Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 FRÉTTIR Skriðdrekar á víðavangi Vefsíðan e1.ru birti á laugardag- inn myndskeið sem sýndi um eitt hundrað nýja T-80 skriðdreka sem höfðu verið skildir eftir í vegarkanti í Úral-fjöllum. Á myndskeiðinu má sjá hvar fólk úr nágrenninu klifraði upp á skriðdrekana sem hafði verið lagt í löngum röðum í Kamishlovsk, um 100 kílómetra frá Yekaterinburg. Yfirstjórn rússneska hersins rannsakar nú hvernig stendur á því að skriðdrekarnir, sem eru aðalbar- dagavagnar hersins, voru yfirgefnir, en nýlega var haft eftir einhverjum yfirmönnum hersins að hann þurfi aðeins helming þeirra 20.000 skrið- dreka sem til eru í landinu. Ekkja handtekin í París Agathe Habyarimana, ekkja Juvenals Habyarimana, forseta Rúanda, var handtekin í París í Frakklandi, en hún hefur verið sökuð um aðstoð við skipulagningu á þjóðarmorðinu sem framið var í Rúanda árið 1994. Stjórnvöld í Rúanda höfðu gefið út alþjóðlega handtökuheimild á hendur ekkjunni. Juvenal Habyarimana, forseti Rúanda, fórst í apríl 1994 eftir að flugskeyti var skotið á flugvél hans. Í kjölfarið upphófst skálmöld í landinu og gengu harðlínu Hútúar, stuðningsmenn forsetans, á milli bols og höfuðs á Tútsum og hóf- sömum Hútúum. Um 800.000 lágu í valnum. Nálgast þriðja tuginn Enn fjölgar í hópi þeirra sem grun- aðir eru um morðið á Hamas-liðan- um Mahmoud al-Mabhouh í Dúbaí í janúar. Samkvæmt heimildum fréttastofu CNN er fjöldi meintra tilræðismanna nú kominn í tuttugu og sjö. Tuttugu og sex hinna grunuðu notuðu evrópsk og áströlsk vegabréf, en heimildarmenn CNN, sem tengj- ast rannsókn málsins annars vegar og lögreglunni hins vegar, vildu ekki gefa upp hvaðan vegabréfið var sem sá tuttugasti og sjöundi notaði. Mahmoud al-Mabhouh fannst látinn á hótelherbergi 20. janúar í Dúbaí, en lögreglan telur að hann hafi verið myrtur degi fyrr og að leyniþjónusta Ísraels, Mossad, hafi haft hönd í bagga. Vísindamenn hjá NASA, geimvís- indastofnun Bandaríkjanna, segja að hinn öflugi jarðskjálfti sem reið yfir Chile í fyrri viku kunni að valdið hreyfingu á möndli jarðar með þeim afleiðingum að dagar verða styttri héðan í frá. Breytingin er óveruleg, en varan- leg og ef kenning vísindamanna er rétt ætti hver dagur að verða styttri sem nemur 1,26 míkrósekúndum, samkvæmt fyrstu útreikningum. Míkrósekúnda er einn milljónasti hluti sekúndu. Við öflugan skjálfta færist til mik- ið magn grjóts og við það breytist dreifing massa jarðar. Við það breyt- ist snúningshraði jarðar og snúning- ur jarðar ákvarðar lengd sólarhrings. Máli sínu til stuðnings vísa vís- indamennirnir til tækni skautadans- ara; þegar hann dregur að sér hand- leggina, snýst hann hraðar. Við það að draga að sér handleggina breytist dreifing massa skautadansarans og að sama skapi snúningshraði hans. Jarðeðlisfræðingurinn Richard Gross hjá NASA notaði tölvulíkan til að reikna út hvaða áhrif jarðskjálft- inn 27. febrúar í Chile gæti hafa haft á jörðina. Gross komst að þeirri niðurstöðu að skjálftinn gæti hafa fært snún- ingsás jarðar um átta sentímetra, og stytt dagana til frambúðar. Slíkt mun víst ekki nýtt af nálinni því jarðskjálftinn sem olli mann- skæðri flóðbylgju á Indlandshafi árið 2004 hafði víst svipuð áhrif. Jarð- skjálftinn var 9,1 stig á Richterskala og stytti daginn um 6,8 míkrósek- úndur. Að sama skapi og tilfærsla massa getur stytt dagana getur hún haft öfug áhrif. Að sögn vísindamanna myndu dagar lengjast um 0,06 míkrósekúndur ef Þriggja gljúfra- stíflan í Kína yrði fyllt með vatni. Full myndi stíflan innihalda tíu billjón gallon af vatni. Dagurinn styttist hugsanlega vegna jarðskjálftans í Chile: Munar 1,26 míkrósekúndum Dagarnir styttast hugsanlega Skjálftinn í Chile olli hugsanlega hreyfingu á möndli jarðar. MYND: NASA Í gær framlengdu stjórnvöld í Chile útgöngubann, sem gilt hafði verið um nóttina, fram á miðjan dag, en þús- undir hermanna höfði barist við að halda í skefjum gripdeildum og glæp- um í kjölfar jarðskjálftans í fyrri viku. Þrátt fyrir mikinn fjölda hermanna í borginni Concepción, sem varð illa úti í jarðskjálftanum, ríkir þar ófremd- arástand með miklum gripdeildum. Íbúar borgarinnar kvarta yfir öryggis- leysi og hve hægt gengur hjá yfirvöld- um að koma til þeirra matvælum og öðrum nauðsynjum. Á vefsíðu The Times segir að íbúar borgarinnar hygðust koma á laggirnar hópum til að verja eignir þeirra gegn ræningjum. Búðir og bankar 55 manns voru handteknir í Conc- epción á sunnudagskvöld eftir að hafa rofið útgöngubannið og var þá nánast búið að tæma alla stór- markaði borgarinnar. Sumir borg- arbúar leituðu nauðsynja í yfirgefn- um stórmörkuðum en aðrir nýttu sér ástandið til að ræna banka eða tæma búðir sem versluðu með lúx- usvarning. Á mánudaginn voru 105 hand- teknir fyrir gripdeildir og aðra glæpi, og einn var skotinn til bana, sagði aðstoðarinnanríkisráðherra Chile, Patricio Rosende. Rosende sagði að lögreglan hefði náð undirtökunum í því tilfelli, en „þak á stórmarkaði í Concepción hrundi þegar ræningjar báru eld að því þegar lögreglan reyndi að dreifa þeim“. Í fyrsta skipti í 20 ár Hermenn hafa ekki verið á götum borga Chile í yfir tvo áratugi, en um- fangsmiklar gripdeildir knúðu Mich- elle Bachelet forseta til að kalla til tíu þúsund hermenn til að gæta stór- markaða, lyfjaverslana, banka og sér- verslana. Í ríkisútvarpi Chile voru fluttar fréttir af „nágrönnum gegn nágrönn- um“ á strandsvæðunum við Coron- el og Lota þegar örvænting vegna matvælaskorts og rafmagnsleysis tók völdin. Í kvöldfréttum í fyrradag voru sýnd myndskeið af hópum vopnaðra manna sem reikuðu um götur Conc- epción, réðust gegn slökkviliðsmönn- um, báru eld að stórmörkuðum og bættu ógn við ástandið sem var sorg- legt fyrir. Fleiri hermenn Á sama tíma og líf færðist smám saman í eðlilegt horf hjá flestum íbúum höfuðborgarinnar Santíagó bað Jacqueline van Rysselberg- he, borgarstjóri Concepción, um fleiri hermenn og aðstoð frá rík- inu. Að sögn hennar var ekki leng- ur að finna mannskap til að dreifa vatni til borgarbúa því þeir urðu fyr- ir árásum þeirra sem aðstoðina áttu að fá. Óttinn er alls staðar, menn vopnaðir byssum ráðast á heimili borgarbúa [...] sendið eins marga her- menn og mögulegt er. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is ÖRVÆNTING OG ALLSLEYSI Ljóst er að tjón í Chile vegna jarðskjálftans í síðustu viku er gríðarlegt. Víða er skortur á matvælum og öðrum nauðsynjum orðinn alger og í örvæntingu sinni hafa almennir borgarar gripið til örþrifaráða. Í fyrsta sinn í yfir tuttugu ár eru hermenn á götum borga landsins. Herinn á götum Concepción Var kallaður út til að verja verslanir og banka. MYND: AFP Gripdeildir í Concepción Fólk beitir öllum ráðum í örvæntingu sinni. MYND: AFP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.