Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Page 14
ER NETVERSL-
UNIN ÖRUGG?
Á vefsíðunni shoppingassistant.
com er á auðveldan hátt hægt
að ganga úr skugga um hvort
óhætt sé að treysta tiltekinni
vefverslun fyrir peningunum
þínum. Forritið heitir Hávörður
á íslensku en hægt er að leita á
fjömörgum tungumálum, þar
á meðal íslensku. Þú slærð ein-
faldlega inn heiti vefsvæðisins
sem þú vilt athuga í leitarreit-
inn og forritið segir hvenær lén-
ið var stofnað og leiðir fólk að
upplýsingum um það sem aðrir
neytendur hafa skrifað um fyr-
irtækið að baki vefsíðunni.
n „Frönsku kartöflurnar
voru hvítar og næstum
alveg hráar auk þess
sem hamborgarinn var
svo þurr að ég hef
aldrei vitað annað
eins,“ sagði óánægður
viðskiptavinur Metro. Hann
sagðist reglulega hafa borðað á
McDonalds áður en Metro kom
til sögunnar en mikill munur
væri á
gæðum
matarins.
n Veitingastaðurinn Domo fær lofið
fyrir vel úti látna skammta og
bragðgóðan mat á viðráðanlegu
verði. Ánægður viðskiptavinur
keypti sjávarréttasúpu sem var
svo vel úti látin að hann sat við
borðið fram undir miðnætti.
„Ég tímdi ekki að leifa þessum
frábæra rétti,“ sagði
viðskiptavinurinn í
skýjunum.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 201,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 197,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 202,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 199,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 204,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 200,9 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 192,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 189,3 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 192,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 204,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 200,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is
el
d
sn
ey
ti
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
14 MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 NEYTENDUR
EKKI BORGA
„Ég hvet alla lánþega til að
skoða stöðu sína gagnvart lán-
veitanda og sækja rétt sinn hik-
laust. Með því að borga umfram
greiðsluskyldu eru lánþegar að
kasta fjármunum sínum í botn-
lausan pytt og verður að öllum
líkindum ómögulegt að endur-
heimta þá fjármuni síðar, nema
þá með gríðarlegum afföllum,“
segir Guðmundur Andri Skúla-
son, stofnandi Samtaka lán-
þega. Hann hvetur þá lánþega
sem eru með gengistryggða
samninga til að reikna út áætl-
aða inneign sína, miðað við að
lánin séu ólögleg og í framhald-
inu að krefjast þess að komandi
greiðslur verði skuldajafnaðar á
móti þeirri inneign sem mynd-
ast hefur vegna ofgreiðslu. Vef-
síða samtakanna er gandri.com.
Á KAFI Í MYNTKÖRFUNNI
Bakari fór af landi brott til að borga
skuldir, ungur sjómaður á trillu ótt-
ast gjaldþrot og sá þriðji, ungur
námsmaður, ákvað að slá lán fyr-
ir bílnum sínum í stað þess að selja
hlutabréf sem hann átti og hefði far-
ið langt með að borga upp bílinn.
DV ræðir í dag við þrjá unga
menn sem eiga það sameiginlegt,
með 40 þúsund Íslendingum, að
hafa tekið myntkörfulán til að fjár-
magna bifreiðakaup fyrir efnahags-
hrunið.
Bakari til Noregs
Eyjólfur Jónsson er 26 ára bakari sem
ákvað að flytja til Noregs til að freista
þess að greiða upp skuldir sínar. Eyj-
ólfur, sem er einstæður og barnlaus,
tók 2,4 milljóna króna lán haustið
2008, rétt fyrir efnahagshrunið. Hann
skuldar 4,6 milljónir króna í dag og
ætlar að freista þess að grynnka á
skuldunum með því að vinna í Nor-
egi í eitt ár. Hann segir launin góð í
Noregi og líkar vel að vera þar. Eyj-
ólfur er afar ósáttur við aðgerðaleysi
banka og stjórnvalda þegar kem-
ur að vanda heimilanna en var svo
gæfusamur að geta leigt bílinn sinn á
meðan hann er úti.
Segir sökina hjá sér
Hlöðver Ingi Gunnarsson, 24 ára
nemi í Evrópu- og kennslufræðum,
hefði getað selt hlutabréf í Kaup-
þingi og Exista til að fjármagna
að mestu kaup á tveggja millj-
óna króna bíl sem hann keypti í
febrúar 2008. Hann kaus að taka
gengistryggt lán og situr því eftir
með verðlaus bréf og lán sem hef-
ur hækkað um 50 prósent. Hann
skuldar um þrjár milljónir króna
fyrir bílinn en segir að hann beri
sjálfur sökina að stærstum hluta þó
forsendubrestur sé alger. Honum
finnst skrítið hve fúsar lánastofnan-
ir voru til að lána ungu fólki. Hann
hafi varla þurft að nefna þetta við
bankann. Hlöðver tókst líka að lána
bílinn sinn öðrum.
Óttast gjaldþrot
Aðalsteinn Tryggvason er 29 ára
gamall sjómaður sem býr á Akureyri.
Hann á litla trillu og rær til fiskjar
til að framfleyta þriggja manna fjöl-
skyldu. Aðalsteinn tók við 1,4 millj-
óna króna myntkörfuláni í júlí 2007
en skuldar í dag 2,7 milljónir króna
þrátt fyrir að vera búinn að missa bíl-
inn. Hann er afar ósáttur við hvernig
Lýsing hefur staðið að málum og seg-
ir þá rukka tvöfalt fyrir slit á bílnum.
Aðalsteinn óttast gjaldþrot ef ekkert
verður að gert.
Skuldar helmingi meira
Þetta er staða þriggja manna á þrí-
tugsaldri, sem DV ræðir við í dag.
Þeir, ásamt 40 þúsund Íslending-
um sem tóku myntkörfulán fyrir bif-
reiðakaupum, binda vonir sínar við
að Hæstiréttur staðfesti dóm Áslaug-
ar Björgvinsdóttur héraðsdómara,
sem felldi þann úrskurð að tenging
lána við gengi væri ólögmæt.
Þó flestum sem tóku gengis-
tryggð lán hefði mátt vera ljóst
að þeim gæti fylgt nokkur áhætta
bjuggust fáir við því að lánin gætu
ríflega tvöfaldast á einu ári. DV
reiknaði út á dögunum að sá sem
tók gengistryggt bílalán sumarið
2007 skuldar núna helmingi meira
en sá sem tók verðtryggt lán á sama
tíma.
DV ræðir í dag við þrjá unga menn sem tóku myntkörfulán fyrir hrun. Einn þeirra hef-
ur fjölskyldu á framfæri sínu en hinir eru einstæðingar. Lánin þeirra hafa hækkað um
50 til 100 prósent á einu til tveimur árum. Þessir menn, ásamt tugþúsundum annarra
Íslendinga, binda vonir við að Hæstiréttur staðfesti þá túlkun héraðsdóms að ólöglegt
sé að tengja lán við gengi annarra gjaldmiðla.
Bannað Tenging lána við erlenda
mynt er ólögmæt, samkvæmt
héraðsdómi.
Eyjólfur Jónsson fór til Noregs til að geta borgað skuldir:
TÓK LÁNIÐ MÁNUÐI FYRIR HRUN
„Ég borgaði 36 þúsund krónur fyrsta
mánuðinn. Svo fór allt í klessu,“
segir Eyjólfur Jónsson, 26 ára bak-
ari. Eyjólfur tók 2,4 milljóna króna
myntkörfulán haustið 2008, rétt fyrir
efnahagshrunið. Eftir að afborgan-
irnar meira en tvöfölduðust ákvað
hann að flytja til Noregs í eitt ár, með
það að markmiði að geta greitt nið-
ur skuldir.
Bíllinn sem Eyjólfur keypti er
af gerðinni Subaru Legacy, árgerð
2006. Hann segir að ef hann væri
heppinn gæti hann selt bílinn á
1.800 þúsund krónur í dag. Þá sæti
hann uppi bíllaus með þriggja millj-
óna króna skuld enda hefur lánið,
sem var tekið í jenum og svissnesk-
um frönkum, hækkað um helming
og stendur nú í um 4,6 milljónum
króna.
Allir að gera upp á bak
Eyjólfur er, ekki frekar en aðrir,
ánægður með ástandið á Íslandi.
„Ég er auðvitað ósáttur við hvern-
ig þetta fór. Það er ekkert að gerast í
þjóðfélaginu og mér finnst allir vera
að gera upp á bak; bæði ríkisstjórn-
in og bankarnir,“ segir hann.
Spurður hvers vegna hann hafi
ákveðið að taka myntkörfulán seg-
ir Eyjólfur að honum hafi verið ráð-
lagt það af bílasalanum sem seldi
honum bílinn. Honum hafi auk
þess litist ágætlega á þess háttar
lán, þótt þeim gæti fylgt einhver
áhætta. „Ég var búinn að reikna
með að borga 36 þúsund krónur á
mánuði og ég réð vel við það,“ segir
Eyjólfur sem hefur farið þá leið að
frysta lánið. „Þeir buðu mér þrjá
Það er ekkert að gerast í þjóð-
félaginu og mér finnst
allir vera að gera upp
á bak.
Staða láns í upphafi* Staða láns nú* Annað*
Aðalsteinn 1.400.000 kr. 2.700.000 kr. Búinn að missa bílinn
Eyjólfur 2.400.000 kr. 4.600.000 kr. Leigir öðrum bílinn
Hlöðver 2.000.000 kr. 3.000.000 kr. Leigir öðrum bílinn
Samkvæmt þeim sjálfum. Námundað.
Svona standa lánin þeirra