Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2010, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 8. mars 2010 FRÉTTIR
Fullyrðing: Þú brennir meiri fitu á morgnana en á kvöldin
Staðreynd: Rangt. Staðreyndin er sú að þegar við framkvæmum átak út-
heimtir það ákveðna orku. Það skiptir engu máli hvað klukkan er þeg-
ar þú framkvæmir átakið, hvort sem það er að sippa 100 sinnum
eða klappa saman lófunum. Brennslan er nákvæmlega sú sama.
Hins vegar tekur maður meira á þann tíma dags sem maður
er best upplagður. Sá sem er sprækur á snemma morgnana
getur þannig brennt meira en hann gerir á kvöldin, ein-
faldlega vegna þess að hann er duglegri og endist lengur.
Fullyrðing: Þú þarft að lyfta til að
breyta fitu í vöðva
Staðreynd: Þú getur ekki breytt fitunni í vöðva. Þeg-
ar orkuneyslan er minni en orkubrennslan þá léttistu
og missir fitu og einnig vöðva. Ef þú æfir vel, eins og
mælt er með þegar fólk vill grennast, styrkjast vöðv-
arnir og verða stæltari þótt þeir verði minni að um-
máli. Líkaminn þarf aukahitaeiningar til að byggja
upp vöðvamassa.
Fullyrðing: Kaffineysla þurrkar upp líkamann
Staðreynd: Nýlegar rannsóknir benda þvert á móti til
að hægt sé að nota kaffi sem góðan vatnsgjafa. Koffín
er vökvalosandi en áhrifin eru svo væg að mestur partur
vökvans nýtist. Þvagörvandi áhrifin eru mjög lítil.
Fullyrðing: Drekkið átta glös af vatni á dag
Staðreynd: Líkaminn þarf á bilinu tvo til þrjá lítra af vatni á dag
en vatn er að finna í öllum mat og auðvitað drykkjum.
Fullyrðing: Ég geri kviðæfingar á hverjum degi til að losna
við aukafitu á maganum
Staðreynd: Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Rannsókn á tennisleikur-
um, sem nota einungis aðra höndina í íþrótt sinni, leiddi í ljós að fitu-
hlutfallið var jafnmikið á báðum handleggjum. Hægt er að styrkja
ákveðna vöðvahópa markvisst en fitan fer jafnt af öllum líkamanum.
Fullyrðing: Ég verð að sleppa kolvetnum
úr fæðunni til að léttast
Staðreynd: Vitlausasta ráðlegging sem hægt er að gefa fólki í
megrun, jafnvel þótt margir vinsælir megrunar-
kúrar byggi á þessari aðferð. Um helmingur ork-
unnar á að koma úr kolvetnum. Líkaminn fer
í annað efnaskiptaferli en honum er eðli-
legt. Hann fer að brjóta niður prótein
í meiri mæli sem leiðir til vöðv-
arýrnunar. Rannsóknir
sýna að neysla hita-
eninga hjá þeim
sem eru á At-
kins-kúrnum
eða öðrum
slíkum kúrum
minnkar veru-
lega eftir því sem
á líður vegna þess að
fólk fær mjög fljótt leið á
próteinríkum mat ef það borðar
ekkert annað. Líkaminn notar aðrar að-
ferðir til að brenna fitu og blóðið súrnar sem leiðir
til minni matarlystar.
Fullyrðing: Konur verða að vöðvatröllum
ef þær lyfta lóðum
Staðreynd: Fólk á misauðvelt með að bæta á sig vöðva-
massa. Karlmenn eiga yfirleitt auðveldara með það en
konur. Fæstar konur bæta svo miklum vöðvamassa á sig
að það verði þeim til ama. Þær geta þá auðveldlega dregið
úr æfingum ef svo ólíklega vill til að þeim finnist vöðvarnir
stækka of hratt.
Fullyrðing: Eplaedik og sítrónusafi
hraða efnaskiptum líkamans
Staðreynd: Aðeins er til ein góð leið til að örva efnaskipt-
in; hún felst í því að borða reglulega. Sá sem borðar fjórar
til fimm máltíðir einn daginn brennir meira en
þegar hann borðar jafnmikið magn í tveimur máltíðum daginn eftir. Ef lík-
aminn fær orkuna reglulega getur hann verið í fullri virkni allan dag-
inn. Hin leiðin er að neyta óæskilegra örvandi lyfja.
Fullyrðing: Inntaka próteins gerir
vöðvana stærri og sterkari
Staðreynd: Ráðlögð neysla próteins fyrir meðalmann er
0,8 grömm á dag fyrir hvert líkamskíló. Meðalþörfin er
0,5 grömm. Þeir sem eru að byggja upp vöðva í gríð-
arlegum átökum geta þurft allt upp í 1,5 grömm fyrir
hvert líkamskíló. Meiri neysla próteins þarf alls ekki
að þýða meiri vöðvamassi heldur þarf líkaminn að
losa sig við það sem umfram er. Ef nýrun ná ekki að
losa sig við úrgangsefnin geta þau orðið óstarfhæf.
Ofneysla próteins getur því verið hættuleg.
Fullyrðing: Þú grennist ef þú sveltir þig
Staðreynd: Ef neysla hitaeininga er ofboðslega
lítil getur fólk misst mörg kíló á skömmum tíma.
Það er hins vegar alls ekki bara fita sem minnkar.
Vöðvarýrnunin, sem er varanleg, verður mikil og
fólk missir meira vatn en hollt er. Þyngdin er fljót að
safnast á líkamann aftur þegar fólk fer að borða eðli-
lega og þá er algengt að þunglyndi fylgi með. Það get-
ur verið stórhættulegt að borða bara ávexti eða megr-
unarduft í einhverjar vikur eða mánuði.
Fullyrðing: Þú þarft próteinstangir eða -drykki til að
endurhlaða vöðvana eftir æfingu
Staðreynd: Flestir Íslendingar borða meira af próteinum en
þeir þurfa. Allt sem er umfram það gagnast fólki ekki neitt. Það að
„hlaða“ sig af próteini eftir æfingar hefur ekkert að segja. Vöðva-
uppbyggingin tekur langan tíma eftir átök og sérstakur próteins-
kammtur hefur ekkert að segja svo fremi sem þú borðar fjöl-
breyttan mat reglulega yfir daginn. Fyrir allt venjulegt fólk
nægir það fullkomlega.
Fullyrðing: C-vítamín og sólhattur losa þig við
kvefið
Staðreynd: Það er löngu sannað að hvorki C-vítamín
né sólhattur hafa nokkuð að segja gegn kvefi. Hins
vegar getur fjölbreytt og gott mataræði til lengri
tíma gert það að verkum að líkamanum gengur
betur að vinna sig í gegnum umgangspestir.
Fullyrðing: Inntaka vítamína og
steinefna er nauðsynleg til að tryggja
eðlilega líkamsstarfsemi og árangur í
íþróttum
Staðreynd: Flestir íþróttamenn sem eru eðli-
lega nærðir fá feikinóg af öllum efnum sem
þeir þurfa. Undantekningin er D-vítamín
sem við fáum úr lýsi og frá sólarljósinu. Ís-
lendingar geta þurft að taka D-vítamín í
formi fæðubótar yfir svartasta skammdegið.
Þeir sem upplifa skort á næringarefnum ættu
þó að láta draga úr sér blóð til að fá úr því skor-
ið hvað kann að vanta.
Fullyrðing: Bumbubaninn gefur
mér flotta kviðvöðva
Staðreynd: Þeir sem eru með slaka kviðvöðva ættu að fara gætilega við
notkun bumbubanans, þar sem hætta er á innvortis meiðslum ef tækinu er
ítrekað þrýst af afli á kviðinn. Uppsetur eða hefðbundnar kviðæfingar gera
miklu meira gagn.
Fullyrðing: Þú brennir miklu minna eftir því sem þú eldist
Staðreynd: Fyrir hver tíu ár umfram þrítugt minnkar brennslan um 2 prósent.
Á fimmtíu ára tímabili minnkar hún um 10 prósent sam-
tals. Sá sem brennir 2.000 hitaeiningum á dag um þrítugt
brennir 1.800 hitaeiningum þegar hann er áttræður. Þú
brennir því alls ekki miklu minna með aldrinum. Margir
draga hins vegar úr hreyfingu eftir því sem þeir eldast
og bæta því stundum á sig. Það hefur mest áhrif.
Fullyrðing: Ekki borða eftir
klukkan átta á kvöldin
Staðreynd: Líkaminn brennir allan sólar-
Þú getur ekki breytt fitu í vöðva, þú brennir ekki meira á morgnana og þú átt hvorki að sniðganga kolvetni
í megrun né drekka átta glös af vatni á dag. DV fékk næringarfræðinginn Ólaf Gunnar Sæmundsson til
að hrekja 26 algengar fullyrðingar um hreyfingu og mataræði sem eiga ekki við nein rök að styðjast.
LÁTTU EKKI LJÚGA AÐ ÞÉR
Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar.