Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2010, Blaðsíða 20
Hvað ætli yrði það fyrsta sem manni
dytti í hug að gera, hefði maður ná-
granna sína grunaða um að stela úr
geymslunni hjá manni? Að kalla
saman húsfund til að sjá hvernig þeir
bregðist við þegar málið er tekið á
dagskrá? Ekki get ég nú neitað því
að mér finnst það svolítið langsótt
hugmynd. En gott og vel, við þurf-
um stundum að „kaupa“ ýmislegt af
skáldunum til að fylgja þeim á flug-
inu – og „kaupum“ við þetta, á ekkert
að vera því til fyrirstöðu að við eigum
góða kvöldstund í Þjóðleikhúskass-
anum með Sigurhansi djassgeggjara
– þeim sem rændur hefur verið og
boðar til húsfundarins – frú hans og
nágrönnum þeirra.
Bragi Ólafsson ætlar sér hvorki
að boða ný sannindi í þessum leik
né stinga á stórum og ljótum kýlum.
Nei, kreppan er víðs fjarri með öllum
sínum óþrifnaði, það er rétt aðeins
minnst á hana, en að öðru leyti fáum
við frið fyrir henni. Hér stendur ekki
annað til en kynna okkur fyrir nokkr-
um íslenskum hversdagsmanneskj-
um, fólki sem er bara eins og fólk er
flest, svolítið skrýtið og misheppn-
að, en reynir samt að flota sér áfram
í gegnum daginn og gegnum líf-
ið – ætli við könnumst ekki flest við
það? Hver er fullkomlega sáttur við
líf sitt þegar dýpst er skyggnst? Og er
í rauninni nokkuð sögulegt við það?
Með nokkrum hætti er leikur Braga
saga um söguleysið sjálft; það er að-
eins þörf sumra manna til að búa til
drama úr því sem er ekki neitt neitt,
í þeim tilgangi einum að flýja leið-
ann og viðburðaleysið í eigin lífi, sem
verður kveikja að atburðum sem eru,
þegar grannt er skoðað, ekki heldur
neitt neitt. Eða fela þeir kannski í sér
allt sem máli skiptir? Bragi kann vel
til verka, hann býr til þann granna
söguþráð sem rétt þarf til að þetta
tolli saman (á kafla í seinni hlutan-
um verður þráðurinn ef til vill í það
grennsta), og gætir þess að athygl-
in beinist að persónunum sem lýst
er af húmor og hlýju. Vefurinn, sem
hann bregður upp, virðist einfaldur
við fyrstu sýn, en hann leynir á sér.
Ég verð að segja það alveg hreint út:
mikið óskaplega er þetta nú góð til-
breyting frá allri þeirri kaldhæðni
og óhrjálegu mannfyrirlitningu sem
alltaf er verið að velta manni upp úr í
leikhúsi, bíói, skáldsögum ...
Nei, það ætti enginn að verða
svikinn af leiknum um Hænuungana
sem fer á hann með réttu hugarfari.
Og að þessu sinni eru það engar ýkjur
sem segir í fréttatilkynningum leik-
hússins: valinn maður í hverju rúmi.
Stefán Jónsson þekkir sitt lið; hann
hefur skipað í hlutverkin af glögg-
skyggni og smekkvísi og stýrir fley-
inu heilu í höfn. Þetta er besta leik-
stjórnarvinna sem ég hef séð frá hans
hendi. Og Börkur Jónsson sýnir enn
og aftur snilli sína sem leikmynda-
skáld; við lestur handritsins spurði
ég sjálfan mig hvernig í ósköpunum
honum myndi takast að koma fjór-
um íbúðum á tveimur hæðum fyrir
á þessu litla sviði – en honum tekst
það, með glæsibrag. Ég ætla ekki
að taka tíma ágætra lesenda minna
með því að lýsa því hvernig hann fer
að því; þið getið bara farið og skoðað
það sjálf. Því að þetta er húsfundur
sem þið ættuð ekki að missa af.
Leikendurnir, já þeir eru sannar-
lega hver öðrum betri; maður neyð-
ist víst til að taka fram helstu klisjurn-
ar: „óborganlegur“, „fer á kostum“,
„alltaf í framför“ og svo framvegis.
Í raun og veru á það við um þau öll:
Eggert Þorleifsson, Ragnheiði Stein-
dórsdóttur, Kristbjörgu Kjeld, Friðrik
Friðriksson, Pálma Gestsson, Vigdísi
Hrefnu Pálsdóttur ... öll skynja þau
þann dapurleika sem býr innra með
þessu fólki, einsemd þess og dulda
sorg, og þau draga hana fram með
hárfínum meðulum. Þetta geta leik-
ararnir okkar þegar þeir vilja það við
hafa og fá að einbeita sér að því sem
skiptir máli á leiksviðinu, en eru ekki
kýldir niður með vondri og oft van-
hugsaðri leikstjórn. Ég hef alltaf sagt
það: leyfum skáldi og leikurum að ná
saman, þá gerast góðir hlutir – og ég
verð æ vissari í þeirri sök eftir því sem
árin líða og ég sé meira af leikhúsi.
Þegar svona stendur á vildi maður
helst geta sleppt því að hrósa einum á
kostnað annarra – og þó væri ég ekki
fyllilega hreinskilinn ef ég gerði það
ekki. Því það verður að segjast eins
og er: Kristbjörg Kjeld stelur senunni
allan tímann sem hún er inni á svið-
inu. Auðvitað er Kristbjörg enginn
senuþjófur af gömlu sortinni, hún
notar engar af þessum gamalkunnu
brellum sem gömlu prímadonnurn-
ar höfðu á valdi sínu – hún leikur
bara einfaldlega svo vel, mannlýs-
ingin er svo glögg, svo trúverðug og
fyndin, nærvera leikkonunnar svo
sterk og hlý, blæbrigðin í textameð-
ferðinni svo hnitmiðuð, falleg og fín-
leg, að maður getur vart haft augun
af henni. Hvernig hægt er að gera
slíkt í jafnpottþéttum og samstilltum
hópi og hér er saman kominn, það
er nokkuð sem ég mun ekki reyna
að skýra. Og hver segir svo sem að
gagnrýnendur eigi að geta skýrt allt?
Er það ekki einmitt aðal góðrar leik-
listar, að leiða okkur þangað sem út-
skýringarnar hætta að skipta máli ... ?
Það er einungis tvennt sem ég
ætla að gera athugasemd við: í fyrsta
lagi finnst mér finnst bláendirinn, sú
líkamlega athöfn sem sýningin end-
ar á og ég ætla að sleppa að lýsa hér,
ekki vel valin eða smekkleg. Hún er
ekki fyrirskrifuð í handritinu og mér
finnst að leikstjórinn ætti að taka
hana út. Vera má að honum hafi
fundist endirinn ekki nógu sterk-
ur frá hendi höfundar, það kann
að vera að nokkuð sé til í því, en ég
hugsa samt að hann myndi „halda“
án þessara tilþrifa.
Í öðru lagi er leikskráin í allt of
stóru broti, 31 x 31. Hvernig dett-
ur þeim í Þjóðleikhúsinu í hug að
áhorfendur geti setið með svona
pappírsörk í kjöltu sér allt kvöldið?
Gömlu leikskrárnar, þær sem fólk á
miðjum aldri man vel eftir og hægt
var að stinga fyrirhafnarlaust í vas-
ann eða veskið, voru aðeins 13 x
20. Þjóðleikhúsið gæti gert margt
vitlausara á sextugasta afmælisár-
inu en að hverfa aftur til hins gamla
og góða brots. Eru litprentaðar
glæsiauglýsingar ekki hvort eð er
að verða svolítið „2007“? Í leikskrá
Hænuunganna er ekki ein einasta
auglýsing – það má þó segja henni
til hróss.
Vonandi getur hin öfluga kynn-
inga- og markaðsdeild Þjóðleikhúss-
ins tínt eitthvað út úr þessari umsögn
til nota í auglýsingunum – fyrir nú
utan þær fjórar stjörnur sem ég gef
sýningunni. Leikhúsinu ber nefni-
lega skylda til að hampa verkum af
þessu tagi, engu síður en þeim sýn-
ingum sem mikið er borið í og eiga
auðveldar með að fá fjölmiðlaat-
hygli. Og þurfa, þegar upp er staðið,
hreint ekki að vera jafnmikils virði.
Næst þegar einhver spyr mig hvað sé
nú mest spennandi í leikhúsunum,
ætla ég að nefna leik Braga Ólafsson-
ar. Ég vona hann verði langlífari en
kjúklingarnir sem hann dregur nafn
sitt af.
Jón Viðar Jónsson
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR BLOODGROUP
Útgáfutónleikar Bloodgroup verða haldnir í Iðnó fimmtu-
daginn 4. mars. Plata þeirra, Dry Land, kom út í desember
síðastliðnum og er að mati margra ein besta plata ársins
2009. Ólafur Arnalds mun koma fram með hljómsveitinni
auk nokkurra gestahljóðfæraleikara. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21. Miðar á midi.is.
Á MI ÐVIKUDEGI
20 MIÐVIKUDAGUR 3. mars 2010 FÓKUS
TATSU AOKI HJÁ
KÍNÓKLÚBBNUM
Kínóklúbburinn helgar fimmtudags-
dagskrá sína í Listasafni Reykjavíkur
hinum japanska Tatsu Aoki. Tatsu er
kvikmyndagerðarmaður, kontra-
bassaleikari og plötuútgefandi.
Fjórar kvikmyndir verða sýndar eft-
ir hann á fimmtudagskvöld og eru
það myndirnar Puzzle III, Decad-
es Passed, Harmony og Solution A.
Fyrsta sýning hefst klukkan 20 og er
aðgangur ókeypis.
HARPA DÖGG Í
GALLERÍ CRYMO
Harpa Dögg Kjartansdóttir opn-
ar einkasýninguna Úr mynd í
Galleríi Crymo á föstudaginn.
Harpa útskrifaðist úr myndlist-
ardeild Listaháskóla Íslands árið
2007 og lauk kennsluréttindum
frá sama skóla vorið 2009. Hún
hefur verið virk í listsköpun sinni,
haldið einkasýningar og tekið
þátt í fjölda samsýninga víða um
land og erlendis. Sýningaropn-
unin hefst klukkan 17 og eru allir
velkomnir.
BÓKBANDSVERK
RAGNARS G. EIN-
ARSSONAR
Nú stendur yfir sýningin Sauðfé,
hlýri, hross og geit hjá Handverki
og hönnun en það er Ragnar G.
Einarsson sem sýnir bókbandsverk.
Ragnar nam bókband í Iðnskólan-
um í Reykjavík og í Hólabókbandi
og lauk meistaraprófi árið 1972. Á
sýningunni gefur að líta fjölbreyttar
bækur sem Ragnar hefur bundið inn
á undanförnum árum. Opið er alla
virka daga frá 9 til 19 og frá 12 til 17
um helgar.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
HÆNUUNGARNIR
EÐA MINNINGAR FRÁ KARHULA
eftir Braga Ólafsson
Leikstjóri: Stefán Jónsson
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Ríkey Kristjánsdóttir
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
LEIKLIST
ALLIR Á HÚSFUND!
Hænuungarnir Verkið er sýnt í Þjóðleikhúsinu.