Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Síða 2
2 fréttir 5. júlí 2010 mánudagur FER REGLULEGA AÐ LEIÐUnUm „Ég hef það gott líkamlega en auðvit- að er þetta erfitt. Ég veit ekki hvort ég muni einhvern tímann jafna mig á sál- inni,“ segir Ása Þorsteinsdóttir, 17 ára, sem lenti í alvarlegu bílslysi við Mána- torg á Suðurnesjum þann 24. apríl síðastliðinn þegar bíll valt eftir að hafa verið ekið á ljósastaur. Tvær stúlkur létu lífið í slysinu en ökumaðurinn, ungur karlmaður sem grunaður er um ölvun við akstur, slapp lítið meiddur en hann var sá eini sem var í bílbelti. Högg olli persónuleikabreytingu Öll vinstri rifbein Ásu brotnuðu, bringubein brotnaði og hún hand- leggs-, tvíhöfuðkúpubrotnaði, ennis-, kjálka-, kinnbeins- og nefbrotnaði auk þess sem milta hennar og nýru sködd- uðust. Eftir slysið var henni haldið sof- andi en hún dvaldi á gjörgæsludeild Landspítalans í 16 daga og var svo flutt yfir á almenna deild. Hún útskrif- aðist af sjúkrahúsinu þann 24. maí og hóf endurhæfingu á Endurhæfingar- stöðinni á Grensás en þar dvaldi hún til 16. júní. Í dag fer hún tvisvar í viku í sjúkraþjálfun í Keflavík og gengur það vonum framar. Móðir hennar, Sigríður Þ. Þorleifs- dóttir, segir batann ótrúlegan en að Ása hafi orðið fyrir miklu höggi á enn- isblað sem hafi valdið persónuleika- breytingu. „Tíminn mun leiða í ljós hvort sá skaði sé tímabundinn eða ekki en miðað við hvað hún slasað- ist mikið eru þetta ótrúlegar framfarir og við vonum það besta,“ segir Sigríð- ur sem mun aldrei gleyma símtalinu sem hún fékk um morguninn. „Ég var stödd fyrir norðan, á Þórshöfn, þegar ég fékk símtalið klukkan hálf átta um morguninn. Ég fékk lítið af upplýsing- um í símann svona fyrst og sem betur fer því ég var svo langt í burtu,“ segir Sigríður sem gerði sér ekki grein fyr- ir alvarleika málsins fyrr en á leið á daginn. „Vegna eldgossins var ekkert flug frá Akureyri svo ég endaði á því að keyra suður og var ekki komin til hennar fyrr en 11 um kvöldið. Þá hafði pabbi hennar sagt mér meira. Þetta var skelfilegur tími og mjög langur dagur. Ég hafði ekki bara áhyggjur af dóttur minni heldur hafði ég líka misst tvær stelpur sem höfðu verið heima- gangar á okkar heimili.“ Gat ekki kvatt þær Stúlkurnar tvær sem létust í slysinu hétu Lena Margrét Hinriksdóttir og Unnur Lilja Stefánsdóttir og voru tvær af bestu vinkonum Ásu. Ása missti af jarðarför þeirra beggja þar sem hún lá í öndunarvél á sjúkrahúsinu. „Ég vaknaði sama dag og Lena var jörðuð og það var hrikalega erfitt að heyra að þær væru dánar. Ég gat ekki kvatt þær í jarðarförinni en fer reglulega upp að leiðum þeirra.“ Ása og fjölskylda hennar hafa hald- ið sambandinu við ökumanninn og fjölskyldu hans. Samkvæmt Ásu er líðan hans eftir atvikum góð. „Hann mun vonandi jafna sig á þessu með tímanum og ég veit að vinir hans og fjölskylda standa þétt við bakið á hon- um. Auðvitað eru einhverjir reiðir en það þýðir ekkert,“ segir hún og Sigríð- ur bætir við: „Við tókum þá ákvörðun að koma þeim tveimur á fætur sem lifðu af. Þetta hefur ekki reynst þeim auðvelt en bæði honum og Ásu hefur gengið vonum framar. Það eru ótrú- legustu hlutir sem hafa farið í gegnum hugann og alls kyns tilfinningar sem maður getur ekki lýst. Fyrst og fremst er maður þakklátur fyrir hvað við vor- um heppin en að sama skapi er erfitt að vera sá sem situr eftir.“ Efitt fyrir systkinin Sigríður og eiginmaður hennar, Þor- steinn Ásmundur Waltersson, eiga þrjú önnur börn. Strák á sautjánda ári og tvær stúlkur, tíu og átta ára. Sigríður segir slysið hafa haft mikil áhrif á alla fjölskylduna. „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir okkur öll og þessi reynsla er af því tagi sem enginn ætti að þurfa að fara í gegnum. Að barnið manns lendi í alvarlegu slysi hlýtur að vera eitt það skelfilegasta sem foreldri upplifir. Bróðir hennar fór líka mjög illa út úr þessu enda eru aðeins 13 mánuðir á milli þeirra Ásu og þau hafa alltaf ver- ið mjög tengd.“ Sigríður segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi frá Suðurnesjum og íslensku samfélagi í heild sinni. „Við fengum viðbrögð alls staðar frá og ég held að það hafi orðið mikil vakning í samfélaginu gagnvart svona alvarleg- um slysum sem eru alltof mörg þótt þeim hafi fækkað. Þessi stuðningur sem fólkið hér í Garðinum og á Suð- urnesjum veitti okkur var ótrúlegur. Auðvitað voru allir harmi slegnir enda Ása Þorsteinsdóttir sem lenti í alvarlegu bílslysi á Suðurnesjum í apríl hefur náð ótrúlegum framförum. Tvær af bestu vinkonum Ásu létu lífið í slysinu en öku- maðurinn, ungur karlmaður, slapp nánast ómeiddur en hann var sá eini sem var í bílbelti. Móðir Ásu segist aldrei munu gleyma símtalinu sem hún fékk morgun- inn afdrifaríka. Slysið hefur breytt lífi fjölskyldunnar til frambúðar. indíana Ása HrEinsdóttir blaðamaður skrifar: indiana@dv.is Ég hélt að það myndi ekkert koma fyrir mig en nú veit ég að það þýðir ekk- ert að hugsa svoleiðis og ég vil segja öllum að nota bílbelti. Unnur Lilja stefánsdóttir Lena Margrét Hinriksdóttir Jóhanna Berglind Kristjánsdóttir, móðir Lenu Margrétar, sagði í viðtali við DV í apríl það hafa verið algjört reiðarslag að fá fréttir af slysinu. Hún segir ekkert eins sárt og að missa yndislega dóttur sína. „Við sáum Lenu aldrei nema geislandi lífsglaða og yndislega í alla staði. Lena var hjálpleg við alla og var óhrædd við að sýna það ásamt því að vera örlát á sitt. Að missa þessa frábæru stúlku er það sárasta sem maður upplifir og þetta er stórt skarð í okkar fjölskyldu sem aldrei verður fyllt,“ sagði Jóhanna Berglind sem var, ásamt sjúpföður Lenu Margrétar, erlendis þegar tíðindin bárúst. Sökum eldgossins í Eyjafjallajökli komust þau ekki til landsins til að vera hjá henni á sjúkrahúsinu áður en hún lést. „Við biðum sólarhring á flugvellinum úti og það var gífurlega erfitt. Það lék allt í höndunum á henni og hún var yndislegur karakter. Þetta skarð sem hún skilur eftir sig verður aldrei fyllt,“ sagði Halldór Jónsson, stjúpfaðir Lenu, í viðtali við DV í apríl. lífsglöð og yndisleg allt breytt Ása Sigurjóna Þorsteinsdótt- ir lifði slysið af en tvær af hennar bestu vinkonum létu lífið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.