Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Síða 8
8 fréttir 5. júlí 2010 mánudagur Lögmaðurinn og Engeyingurinn Benedikt Einarsson, eiginmaður söngkonunnar Birgittu Haukdal, stendur í stórframkvæmdum við húseign þeirra hjóna að Bakkaflöt 3 í Garðabæ. Þar eru iðnaðarmenn á fullu þessa dagana við lóðafram- kvæmdir. Um nokkurt skeið hafa hjónin Benedikt og Birgitta staðið í fram- kvæmdum við hús sitt við Bakka- flötina í Garðabænum en húsið er rúmir 210 fermetrar að stærð. Hjón- in keyptu það árið 2008 og hafa ver- ið dugleg við að betrumbæta heimili sitt. Verktakar vinna nú í garðinum hjá þeim þar sem verið er að hellu- leggja og, eftir því sem DV kemst næst, taka garðinn alfarið í gegn. Frægir grannar DV hefur áður sagt frá því að Eng- eyjarættin hafi komið sér fyrir í veg- legum einbýlishúsum í botnlangan- um Bakkaflöt við lækinn í Garðabæ. Fyrsta húsið sem blasir við þegar beygt er inn í botnlangann er ein- býlishús Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni, Þóru Margréti Baldvinsdóttur, og börnum þeirra. Innst í sömu götu, í húsi núm- er 10 á Bakkaflöt, býr auðmaður- inn Einar Sveinsson, föðurbróðir Bjarna. Einar er fyrrverandi forstjóri Sjóvár-Almennra, núverandi stjórn- arformaður N1 og jafnframt stjórn- armaður í Icelandair Group. Á Bakkaflöt 3, beint á mót Bjarna Ben og fjölskyldu, búa svo Benedikt og Birgitta. Benedikt er sonur Einars Sveinssonar og því náfrændi Bjarna Benediktssonar. Öll í hnapp Fleiri Engeyingar hafa komið sér fyrir á Bakkaflötinni. Hús númer 8 í götunni er í eigu Hrólfs Einars- sonar og Aðalbjargar Björgvinsdótt- ur konu hans. Hrólfur er líka sonur Einars Sveinssonar og keypti hús- ið við hliðina á foreldrum sínum. Hann hefur verið búsettur í London undanfarin ár og leigt það út. Alls eru 11 einbýlishús á Bakka- flöt og 4 þeirra eru í eigu náskylds kjarna Engeyinga. Í næstu götu við Bakkaflötina í Garðabænum, að- eins 350 metrum frá húsi Bjarna og fjölskyldu, búa Benedikt Sveins- son og Guðríður Jónsdóttir, for- eldrar Bjarna. Benedikt hefur verið atkvæðamikill í íslensku viðskipta- lífi, hann var meðal annars um tíma stjórnarformaður Eimskips og Skeljungs. Fimm fjölskyldur sem til- heyra hinni valdamiklu Engeyjarætt búa því í hnapp á litlu svæði í Garða- bænum. Risaframkvæmdir Sumir íbúar við Bakkaflötina hafa verið stórtækir í byggingarfram- kvæmdum undanfarin misseri. Bjarni formaður stóð í fyrra í fram- kvæmdum við tæplega 300 fermetra einbýlishús sitt við Bakkaflöt 2. Hann sótti um leyfi árið 2008 til þess að byggja arinstofu, stækka og gera kjallara undir bílskúr, ásamt öðrum breytingum á stofu hússins. Við- byggingin er tæplega 150 fermetrar. Skömmu eftir að Benedikt og Birgitta keyptu hús sitt fengu þau leyfi hjá bænum til ýmissa breytinga á því. Þá hefur miklu verið kostað til við glæsilegt einbýlishús Hrólfs og Aðalbjargar sem er um 450 fermetr- ar að flatarmáli. Gatan er vinsæl meðal auð- manna, enda miklar og kostnaðar- samar framkvæmdir staðið yfir í göt- unni síðustu ár. Auk Engeyinganna hafa nágrannarnir í götunni staðið í ýmsum breytingum og hafa fengist leyfi fyrir niðurrifi að minnsta kosti tveggja einbýlishúsa. EngEyjarprins og frú í stórframkvæmdum Benedikt Einarsson lögmaður og Birgitta Haukdal söngkona standa í veglegum lóðarframkvæmdum við hús sitt við Bakkaflöt 3 í Garðabæ. Þau búa ásamt öðrum Engeyingum í þessum fallega botnlanga við læk- inn. Frændi Benedikts, Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, stóð einnig í myndarlegum framkvæmdum við hús sitt í fyrra. Bakkaflöt 2 Hér býr formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, en föðurbróðir hans býr í kallfæri við hann. Bakkaflöt 3 Birgitta Haukdal og Benedikt Einarsson búa á Bakkaflöt ásamt fleiri Engeyingum. Bakkaflöt 10 Stjórnarformaður N1, Einar Sveins- son, býr örfáum metrum frá öðrum Engeyingum á Bakkaflötinni. BakkaFlÖtin Fjöldi meðlima hinnar svoköll- uðu Engeyjar- ættar býr hér við Bakkaflöt í Garðabænum. Hér búa EngEyingar tRausti HaFstEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Fimm fjölskyld-ur sem tilheyra hinni valdamiklu Eng- eyjarætt búa því í hnapp á litlu svæði í Garðabænum. Engeyjarflötin Bakkaflötin er þéttsetin af Engeyingum, meðal annars Benedikt Einarssyni. M Yn D l o Ft M Yn D iR E H F.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.