Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Page 12
12 fréttir 5. júlí 2010 mánudagur
„Ég segi allt dásamlegt og hef það
bara fínt,“ segir Jóhannes Jónsson,
kaupmaður í Bónus, aðspurður
um líðan sína. Hann berst nú við
krabbamein og gengst nú undir erf-
iða og stranga lyfjameðferð í þeirri
von að sigrast á sjúkdómnum.
Lyfjameðferð Jóhannesar hófst
snemma í maí og á þriggja vikna
fresti þarf hann að mæta til lyfjagjaf-
ar á sjúkrahús. Meðferðinni lýkur í
október og þá fyrst kemur raunveru-
legur árangur hennar í ljós. Engu
að síður er líðan Jóhannesar könn-
uð með reglulegu millibili og fram
til þessa hafa læknar verið ánægðir
með svörun hans við sterkri lyfja-
gjöfinni. Sjálfur segist hann líka vera
ánægður með árangurinn. „Ég hef
staðið þessa lyfjameðferð ágætlega
af mér,“ segir Jóhannes.
Verið heppinn
Aðspurður segir Jóhannes lyfja-
meðferðina hafa gengið vel fram
til þessa. Hann segist vera hepp-
inn með hversu vel líkaminn hafi
brugðist við lyfjunum. „Ég get ekki
kvartað þar sem meðferðin hefur
gengið ágætlega. Það er náttúrlega
mjög erfitt að glíma við þetta en ég
hef verið heppinn með hvernig lík-
aminn hefur tekið þessari meðferð.
Ég hef ekki þurft að glíma við stór-
vægilegar aukaverkanir og hef getað
farið til vinnu á hverjum degi. Það er
aðeins rétt eftir lyfjainngjöfina sem
þetta hefur hamlað mér,“ segir Jó-
hannes.
Fyrir rúmu ári fór Jóhannes í að-
gerð til að láta fjarlægja gallsteina
og kom þá í ljós hjá honum illkynja
eitlastækkun. Í fyrstu var fylgst með
veikindum hans á tveggja mánaða
fresti og á endanum talið ljóst að
ströng lyfjameðferð væri nauðsynleg
til að reyna að sporna gegn krabba-
meininu. Sú meðferð tekur sex mán-
uði og því lýkur henni í október.
Góð ár eftir
Í einlægu viðtali í DV í vetur viður-
kenndi Jóhannes að hann óttaðist
erfið veikindi sín en fullyrti að sig-
ur skyldi hann vinna. Í dag er hann
bjartsýnn á framtíðina, bæði sína
eigin og fyrirtækis síns. Hann fagn-
ar sjötugsafmæli sínu nú í sum-
ar og telur sig eiga nóg eftir. „Það
er alltaf verið að tékka árangurinn
trausti hafsteinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, berst við krabbamein og
gengst nú undir erfiða og stranga lyfjameðferð. Hann er virkilega
bjartsýnn á bæði eigin framtíð og fyrirtækis síns. Lyfjameðferð-
inni lýkur í október og þá kemur árangurinn í ljós. Nú er Jóhann-
es hárlaus sem hann segir bara gera sig enn fallegri en áður.
„Þetta er náttúrulega mjög erfitt“
Ég á þrjátíu góð ár eftir þó ég sé
núna með ekkert hár.
Það gerir mig bara enn
þá fallegri en áður.
ströng meðferð Jóhannesernúístrangrilyfjameðferðenhanneránægðurmeð
þvíhverniglíkamisinnhafibrugðistvið.
m
yn
d
ir
h
ö
rð
u
r
sV
ei
n
ss
o
n