Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2010, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2010, Page 16
16 MÁNUDAGUR 8. mars 2010 FRÉTTIR Ekki greitt í náinni framtíð Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, viðurkenndi í gær að sennilega liðu „mörg, mörg ár“ áður en Bretum yrði endurgreidd Icesave-skuld Íslendinga. Í frétt The Times um atkvæðagreiðslu Íslend- inga vegna Icesave segir að atkvæða- greiðsla gegn samþykkt Icesave- samningsins hefði verið afgerandi. Ennfremur er lýst undrun yfir því að kjörsókn hafi verið jafngóð og raun bar vitni, eða um sextíu pró- sent. Í viðtali við BBC sagði Alistair Darling: „Þú getur ekki bara farið til lítils lands eins og Íslands, þar sem búa jafnmargir og í Wolverhampton, og sagt: „Ókei, borgið alla upphæð- ina tafarlaust.““ Hvetur múslímska hermenn til morða Adam Gadahn, talsmaður al-Ka- ída, sem er borinn og barnfæddur í Bandaríkjunum, hét á múslímska bandaríska hermenn að taka sér Nid al Hasan majór til fyrirmyndar, en Hasan hefur verið ákærður fyr- ir að bana 13 manns í Fort Hood í bandaríkjunum 5. nóvember. Gadahn lýsti í 25 mínútna myndbandi, sem sett var á vefsíð- ur herskárra múslíma, Hasan sem brautryðjanda sem skipa ætti sess fyrirmyndar fyrir aðra múslíma, sérstaklega þeirra sem þjóna í vest- rænum herjum. Gadahn benti á að herstöðvar væru ekki einu mikil- vægu skotmörkin í Bandaríkjunum og öðrum Vesturlöndum og af nógu væri að taka. Svalt á meðan sýndarbarn var nært Suðurkóreska lögreglan hefur hand- tekið hjón sem létu barn sitt deyja úr hungri á sama tíma og þau tóku þátt í netleik sem felst í því að ala upp sýndarbarn í netheimum. Hjónin gáfu barni sínu að borða einu sinni á dag á milli þess sem þau voru langdvölum á nærliggjandi netkaffi önnum kafin við að ala upp sýndarbarn í leik sem nefnist Prius. Í september komu hjónin heim eftir 12 tíma lotu og þá var dóttir þeirra dáin. Rýr líkami dótturinnar vakti grunsemdir lögreglunnar sem voru síðar staðfestar við krufningu. Bob Geldof hefur skorað á BBC að færa frekari sönnur fyrir frétt stöðv- arinnar um að milljónir dala sem safnað var vegna hungursneyðar- innar í Eþíópíu á níunda áratugn- um hafi runnið til vopnakaupa. Geldof, sem var í forsvari hins vestræna söfnunarátaks, sagði að „ekki væri snefill af sönnunum“ fyrir því að fjármunir sem söfn- uðust hjá Band Aid eða Live Aid hefðu runnið í hirslur uppreisnar- manna. Samkvæmt frétt BBC fóru níutíu og fimm prósent 100 milljóna dala sem söfnuðust vegna neyðarinnar í Tígre-héraðinu í vopnakaup upp- reisnarmanna. Bob Geldof sagð í viðtali á BBC One-sjónvarpsstöðinni að hann myndi höfða persónulega mál gegn ríkisstjórn Eþíópíu ef kæmu í ljós sannanir sem styddu frétt BBC og nota féð til neyðaraðstoðar. „Færið mér snefil af sönnunum og ég heiti ykkur því að ég mun rann- saka málið til hlítar, ég mun sjálf- ur gera það opinbert, og ef einhvers fjár er saknað mun ég höfða mál gegn ríkisstjórn Eþíópíu til að endur- heimta það fé og eyða því í neyðar- aðstoð,“ sagði Bob Geldof. En Geldof hnykkti út með því að segja að sannanir fyrir því að söfn- unarfé frá Band Aid eða Live Aid hefði verið notað til að styrkja upp- reisnarmenn væru ekki til stað- ar. „Það gæti ekki hafa gerst,“ sagði Geldof. Í umfjöllun BBC um málið var birt viðtal við tvo fyrrverandi meðlimi uppreisnarhóps sem mikið kvað að á níunda áratugnum í Eþíópíu, og af orðum þeirra mátti ráða að féð hefði runnið til uppreisnarmanna. Að þeirra sögn þóttust þeir vera kaup- menn til að komast yfir söfnunarféð sem síðan var notað til að reyna að steypa ríkisstjórn landsins. Í skýrslu bandarísku leyniþjón- ustunnar CIA frá níunda áratugnum er rennt stoðum undir fullyrðingar uppreisnarmannanna, en í skýrsl- unni segir að söfnunarfé hafi „nán- ast örugglega verið veitt til hernað- araðgerða“. Bob Geldof krefst sannana vegna fréttar BBC um afdrif söfnunarfjár: Hótar ríkisstjórn Eþíópíu málsókn Bob Geldof, Uhuru Kenyatta fjármálaráðherra Kenía og Dominique Strauss- Kahn yfirmaður AGS Geldof leggur ekki trúnað á frétt BBC. MYND: AFP ER GRUNAÐUR UM „SJÚKLEGAN“ GLÆP Jon Venables, annar tveggja drengja sem dæmdur var fyrir morðið á James Bulger, tveggja ára dreng, í Liverpool árið 1993, stendur frammi fyrir ákær- um sem gætu kostað hann tveggja ára fangelsisvist. Árið 1993 nam Jon Venables, þá tíu ára, James Bulger á brott í félagi við Robert Thompson vin sinn. Lík James Bulger fannst síðar illa farið við járn- brautarteina í Liverpool. Venables og Thompson var sleppt úr haldi árið 2001 og þeim gefin ný nöfn, en fyrir skömmu síðan upp- lýstist að Jon Venables hefði brotið ákvæði reynslulausnarinnar og væri kominn á bak við lás og slá að nýju. Nú er jafnvel talið líklegt að réttað verði yfir Jon Venables undir enn einu nýju nafni til að tryggja nafnleynd hans og sanngjörn réttarhöld. Neita að gefa upp smáatriði Jack Straw dómsmálaráðherra Bret- lands hefur verið undir miklum þrýst- ingi um að upplýsa um afbrot Jons Venables, en hefur ekki látið undan þrýstingnum og borið því við að al- mannahagsmunir krefðust þess ekki. Talið er að afbrot Venables hafi verið af kynferðislegum toga, en Jack Straw hefur ekki viljað upplýsa um eðli glæpsins en þó sagt að Venables stæði frammi fyrir „sérstaklega alvar- legum ásökunum“. Denise Fergus, móðir James Bul- gers heitins, hefur ekki vandað ríkis- stjórninni kveðjurnar vegna málsins og sakað hana um að vera bæði „til- litslausa og tilfinningasnauða“ í með- höndlun hennar á málinu. Dóms- málaráðherrann hefur fallist á að veita Denise áheyrn en samkvæmt heimildarmanni The Times, innan ráðuneytisins, er ólíklegt að Denise verði veittar frekari upplýsingar. „Sjúklegt kynferðisbrot“ Á vefsíðu The Times er vitnað í heim- ildarmenn innan ríkisstjórnarinnar sem fullyrða að Keir Starmer, yfirmað- ur saksóknarembættisins, hafi kraf- ist þess að málið yrði sveipað hulu til að verja rétt Venables til sanngjarnrar málsmeðferðar, þrátt fyrir kröfu ýmissa ráðherra og háttsettra embættismanna um hið gagnstæða. Talsmaður Star- mers vísaði þeirri fullyrðingu á bug. Jack Straw var nánast neyddur til að gefa yfirlýsingu um málið um helgina eftir að dagblað birti frétt þess eðlis að Jon Venables væri sak- aður um „sjúklegt kynferðisbrot“. „Gjörðir okkar hingað til hafa miðast við að tryggja að nokkrar sér- staklega alvarlegar ásakanir verði rannsakaðar ítarlegar og að rétt- lætið nái fram að ganga,“ sagði Jack Straw, og má af orðum hans ætla að Venables hafi framið fleiri en einn glæp. Reið móðir Það var skilorðsfulltrúi sem færði Denise Fergus þau tíðindi á þriðju- daginn að Venables væri kominn á bak við lás og slá, en hún hefur ekki fengið frekari upplýsingar og sakar ráðamenn um „meiriháttar yfirhylm- ingu“. Denise telur að hún hefði ekkert KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Gjörðir okkar hing-að til hafa miðast við að tryggja að nokkr- ar sérstaklega alvarlegar ásakanir verði rannsakað- ar ítarlegar og að réttlæt- ið nái fram að ganga. Jon Venables, sem myrti tveggja ára dreng í Liverpool árið 1993, er aftur kominn á bak við lás og slá. Dóms- málaráðherra Bretlands hefur ekki viljað upplýsa um hvað Jon Venables er nákvæmlega sakaður, en hefur sagt að um alvarlegar ásakanir sé að ræða. James Bulger Óhug setti að heimsbyggðinni þegar fréttist af morðinu á James. Robert Thompson og Jon Venables, moðingjar James Bulgers Venables er kominn í fangelsi vegna „alvarlegra ásakana“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.