Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Side 8
8 MÁNUDAGUR 18. janúar 2010 FRÉTTIR
Íslenskir Liverpool-aðdáendur hér á
landi verða ekki fyrir eins miklu fjár-
hagstjóni og í fyrstu var óttast eftir að
hópur á vegum Liverpool-klúbbsins
á Íslandi fór fýluferð á leik með enska
liðinu. Nú er orðið ljóst að áhangend-
urnir fá aðgöngumiðann á völlinn
endurgreiddan ásamt því að ferða-
skrifstofan VITA, sem hélt utan um
ferðina, bauð öllum að fara heim fyrr
sem dró verulega úr kostnaði þeirra
sem það þáðu.
Leikurinn átti að fara fram á
heimavelli Liverpool-liðsins, Anfi-
eld-leikvanginum, á sunndaginn síð-
astliðinn en þegar íslensku áhang-
endurnir, sem allir eru meðlimir í
stuðningsmannaklúbbi liðsins hér á
landi, voru í vélinni yfir Atlantshafinu
á föstudaginn var sótt um að leiknum
yrði frestað. Þegar hópurinn lenti á
enskri grundu var búið að samþykkja
frestun. Í fyrstu var óttast að tap hvers
og eins gæti numið nærri hundrað
þúsund krónum í það minnsta og þá
var óljóst hvort miðar á sjálfan leikinn
fengjust endurgreiddir.
Lúðvík Arnarson, forstöðumað-
ur VITA Sport, telur að allt hafi ver-
ið gert til þess að koma til móts við
áhangendur enska liðsins. Hann seg-
ir Icelandair og hótelið hafa sýnt mál-
inu mikinn skilning sem lágmarkaði
skaðann verulega. „Þegar kom í ljós
að leiknum var frestað fórum við strax
í að leita leiða til að bjarga því sem
bjargað varð, ég hef verið í sambandi
við alla farþegana eftir heimkomu og
ekki annað að heyra en menn séu
sáttir miðað við allt og allt. Því mið-
ur eru engar tryggingar sem ná yfir
frestanir af völdum veðurfars og þess
vegna óttuðust menn í upphafi að
skaðinn yrði að öllu leyti farþeganna.
Það má því segja að snörp viðbrögð
hafi bjargað því sem bjargað varð,“
segir Lúðvík.
trausti@dv.is
Ferðaskrifstofan VITA kemur til móts við óheppna knattspyrnuáhugamenn:
Ferðalöngum bætt tap að hluta
Misstu af stjörnunum
Íslenskir fótboltaáhangend-
ur Liverpool-liðsins náðu
ekki að sjá stjörnur liðsins
spila um síðustu helgi.
Ólafur Ragnar í
bílaverksmiðju
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, og Dorrit Moussiaeff
forsetafrú heimsóttu rafbíla-
verksmiðju í Bangalore auk fleiri
fyrirtækja á sunnudag. Það var
hluti af opinberri heimsókn
hans til Indlands.
Ólafur Ragnar ræddi við
fjölmiðla á flugvellinum við
komuna til Bangalore. Haft var
eftir Ólafi Ragnari í indversk-
um fjölmiðlum að hann ætlaðii
sér að ræða við fulltrúa margra
fyrirtækja á sviði hreinnar orku
og upplýsingatækni. Forsetinn
sagðist einnig ætla að efna til
samstarfs á milli Íslands og Ind-
lands á þessu sviði. Hann sagðist
ánægður með heimsóknina til
Indlands.
Svangur þjófur
með mat og vín
Lögreglumenn á Selfossi
hlupu uppi mann sem brotist
hafði inn á kaffihúsið Kaffi
Krús aðfaranótt laugardags.
Þjófavarnarkerfi í húsinu
hafði farið í gang þegar hann
braust inn og var lögregla
fljót á vettvang.
Maðurinn var með þýfi
á sér þegar lögreglan hafði
hendur í hári hans; aðallega
mat og vín. Maðurinn er á
þrítugsaldri og hefur áður
komið við sögu lögreglu.
Stjórnlaust land
„Ég held að það láti mjög nærri
að landið sé stjórnlaust þegar
forseti Íslands grípur með þess-
um hætti
fram fyrir
hendurnar
á meirihluta
Alþingis,
talar gegn
sinni eigin
ríkisstjórn
á erlendum
vettvangi.
Þá er að minnsta kosti mjög sér-
kennileg staða uppi í stjórnskip-
un landins,“ segir Þorsteinn Páls-
son, fyrrverandi forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
í netvarpsviðtali Pressunnar.
Þorsteinn fer í viðtalinu yfir
stöðu málsins í Icesave-málinu
og segir skýrt að breyta þurfi
stjórnarskránni, sérstaklega
að þeim ákvæðum sem lúta að
þjóðaratkvæðagreiðslum og
hlutverki forsetans.
„Það hefur engan tilgang að reyna
að fara í nýja samninga nema að
breið samstaða sé um það með-
al stjórnmálaflokkanna,“ segir Öss-
ur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra um þær þreyfingar sem hafa
átt sér stað milli stjórnar og stjórn-
arandstöðu varðandi nýjan samn-
ing við Breta og Hollendinga um
ríkisábyrgð á Icesave. Í viðræðunum
hafa stjórnmálaforingjarnir reynt að
finna á því flöt að komast hjá þjóð-
aratkvæðagreiðslu með því að ná
hagstæðari samningum.
„Í svona snúinni stöðu þar sem
miklir hagsmunir Íslands eru undir
verða menn að hafa þrek til þess að
standa saman,“ segir Össur.
Tíðir fundir
Foringjar stjórnar og stjórnarand-
stöðu hafa fundað þrisvar um þessi
mál og þótti jákvæður andi ríkja á
þeim fundum. Um miðja síðustu viku
talaði Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, um að stutt væri í
að samkomulag næðist um að stjórn-
málaflokkarnir kæmu fram sem ein
heild gagnvart Bretum og Hollend-
ingum varðandi nýjan samning.
Viðbúið er að fundað verði aftur í
dag, mánudag. Ekkert var fundað um
helgina, eftir því sem DV kemst næst,
og Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra gat ekki setið fund flokksfor-
mannanna á föstudag þar sem hann
var á flokksráðsfundi vinstri-grænna
á Akureyri.
Leita leiða strax
„Það er neyðarbrauð að fara með
þetta mál í þjóðaratkvæði. Almenn-
ingur gerir þá kröfu til stjórnmála-
manna að þeir komist að sameigin-
legri niðurstöðu. Verður að mínu mati
fellt í þjóðaratkvæði. Þá þurfa menn
hvort eð er að leita einhverra nýrra
leiða. Það er skárra að leita þeirra
leiða strax,“ segir Kristján Þór Júlíus-
son, alþingismaður Sjálfstæðisflokks-
ins, um stöðu IceSave-málsins.
Kristján hefur miklar efasemdir
við það hvernig forsetinn beitir synj-
unarvaldi sínu.
„Hvaða lögum mun forsetinn
synja staðfestingar næst? Hvað ætlar
forsetinn að gera ef fram koma lög um
töskuburð ráðamanna?“ spyr Kristján
og hlær.
Þjóðin kjósi
Birgitta Jónsdóttir, fulltrúi Hreyfingar-
innar í viðræðunum, segir ekkert nýtt
hafa gerst í viðræðum um helgina og
staðan því lítið breyst. Helst furðar
hún sig á orðum Steingríms J. Sigfús-
sonar fjármálaráðherra á flokksráðs-
fundi vinstri-grænna um helgina þar
sem hann lagði mikla áherslu á að
lögin sem forsetinn synjaði staðfest-
ingar yrðu staðfest í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þetta væri ekki í takt við við-
ræður flokkanna.
Hún leggur áherslu á að fólk fái
að kjósa. Viðræður flokkanna núna
eigi hins vegar að snúast að því að
undirbúa hvað gerist þegar sú nið-
urstaða liggur fyrir, en skoðana-
kannanir gefa til kynna að lögunum
verði hafnað. Hún segir margt óljóst
í viðræðum flokkanna, þar á með-
al aðkoma vilji og aðkoma Breta og
Hollendinga að nýjum samningum.
Hún segir þó ljóst að ekki eigi að fara
í nýjar samningaviðræður við þá
nema ljóst sé að þeir séu reiðubúinir
að ræða betri samning en þann sem
nú liggur fyrir.
NAUÐSYN AÐ
NÁ SAMSTÖÐU
Fulltrúar flokkanna halda áfram viðræðum sínum um hvað skuli gera í Icesave. Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Kristján Þór Júlíusson leggja áherslu á sameigin-
lega niðurstöðu. Birgitta Jónsdóttir vill láta kjósa en vera viðbúin því hvað gerist næst.
BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Mikil andstaða Skoðanakannanir
gefa til kynna að Icesave-lög verði felld.
Því vilja stjórnmálamenn vera viðbúnir
og hafa aðra leið tilbúna, eða sleppa
þjóðaratkvæði og semja upp á nýtt áður.