Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 8. mars 2010 MÁNUDAGUR 17 SAS í sárum Mannfall innan sérsveita breska hersins hefur ekki verið meira í sextíu ár, eða síðan í síðari heims- tyrjöldinni og yfir áttatíu sérsveitar- menn hafa verið drepnir eða særst alvarlega í Afganistan. Yfir sjötíu sérsveitarmenn úr röðum SAS og SBS eru óvígir vegna alvarlegra áverka og tólf hafa misst lífið. Þessi fjöldi samsvarar einum sjötta hluta bardagadeildar sveit- anna. Sveitirnar hafa tekist á hend- ur „fleiri hundruð“ leiðangra gegn forystu talibana í Afganistan síðan árið 2007. Bannað að vinna á snyrtistofum kvenna Hamas-samtökin lögðu nýlega blátt bann við því að karlmenn á Gaza- svæðinu störfuðu á hársnyrtistofum fyrir konur. Á vefsíðu lögreglu Hamas-sam- takanna segir að bannið byggist á fyrirmælum frá Fathi Hammad innanríkisráðherra og að „allir sem brjóti í bága við fyrirmælin verði handtekinir og réttað yfir þeim“. Undanfarin þrjú ár hafa nokkrar slíkar snyrtistofur á Gaza-svæðinu verið skotmörk sprengjuárása og hafa Hamas-samtökin skellt skuld- inni á íslamska hópa sem deila hug- myndafræði með al-Kaída. Hundrað láta lífið í árás Yfir hundrað manns létu lífið á sunnudag í átökum á milli kristinna og múslíma skammt frá borginni Jos í miðhluta Nígeríu, samkvæmt fréttaveitu Reuters. Kristnir íbúar í bænum Dogo Na- hawa, sem liggur suður af Jos, sögðu að árásarmennirnir hefðu komið niður úr fjalllendi umhverfis bæinn aðfaranótt sunnudagsins og skotið af byssum sínum upp í loftið. Þeg- ar fólk kom út af heimili sínu til að kanna málið gengu árásarmennirnir á milli bols og höfuðs á því. Vitni á vegum Reuters sem fór á staðinn taldi um hundrað lík. Washington DC verður fyrsta borg Bandaríkjanna þar sem konum býðst að fá kvennasmokka án end- urgjalds, samkvæmt frétt í Washing- ton Post. Verjunum verður útdeilt á snyrti- stofum, klukkubúðum og í mennta- skólum í þeim hverfum þar sem tíðni HIV- og alnæmissmits er há. Smokkum fyrir karlmenn hefur til langs tíma verið útdeilt án endur- gjalds í borginni, en engu að síður mun tíðni HIV- eða alnæmissmits ekki hafa lækkað hjá þeldökkum borgarbúum. Í bígerð er að dreifa frítt um 500.000 kvennasmokk- um, sem munu, að sögn embætt- ismanna í borginni, veita konum meira vald til verndar gegn HIV- smiti, og kynsjúkdómum ef rekkju- nautur þeirra neitar að nota verju. Kvennasmokkar hafa verið á markaðinum síðan 1993, en kon- ur hafa verið seinar að taka við sér hvað varðar notkun þeirra. Banda- rískir viðskiptavinir töldu að fyrsta útgáfa kvennasmokkanna hefði verið í dýrari kantinum, en nú mun nýrri útgáfa smokkanna, sem hefur verið notuð í löndum eins og Suður- Afríku, Brasilíu og Indónesíu, verða dreift í Washington DC. Lyfjaversl- unum verður einnig boðið að hefja sölu á þeim, og mun dreifing senni- lega hefjast innan þriggja vikna. Í viðtali við Washington Post sagði Shannon Hader, sem fer fyrir málum sem varða HIV og alnæmi í borginni, að smokkar fyrir konur yrðu fáanlegir „alls staðar þar sem smokkar fyrir karlmenn væru fáan- legir“. Shannon sagði að markmiðið væri að fjölga kostum en ekki fækka þeim. HIV/alnæmissmit er algengasta dánarorsök þeldökkra kvenna á aldrinum 25 til 34 ára í Bandaríkj- unum. Ráðamenn í Washington DC grípa til nýrra ráða í baráttunni gegn alnæmi: Konum bjóðast smokkar ókeypis Kvennasmokkur Um 500.000 smokkum verður dreift ókeypis í Washingtonborg. Ofbeldi setti svip sinn á þingkosning- ar í Írak um helgina, og létust á þriðja tug í höfuðborginni Bagdad. Um var að ræða aðrar þingkosningarnar sem farið hafa fram síðan Saddam Hussein var komið frá völdum árið 2003. Að minnsta kosti fjórtán manns létust í norðausturhluta borgarinnar þegar sprenging jafnaði byggingu við jörðu og árásir með sprengjuvörpum í hverfum í vesturhluta borgarinnar uðru sjö manns að bana. Í Mahmoudiya, þrjátíu kílómetr- um suður af Bagdad, sprakk sprengja inni á lögreglustöð með þeim afleið- ingum að einn lögreglumaður lét lífið og víða annars staðar í landinu voru sprengjutilræði, en í gær var ekki vit- að um mannfall af þeirra völdum. Tal- ið er að heildarfjöldi þeirra sem fórust í kosningatengdu ofbeldi í Írak nálgist fimmta tuginn. Gríðarleg öryggisvarsla Þrátt fyrir ofbeldið mynduðust langar biðraðir við kjörstaði í fjölda borga, en kjörstöðum var lokað klukkan tvö að íslenskum tíma, en þeim sem þá voru mættir til að greiða atkvæði var heim- ilað að gera svo. Gríðarleg öryggisvarsla var sett á laggirnar í tilefni kosninganna og um hálf milljón öryggisvarða var kölluð til. Landamærunum að Íran var lok- að, þúsundir hermanna voru kallaðir út og umferð ökutækja var bönnuð á vegunum. Uppreisnarmenn stóðu að sprengjuvörpuárásum á Græna svæð- inu svonefnda, en þar er meðal annars að finna sendiráð Bandaríkjanna og skrifstofur forsætisráðherra landsins. Í Azamiyah, vígi súnní-múslíma, taldist lögreglu til að framkvæmdar hefðu verið að minnsta kosti tuttugu sprengjuvörpuárásir. Mælistika á þróun síðustu 50 mánaða Almennt eru kosningarnar 2005 taldar hafa farið hörmulega fram og er horft til kosninganna nú sem mælistiku á þá framför sem hugsanlega hefur átt sér stað í landinu, og getu þess til að standa á eigin fótum, nú þegar líður að því að bandarískir hermenn verði kallaðir á brott , en þá mun myndast ákveðið tómarúm. Talið er að brottflutningur banda- rískra hermanna hefjist innan örfárra vikna ef niðurstaða kosninganna telst trúverðug. Afstaða Íraka til kosninganna hef- ur verið tvíbent, enda eru kosningarn- ar 2005 og eftirleikur þeirra fólki enn í fersku minni. Kosningarnar vörðuðu upphaf þriggja ára öldu ofbeldis, ekki síst fyrir þær sakir að súnní-múslímar sniðgengu kosningarnar og glötuðu fyrir vikið enn frekar stöðu sinni í Írak eftir fráhvarf Saddams Hussein. Í Salahuddin-héraði þar sem Sadd- am Hussein er grafinn eru súnni-mús- límar andvígir kosningum, en mættu þó á kjörstað í viðleitni til að endur- heimta glataða pólitíska stöðu þeirra. Minnkandi mannfall Kosningarnar um helgina fóru fram í skugga mun minna ofbeldis en tíðk- ast hefur í landinu, en mun færri al- mennir borgarar, írakskir hermenn og bandarískir hermenn hafa farist í Írak en undanfarin ár. Engu að síður eru hundruð manna drepin í hverjum mánuði, spilling er mikil og enn vantar mikið upp á að fólk hafi eðlilegan að- gang að grunnþáttum á borð við raf- magn. Um nítján milljónir Íraka eru á kjörskrá og yfir 6.200 frambjóðendur úr áttatíu og sex flokkabrotum keppast um 325 sæti á hinu nýja þingi landsins. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Írakar gengu um helgina að kosningaborðinu í annað sinn síðan Saddam Hussein var bolað frá árið 2003. Sprengjuárásir settu svip á kosningarnar og kostaði ofbeldið hátt á fimmta tug manns- lífa. Tvær byggingar voru jafnaðar við jörðu í höfuðborginni. Mannskæðar kosningar Talið er að heild-arfjöldi þeirra sem fórust í kosninga- tengdu ofbeldi í Írak nálgist fimmta tuginn. Leikfanganna leitað Drengur leitar leikfanga sinna í rústum húss sem var jafnað við jörðu á sunnudag í Bagdad. MYND. AFP ER GRUNAÐUR UM „SJÚKLEGAN“ GLÆP fengið að vita nema vegna þess að það var við að leka í fjölmiðla. Denise má ekki til þess hugsa að einhverjir aðrir kunni að eiga um sárt að binda vegna athafna Venables. „Ég er svo reið,“ sagði Denise í viðtali við Times. Denise er ekki ein um það því fað- ir James Bulger, Ralph, hefur einnig gagnrýnt Jack Straw fyrir framgöngu hans og fyrir að hafa ekki tilkynnt honum um þróun mála. Lítið hefur verið vitað um afdrif Jons Venables og Roberts Thomp- son síðan þeim var sleppt úr fang- elsi 2001, en samkvæmt fregnum nú hefur Venables unnið sem dyravörð- ur og mun á stundum hafa átt í basli með að fela fortíð sína. Einnig er tal- ið að hann hafi átt í vandræðum með áfengi og ýmis lyf. Samkvæmt heimildum The Times hefur Venables opinberað fortíð sína gagnvart bæði starfsfólki fangelsisins sem hann dvelur nú í og öðrum föng- um. Gjörðir okkar hing-að til hafa miðast við að tryggja að nokkr- ar sérstaklega alvarlegar ásakanir verði rannsakað- ar ítarlegar og að réttlæt- ið nái fram að ganga. Jon Venables, sem myrti tveggja ára dreng í Liverpool árið 1993, er aftur kominn á bak við lás og slá. Dóms- málaráðherra Bretlands hefur ekki viljað upplýsa um hvað Jon Venables er nákvæmlega sakaður, en hefur sagt að um alvarlegar ásakanir sé að ræða. Robert Thompson og Jon Venables, moðingjar James Bulgers Venables er kominn í fangelsi vegna „alvarlegra ásakana“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.