Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2010, Qupperneq 19
Hver er maðurinn? „Guðmundur Baldvin Guðmundsson.“ Hvað drífur þig áfram? „Bjartsýni.“ Hvar ólstu upp? „Á Akureyri, bæði í Brekkunni og á Eyrinni.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi? „Grikklandi. Það var bara það fyrsta sem kom upp í hugann.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Góður saltfiskur. Annars finnst mér nú allur matur góður.“ Hvert fórstu síðast í frí? „Ég fór síðast til Englands. Konan mín fór á ráðstefnu í Brighton þannig að ég tók mér nokkurra daga frí og fór með.“ Af hverju ákvaðstu að bjóða þig fram núna? „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík og þegar Jóhannes ákvað að hætta skapaðist svigrúm. Það var skorað á mig þannig að ég ákvað að láta slag standa og sé ekki eftir því núna.“ Varstu vongóður um gott gengi? „Já, ég var það núna. Ég hafði fundið fyrir miklum meðbyr og fengið góðan hljómgrunn hjá því fólki sem ég hafði rætt við.“ Komu úrslitin þér þó á óvart? „Já, þau gerðu það. Ég vonaðist nú eftir góðum úrslitum en þessi munur kom mér algjörlega í opna skjöldu.“ Hvað er brýnast að gera á Akureyri? „Atvinnumálin eru mjög brýn. Það er mikið af fólki atvinnulaust hér á Akureyri.“ Af hverju ætti fólk að kjósa Framsókn þegar kemur að sveitarstjórnakosningum? „Fyrst og fremst því við erum að bjóða fram gott og heiðarlegt fólk sem er tilbúið að vinna fyrir bæinn.“ HVER VERÐUR ÓVÆNTA HETJAN Á EM? „Áttu ekki betri spurningu? Ókei, ég segi Ísland.“ INGVAR ÓMARSSON 20 ÁRA NEMI „Ólafur Stefánsson, hann er frændi minn.“ VILHJÁLMUR ALEX HANNESSON 20 ÁRA NEMI „Er það ekki bara Ísland? Verðum við ekki bara gulldrengirnir núna?“ MAGNEA HELGADÓTTIR 28 ÁRA NEMI „Ísland.“ GABRÍEL B. BACHMANN 19 ÁRA NEMI DÓMSTÓLL GÖTUNNAR GUÐMUNDUR BALDVIN GUÐMUNDSSON vann stórsigur í prófkjöri Framsóknar- flokksins á Akureyri. Nýliðinn, sem var að bjóða sig fram í fyrsta skipti, fékk 66% gildra atkvæða og er því orðinn oddviti flokksins á Akureyri. Hann segir atvinnumálin brýnust fyrir norðan. GÓÐUR SALTFISKUR BESTUR „Ég fylgist ekki með handbolta.“ BJARKI ODDSTEINSSON 17 ÁRA NEMI MAÐUR DAGSINS Einhvern veginn finnst mér að lesendur DV eigi annað og betra skilið í umfjöllun um Icesave en greinar blaðamannanna Jóhanns Haukssonar og Vals Gunnarssonar á undanförnum vikum. Í stað mál- efnalegrar greiningar eru enda- lausir palladómar um einstaklinga og stjórnmálaflokka. Innihaldsrýr- ir, en þeim mun rætnari. Sjálfur hef ég fengið vel útilátna skammta. Valur hafði það um undirritaðan að segja að hann hefði innbyggð svikagen sem vöknuðu til lífsins með reglulegu millibili og Jóhann er með þá fullyrðingu stöðugt á lofti bæði í DV og á bloggsíðu blaðsins að sami maður sé bæði upptekinn af eigin hégóma og ógnvaldur við núverandi stjórnar- samstarf: „Svo langt hefur þú (og fleiri) gengið fram á bjargbrúnina í stjórnarsamstarfinu við jafnað- armenn, að endrum og sinnum hefur stefnt í stjórnarslit þessar- ar fyrstu ríkisstjórnar jafnaðar- og vinstrimanna frá stofnun lýðveld- isins. Með herhvöt á vörum um að bjarga velferðarkerfinu hefur þú gengið til verka. Ekki megi fórna því fyrir Icesave. Því stóðst þú ekki bara í lappirnar og settir undir þig hausinn þegar þú varst heilbrigð- isráðherra? Stilltir persónu þinni utan við leiksviðið, lagðir kalt og hlutlægt mat á aðstæðurnar og hugsaðir: Koma tímar koma ráð. En nei. Þú strýkur Sigmundi Davíð og færð hrós á Morgunblaðinu og AMX. Varst þú nokkuð að halla þér að sjálfstæðismönnum ...?“ Lausnin að auka flokksræði? Þetta er boðskapurinn í skrif- um Jóhanns Haukssonar nú síðast í DV fyrir fáeinum dögum þar sem hann m.a. segir mig og fleiri varla „stjórntæka“, nokkuð sem hann síð- an kórónar á vefsíðu með því að tala fyrir því að beita flokksræði á slíka kóna: „Meðan við höfum stjórn- málaflokka ættu þeir að bera ábyrgð á sínu fólki sjálfir. Ráðherrar eru settir af t.d. á Norðurlöndum vegna ákvarðana flokkanna sjálfra eða þrýstings frá þeim. Sumir eiga aftur- kvæmt eftir betrun og bót...“ Hvernig væri nú til tilbreytingar að reyna sig við málefnalega um- ræðu um Icesave og alla vega gera tilraun til að praktisera sjálfur hið margrómaða „kalda mat“? Þá er ég fyrst og fremst að hugsa um þjón- ustu við lesendur. Eigum við til dæmis að fara í gegnum rök þeirra sem véfengja greiðsluskyldu íslenskra skattborg- ara en telja á hinn bóginn að við kunnum að vera skaðabótaskyld vegna vanrækslu? Þetta varð afstaða Alþingis samkvæmt fyrirvörunum sem samþykktir voru í ágúst og aftur í desemberlok. Eigum við að leggja mat á mikilvægi þess að ná vöxtum niður fyrir íslenska skattgreiðendur og þar með velferðarkerfið? Eigum við að ræða þá möguleika sem nú gætu verið að opnast eftir að öllum varð heyrinkunn andspyrna þjóðar- innar gegn Icesave? Væri ekki fróð- legt fyrir lesendur DV að fá kynn- ingu á röksemdum Alains Liebitz, Michael Hudsons, Martin Wolfs, Evu Joly... og allra þeirra sem reyna nú að skapa Íslendingum betri færi í vörn og sókn? Hvernig væri að ræða málefnalega? Vill Jóhann ræða tillögur sem ég flutti um að leita til utanaðkom- andi sérfræðinga og sáttasemjara í aðdraganda þess að ég sagði af mér sem heilbrigðisráðherra? Eigum við að ræða þær röksemdir sem ég og aðrir hafa teflt fram í Icesave-mál- inu? Gæti verið að það væri meira gefandi en palladómar og brigsl- yrði? Jóhann Hauksson er sá blaða- maður sem ég hef lofsamað hvað mest á undanförnum árum fyr- ir upplýsandi skrif. Vonandi tekst honum að nýta betur sína góðu og ótvíræðu kosti í stað þess að liggja nánast í öngviti af skelfingu yfir því að alvöru umræða um brennandi mál samtímans valdi öldugangi á hinum pólitíska haffleti með til- heyrandi veltingi stjórnarskútunn- ar. Ríkisstjórnir verða að þola gagn- rýna umræðu - hvaðan sem hún kemur - að því tilskildu að hún sé málefnaleg. Ríkisstjórnir eiga ekki að vera í pólitískri gjörgæslu blaða- manna. Slíkt er engum til góðs. Lesendur DV eiga betra skilið! KJALLARI MYNDIN 1 Drengur á leiðinni Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er komin rúma fimm mánuði á leið með sitt fyrsta barn, dreng. 2 Hefur ekki enn sótt fimm milljóna vinning Lottóspilari sem keypti lottómiða í Spönginni 9. janúar hefur ekki enn vitjað um fimm milljóna króna vinninginn sinn.  3 Ármann hefur ekki efni á húsinu í London Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi bankastjóri Singer og Friedlander, hefur ekki lengur efni á glæsihúsinu sem hann býr í. 4 Lifði á kóki og snarli í rústunum í ellefu daga 24 ára gamall maður bjargaðist úr rústum á Haítí. 5 Grínistinn Andy Dick ákærður fyrir að grípa í kynfæri karlmanns á skemmtistað Bandaríski grínistinn Andy Dick er í töluverðum vandræðum eftir að hann var handtekinn fyrir kynferðislega áreitni. 6 Ljósmynd af sofandi starfs- manni lestarstöðvar leiðir til rannsóknar Ljósmynd af sofandi starfsmanni neðanjarðarlestarkerfis í Toronto í Kanada hefur leitt til rannsóknar á starfseminni. 7 Mikið um innbrot í nótt Lögregla hafði í ýmsu að snúast aðfaranótt sunnudags. Brotist var inn í þrjá bíla, tvær verslanir, tvö heimahús og einn skóla. MEST LESIÐ á DV.is ÖGMUNDUR JÓNASSON alþingismaður skrifar „Jóhann Hauksson er sá blaðamaður sem ég hef lofsamað hvað mest á undanförnum árum fyrir upplýsandi skrif.“ UMRÆÐA 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR 19 Prjónað á Kjarvalsstöðum Steinunn Stefánsdóttir hönnuður leiðbeindi fólki á Kjarvalsstöðum á sunnudag um hvernig það gæti skapað sinn eigin prjónaheim án prjónauppskrifta. MYND KARL PETERSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.