Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Qupperneq 19
Ólafur og Björgólfur RagnaR KjaRtansson hefur verið að gera það gott í heimi listanna undanfarið. Sýning á verkum hans stendur nú yfir í Luhring Augustine- galleríinu í New York og ekki er langt síðan eitt stærsta safn heims, MoMA, keypti verk eftir hann. Varð steinhissa og rígmontinn Ég er ekki í hópi þeirra sem telja að efnahagsvanda þjóðarinn- ar eigi að leysa í dómssölum. Að því marki sem stjórnvöld geta yfir- leitt komið að málum ber að leita lausna með lögum. Þannig hefði með lögum mátt nema vísitölu- tengingu lána tímabundið úr gildi óðaverðbólgumánuðina í kjölfar hrunsins. Það lagði þáverandi for- maður BSRB til á fundi með þá- verandi oddvitum ríkisstjórnar í október 2008. Því var hafnað. Nú- verandi ríkisstjórn hefur einnig hafnað slíkum almennum lausn- um. Ákveðið var að fara hina „sér- tæku“ leið. Þeir sem ættu í sér- stökum vandræðum skyldu fara í „greiðsluaðlögun“ og teldu fólk eða fyrirtæki á sér brotið skyldu viðkomandi leita til dómstóla. Hvað þýðir dómur Hæstarétt- ar? Nú gerðist það að niðurstaða fékkst fyrir dómstólum hvað varð- ar gengistengd lán. Gengisteng- ingin er dæmd ólögleg. Í framhald- inu vöknuðu frekari spurningar: Eru gengistengd lán þá að öllu leyti ólögleg? Eða, er bara geng- istengingin ólögleg en ekki aðr- ir þættir slíkra lánasamninga? Um þetta eru menn ekki á einu máli. Lántakendur gengistengdra lána hrósuðu sigri við nýfallinn úrskurð Hæstaréttar og töldu að lánasamningar þeirra ættu að gilda að öðru leyti en því að geng- istryggingin félli út þar sem hún hefði verið dæmd ólögleg. Lán- veitendur segja á hinn bóginn að gengistengingin hafi verið trygg- ing þeirra fyrir því að lánin héldu verðgildi sínu og verði af þeim sökum að endurskoða lánasamn- inginn í heild sinni. Nú tala þeir um forsendubrest, nokkuð sem þeir ræddu lítið þegar bresturinn bitnaði á lántakandanum en ekki lánveitanda. Dómstólaleiðin var valin En hvernig á að höggva á þennan hnút? Að mínu mati er bara ein leið fær úr því sem komið er. Dóm- stólar verða að kveða upp úr um hvað rétt er samkvæmt þeim lög- um og reglum sem gilda. Ef áður hefðu verið sett lög um hvern- ig farið skyldi með lán almennt í landinu – ekki bara gengistengd lán heldur allan lánastabbann við þær neyðaraðstæður sem sköpuð- ust í kjölfar bankahrunsins, væri fyrir hendi almenn viðmiðun fyr- ir dómstóla, sem styddist við mat löggjafans á almannahag. Þá hefði allt önnur staða verið uppi. En þessi leið var ekki valin sem áður segir. Þá er ekki um annað að ræða en fara dómstólaleiðina og láta rýna í bókstafinn. Það breytir því ekki að ríkis- valdinu ber enn að skoða hvað hægt er að gera gagnvart skulda- vandanum almennt. Upplýsa þarf um vilja ríkisstjórnarinnar og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins, sem vak- ir yfir þessum málum og leggur ríkisstjórninni lífsreglurnar hvað varðar endurreisn fjármálakerfis- ins. Mörgum brá í brún þegar full- trúar AGS voru mættir í fjölmiðla að segja sinn hug í þessu máli sem öðrum. Sjálfum fannst mér þetta ágætt. Á meðan AGS er hér við stjórnvölinn og heldur í spott- ana þarf það að vera sýnilegt en ekki leynilegt einsog hefur viljað brenna við. til bráðabirgða Víkur nú sögunni að Seðlabanka og Fjármálaeftirlitinu. Í síðustu viku sendu þessar stofnanir frá sér yfirlýsingu þar sem kveðið var á um hvaða vexti ætti að reikna á gengistryggð lán eftir að dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengis- tengingarinnar féll. Ekki á að lesa meira í þessa yf- irlýsingu Seðlabankans og FME en í henni er í raun fólgið. Um er að ræða leiðbeiningar til bráðbirgða eða þar til dómstólar hafa kveð- ið upp sinn úrskurð. Þetta kem- ur skýrt fram í yfirlýsingunni. Þar segir berum orðum að tilmæl- in séu ætluð „á meðan ekki hef- ur verið skorið úr um umfang og lánakjör þeirra samninga...“ Mín skoðun er sú, að þrátt fyrir þennan fyrirvara FME og Seðlabanka, hafi það verið misráðið af hálfu þess- ara stofnana að gefa út tilmæli um vaxtakjör ofan í dóm Hæstaréttar. Ef lánveitendur efast um skyld- ur sínar og réttmæti niðurstöðu Hæstaréttar eða telja þar eitthvað óútkljáð, eiga þeir að leita samn- inga við lánveitendur beint, ella fá niðurstöðu fyrir dómi. Athygli vekur að Hagsmunsamtök heim- ilanna hafa hvatt til þess að laga- legri óvissu verði eytt með þessum hætti. Hvað segir ags? Ríkisstjórninni ber nú að gera tvennt: Í fyrsta lagi gera allt sem hægt er til að tryggja skjóta úr- lausn mála fyrir dómstólum um þau atriði sem aðilar að lána- samningum kunna að véfengja. Ef þörf er á lagabreytingu til að stuðla að flýtimeðferð fyrir dóm- stólum ætti að kalla þing saman til að setja lög þar að lútandi. Þá er afleitt að ekki skuli hafa verið sett lög um hópmálsókn eins og lagt hefur verið til á þingi. Laga- frumvarp um hópmálsókn er enn í meðförum þingsins og bíður af- greiðslu. Þá ber ríkisstjórninni að láta fara fram markvissa vinnu um almennar aðgerðir í þágu skuldara. Þetta hefur aldrei verið gert eins ótrúlegt og það kann að hljóma. Skýringin kann að leynast í nafnorði: Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn. Fulltrúar hans koma fyrir sameiginlegan fund efnahags- og skatta nefndar og viðskiptanefnd- ar í dag. Fróðlegt verður að hlýða á erkibiskups boðskap hvað þetta snertir. Þörf er á opinni umræðu um þessi mál. Þjóðin á rétt á henni. Það er komið nóg af forræðis- hyggju. Nóg af pukri. Nú þarf opna umræðu og nú þurfa menn að vanda sig. Mikið er í húfi. Nú þarf að vanda sig 1 Vildi að ég gæti spólað til baka Helga Björk Möller lenti í alvarlegu bílslysi fyrir sjö árum. 2 Mun aldrei ná fyrri heilsu Valgerður Erla Óskarsdóttir lenti í alvarlegu umferðarslysi í mars 2007. 3 Cristiano ronaldo er nýbak-aður faðir Knattspyrnukappinn Cristiano Ronaldo eignaðist dreng á dögunum. 4 Íslendingar keppa uM „besta frÍið Í heiMinuM“ Íslendingar eru áberandi í leiknum The Greatest Holiday in the World. 5 bað uM að fá að gista Í steininuM Einn gisti fangageymsl- ur lögreglu á Akranesi aðfaranótt sunnudags vegna ölvunar. 6 datt Í það Með borgarstjóra dujiangyan Dagur Kristjánsson datt í það með borgarstjóra Dujiangyan í Kína árið 2007. 7 tuttugu og einn hefur beðið bana Á þessu ári og því síðasta hafa 21 látist í umferðinni. Þar af fjórir á þessu ári. mest lesið á dv.is myndin Hver er maðurinn? „Ragnar Kjartans- son myndlistarmaður.“  Hvað drífur þig áfram? „Fegurðin og vitneskjan um dauðann.“ Hvar ert þú uppalinn? „Á Granda- veginum, milli Bæjarútgerðarinnar og Lýsisverksmiðjunnar. Það var alltaf fýla af mér þegar ég var lítill.“ Við hvað lékstu þér helst í æsku? „Ég lék mér mest einn í svona ímynduðum stríðs- og hörmungaleikjum. Til dæmis dauða kónga og fórnarlömb nasista.“  Hvað gerirðu til að slaka á? „Fer í sjósund, reyki eða hlusta á Sinatra.“  Hvenær varð listin ráðandi í lífi þínu? „Þegar ég sá kvikmyndina Amad- eus eftir Milos Forman í Háskólabíói, alls 7 sinnum.“ Hvað verk eftir þig er verið að sýna í Luhring augustine-galleríinu í new York um þessar mundir? „Það er verkið The End-Venezia, sem samanstendur af 144 málverkum sem ég málaði alla daga Feneyjatvíæringsins 2009. Dagar gjörningsins voru skrásettir í málverkum. Þannig að þetta er svona hlussustór málverkainnsetning. Dáldil Stórval-stemning í þessu. Síðan sýni ég verk sem heitir The Man. Það gerði ég með elsta eftirlifandi fyrstu kynslóðar blúsmanninum, honum Pinetop Perkins. 97 ára stórkostlegur maður sem ég komst í kynni við á Blúshátíð í Reykjavík gegnum hann Halldór Bragason. Hann er DNA amerískrar menningar, Dalai Lama kúlsins. Verkið sýnir hann á akri við píanóið sitt. Hann endurtekur sömu stefin, kveikir sér í sígarettum, röflar og grínast milli laga. Tja, sjón er sögu ríkari.“  Reyndi á þolinmæðina að mála 144 myndir í röð? „Nei, það eru bara forréttindi að fá að einbeita sér að málaralistinni í sjálfum Feneyjum. Ég varð reyndar dáldið ruglaður á því að vera umkringdur áhorfendum alla daga, eins og apinn í Eden.“ Hvernig leið þér þegar Museum of Modern art keypti verkið þitt? „Ég var alveg steinhissa og rígmontinn.“ Hvaða verki ertu að vinna að núna? „Ég er að vinna að verki eftir ljóði Allens Ginsberg.“ maður dagsins kjallari „Nei, ég er búinn að fara tvisvar til Englands.“ ÍVaR BjaRKi HoBLYn 8 ÁRA NEMi „Ég hef ekki ákveðið mig enn.“ KRistÍn siguRðaRDóttiR 28 ÁRA MYNDLiSTARKoNA „Já, ég fer til Berlínar í haust.“ HLYnuR HaLLsson 41 ÁRS MYNDLiSTARMAðuR „Já, ég fer eftir viku til Ítalíu.“ KRistÍn R. siguRðaRDóttiR 42 ÁRA SöNGKENNARi „Nei, ekki í sumar.“ DaguR FannaR Dagsson 32 ÁRA TöLVuNARFRæðiNGuR ætlarðu að fara til útlanda Í suMar? dómstóll götunnar mánudagur 5. júlí 2010 umræða 19 ögMunDuR jónasson alþingismaður skrifar „Ekki á að lesa meira í þessa yfirlýsingu Seðlabankans og FME en í henni er í raun fólgið.“ Þægileg stemning Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason tók nokkur vel valin lög fyrir gesti og gangandi á Óðinstorgi í miðborg Reykjavíkur á sunnudag. Sex nemar í arkitektúr í Listaháskólanum tyrfðu torgið á föstudag og var í tilefni þess ákveðið að bjóða vegfarendum upp á grillmat og góða tónlist. undir marglitu regnhlífinni á myndinni er Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar- innar í Reykjavík. MYnD HöRðuR sVeinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.