Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Side 15
FRÉTTIR 18. janúar 2010 MÁNUDAGUR 15
Jack Straw, utanríkisráðherra Ton-
ys Blair, varaði í „leynilegu einka“-
bréfi til Blairs við afleiðingu inn-
rásar í Írak og opinberar bréfið
alvarlegar efasemdir um réttmæti
hennar innan ríkisstjórnar lands-
ins.
Jack Straw sendi Tony Blair bréf-
ið um ári áður en Íraksstríðið hófst,
nánar tiltekið tíu dögum áður en
Tony Blair hitti George W. Bush,
fyrrverandi forseta Bandaríkjanna,
á Crawford-ráðstefnunni í Banda-
ríkjunum í apríl 2002
Leyndi þjóðina upplýsingum
Í bréfinu kemur skýrt fram að Blair
var þá þegar farinn að undirbúa
hernaðaraðgerðir, jafnvel þótt hann
fullyrti gagnvart bresku þjóðinni að
ekkert slíkt væri í bígerð.
Bréfið verður lagt til grundvallar í
Íraksrannsókninni þegar Jack Straw
verður spurður spjörunum úr í vik-
unni.
Í bréfinu segir Jack Straw með-
al annars að Bretlandi standi ekki
meiri ógn af Írak en áður og að „eng-
ar trúverðugar sannanir“ væru fyrir
tengslum Íraks og al-Kaída og að ógn
af hálfu Íraks hefði ekki aukist vegna
árásanna á Bandaríkin í september
2001.
Straw varar við tveimur lögfræði-
legum „fílagildrum“; að „breyting á
stjórn réttlæti strangt til tekið ekki
hernaðaraðgerðir“ og að það sé laga-
lega mikilvægt að fá nýtt umboð til
aðgerða frá Sameinuðu þjóðunum.
Hvert var markmiðið?
Einnig er varpað fram spurningunni
um hið eiginlega markmið hernað-
araðgerða. „Við verðum einnig að
svara stóru spurningunni - hverju
náum við fram með þessum aðgerð-
um. Þetta virðist vera gloppóttara en
nokkuð annað,“ segir Straw í bréfinu.
Í hnotskurn varaði Jack Straw
Tony Blair, þáverandi forsætisráð-
herra Bretlands, við afleiðingum
hernaðaraðgerða og sagði áhöld
um lagalegt réttmæti innrásarinnar
og sagði að engin trygging væri fyr-
ir því að framtíð Íraks yrði bjartari þó
Saddam Hussein yrði fjarlægður af
sjónarsviðinu.
Stríðsglæpir Blairs
Öll spjót beinast nú að Tony Blair
vegna þátttöku Breta í Íraksstríð-
inu og samkvæmt könnun á vegum
Sunday Times telja 52 prósent Breta
að Blair hafi blekkt þjóðina vísvit-
andi hvað stríðið varðar og nærri 25
prósent telja að rétta eigi yfir honum
sem stríðsglæpamanni.
Ráðgjafi Tonys Blair, Alastair
Campbell, vísaði í vitnaleiðslum
Íraksrannsóknarinnar á bug fullyrð-
ingum um að ákvörðun um að koma
á annarri stjórn í Írak hefði verið tek-
in á Crawford-ráðstefnunni. Sagði
Campbell að sú ákvörðun hefði ver-
ið tekin mun seinna, en bréf Straws
virðist staðfesta hið gagnstæða.
Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, er í slæmum málum vegna Íraks-
stríðsins. Nú hefur verið birt bréf til hans frá þáverandi utanríkisráðherra Bretlands,
Jack Straw, en í því er Blair varaður, meðal annars, við lagalegu réttmæti innrásar í Írak.
„GLOPPÓTTARA EN
NOKKUРANNAГ
Í bréfinu kem-
ur skýrt fram að
Blair var þá þegar farinn
að undirbúa hernaðar-
aðgerðir, jafnvel þótt
hann fullyrti gagnvart
bresku þjóðinni að ekk-
ert slíkt væri í bígerð.
Réttarhöldum yfir
Berlusconi frestað
Réttarhöldum vegna spillingar-
máls sem tengist Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið
frestað til 27. febrúar. Berlusconi
er sakaður um að hafa mútað fyrr-
verandi skattalögfræðingi sín-
um, David Mills, til bera ljúgvitni
í tvennum réttarhöldum á níunda
áratugnum.
David Mills hefur þegar ver-
ið sakfelldur fyrir að hafa þeg-
ið 450.000 evrur í mútur en hefur
áfrýjað dómnum. Berlusconi hef-
ur neitað sök on nú hafa dómarar
ákveðið að fresta réttarhöldunum
þar til áfrýjun Mills hefur verið til
lykta leidd.
Ólæsir fangar
Nýjar upplýsingar um læsi fanga í
skoskum fangelsum hafa leitt í ljós
að helmingur fanga sem stunda
nám í fangelsunum er ólæs að svo
miklu leyti að það takmarkar getu
þeirra til virkni í samfélaginu.
Að sögn skoska verkamanna-
flokksins eru upplýsingarnar „slá-
andi“ og krafðist hann tafarlausar
aðgerða til að taka á málinu. Fang-
elsismálastjórn Skotlands upplýsti
einnig að um 1.800 fangar sæktu
nám í hverjum mánuði til að læra
að lesa og skrifa.
Þess má geta að á síðasta ári
komst nefnd skoska verkamanna-
flokksins um læsi að því að fimmt-
ungur barna fer ólæs og óskrifandi
úr forskóla.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Páfagarður var ekki skeytingarlaus gagnvart helförinni:
Páfi verst ásökunum
Benedikt XVI páfi varðist ásökunum
þess efnis að Páfagarður hefði sýnt
útrýmingu gyðinga í Evrópu í síðari
heimsstyrjöldinni skeytingarleysi.
Í sögulegri heimsókn í helsta sam-
komuhús gyðinga í Róm sagði páfi að
Páfagarður hefði hjálpað gyðingum
og „veitt aðstoð, oft á heimullegan og
hljóðlátan máta“.
Áform Benedikts páfa um að setja
Píus XII, sem sat á páfastóli á tímum
síðari heimsstyrjaldarinnar, hafa vak-
ið reiði gyðinga sem notuðu heim-
sókn Benedikts til að fordæma Pius
XII fyrir að hafa ekki komið til varn-
ar gyðingum „sem sendir voru í ofna
Auschwitz“.
Páfi viðurkenndi að „því miður hefðu
margir verið skeytingarlausir“ með tilliti
til þjáninga gyðinga en að Páfagarður
hefði komið gyðingum til hjálpar.
Benedikt páfi sagði að með tilliti
til nasismans hefði 20. öldin „sannar-
lega verið sorglegur tími fyrir mann-
kynið: grimmdarlegt stríð hefði stráð
áður óþekktri eyðileggingu, dauða og
þjáningum; skelfileg hugmyndafræði,
vaxin af átrúnaði á manni, kynþætti og
ríki, leiddi til bróðurvíga“.
Riccardo Pacifici, leiðtogi samfé-
lags gyðinga í Róm, var þungorður í
garð Páfagarðs og sagði að „þögn Píus-
ar XII fyrir helförina“ væri enn sárs-
aukafull og hvatti stjórnvöld í Páfa-
garði til að heimila fræðimönnum
aðgang að skjölum Páfagarðs um styrj-
aldarárin.
Fimmtán sem lifðu af helför-
ina voru viðstaddir athöfnina, en þó
nokkrir sniðgengu hana, þeirra á með-
al fjöldi mikils metinna ítalskra gyð-
inga.
Glaðbeittur Benedikt XVI páfi
Við komuna í helsta samkomuhús
gyðinga í Róm.
MYND: AFP
Vilja grafa svín
lifandi
Vísindalegar tilraunir á dýrum
hafa löngum verið tilefni til deilna.
Þannig hafa tilraunir á músum þótt
orka tvímælis þótt þær grípi ekki fyr-
irsagnir dagblaða lengur. Fyrirhug-
uð tilraun vísindamanna í Austur-
ríki hefur þó valdið miklu fjaðrafoki
en þeir hyggjast grafa 29 svín lifandi
undir snjó til að rannsaka hvernig
mannfólkið getur komist betur af
lendi það í snjóflóðum.
Tilraunin átti að hefjast í aust-
urrísku Ölpunum í síðustu viku en
henni var frestað vegna mikilla og
háværra mótmæla.
Það er stofnunin Mountain Em-
ergency Medicine í Bolzano á Ítalíu
sem skipulagði rannsóknina. Henni
var ætlað að varpa ljósi á það hvern-
ig mannfólkið geti mögulega sloppið
úr snjóflóðum án þess að verða fyrir
heilaskaða af völdum súrefnis-
skorts. Átti rannsóknin að
standa þar til síðasta
svínið gæfi upp önd-
ina.