Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2010, Side 23
18. janúar 2010 MÁNUDAGUR 23 SVONA FORÐAST ÞÚ DAUÐANN n Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök í flestum löndum OECD og voru 36% dánarmeina árið 2006 (Ísland 38%). Í þessum flokki dánarmeina eru blóðþurrðar- sjúkdómar og heilablóðfall. n Krabbamein er önnur helsta dánarorsök í löndum OECD (27 prósent) og er tíðnin hærri meðal karla en kvenna. Karlar á Íslandi voru með þriðju lægstu dánartíðni vegna krabba- meins (174 á 100.000 íbúa) árið 2006, næst á eftir Svíþjóð og Mexíkó en 13 lönd voru með lægri dánartíðni kvenna af völdum krabbameins en Ísland. n Dánartíðni vegna umferðarslysa var 8,2 á hverja 100.000 íbúa á Íslandi árið 2006, samanborið við 9,6 í löndum OECD. Tíðnin hefur dregist saman um 28 prósent á Íslandi frá 1970 en um 58 prósent að meðaltali í OECD-ríkjunum. Staðreyndir um dánarorsakir Lífslíkur við fæðingu voru 79,1 ár að meðaltali í ríkjum OECD árið 2007 og höfðu aukist um rúm tíu ár frá árinu 1960. Árið 2007 voru ævilíkur á Íslandi 81,2 ár, eða þær fimmtu hæstu meðal ríkja OECD. Lífslíkur íslenskra karla voru 79,4 ár, aðeins lægri en í Sviss þar sem þær voru hæstar. Lífslíkur kvenna á Íslandi voru 82,9 ár eða í 10.-12. sæti OECD-landa ásamt Austurríki og Noregi. Hæstar voru þær í Japan, 86,0 ár. Kynjamunur á ævilíkum við fæðingu var 5,6 ár að meðaltali í ríkjum OECD en minnstur á Íslandi, 3,5 ár. VERÐUM 81 ÁRS Hamingja í ellinni Heilsusamlegt mataræði og regluleg hreyfing getur haft úrslitaáhrif á það hvort þú fáir banvæna sjúkdóma. n Sveppir - Asískir sveppir geta dregið úr vexti krabbameinsæxlisfrumna. n Kryddjurtir - Til dæmis búa engifer, chili-pipar, mynta, timjan og óreganó yfir krabbameinshaml- andi og bólgueyðandi sameindum. n Kálmeti - Getur dregið úr hættu á lungna-, þvagblöðru- og brjóstakrabba og krabbameini í meltingarvegi. n Hvítlaukur - Lyktarsameindir í hvítlauk geta hraðað eyðingu eitraðra krabbameinsvaldandi sameinda. n Sítrusávextir - Geta minnkað líkur á krabbameini í vélinda, munni og maga um allt að helming. n Ber - Afurðir eins og rauðvín geta haft jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið og geta virkað gegn æxlismyndun. n Súkkulaði - Vísbendingar eru um að krabbameinshamlandi efni séu í kakómassa. Getur einnig fyrirbyggt hjarta- og æðasjúkdóma. Dæmi um mat sem vinnur gegn krabbameini

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.