Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Side 13
FRÉTTIR 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR 13
Í SJÖUNDA HIMNI
stjóri segir: „Við höfum trú á því
að þeirri hugmyndafræði okkar að
bjóða upp á úrval af innlánavörum
verði vel tekið í Bretlandi og ann-
ars staðar enda bjóðum við upp á
mjög samkeppnishæfa vöru sem
mun höfða vel til væntanlegra við-
skiptavina bankans í Bretlandi.““
Hundrað þúsundasti viðskipta-
vinur Icesave
Marjorie Robinson frá Hartlepool
á Norður-Englandi var hundrað
þúsundasti viðskiptavinur Icesave
í ágúst 2007. Landsbankinn ákvað
að heiðra hana af því tilefn og lagði
100.000 bresk pens (1000 pund
eða 200.000 íslenska krónur á nú-
virði) inn á Icesave-reikning henn-
ar. Að auki vann Marjorie ferð fyrir
tvo til Íslands og blómakrans. „Ég
er hæstánægð með að hafa unnið.
Þú heyrir alltaf um einhvern ann-
an sem lendir í svona, svo ég er
ánægð og ætla að nota peningana
til þess að njóta elliáranna,“ sagði
hún glöð hún í bragði í viðtali við
Moment.
Fleiri og fleiri
Þórlindur Kjartansson, fyrrverandi
formaður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, var yfirmaður alþjóðamark-
aðssviðs Landsbankans þegar Mom-
ent ræddi við hann vorið 2007. Þá
hafði tala breskra viðskiptavina Ic-
esave rokið upp í 80.000. Þórlindur
hafði það verkefni að auglýsa Icesave.
„Upphafið var einstaklega vel heppn-
að, eiginlega of vel heppnað, því við
höfum lent í erfiðleikum með að anna
eftirspurninni. En núna erum við
búin að auka þjónustugetuna gríð-
arlega svo við getum núna laðað enn
fleiri viðskiptavini til okkar.“
2,5 milljónir manna
sjái skiltið
Mark Sismey-Durrant sagði í við-
tali við Moment vorið 2008 að
nýjasta markaðsátak Icesave væri
meistaraverk. „Herferðin notaði
nýjan miðil fyrir Icesave – vegg-
spjöld á jarðlestarstöðvum og á
stærsta auglýsingaskilti Evrópu,
Colossus-skiltinu á Clapham Junc-
tion-lestarstöðinni í London. Það
tryggir að 2,5 milljónir manna sem
ferðast um stöðina á viku geta ekki
komist hjá því að sjá skilaboð Ice-
save.“ Colossus-skiltið er 60 metra
breitt og 4,5 metra hátt og er, eins
og Mark sagði, stærsta auglýsinga-
skilti í Evrópu en 2000 lestir þjóta
fram hjá skiltinu á dag. Fyrirtækið
Titan Outdoor sem sér um rekst-
ur skiltisins tjáði DV að vikuleiga á
Colossus kostaði 26.000 pund, eða
um 5,5 milljónir króna.
Icesave á leigubílum
Rætt var um nýjusta auglýsingabragð
markaðsdeildar Landsbankans í
Moment um sumarið 2008, fáum
mánuðum fyrir fall bankans.
„Reyndu að taka eftir Icesave-
leigubílunum ef þú verður í Lund-
únum á næstunni. Næstu sex mán-
uðina munu 80 leigubílar málaðir í
litum Icesave fylla götur Lundúna,
taka upp farþega og auglýsa vöruúrv-
alið hjá netsparnaði Icesave. Leigu-
bílarnir hafa verið merktir í bak og
fyrir – jafnvel greiðslukvittanir bera
merki Icesave.“
Icesave opnað í Hollandi
Hinn 29. maí 2008 var tilkynnt að
Landsbankinn myndi hefja innreið
sína inn á hollenska innlánamark-
aðinn.
„Á grunni góðs árangurs inn-
lánareikningsins Icesave í Bretlandi
frá stofnun í október 2006 hefur
Landsbankinn í dag hafið innlána-
starfsemi á netinu á meginlandi
Evrópu. Á komandi ári mun Lands-
bankinn sækja inn á fleiri evrópska
markaði og opnun Icesave í Hol-
landi er fyrsta skrefið í þá átt.
Starfsemi Icesave í Hollandi á
að vera bæði sveigjanleg og öflug
sem auðveldar Landsbankanum að
sækja inn á fleiri markaði í Evrópu.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbankans, sagði: „Við erum
sannfærð um að Icesave, sem býð-
ur upp á samkeppnishæf kjör og
margs konar sparnaðarleiðir, laði
að skynsama sparifjáreigendur í
Hollandi, rétt eins og gerst hefur í
Bretlandi.“
„Með opnun Icesave í Hollandi
erum við að fylgja eftir þeim góða
árangri sem náðist í Bretlandi og
auka enn frekar fjölbreytni í fjár-
mögnunarleiðum bankans,“ sagði
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans,“ örfáum mánuðum
áður en bankakerfið hrundi.
n Marjorie Robinson var sparifjáreigandi númer 100.000 hjá Icesave.
Ánægð með blómvönd
n Þórlindur Kjartansson og félagar á alþjóðamarkaðssviði stýrðu auglýsinga-
herferð Icesave í Bretlandi. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, tugþúsundir Breta
lögðu sparifé sitt inn í netbankann. Þórlindur sagði að um vorið 2007 hefði
þjónustugetan verið aukin til að anna betur gríðarlegri eftirspurninni.
Gríðarlegur vöxtur Icesave
n Hér sést skiltið „Colossus“ sem Landsbankinn leigði undir merki Icesave fyrir 5,5
milljónir króna á viku. Athugið að á myndinni sést auglýsing annars fyrirtækis.
Stærsta skilti í Evrópu
n Alan Gilmour, markaðssérfræðingur Icesave, var uppnefndur „Happy Gilmour“
af vinnufélögunum í Landsbankanum. Hann þótti skemmtilegur og snjall mark-
aðsmaður og ákvað að láta merkja 80 leigubíla í London með merkjum Icesave.
Icesave á götum Lundúna
n Joen Beijdorff, Bjorn Niels, Martijn Hohmann og Minou Spits stjórnuðu rekstri
Icesave í Hollandi.
Hollenska liðið
n Í Moment birtust gjarnan myndirnar úr nýjustu partíum Landsbankans.
Taumlaus gleði