litið.
Í skýrslunni sem um ræðir
kemur fram að aðeins 56 prósent
forsvarsmanna fiskmarkaða og
fiskkaupenda telja að gæði þess
fisks sem barst á land í strand-
veiðunum síðasta
sumar standist
samanburð við
annan afla.
Friðrik segir
strandveiðarn-
ar hafa leitt til að
verra hráefni
komi að
landi.
Tveimur bjargað
úr Öxará
Tveimur var bjargað úr Öxará
við Svartagil á Þingvöllum upp
úr hádeginu í dag þegar bíll
fólksins drap á sér í miðri ánni.
Að sögn lögreglunnar ætlaði
fólkið að fara yfir ána en fór of
djúpt með þeim afleiðingum að
vél bílsins drap á sér.
Fólkið komst út úr bílnum
og upp á þak bílsins þar sem því
tókst að láta vita af sér. Komu
Björgunarsveitin Ingunn og
hjálparsveitin Tintron fólkinu
til bjargar og komst fólkið í land
um klukkustund eftir óhappið,
eða um tvöleytið. Þau voru
ómeidd en orðin nokkuð köld
eftir biðina.
Bíllinn náðist svo á þurrt
skömmu síðar.
Vinstri-græn
styðja stjórnina
Á flokksráðsfundi vinstri
grænna, sem haldinn var
á Akureyri, var samþykkt
ályktun þess efnis að lýsa yfir
fullum stuðningi við störf rík-
isstjórnar vinstri grænna og
Samfylkingar. Þá telur fund-
urinn að áframhaldandi sam-
starf flokkanna vera kjölfestu
fyrir samfélagið í gegnum
erfiða tíma, eins og það er
orðað. Vinstri-græn segira að
tryggja verði að á næstu árum
verði í stjórnarráði landsins
stjórn sem kennir sig við vel-
ferð og að óheftri frjálshyggju
síðustu 18 ára verði úthýst til
frambúðar.
„Þetta er mikill sigur,“ segir Geir
Gestsson, lögmaður eignarhaldsfé-
lagsins Imon, sem er í eigu útrásar-
víkingsins Magnúsar Ármann. Fyrir
helgi var milljarðamáli Landsbank-
ans á hendur fyrirtækinu vísað frá í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Imon-málið snýst um kaup
eignarhaldsfélagsins á hlutabréf-
um í Landsbankanum fyrir rúma
fimm milljarða króna rétt fyrir hrun,
3. október 2008. Kaupin áttu sér
stað þremur dögum áður en Fjár-
málaeftirlitið tók Landsbankann
yfir, þann 6. október. Þá átti Imon
rúmlega 4 prósenta hlut í bank-
anum. Imon Magnúsar Ármann
fjármagnaði hlutabréfakaupin að
fullu með láni frá Landsbankanum.
Imon lagði stofnfjárbréf sín í spari-
sjóðnum Byr að veði fyrir láninu og
Nýi Landsbankinn leysti bréfin til
sín. Fyrir dómi vildi Landsbankinn
fimm milljarða.
Gleymdu að mínusa?
Það var í raun Landsbankinn sem
fór fram á að málið yrði fellt niður
og Geir telur að það hafi verið sam-
þykkt út frá frávísunarkröfu hans.
Bankinn fór fram á fimm milljarða
og lögmaðurinn telur að ekki hafi
verið tekið tillit til veðanna sem
bankinn tók til sín. „Ég lít svo á að
með því að málið var fellt niður hafi
það verið viðurkenning á frávísun-
arkröfunni. Bankinn gekk að veð-
um vegna lánanna, sem voru stofn-
fjárbréf í Byr, og í málinu var mjög
óskýrt hvort tekið væri tillit til þeirra
veða í kröfu málsins. Það var hrein-
lega ekki dregið frá og þess vegna
kröfðumst við frávísunar. Ég þori
svo sem ekki að tjá mig um hvort
stefnt verði á nýjan leik en komi til
þess verðum við tilbúnir,“ segir Geir.
„Þetta eru hlutabréfakaup sem
Imon-menn hafa verið ósáttir við
og þeir vilja meina að þeim hafi ver-
ið seld ónýt bréf rétt fyrir hrun. Mis-
tökin liggja hjá Landsbankanum,
hreint og klárt, og þú getur sjálfur
ímyndað þér hversu sáttur
þú værir með að vera seld
svona bréf. Þetta snýr
að bankanum en ekki
mínum skjólstæðing-
um.“
Magnús mætti ekki
Sérstakur saksóknari
hefur rannsakað Imon-
málið þar sem grun-
semdir eru uppi um
að þetta hafi í
raun ver-
ið
sýndarviðskipti. Slík markaðsmis-
notkun gæti varðað sex ára
fangelsi. Bæði Magnús og
Sigurjón Árnason, fyrr-
verandi bankastjóri
Landsbankans, hafa
verið með stöðu sak-
borninga í rannsókn-
inni og voru yfirheyrðir
sem slíkir. Þá var Björ-
gólfur Guðmundsson,
fyrrverandi stjórnarfor-
maður Landsbankans,
einnig yfirheyrður
í málinu.
Sam-
kvæmt
heim-
ild-
um
DV tók Sigurjón ákvörðunina um að
lána Magnúsi fyrir bréfunum og því
ætti óánægja þess síðarnefnda, um
að honum hafi verið seld ónýt bréf,
að beinast að bankastjóranum fyrr-
verandi.
Magnús Ármann, stjórnarfor-
maður Imon, mætti ekki í réttarsal-
inn fyrir helgi. DV óskaði eftir því
við lögmanninn að fá að ræða við
Magnús en þeirri beiðni var synjað.
Aðspurður hvar hann væri niður-
kominn og hvernig hann hefði það
sagði Geir: „Hann býr úti í London.
Það er engin leið að ég geti hjálpað
við að komast í samband við hann.
Í sjálfu sér veit ég ekki hvort hann
hafi það gott en við erum í reglulegu
sambandi. Eftir atvikum er hljóðið í
honum ágætt.“
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
ÁFANGASIGUR
FYRIR MAGNÚS
ÁRMANN
Sýndarviðskipti? Samkvæmt
heimildum DV á Sigurjón að hafa lánað
Imon en saksóknari rannsakar hvort
um sýndarviðskipti hafi verið að ræða.
Landsbankinn hefur dregið milljarðamál gegn félagi í eigu
Magnúsar Ármann til baka. Lögmaður Magnúsar fagnar
sigrinum, en fullyrðir að félaginu hafi verið seld ónýt bréf í
Landsbankanum rétt fyrir hrun, en Landsbankinn lánaði Imon
til kaupa í bankanum. Sérstakur saksóknari rannsakar hvort
kaupin á ónýtu bréfunum hafi í raun verið sýndarviðskipti.
Úti í London
Magnús mætti
ekki í réttarsalinn
en samkvæmt
lögmanni hans er
hljóðið í honum
ágætt.
Fagnar sigri Geir er ánægður með frávísun málsins og segist verða reiðbúinn til
að takast á við Landsbankann verði stefnt aftur.
Yfir hundrað mál
á einni nóttu
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu fékk alls 102 mál inn á borð
til sín frá miðnætti á aðfara-
nótt sunnudags til klukkan sjö
á sunnudagsmorgunn. Lögregl-
an hafði þar af leiðandi í nógu
að snúast og voru 10 ökumenn
teknir ölvaðir við undir stýri. Þá
voru þrír til viðbótar teknir fyrir
að keyra undir áhrifum eitur-
lyfja. Þeir geta allir búist við því
að missa ökuleyfið og að þurfa
að borga háa sekt.
Lögreglan þurfti að sinna
fimm umferðaróhöppum, í einu
þeirra varð slys á fólki en í sum-
um tilvikum leikur grunur á að
ökumennirnir hafi verið ölvaðir.
Í ályktun flokkráðsfundar VG, sem
fram fór um helgina, er rætt um að
samdráttur á fjölmiðlamarkaði hafi
leitt til þess að blaðamönnum sé
sniðinn óheyrilega þröngur stakkur.
„Álag á fjölmiðlum er mikið og þeir
blaðamenn sem enn ekki hafa orðið
niðurskurðarhnífnum að bráð búa
við mikið atvinnuóöryggi, sem aft-
ur leiðir til þess að þeir geta átt erf-
itt með að standa vörð um sjálfstæði
sitt gagnvart yfirmönnum sínum og
eigendum fjölmiðlanna, bæði varð-
andi efnistök og óraunhæfar kröfur
um vinnutíma og afköst. Fjölmiðlum
er nú grímulaust beitt sem áróðurs-
tækjum eigenda sinna.“
Hvorki formaður Blaðamannafé-
lags Íslands né varaformaður vildu
ræða við DV vegna ályktunarinnar í
gærkvöldi.
Rætt er sérstaklega um stöðu
Morgunblaðsins og 365 miðla.
„Ráðning ritstjóra Morgunblaðsins
og sviptingar í mannahaldi þar og á
fleiri miðlum eru skólabókardæmi
um slíkt. Rekstur og tilgangur 365
miðla er illskiljanlegur í ljósi hruns-
ins og framtíð allra miðla óviss.“
Fundarmenn á Akureyri töldu
enn fremur að jafnréttismál í blaða-
mannastéttinni hefðu orðið fyrir
miklu bakslagi. „[N]úverandi og fyrr-
verandi formanni Blaðamannafélags
Íslands og varaformanni félagsins,
sem allar eru konur, verið sagt upp
störfum með stuttu millibili. Á sama
tíma voru aðrir blaðamenn, allt karl-
ar, ráðnir til starfa á viðkomandi fjöl-
miðlum.“
Í ályktun flokkráðsfundar VG
er Páll Magnússon útvarpsstjóri
harðlega gagnrýndur. „Stjórnend-
ur RÚV hafa heldur ekki borið gæfu
til að skilja hlutverk stofnunarinnar.
Áherslan er áfram á ungar, vel laun-
aðar sjónvarpsstjörnur, forstjóralaun
og jeppa, og niðurskurðartillögur
ganga helst út á tilraunir til að losna
við láglaunaða, reynda útvarps-
menn, sem ætti að öðrum ólöstuð-
um helst að halda í. “
helgihrafn@dv.is
Rætt var um stöðu fjölmiðla í ályktun flokksráðsfundar VG á Akureyri:
Óttast um stöðu fjölmiða
Forstjóralaun og jeppi VG
gagnrýnir Pál Magnússon útvarps-
stjóra fyrir áherslu á ungar stjörnur,
forstjóralaun og jeppa.