Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Síða 14
Eyddu þér út af
vEfnum
Þeir sem eru orðnir þreyttir á allri
þeirri tímasóun sem oft vill fylgja
internetinu geta nú fengið sér forrit
sem eyðir reikningum notenda á
samskiptasíðum á borð við Face-
book, Twitter og Myspace. Forritið
sem um ræðir heitir Web 2.0 Sui-
cide Machine og er það tiltölulega
einfalt í notkun. Þú einfaldlega
færir skráningarupplýsingar þínar
inn í þar til gerðan dálk og ýtir á
„commit“. Þá eyðir forritið öllum
upplýsingum um þig. Forritið sem
um ræðir kom út í desember og hef-
ur það notið töluverðra vinsælda.
Margir notfærðu sér forritið á dög-
unum þegar hópur fólks ákvað að
fremja „Facebook-sjálfsmorð“ í
mótmælaskyni við skort á persónu-
vernd á samskiptasíðunni.
þurfti að borga
tvöfalt
n 65 ára kona þurfti að láta flytja fyr-
ir sig rúm upp á sjöttu hæð í blokk.
Hringdi hún á sendibílastöðina
Greiðabíla hf., og þeir fluttu rúmið
heim til hennar en þegar heim var
komið sagðist bílstjórinn ekki get-
að hjálpað henni með rúmið upp á
sjöttu hæð þar sem honum væri illt
í bakinu. Konan hringdi því aftur
á Greiðabíla hf. og fékk annan bíl-
stjóra á vettvang sem
hjálpaði henni með
rúmið. Hann rukkaði
hana hins vegar um
1500 krónur fyrir við-
vikið. Konan þurfti því
að borga tvöfalt fyrir flutn-
inginn á rúminu.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Kósí Kaffi Haítí
n Lofið að þessu sinni fær Cafe Haítí
í Verinu við Geirsgötu. Þar er boð-
ið upp á ljúffengar veigar og kaffi í
virkilega notalegu umhverfi, á einu
hóflegasta verðinu í bænum. Elda
Þórisson á kaffihúsið ásamt manni
sínum og hefur þeim hjúum
tekist að stækka við sig og
færa reksturinn úr minni
húsnæði sem þau höfðu
til umráða. Café Haítí
skartar engu minna en
ljúffengu kaffi, nota-
legu umhverfi og vina-
legu viðmóti.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 5. júlí 2010 mánudagur
Íslendingar geta keypt sér iPhone 4
ólæstan í Evrópu, en tækið er hið nýj-
asta af kynslóð svokallaðra „snjall-
síma“. Síma þar sem notendur geta
vafrað auðveldlega um netið og skoð-
að tölvupóst eins snurðulaust og í
tölvum. En hvað er svona merkilegt
við iPhone 4?
Það fyrsta sem grípur augað er
auðvitað útlitið. Síminn er smekk-
lega hannaður og smágerðari en for-
veri hans. Heildarþyngd hans er 137
grömm, þremur meira en 3G-útgáf-
an. Þá er hann 34 prósentum þynnri
en forverinn. En útlitið er vitaskuld
ekki allt; minnið er tvisvar sinnum
meira en í eldri símanum, hann býð-
ur upp á 40 prósentum lengri taltíma
og á að standa betur að vígi í keyrslu
forrita. Enn fremur eru nokkrir veiga-
miklir þættir sem skilja að símana tvo.
betri upplausn en augað greinir
Upplausn skjásins telst einnig mikil
framför. Hann sýnir fjórum sinnum
fleiri pixla en gamli síminn, eða um
326 pixla á hverja skjátommu. Það eru
fleiri pixlar en augað greinir. Til sam-
anburðar má nefna að besta skjáupp-
lausn á MacBook-tölvu er rétt rúm-
lega þriðjungur af þessu. Það er því í
raun himinn og haf á milli kynslóða
iPhone.
Myndavélin hefur einnig fengið
uppfærslu, hún tekur núna myndir
í 5 megapixlum, frá 3,2 í gamla sím-
anum. Hún hefur enn fremur þann
kost að geta tekið upp myndbönd í
háskerpu (HD), sem ætti að gleðja
alla tæknigúrúa með háskerpusjón-
varp í stofunni. Enn fremur hefur
annarri myndavél verið bætt við á
framhliðinni. Hún er lakari en þó er
hægt að taka einfaldar andlitsmyndir
með stuttum fyrirvara, og hún gegn-
ir mikilvægu hlutverki við notkun
Face-time forritsins.
myndsímtöl með einum hnappi
IPhone 4 er hugsanlega eini sím-
inn sem tekst að gera myndsím-
töl að raunhæfum kosti. Með því
að nota Face-time forritið getur þú
átt samræður í hljóði og mynd við
aðra Iphone 4 eigendur með ein-
um hnappi. Notandinn þarf að vera
tengdur þráðlausu neti og þá getur
hann auðveldlega hafið samtal við
aðra nettengda notendur sem ekki
þarf að greiða fyrir. Einnig er hægt að
IPHONE 4 ER LÍTIL FARTÖLVA
Síðan iPhone 4 fór í almenna sölu hefur hann tröllriðið farsímamarkaðnum enda flest-
ir sérfræðingar sammála um að með honum sé tekið gríðarlegt stökk í framförum á
farsímatækjum. Tækið hefur selst eins og heitar lummur í Bandaríkjunum og tækni-
gúrúar frá öllum heimshornum halda vart vatni. Síminn er seldur ólæstur í Evrópu
og ætti hann því að vera áhugasömum Íslendingum aðgengilegur.
Hvað kostar iPhone-síminn?
Fyrir þá sem hafa áhuga á að verða sér út um
iPhone 4 símann geta farið til þess tvær leiðir; ann-
aðhvort bíða þar til hann fæst á Íslandi eða keypt
hann frá útlöndum. Athuga ber að verðið hér er
aðeins áætlað verð og námundað að þúsundi.
Keyptur á Íslandi í gegnum söluaðila, ásamt virðis-
auka og 4.000 króna álagningu:
16gb: 145.000
32gb: 165.000
Keyptur í Bretlandi, án virðisaukaskatts og álagn-
ingar söluaðila:
16gb: 114.000
32gb: 133.000
Einnig er hægt að kaupa hann læstan frá Bandaríkj-
unum, en þá er nauðsynlegt að gera samning við er-
lenda símafyrirtækið AT&T, sem býður ekki upp á
þjónustu hér á landi. Þá þarf að borga mánaðarlegt
gjald og hætta er á að síminn læsist þegar hann er
uppfærður.
Verðið hér er miðað við heildargreiðslu, allar mán-
aðarlegar greiðslur eru innifaldar:
16gb: 104.000
32gb: 123.000