Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2010, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2010, Blaðsíða 13
VIÐ ERUM STOLT AF OKKAR FÓLKI mánudagur 5. janúar 2008 3 Fréttir stjórnin hangir á bláþræði Samfylkingar- innar vilji ekki að Sjálfstæðis- flokkurinn nái samstöðu á landsfund- inum um það hvernig staðið skuli að viðræð- um um aðild að Evrópu- samband- inu.“ Óupp- gerð pólitísk ábyrgð á bankahruni Ljóst er að út- spil Geirs H. Haarde um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að ESB hafi lagst afar illa í forystu Samfylkingarinnar, enda telji hún nægjanlegt að bera samningsdrög beint undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðsu eftir þinglega meðferð málsins. Á það er að líta að frá hruni bankakerfisins hefur eng- inn axlað ábyrgð enn, hvorki emb- ættis- né stjórnmálamenn. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðipróf- essor bendir á að sú hefð sé ríkjandi í íslenskum stjórnmálum að nægj- anlegt sé að ráðherrar og þingmenn standi reikningsskil gjörða sinna í þingkosningum. Þar hafi kjósendur vald til þess að kalla þá til ábyrgð- ar. „Það verður pólitískt erfitt fyrir ríkisstjórnina að halda velli án þess að komi til uppsagna í Seðlabank- anum, Fjármálaeftirlitinu og jafn- vel afsagna í ríkisstjórninni. Hnútu- kast milli stjórnarflokkanna sýnir að ríkisstjórnin hefur ekki enn fund- ið sér farveg til að fara í viðræður við Evrópusambandið. Það eru vit- anlega til ýmsar leiðir. Það er skilj- anlegt að Samfylkingin vilji hraða málinu og hún er undir þrýstingi um þingkosningar. Það er einnig skiljanlegt að Sjálfstæðisflokkurinn reyni að leysa sín innri mál með til- lögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sækja eigi um aðild. Auk þess er jafnskiljanlegt að flokkurinn vilji fresta þingkosningum. Ég held að tillaga Ingibjargar Sólrúnar um þingkosningar samhliða þjóðarat- kvæðagreiðslu í vor sé sett fram til að þrýsta á samstarfsflokkinn. Áhættan er sú að upp úr sjóði. Ef Evrópumál- in leysast ekki er stjórnarsamstarfið búið. Þetta gerist á sama tíma og VG virðist vera í þann veginn að finna leið til að leysa ESB-vandann gagn- vart Samfylkingunni,“ segir Ólafur. Björn, Ingibjörg, Geir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að ekki séu mikil heilindi í stjórnarsamstarfinu sé tekið mið af yfirlýsingu Ingibjargar Sólrúnar um þingko sn- ingar samfara kosningu um aðildarviðræð ur. Björgvin g. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Þó runn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra, segja rétt að efna til þingko sningar í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna. n 20. nóvember 2008 jón gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði í Bítinu á Bylgjunni að Björgvin g. Sigurðarson viðskiptaráðherra o g Þórunn Sveinbjarn- ardóttir umhverfisráðherra ættu að segja af sér . Hann telur þeim ekki stætt á öðru eftir að þau sögðu rétt að efna til k osninga. n Bylgjan, 21. nóvember. „Í þessum erfiðu aðstæðum á Seðlabankinn að vera sá aðili sem lægir öldur, skapar traust og fær samhljóm í samféla ginu um það sem gera þarf. En davíð er lagnara að efna til illinda en læ gja öldur. Og ég tel að seðlabankastjóri sjálfur sjái þetta og ætti að au ðvelda stjórnvöldum að hafa stjórn á því sem er að gerast með því að st íga sjálfur til hliðar“ n Ingibjörg Sólrún gísladóttir, dV 28. nóvem ber 2008 „Ég er ekki á móti því að það verði kosið áður e n þetta kjörtímabil er á enda,“ n Ingibjörg Sólrún gísladóttir, dV 28. nóvem ber 2008 „mér finnst að ef á annað borð er verið að efna til allsherjaratkvæða- greiðslu í landinu og kalla alla að kjörborðinu s éu mjög sterk efnisleg rök fyrir því að þá fari fram þingkosningar samh liða. n Ingibjörg Sólrún gísladóttir, mbl.is 2. janúa r 2009 „...færi Samfylking í ríkisstjórn með vinstri/græn um að loknum þingkosningum í vor, en formenn beggja flokk a hefðu rætt vorkosn- ingar, væri unnt að líta á kröfu formanns Samfy lkingarinnar um nýja Evrópustefnu á hendur Sjálfstæðisflokknum se m átyllu fyrir að slíta stjórnarsamstarfinu.“ n Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, í pist li á heimasíðu sinni 4. janúar 2009 „Þetta hlýtur að vera úthugsað hjá þeim en þes si afstaða formanns Samfylkingarinnar er samt einkennileg.“ n Þorgerður Katrín gunnarsdóttir, varaforma ður Sjálfstæðisflokksins, um þá tillögu Ingibjargar Sólrúnar gísladóttur að kosið verði til alþingis samfara hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um að ildarviðræður við Evrópusambandið. Visir.is 4. janúar 2009 „Það er rökrétt að draga þá ályktun af ýmsum u mmælum Ingibjargar Sólrúnar að formaður Samfylkingarinnar vilji ek ki að Sjálfstæðisflokk- urinn nái samstöðu á landsfundinum um það h vernig staðið skuli að viðræðum um aðild að Evrópusambandinu, “ n ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæð isflokksins, í pistli á heimasíðu sinni 4. janúar 2009. Hriktir í samstarfinu ÞIngmEnn Og ráðHErrar StjÓrnarflO KKanna Hafa EfaSEmdIr Ólíkir hagsmunir stjórnarflokkanna varð- andi þingkosningar og aðildarumsó kn að Evrópusambandinu verða æ sýni legri. Þingmenn og ráðherrar stjórnar flokk- anna takast á fyrir opnum tjöldum og hafa í hótunum. Ólafur Þ. Harðarson stjórn- málafræðiprófessor telur ómögulegt fyrir ríkisstjórnina að sitja án þess að segj a upp mönnum í Seðlabankanum, Fjármála eftir- litinu eða jafnvel að ráðherrar segi a f sér. mánudagur 5. janúar 20082 Fréttir Þingmönnum Sjálfstæðisflokksins þykir að sér þrengt með ummæl- um Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur, oddvita samstarfsflokksins í rík- isstjórn, um þingkosningar í vor samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sótt verði um aðild að Evrópusambandinu. Á sama tíma ítrekar Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, kröfuna um kosningar og kveðst vilja rauðgrænt samstarf við Samfylkinguna. „Ég er ennþá bjargfast þeirrar sannfæring- ar að rétt sé að mynda hér rauðgrænt bandalag,“ segir Steingrímur í opnu- viðtali við DV um helgina og undir- strikar að stjórnmálin endurheimti ekki traust til endurreisnarstarfs nema með þingkosningum. „Ein frumforsenda þess að það gangi er að málin verði gerð upp á heiðarleg- an hátt, í kosningum ekki síst... Það mun aldrei takast með ríkisstjórn sem er með þjóðina upp á móti sér... Það verða kosningar á þessu ári. Ég er sannfærður um það vegna þess að annað væri óráð. Menn sjá að lok- um að það er forsenda þess að okkur takist að leysa viðfangsefnið.“ Ólíkir hagsmunir stjórnarflokkanna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varafor- maður Sjáflstæðisflokksins, segir að menn verði að hafa atburðarásina í huga. Alþingi gæti tekið ákvörð- un um að sækja um aðild að Evr- ópusambandinu. Sömuleiðis yrði að breyta stjórnarskránni til að geta deilt fullveldi með öðrum þjóðum. „Þetta tekur 12 til 16 mánuði og við yrðum alltaf að efna til þingkosninga til þess að nýtt þing geti fullgilt breyt- ingar á stjórnarskrá. Ég er vantrúuð á að unnt verði að kjósa tvisv- ar á einu ári til Alþingis. Við blasir erfiður og vaxandi vandi í at- vinnulífinu og ég veit ekki hvort þetta er heppi- legt.“ Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, tekur í svip- aðan streng. „Það mætti hugsa sér að nýta mikinn þingstyrk á bak við nú- verandi rík- isstjórn og tengsl henn- ar við samtök launamanna og atvinnurek- endur til þess að koma atvinnulífinu í gang. Það færu alltaf tveir mánuðir í snarpa kosningabar- áttu og myndun nýrrar ríkisstjórnar og mér finnst það ekki fýsilegt eins og ástatt er. Atvinnuleysi er enn vax- andi og heimilin miklu skuldsettari en þau voru árið 1994 þegar atvinnu- leysið fór einnig upp í 7 prósent.“ Af þessum sökum telur Illugi óheppilegt að setja pressu á stjórn- arsamstarfið með kröfu um þing- kosningar samhliða hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópu- sambandsmálin. „Við vitum að krónan verður hér enn næstu misserin þótt við öðlumst aðild að ESB og út af fyrir sig er það ágætt. Það er hagstætt sjávarútveg- inum og öðrum útflutningsgreinum að búa við veika krónu á misserum. Það getur örvað rekstur fyrirtækja og dregið úr atvinnuleysi.“ Útspil Geirs ýfir Samfylkinguna Lúðvík Bergvinsson, þingflokksfor- maður Samfylkingarinnar, segir ekk- ert athugavert við tillögu Ingibjargar Sólrúnar um þingkosningar sam- fara þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Þess má einnig geta að á nýliðnu ári kváðust tveir ráðherrar Samfylking- arinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Björgvin G. Sigurðsson, hlynntir þingkosningum á þessu ári. Lúðvík er ekki sammála Þorgerði Katrínu og segir að ef efna eigi til þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB sé einnig sjálfsagt og eðlilegt að efna samhliða til þingkosninga. „Ef vilji er til þess að hefja aðildarviðræður er vandalaust að samþykkja breyt- ingar á stjórnarskrá á Alþingi, efna til þingkosninga og stað- festa breytingarnar á nýkjörnu þingi. Ef þjóðfélagið þolir þjóðarat- kvæðagreiðslu þolir það einnig þing- kosningar.“ Óþol í sjálfstæð- ismönnum Nokkrir þingmenn og ráðherr- ar Sjáfstæð- isflokksins hafa lýst megnri óánægju með viðbrögð Ingi- bjargar Sólrúnar við hugmynd Geirs H. Haarde, formanns Sjáflstæðis- flokksins, um að til greina komi að taka sérstaklega afstöðu til þess í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort sækja eigi um aðild að ESB. Björn Bjarna- son dómsmálaráðherra efast um heilindi Ingibjargar Sólrúnar í stjórn- arsamstarfinu í pistli á vefsíðu sinni: „Auðvitað eru þetta alveg sjálfstæð viðfangsefni; annars vegar hvort efna eigi til þjóðaratkvæðis um ESB og hins vegar hvort slíta eigi núver- andi stjórnarsamstarfi og efna til þingkosninga. Það að for- maður Samfylkingarinnar tengi þetta saman með þessum hætti, bend- ir ekki til þess að mikil heilindi séu í stjórnar- samstarfinu lengur af hennar hálfu.“ Sigurður Kári Kristjánsson sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni um helgina að sjálf- stæðismenn létu ekki Samfylk- inguna stilla sér upp við vegg með hótunum. Undir þetta tekur Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, á vefsíðu sinni og segir efnislega að með um- mælum sínum leggi Ingibjörg Sólrún stein í götu ESB-málsins og afgreiðslu þess á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í lok mán- aðarins. „Það er rökrétt að draga þá ályktun af ýmsum ummælum Ingibjargar Sólrúnar að formaður JÓHann HaukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Þorgerður katrín Gunnarsdóttir „Ég er vantrúuð á að unnt verði að kjósa tvisvar á einu ári til alþingis.“ Stjórnarsamstarfið Stjórnarflokkarnir eru hvorki samstiga í ESB-málinu né um þingkosningar. „Ef þjóðfélagið þolir þjóðaratkvæðagreiðslu þolir það einnig þing- kosningar.“ „Ef Evrópumálin leysast ekki er stjórnar- samstarfið búið.“ 12 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 FRÉTTIR FRÉTTIR 1. mars 2010 MÁNUDAGUR 13 þriðjudagur 27. janúar 2009 2 Fréttir RíkisstjóRniR ís a ds FullveldisstjóRnin4. janúar 1917 – 25. febrúar 1920Forsætisráðherra Jón Magnússon.Heimastjórnarflokkur, Sjálfstæðisflokkur þversum og Framsóknarflokkur. BoRgaRastjóRn25. febrúar 1920 til 7. mars 1922Forsætisráðherra Jón MagnússonHeimastjórnarflokkur og utan flokka BoRgaRastjóRn7. mars 1922 – 22. mars 1924Forsætisráðherra Sigurður EggerzSjálfstæðisflokkur og utan flokka HágengisstjóRn22. mars 1924 til 8. júlí 1926Forsætisráðherra Jón MagnússonÍhaldsflokkur BoRgaRastjóRn8. júlí 1926 – 28. ágúst 1927Forsætisráðherra Jón ÞorlákssonÍhaldsflokkur FyRsta stjóRn FRamsóknaR28. ágúst 1927 – 3. júní 1932Forsætisráðherra Tryggvi ÞórhallssonFramsóknarflokkur samstjóRn lýðRæðissinna3. júní 1932 – 28. júlí 1934Forsætisráðherra Ásgeir ÁsgeirssonFramsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur stjóRn Hinna vinnandi stétta28. júlí 1934 – 2. apríl 1938Forsætisráðherra Hermann JónassonFramsóknarflokkur og alþýðuflokkur ÞRiðja stjóRn HeRmanns 17. apr. 1939 – 18. nóv. 1941Forsætisráðherra Hermann Jónasson - Framsóknarfl. stjóRn geiRs HallgRímssonaR28. ágúst 1974 – 1. september 1978Forsætisráðherra Geir HallgrímssonSjálfstæðisflokkur og Framsóknarfl. vinstRistjóRn 1. september 1978 – 15. október 1979Forsætisráðherra Ólafur JóhannessonFramsóknarflokkur, alþýðubandalag, alþýðuflokkur FyRsta stjóRn steingRíms HeRmannssonaR26. maí 1983 – 8. júlí 1987Forsætisr. Steingrímur HermannssonFramsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur stjóRn gunnaRs tHoRoddsen8. febrúar 1980 – 26. maí 1983Forsætisráðherra Gunnar ThoroddsenHluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokkur, alþýðubandalag stjóRn ÞoRsteins PálssonaR 8. júlí 1987 – 28. sept. 1988Forsætisráðherra Þorsteinn Pálsson - Sjálfstæðisfl., Framsóknarfl., alþýðufl. ÖnnuR stjóRn HeRmanns2. apríl 1938 – 17. apríl 1939Forsætisráðherra Hermann JónassonFramsóknarflokkur vinstRistjóRn 14. júlí 1971 – 28. ágúst 1974Forsætisráðherra Ólafur JóhannessonFramsóknarflokkur, alþýðubandalag, Samtök frjálslyndra og vinstri manna 1965 1966 1967 1968 1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 minniHlutastjóRn alÞýðuFlokks 15. október 1979 – 8. febrúar 1980Forsætisráðherra Benedikt Gröndalalþýðuflokkur 1917 1918 1919 1920 1921 1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949 1950 1951 1952 1953 1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 Forysta Sjálfstæðisflokksins batt vonir við það að ekki þyrfti að leysa Davíð Oddsson frá störfum í Seðla-bankanum. Geir H. Haarde, for-maður Sjálfstæðisflokksins, lét í veðri vaka þegar upp úr stjórnar-samstarfinu slitnaði í gær, að unnið hefði verið að því að breyta lögum um Seðlabankann og Fjármálaeft-irlitið. Í smíðum væri lagafrumvarp um sameiningu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Samkvæmt heimildum DV var það von Geirs og annarra ráðherra Sjálfstæðisflokksins að unnt yrði að sefa Samfylkinguna með frum-varpinu. Gert var ráð fyrir að lögin tækju þegar gildi og að sameining Fjármálaeftirlitsins og Seðlabank-ans færi fram 1. mars, sama dag og Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, léti af störfum. Forysta Sjálfstæðisflokksins von-aðist til þess að þennan tiltekna dag, 1. mars, yrði Davíð Oddsson kom-inn í nýtt starf og því kæmist Geir hjá því að segja honum upp störfum í Seðlabankanum. DV hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að unnið hafi verið að því að koma Árvakri, útgáfufélagi Morgun-blaðsins, í hendur manna sem hlið-hollir eru Sjálfstæðisflokknum og að Davíð Oddsson hafi átt að verða rit-stjóri Morgunblaðsins. Þannig átti Davíð að fara sjálfviljugur frá bank-anum en ekki með valdboði. Breytingar strax! Samfylkingarmenn voru ekki ginn- keyptir fyrir tilboði sjálfstæðis-manna í þessum efnum enda trúnaðurinn að engu orðinn milli flokkanna vegna seinfærni og vax-andi tortryggni. Geir Haarde og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa fullyrt að Samfylkingin hafi augljóslega sett fram óaðgengileg skilyrði um að hún fengi forsætisráðherraembætt-ið. Hafa ber í huga að með því hefði valdið yfir Seðlabankanum færst til Samfylkingarinnar. Því má líta svo á að brotnað hafi á enn einum múrnum sem Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að setja upp til varnar Davíð. Í þessu ljósi ber að meta orð Ingi-bjargar Sólrúnar Gísladóttur þegar hún brást hart við ásökunum Geirs Haarde á stuttum þingfundi á Alþingi í gær. Þar sagði hún að Samfylkingin hefði sýnt Sjálfstæðisflokknum mik- ið langlundargeð: „Ýmislegt sem varðar breytingar í fjármálakerfinu okkar sem lýtur ekki síst að Seðla-bankanum og því að endurreisa traust á þessari æðstu stofnun efna-hagsmála í landinu, sem er Seðla-bankinn, hefur mistekist. Við viljum að á því verði breyting eigi síðar en strax. Við teljum ekki að það sé hægt að bíða lengur. Við erum búin að bíða frá því í haust, við getum ekki beðið lengur eftir þeirri breytingu. Hún verður að gerast núna. Það er ekki hægt að vísa henni inn í fram-tíðina með hugmyndum um hugs-anlegar lagabreytingar. Þetta þarf að gerast núna.“ Rauðgræn stjórn í smíðum„Við útilokum engan kost fyrir fram og við göngum ekki til slíkra við-ræðna með fyrirframskilyrði, allra síst um menn eða verkaskiptingu því að það er málefnið og verkefnið sem skiptir öllu hér og að því þurfa menn að hyggja,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, á Alþingi í gær. Þessi orð Steingríms strax að lokinni yfirlýsingu Geirs H. Haarde um stjórnarslit geta hæglega þýtt að hann hafi lítið við það að athuga að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsæt-isráðherra í ríkisstjórn sem starfar skamma hríð. Orð hans mátti einn-ig skilja á þann veg að eftir harka-lega magalendingu fráfarandi ríkis-stjórnar væri þjóðstjórn allra flokka fjarlægur möguleiki. „Þjóðstjórn verður þá að vera alvöruríkisstjórn, fær um að vinna þau verk sem þarf að vinna á næstu vikum og leiða svo landið inn í kosningar. Maður hlýt-ur að hafa vissar efasemdir eftir það sem á dagana hefur drifið og eink-um í dag í þeim efnum.“ Gátlisti eða stefnuyfirlýsing?Eins konar málefnasamningur eða gátlisti nýrrar ríkisstjórnar kveð-ur á um samvinnuna við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn, kosningar með fyrra fallinu, bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi, fjöldagjaldþrotum heimila og fyrirtækja og meðferð er- Stjórnin Sprakk á DavíðVarnarmúr Sjálfstæðisflokksins um Davíð Oddsson seðlabankastjóra rofnaði þegar ríkisstjórnin sprakk í gær. Hann átti að verða Morgunblaðsritstjóri fyrir lok febrúar áður en FME yrði sameinað Seðlabankanum með nýjum lögum. Samfylkingin gafst upp og setti skilyrði sem rufu múrinn. Allt bendir til þess að forseti Íslands fái for-manni Samfylkingarinnar umboð í dag til þess að mynda starfhæfan meirihluta á þingi og nýja ríkisstjórn. JÓHann HaukSSOn blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Forysta Sjálfstæðis- flokksins vonaðist til þess að þennan til- tekna dag, 1. mars, yrði Davíð Oddsson kominn í nýtt starf og því kæm- ist Geir hjá því að segja honum upp störfum í Seðlabankanum. Stungið saman nefjum jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherraefni ráðfærir sig við ingibjörgu Sólrúnu gísladóttur eftir stjórnarslitin í gær. MynD RakEl ÓSk SiGuRðaRDÓTTiR þriðjudagur 27. janúar 2009 3 Fréttir ólafía 16. maí 1942 – 16. desember 1942Forsætisráðherra Ólafur ThorsSjálfstæðisflokkur UtanÞingsstjóRn16. desember 1942 – 21. okt. 1944Forsætisráðherra Björn Þórðarsonráðherrar utan þings ÞjóðstjóRn 18. nóvember 1941 – 16. maí 1942Forsætisráðherra Hermann Jónasson - Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og alþýðuflokkur nýsköpUnaRstjóRnin21. október 1944 – 4. febrúar 1947Forsætisráðherra Ólafur ThorsSjálfstæðisflokkur, Sósíalista-flokkur, alþýðuflokkur emilía 23. desember 1958 – 20. nóv. 1959, Forsætisráðherra Emil Jónsson - alþýðuflokkur ViðReisnaRstjóRn20. nóvember 1959 – 14. júlí 1971Forsætisráðherrar Ólafur Thors, Bjarni Bene-diktsson, Jóhann Hafstein - Sjálfstæðisflokkur, alþýðuflokkur VinstRistjóRn 28. september 1988 – 10. sept mber 1989Forsætisráðherra Steingrímur Hermannsson - Fr msóknarflokkur, alþýðuflokkur, alþýðubandalag VinstRistjóRn 10. september 1989 – 30. apríl 1991Forsætisráðherra Steingrímur Hermannsson - Framsóknarflokkur, alþýðu-flokkur, alþýðubandalag, Borgaraflokkur ViðeyjaRstjóRn 30. apríl 1991 – 23. apríl 1995Forsætisráðherra Davíð Oddsson - Sjálfstæðisflokkur, alþýðuflokkur stjóRn sjálfstæðisflokks og fRamsóknaRflokks23. apríl 1995 – 24. maí 2007Forsætisráðherra Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Geir H. Haarde Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur ÞingVallastjóRn24. maí 2007 – Forsætisráðherra Geir H. HaardeSjálfstæðisflokkur, Samfylking stefanía 4. febrúar 1947 – 6. des.1949Forsætisráðherra Stefán J. Stefánsson - alþýðufl., Sjálfstæðisfl., Framsóknarfl. ólafía 6. des.1949 – 14. mars 1950Forsætisráðherra Ólafur ThorsSjálfstæðisflokkur VinstRistjóRn 24. júlí 1956 – 23. desember 1958, Forsætisráðherra Hermann Jónasson - Framsóknarflokkur, alþýðubandalag, alþýðuflokkur RíkisstjóRn steingRíms steinÞóRssonaR14. mars 1950 – 11. september 1953, Forsætisr. Steingrímur Steinþórsson - Framsóknarfl. og Sjálfstæðisfl. RíkisstjóRn ólafs tHoRs11. september 1953 – 24. júlí 1956Forsætisráðherra Ólafu Th rsSjálfstæðisfl. og Framsóknarfl. lendra skulda bankanna sem fóru í þrot. Þá er ríkissjóði mikill vandi á höndum vegna gríðarlegs fjárlaga-halla í kjölfar bankahrunsins. VG vill auk þess fá erlenda sérfræðinga til starfa vegna fjárhagsvandans og rannsóknar á bankahruninu, efna til stjórnlagaþings í upphafi næsta kjörtímabils og afnema eftirlauna-lögin. Ljóst er að erfitt verður að verja velferðarkerfið. Tilboð Samfylking- arinnar um að Jóhanna Sigurðar-dóttir leiði ríkisstjórn næstu vikur og mánuði má skoða sem tilboð sér-staklega ætlað vinstri-grænum sem leggja þunga áherslu á að verja vel-ferðarkerfið líkt og Jóhanna. Ingi-björg Sólrú sagði jafnframt í gær að Jóhanna væri óumdeild sem stjórn-málamaður með mikla reynslu. DV hefur heimildir fyrir því að svo seint sem í fyrrakvöld hafi nöfn eins og D gs B. Eggertsson-ar og Helgu Jónsdóttur, bæjarstjóra í Fjarðabyggð, verið uppi á borði Samfylkingarinnar. Enda kvaðst Jó-hanna í gær ekki hafa fengið tilboð um forsætisráðherraembættið fyrr en í gærmorgun. Fyrsti kostur Ingi-bjargar var þó að leita til Össurar Skarphéðinssonar þótt hann neiti því sjálfur að svo hafi verið. Stjórnarmyndun í hendur Samfylkingar Ólafur Ragnar Grímsso , forseti Ís-lands, hefur það nú í sinni hendi hverjum hann afhendir umboð til þess að mynda ríkisstjórn þar eð Geir H. Haarde fór ekki fram á það í gær að þing yrði rofið. Við þessi skilyrði fær tilboð Fram-sóknarflokksins um að verja minni- hlutastjórn VG og Samfylkingar falli fram að vorkosningum aukið vægi. Eins og frá var greint í DV síðastlið-inn fimmtudag hafa líkur á myndun slíkrar ríkisstjórnar verið miklar. Sig-mundur D. Gunnlaugsson, nýkjör-inn formaður Framsóknarflokksins, sagði í samtali við DV þennan dag að hann teldi að Sjálfstæðisflokkur-inn væri ekki í standi til þess að leiða ein minnihlutastjórn. „Það er mik-ill vilji til þess í Framsóknarflokkn-um að Sjálfstæðisflokkurinn fái frí frá ríkisstjórnarsetu.“ Yfirlýsing Framsóknarflokksins og orð Sigmundar benda í sömu átt og orð Steingríms J. Sigfússonar hér að framan; að formanni Samfylk-ingarinnar verði falið umboðið til að reyna myndun nýs meirihluta á Al-þingi og þar með nýrrar ríkisstjórn-ar VG og Samfylkingar, með þátttöku eða hlutleysi Framsóknarflokksins. Að þessu samanlögðu bendir allt til þess að Ólafur Ragnar kalli Ingi-björgu Sólrúnu Gísladóttur, for-mann Samfylkingarinnar, á sinn fund í dag og feli henni umboð til að kanna möguleika á myndun nýrrar ríkisstjórnar. „Um 75 prósenta líkur eru á að þetta takist,“ sagði einn af forkólfum Samfylkingarinnar í gær. Varnarmúrinn ofinn geir H. Haar-de taldi sig hafa teflt varnartaflið fyrir davíð Oddsson til enda. Samfylkingin var á annarri skoðun. MynD Gu nar GunnarSSOn VG inn úr kuldanum? Steingrími j. Sigfússyni líst ekki á þjóðstjórn og setur ekki fyrir sig hvaða fólk stjórni ef markmið- um er náð. MynD rakEl ÓSk SiGurðarDÓTTir F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 21. janúar 2009 dagblaðið vísir 14. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 BjÖrgÓLFur thor gegn krÓnunni ríkissTJÓ NiN FELLU Fréttir Fréttir janúarByLting á austurveLLi n eLLeFu á a handtekinn n „ég ar Líka að ÓtmæLa“ n ko a Barin með kyLFu n ingiBjÖrg veikari en taLið var n „geir er Búinn að vera“ m yn d b jö rn b lö n d a l Blaðamaður og ljósmyndarar DV og Birtíngs voru heiðraðir um helgina þegar veittar voru viðurkenningar fyrir bestu blaðamennsku og blaðaljósmyndir síðasta árs. Blaðamannaverðlaun ársins JÓHANN HAUKSSON „Jóhann Hauksson, DV, fær verðlaunin fyrir leiðandi umfjöllun um fall ríkisstjórnarinnar og þýðingarmiklar fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál. Jóhann er fagmaður með mikla og víðtæka reynslu og sambönd. Þessi staðreynd er sérstaklega mikilvæg á umbrotatímum í þjóðfélaginu þegar óvissa og ringulreið virðist ríkja. Jóhanni hefur tekist í fjölþættum skrifum sínum að útskýra og greina þjóðfélagsástandið, sýna lesendum undir yfirborðið og tengja saman hulda þræði. Á löngum ferli hefur Jóhann áunnið sér traust heimildarmanna og virðingu lesenda sem ásamt reynslu hans og þekkingu gera skrif hans um þjóðfélagsmál ómissandi í samfélagsumræðunni.“ Umsögn dómnefndar Mynd ársins RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR „Mynd ársins sýnir rústirnar af Valhöll. Stór kranabíll er að rífa það sem eftir stendur af húsinu. Almannagjá sést í bakgrunni. Ægifögur mynd af sögulegum atburði.“ Umsögn dómnefndar Myndaröð ársins RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR „10. júlí síðastliðinn gerðist sá táknræni atburður að Valhöll brann til grunna. Í 6 myndum, hverri annarri betri, er gert grein fyrir atburðinum. Mjög sterk myndaröð í heimsklassa.“ Umsögn dómnefndar Fréttamynd ársins GUNNAR GUNNARSSON „Fréttamynd ársins er tekin út um glugga alþingishússins. Ungur maður sem liggur á maganum handjárnaður fyrir aftan bak lítur til ljósmyndarans. Fréttagildi myndarinnar jafnt og myndbygging hennar veittu Gunnari Gunnarssyni verðlaunin í þessum flokki.“ Umsögn dómnefndar Tímaritamynd ársins BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON „Myndbyggingin er mjög eftirminnileg. Myndin er tekin inni á íslensku heimili og sýnir okkur í senn stofuna og eldhúsið.“ Umsögn dómnefndar Portrettmynd ársins HEIÐA HELGADÓTTIR „Eitt sjónarmiðið sem kom fram er að por- trettmynd þarf að segja okkur eitthvað um þann sem er á myndinni. Að myndin gefi okkur til kynna hver það er sem situr fyrir. Portrettmynd ársins fellur undir þessa skil- greiningu. Á myndinni sjáum við herra Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands í teinóttum jakkafötum standandi í stórgrýttri fjöru haldandi sjálfur á flassinu sem lýsir hann upp.“ Umsögn dómnefndar Mannlíf ML_Logo.indd 1 5/25/09 3:51:08 PM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.