Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 FRÉTTIR
Bílaskoðunarfyrirtæki Finns Ing-
ólfssonar, Frumherji, er í ábyrgð-
um fyrir skuldum sem nema sam-
tals um 5,9 milljörðum króna.
Finnur á rúman helming í Frum-
herja í gegnum eignarhaldsfélag
sitt Fikt en aðrir eigendur eru Jó-
hann Ásgeir Baldurs og Helgi S.
Guðmundsson. Þremenningarn-
ir eiga saman eignarhaldsfélagið
Spector sem heldur utan um eign-
ina í Frumherja.
Skuldirnar sem eignir Frum-
herja eru veðsettar fyrir eru eigin
skuldir sem og skuldir dótturfélags
Spector, Varða ehf. Skuldir Frum-
herja nema samtals 2,6 milljörð-
um króna og skuldir Varða nema
nærri 3,3 milljörðum. Þetta kemur
fram í ársreikningum Frumherja
og Varða.
Bágborgin staða þessara fé-
laga Finns Ingólfssonar bætist við
slæma stöðu eignarhaldsfélagsins
F37 en samkvæmt fréttum Stöðv-
ar 2 á sunnudaginn þurfa lánar-
drottnar félagsins líklega að af-
skrifa um 4 milljarða króna skuld
þess. Samanlagðar skuldir þessara
þriggja félaga Finns nema því um
10 milljörðum króna.
Viðskiptavildin tveir
milljarðar króna
Eignir Frumherja eru því að
minnsta kosti tvíveðsettar vegna
félaga sem eru í eigu Finns að
stærstum hluta. Þessar eignir eru
metnar á 2,4 milljarða króna og
þar af er viðskiptavild félagsins
metin á tæpa tvo milljarða króna.
Viðskiptavild Frumherja útskýr-
ist meðal annars af sterkri stöðu
félagsins á markaði en markaðs-
hlutdeild þess er um 66 prósent á
landsvísu.
Skuldir Frumherja eru við Ís-
landsbanka samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins og hafa greiðslur sem
félagið fær fyrir að leigja Orkuveitu
Reykjavíkur hitaveitu-, vatns- og
raforkusölumæla á heimilum á
starfssvæði Orkuveitunnar verið
veðsettar vegna skulda fyrirtækis-
ins við bankann. Frumherji keypti
mælana árið 2001 og fær um 200
milljónir í leigutekjur á ári fyrir þá.
Finnur Ingólfsson keypti Frum-
herja svo árið 2007 og voru samn-
ingarnir við Orkuveituna þá end-
urnýjaðir til sjö ára. Þessir góðu
samningar við Orkuveituna skýra
einnig af hverju viðskiptavild
Frumherja er bókfærð svo há.
Verðir ehf. eru svo aftur í ábyrgð-
um vegna skulda Frumherja. Eign-
ir Varða eru fasteignir og lóðir upp
á 1,9 milljarða króna, meðal annars
höfuðstöðvar Frumherja á Hest-
hálsi í Reykjavík.
Óvissa um rekstrarhæfi
Vegna þessarar stöðu félaganna
er ekki óeðlilegt að í ársreikning-
um þeirra komi fram að óvissa ríki
um áframhaldandi rekstrarhæfi fé-
laganna: „Í gangi eru samninga-
viðræður milli félagsins og lána-
stofnana um endurfjármögnun
félagsins. Ef samningar um end-
urfjármögnun takast og lausnir
stjórnvalda á Íslandi í peningamál-
um, sem verið er að vinna að, leiða
til eðlilegrar stöðu í rekstri fyrir-
tækja á Íslandi er að mati stjórn-
enda félagsins flest sem bendir til
þess að hægt verði að reka félagið
til framtíðar,“ segir í reikningum
Frumherja og Varða. Staða Frum-
herja í fyrra var reyndar það erfið
að samið var við Íslandsbanka um
að afborgunum af lánum félagsins
yrði frestað fram á mitt þetta ár.
Í tilfelli Frumherja og Varða er
þó heppilegt fyrir félögin að þau
þurfa ekki að greiða verulega háar
afborganir af skuldum sínum á
næstu þremur árum.
Frumherji seldi til Varða
Athygli vekur að árið 2009 seldi
Frumherji höfuðstöðvar sínar á
Hesthálsi út úr félaginu og til Varða.
Þetta var í október í fyrra, tæpum
mánuði eftir að gengið var frá árs-
reikningum félaganna sem hér um
ræðir. Fyrir árið 2008 var hins veg-
ar lítil starfsemi í félaginu og eignir
þess voru litlar. Félagið Verðir ehf.
virðist því hafa orðið eins konar
Þrjú eignarhaldsfélög í eigu Finns Ingólfssonar skulda um
10 milljarða króna. Óvissa ríkir um rekstrarhæfi þeirra.
Frumherji slapp við að greiða af skuldum sínum 2009. Höf-
uðstöðvar Frumherja voru seldar í fyrra. Framkvæmdastjóri
félagsins er bjartsýnn þrátt fyrir skuldastöðuna.
ÞRJÚ FÉLÖG
FINNS SKULDA
10 MILLJARÐA
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Í gangi eru samningavið-
ræður milli félagsins og
lánastofnana um endur-
fjármögnun félagsins.
Færðu Frumherjahúsið Höfuðstöðvar
Frumherja á Hesthálsi 6-8 voru færðar inn
í eignarhaldsfélagið Verði ehf. í fyrra. Fram-
kvæmdastjóri félagsins segir að skuldastaða
þess sé erfið. MYND SIGTRYGGUR ARI