Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Page 19
Hver er maðurinn?
„Guðmundur Baldvin Guðmundsson.“
Hvað drífur þig áfram?
„Bjartsýni.“
Hvar ólstu upp?
„Á Akureyri, bæði í Brekkunni og á
Eyrinni.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á
Íslandi?
„Grikklandi. Það var bara það fyrsta sem
kom upp í hugann.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Góður saltfiskur. Annars finnst mér nú
allur matur góður.“
Hvert fórstu síðast í frí?
„Ég fór síðast til Englands. Konan mín
fór á ráðstefnu í Brighton þannig að ég
tók mér nokkurra daga frí og fór með.“
Af hverju ákvaðstu að bjóða þig
fram núna?
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík
og þegar Jóhannes ákvað að hætta
skapaðist svigrúm. Það var skorað á mig
þannig að ég ákvað að láta slag standa
og sé ekki eftir því núna.“
Varstu vongóður um gott gengi?
„Já, ég var það núna. Ég hafði fundið
fyrir miklum meðbyr og fengið góðan
hljómgrunn hjá því fólki sem ég hafði
rætt við.“
Komu úrslitin þér þó á óvart?
„Já, þau gerðu það. Ég vonaðist nú eftir
góðum úrslitum en þessi munur kom
mér algjörlega í opna skjöldu.“
Hvað er brýnast að gera á
Akureyri?
„Atvinnumálin eru mjög brýn. Það er
mikið af fólki atvinnulaust hér á
Akureyri.“
Af hverju ætti fólk að kjósa
Framsókn þegar kemur að
sveitarstjórnakosningum?
„Fyrst og fremst því við erum að bjóða
fram gott og heiðarlegt fólk sem er
tilbúið að vinna fyrir bæinn.“
HVER VERÐUR ÓVÆNTA HETJAN Á EM?
„Áttu ekki betri spurningu? Ókei, ég
segi Ísland.“
INGVAR ÓMARSSON
20 ÁRA NEMI
„Ólafur Stefánsson, hann er frændi
minn.“
VILHJÁLMUR ALEX HANNESSON
20 ÁRA NEMI
„Er það ekki bara Ísland? Verðum við
ekki bara gulldrengirnir núna?“
MAGNEA HELGADÓTTIR
28 ÁRA NEMI
„Ísland.“
GABRÍEL B. BACHMANN
19 ÁRA NEMI
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
GUÐMUNDUR BALDVIN
GUÐMUNDSSON
vann stórsigur í prófkjöri Framsóknar-
flokksins á Akureyri. Nýliðinn, sem var
að bjóða sig fram í fyrsta skipti, fékk
66% gildra atkvæða og er því orðinn
oddviti flokksins á Akureyri. Hann segir
atvinnumálin brýnust fyrir norðan.
GÓÐUR SALTFISKUR
BESTUR
„Ég fylgist ekki með handbolta.“
BJARKI ODDSTEINSSON
17 ÁRA NEMI
MAÐUR DAGSINS
Einhvern veginn finnst mér að
lesendur DV eigi annað og betra
skilið í umfjöllun um Icesave en
greinar blaðamannanna Jóhanns
Haukssonar og Vals Gunnarssonar
á undanförnum vikum. Í stað mál-
efnalegrar greiningar eru enda-
lausir palladómar um einstaklinga
og stjórnmálaflokka. Innihaldsrýr-
ir, en þeim mun rætnari. Sjálfur
hef ég fengið vel útilátna skammta.
Valur hafði það um undirritaðan
að segja að hann hefði innbyggð
svikagen sem vöknuðu til lífsins
með reglulegu millibili og Jóhann
er með þá fullyrðingu stöðugt
á lofti bæði í DV og á bloggsíðu
blaðsins að sami maður sé bæði
upptekinn af eigin hégóma og
ógnvaldur við núverandi stjórnar-
samstarf: „Svo langt hefur þú (og
fleiri) gengið fram á bjargbrúnina
í stjórnarsamstarfinu við jafnað-
armenn, að endrum og sinnum
hefur stefnt í stjórnarslit þessar-
ar fyrstu ríkisstjórnar jafnaðar- og
vinstrimanna frá stofnun lýðveld-
isins. Með herhvöt á vörum um að
bjarga velferðarkerfinu hefur þú
gengið til verka. Ekki megi fórna
því fyrir Icesave. Því stóðst þú ekki
bara í lappirnar og settir undir þig
hausinn þegar þú varst heilbrigð-
isráðherra? Stilltir persónu þinni
utan við leiksviðið, lagðir kalt og
hlutlægt mat á aðstæðurnar og
hugsaðir: Koma tímar koma ráð.
En nei. Þú strýkur Sigmundi Davíð
og færð hrós á Morgunblaðinu og
AMX. Varst þú nokkuð að halla þér
að sjálfstæðismönnum ...?“
Lausnin að auka flokksræði?
Þetta er boðskapurinn í skrif-
um Jóhanns Haukssonar nú síðast
í DV fyrir fáeinum dögum þar sem
hann m.a. segir mig og fleiri varla
„stjórntæka“, nokkuð sem hann síð-
an kórónar á vefsíðu með því að tala
fyrir því að beita flokksræði á slíka
kóna: „Meðan við höfum stjórn-
málaflokka ættu þeir að bera ábyrgð
á sínu fólki sjálfir. Ráðherrar eru
settir af t.d. á Norðurlöndum vegna
ákvarðana flokkanna sjálfra eða
þrýstings frá þeim. Sumir eiga aftur-
kvæmt eftir betrun og bót...“
Hvernig væri nú til tilbreytingar
að reyna sig við málefnalega um-
ræðu um Icesave og alla vega gera
tilraun til að praktisera sjálfur hið
margrómaða „kalda mat“? Þá er ég
fyrst og fremst að hugsa um þjón-
ustu við lesendur.
Eigum við til dæmis að fara í
gegnum rök þeirra sem véfengja
greiðsluskyldu íslenskra skattborg-
ara en telja á hinn bóginn að við
kunnum að vera skaðabótaskyld
vegna vanrækslu? Þetta varð afstaða
Alþingis samkvæmt fyrirvörunum
sem samþykktir voru í ágúst og aftur
í desemberlok. Eigum við að leggja
mat á mikilvægi þess að ná vöxtum
niður fyrir íslenska skattgreiðendur
og þar með velferðarkerfið? Eigum
við að ræða þá möguleika sem nú
gætu verið að opnast eftir að öllum
varð heyrinkunn andspyrna þjóðar-
innar gegn Icesave? Væri ekki fróð-
legt fyrir lesendur DV að fá kynn-
ingu á röksemdum Alains Liebitz,
Michael Hudsons, Martin Wolfs,
Evu Joly... og allra þeirra sem reyna
nú að skapa Íslendingum betri færi í
vörn og sókn?
Hvernig væri að
ræða málefnalega?
Vill Jóhann ræða tillögur sem ég
flutti um að leita til utanaðkom-
andi sérfræðinga og sáttasemjara í
aðdraganda þess að ég sagði af mér
sem heilbrigðisráðherra? Eigum við
að ræða þær röksemdir sem ég og
aðrir hafa teflt fram í Icesave-mál-
inu? Gæti verið að það væri meira
gefandi en palladómar og brigsl-
yrði?
Jóhann Hauksson er sá blaða-
maður sem ég hef lofsamað hvað
mest á undanförnum árum fyr-
ir upplýsandi skrif. Vonandi tekst
honum að nýta betur sína góðu og
ótvíræðu kosti í stað þess að liggja
nánast í öngviti af skelfingu yfir því
að alvöru umræða um brennandi
mál samtímans valdi öldugangi á
hinum pólitíska haffleti með til-
heyrandi veltingi stjórnarskútunn-
ar.
Ríkisstjórnir verða að þola gagn-
rýna umræðu - hvaðan sem hún
kemur - að því tilskildu að hún sé
málefnaleg. Ríkisstjórnir eiga ekki
að vera í pólitískri gjörgæslu blaða-
manna. Slíkt er engum til góðs.
Lesendur DV eiga betra skilið!
KJALLARI
MYNDIN
1 Drengur á leiðinni
Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
er komin rúma fimm mánuði á leið með
sitt fyrsta barn, dreng.
2 Hefur ekki enn sótt fimm
milljóna vinning
Lottóspilari sem keypti lottómiða í
Spönginni 9. janúar hefur ekki enn vitjað
um fimm milljóna króna vinninginn sinn.
3 Ármann hefur ekki efni á húsinu
í London
Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi
bankastjóri Singer og Friedlander, hefur
ekki lengur efni á glæsihúsinu sem hann
býr í.
4 Lifði á kóki og snarli í rústunum
í ellefu daga
24 ára gamall maður bjargaðist úr rústum
á Haítí.
5 Grínistinn Andy Dick ákærður
fyrir að grípa í kynfæri
karlmanns á skemmtistað
Bandaríski grínistinn Andy Dick er í
töluverðum vandræðum eftir að hann var
handtekinn fyrir kynferðislega áreitni.
6 Ljósmynd af sofandi starfs-
manni lestarstöðvar leiðir til
rannsóknar
Ljósmynd af sofandi starfsmanni
neðanjarðarlestarkerfis í Toronto í Kanada
hefur leitt til rannsóknar á starfseminni.
7 Mikið um innbrot í nótt
Lögregla hafði í ýmsu að snúast aðfaranótt
sunnudags. Brotist var inn í þrjá bíla, tvær
verslanir, tvö heimahús og einn skóla.
MEST LESIÐ á DV.is
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
alþingismaður skrifar
„Jóhann Hauksson er sá
blaðamaður sem ég hef
lofsamað hvað mest á
undanförnum árum
fyrir upplýsandi skrif.“
UMRÆÐA 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR 19
Prjónað á Kjarvalsstöðum Steinunn Stefánsdóttir hönnuður leiðbeindi fólki á Kjarvalsstöðum á sunnudag um hvernig það
gæti skapað sinn eigin prjónaheim án prjónauppskrifta. MYND KARL PETERSON