Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Síða 22
22 MÁNUDAGUR 18. janúar 2010
SVONA FORÐAST ÞÚ DAUÐANN
LUNGU 24%
BLÖ
ÐR
UH
ÁLS
-
KIR
TIL
L 18
%
RISTILL 9%
M
AG
I 5
%
BR
IS
6
%
NÝ
RU
5%Þ
VAG
RÁ
S 4
%ÖNN
UR L
ÍFFÆ
RI 29
%
LUNGU 25% BR
JÓS
T 1
6%
RISTILL 9%
M
AG
I 5
%
BR
IS
6
%
EG
GJ
AS
TO
KK
AR
6%
HE
ILI
3%
ÖNN
UR L
ÍFFÆ
RI 3
1%
Karlar sem létust af völdum krabbameins: Konur sem létust af völdum krabbameins:
Árin 2003 til 2007 – skipting eftir upprunalíffæri meinsins Árin 2003 til 2007 – skipting eftir upprunalíffæri meinsins
Tveir þriðju hlutar þeirra sem létu lífið í
fyrra önduðust vegna sjúkdóma í blóðrás-
arkerfi eða krabbameins. Rétt liðlega 2.000
manns létu lífið á Íslandi í fyrra. Þar af lét-
ust liðlega 1.300 af áðurnefndum orsökum.
Það er svipuð tölfræði og undanfarin ár en
þegar horft er til lengri tíma kemur í ljós að
krabbamein verður sífellt algengara. DV
hefur tekið saman upplýsingar um algeng-
ustu dánarorsakir Íslendinga og hvernig
koma má í veg fyrir að falla frá.
Blóðrásarsjúkdómar
Hagstofan heldur tölfræði um dánaror-
sakir Íslendinga. Þar kemur fram að 982
karlar létust í fyrra en 1.005 konur. Rúm-
lega sjö hundruð manns létust af völd-
um æða- og hjartasjúkdóma eða þess sem
kallast sjúkdómar í blóðrásarkerfi. Undir
sjúkdóma í blóðrásarkerfi falla til dæm-
is hjartasjúkdómar og heilablóðfall. Það
er langalgengasta banameinið en ástæðu
þess má samkvæmt Vísindavefnum rekja
til þess að eftir því sem við eldumst verði
frumuskiptingar í líkamanum hægari og
því nái frumurnar ekki að endurnýja sig
eins hratt og þarf til að halda óskertri getu
og starfsemi. „Þetta leiðir til þess að all-
ir vefir líkamans hrörna smám saman og
á endanum bilar eitthvað sem líkaminn
nær ekki að lagfæra, hann getur ekki starf-
að lengur og við deyjum,“ segir á Vísinda-
vefnum.
Um 560 manns létust af völdum æxla,
sem í daglegu tali nefnist krabbamein. Undir
æxli falla flestallar tegundir krabbameins, til
dæmis í ristli, brisi, brjósti, vélinda og maga.
Framangreindar orsakir verða tveimur
þriðju hlutum þeirra sem andast að aldur-
tila.
Öndunar- og skynfæri
Þriðja algengasta banamein Íslendinga
í fyrra voru sjúkdómar í öndunarfærum.
Undir þannig skjúkdóma falla til dæmis in-
flúensa og lungnabólga.184 létu lífið úr slík-
um sjúkdómum eða um 9 prósent þeirra
sem létust í fyrra. Þar á eftir koma ytri or-
sakir áverka og eitrana. Undir ytri orsak-
ir áverka og eitrana falla óhöpp af ýmsum
toga, til dæmis umferðaróhöpp, sjálfsvíg,
manndráp og atburðir þar sem óvíst er um
ásetning. 125 manns, eða 6,3 prósent þeirra
sem létust í fyrra, falla í þennan flokk.
Þar á eftir koma dauðsföll vegna geð- og
atferlisraskana (3,1 prósent) og svo dauðs-
föll vegna sjúkdóma í meltingarfærum (2,9
prósent).
Undir framantalda fimm flokka falla um
94 prósent þeirra sem létust í fyrra.
Fyrirbyggið hjarta- og æðasjúkdóma
Fjörutíu ára rannsóknir Hjartaverndar
hafa leitt í ljós að hjarta- og æðasjúkdóm-
ar eru á undanhaldi á Íslandi, þrátt fyrir að
þeir séu enn algengasta dánarorsök karla
og kvenna. Því miður falla margir á besta
aldri fyrir þessum sjúkdómum en margt er
þó hægt að gera til að fyrirbyggja hjarta- og
æðasjúkdóma. Helstu áhættuþættir hjarta-
og æðasjúkdóma eru reykingar, óheilbrigt
mataræði, offita og fjölskyldusaga. Þessi
þætti ber að forðast svo sem kostur er. Þá
getur hjálpað mikið að stunda líkamsþjálf-
un reglulega og fylgjast með líkamsþyngd.
Síðan er fólki ráðlagt að láta mæla áhættu-
þætti eins og blóðþrýsting, blóðfitur og
blóðsykur með jöfnu millibili. Auk þess á
fólk að taka fjölskyldusögu alvarlega, enda
eru sjúkdómarnir að einhverju leyti tengdir
erfðum.
Þriðjungur fær krabbamein
Krabbamein er, eins og áður sagði, næst-
algengasta orsökin fyrir því að fólk deyr
á Íslandi. Árin 2003 til 2007 greindust að
meðaltali 688 karlar og 619 konur með
krabbamein samkvæmt Krabbameinsskrá
Íslands. Í árslok 2007 voru 10.195 einstakl-
ingar sem greinst höfðu með krabbamein
en um þriðjungur Íslendinga fær krabba-
mein einhvern tímann á lífsleiðinni. Meira
en helmingur allra æxla greinist eftir 65 ára
aldur.
Ekki er vitað nákvæmlega hvern-
ig krabbamein verður til en atburðarás-
in sem leiðir til myndunar þess er flók-
in og þar kemur við sögu samverkan
margra þátta. Þekkt er að reykingar auka
stórlega hættuna á að fá lungnakrabba-
mein og fleiri tegundir krabbameins. Tal-
ið er að reykingar séu orsök allt að 20 pró-
senta allra krabbameina og skýrir það hina
miklu áherslu sem er lögð á tóbaksvarn-
ir. Verulega má draga úr líkum á krabba-
meini með því að reykja ekki eða hætta
að reykja. Um 90 prósent lungnakrabba-
meina eru rakin til reykinga.
Mataræði skiptir máli
Um 16 prósent þeirra kvenna sem deyja
vegna krabbameins fá krabbamein í
brjóst. Lítið er vitað um orsakir brjósta-
krabbameins en rannsóknir hafa þó sýnt
að hollt og fjölbreytt mataræði og reglu-
leg hreyfing geta dregið úr líkum á því að
konur fái krabbamein. Það gildir raunar
um flestar, ef ekki allar, tegundir krabba-
meins.
Krabbamein í blöðruhálskirtli er upp-
hafleg orsök andláts hjá fimmtungi þeirra
karla sem látast úr krabbameini. Orsak-
ir þessa meins þekkja menn illa en horm-
ónajafnvægið hefur eitthvað að segja. Vís-
bendingar benda til þess að mataræði spili
inn í en þessi tengund krabbameins er
mun algengari í Norður-Evrópu og Banda-
ríkjunum en í Japan. Eitthvað í vestrænu
umhverfi leiðir því frekar til krabbameins
í blöðruhálskirtli en í Japan.
Matur gegn krabbameini
Rannsóknir sýna að hægt er að koma í
veg fyrir allt að eitt af hverjum þremur
krabbameinstilfellum með því að borða
hollari mat, stunda líkamsrækt reglulega,
stilla drykkju og sólböðum í hóf og halda
sig frá reykingum. Í bókinni Bragð í bar-
áttunni – matur sem vinnur gegn krabba-
meini, kemur fram að fjölmargar tegund-
ir matvæla geta haft fyrirbyggjandi áhrif
á krabbamein. Þar á meðal eru sveppir,
rauðvín og súkkulaði.
Hér til hliðar má sjá lista yfir matarteg-
undir sem geta komið í veg fyrir krabba-
mein.
baldur@dv.is
Tvo þriðju allra dauðsfalla á Íslandi má rekja
til sjúkdóma í blóðrásarkerfi og krabbameins.
DV hefur tekið saman algengustu dánarorsakir
Íslendinga og hvað hægt er að gera til að fyrir-
byggja þessa banvænu sjúkdóma.
Hluftfall Alls Karlar Konur
Sjúkdómar í blóðrásarkerfi 35,53% 706 363 343
Æxli 28,77% 569 283 286
Sjúkdómar í öndunarfærum 9,26% 184 79 105
Sjúkdómar í taugakerfi og skynfærum 7,95% 158 68 90
Ytri orsakir áverka og eitrana 6,29% 125 78 47
Geðraskanir og atferlisraskanir 3,12% 62 20 42
Sjúkdómar í meltingarfærum 2,92% 58 29 29
Dánarorsök Íslendinga 2008
Um þriðjungur Íslendinga
fær krabbamein einhvern
tímann á lífsleiðinni.