Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2010, Qupperneq 20
Útgáfutónleik- ar í Þjóðmenn- ingarhÚsinu Út er kominn hjá Smekkleysu geisla- diskurinn Hymnodia sacra sem hefur að geyma lög úr samnefndu handriti frá árinu 1742. Flytjendur á diskinum eru kammerkórinn Carm- ina og kammerhópurinn Nordic Af- fect, en Carmina hlaut meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin 2008 fyrir geisladisk sinn með tónlist úr íslenska handritinu Melódía. Carm- ina heldur útgáfutónleika í Þjóð- menningarhúsinu næsta fimmtu- dag klukkan 20.30 og er aðgangur ókeypis. Carmina er svo á leið til Þýskalands með efnisskrána en hún samanstendur af lögum úr Melódíu og Hymnodia sacra. Ball sumarsins í keflavík Líklega stærsta ball sumarsins í Keflavík fer fram á Manhattan þar í bæ næsta laugardag. Fram koma Í svörtum fötum, dj Óli Geir og Haffi Haff. Hljómsveitin og dj skiptast á að spila þannig að allir ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Í svörtum fötum er án efa ein vinsælasta ballhljómsveit Ís- lands og hefur verið það síðustu ár. Haffi Haff er nýbúinn að gefa út sína fyrstu plötu og fylgir henni eftir af krafti. Dj Óli Geir er svo sagður einn mest bókaði plötu- snúður landsins. vampírufræði væntanleg Einn helsti prentarinn í Guangdong, Kína, hefur nú hafið prentun á nýrri fræðibók sem bókaforlagið Bjartur gefur út með haustinu. Drekafræði og Sjóræningjafræði slógu í gegn hjá ungum fræðimönnum á sínum tíma, en nú er það veglegt rit um vamp- írur sem er væntanlegt. Í bókinni, sem er eftir Archibald Brooks, virtan fræðimann og verndara heimsins (ásamt viðbótarglósum eftir Joshua I. Kraik), er varpað ljósi á uppruna og eðli vampíra, auk þess sem fjall- að er sérstaklega um tengsl þeirra við venjulegar manneskjur og gefin ýmis góð ráð og bábiljur kveðnar niður. 20 fókus 5. júlí 2010 mánudagur samið um verk Davíðs Verk ljóðskáldsins Davíðs Stefánssonar hafa verið ófáanleg um árabil en brátt verður breyting þar á. Nú hefur verið gengið frá samningi við erfingja Davíðs og mun Forlagið sinna útgáfu verka hans á næstu árum. Fyrsta verkefnið verður nýtt ljóðaúrval sem kemur út á næsta ári. Einnig er stefnt að því að gefa út ljóðabókina Svartar fjaðrir á vegum Klassíska kiljuklúbbsins á allra næstu misserum. hvað veistu 1. Einn sakborninga í vændismálinu svokallaða var dæmdur síðast- liðinn föstudag. Hvaða refsingu hlaut hann? 2. Hvaða leikari og leikstjóri var nýverið ráðinn í prófessorsstöðu við Listaháskóla Íslands? 3. Hversu háar bætur fékk hin bandaríska Jaycee Lee Dugard vegna sinnuleysis yfirvalda gagnvart mannræningjum hennar? Svör: 1. 80 þúsund króna sekt. 2. Stefán Jónsson 3. 2,5 milljarða króna Jæja. Hér erum við með endurgerð á upphafsmynd einnar af lengri framhalds-myndaseríum kvikmynda- sögunnar. Nú byrjar ballið aftur og þá sem ný útgáfa af mynd sem leit dagsins ljós fyrir aldarfjórðungi og þótti þá brjóta blað í hryllingsmyndasögunni. Eftir liggja meira en tíu myndir fyrir sjónvarp og bíó sem snúast um fjöldamorðingjann Freddy Krueger. Sá hinn sami er fastlega grun- aður um að hafa misþyrmt góð- um slatta af börnum og er í hefndarskyni brenndur til bana af foreldrum fórnarlambanna. Nú gengur hann aftur í draum- um barnanna og djöflast í þeim í orðsins fyllstu merkingu. Svo söguhetjurnar eru dæmdar til að vera endalaust á vökunni, bryðj- andi örvandi og sprautandi sig með alls konar drasli til að sofna ekki. Leikstjórinn Samuel Bayer hefur getið sér gott orð fyrir tón- listarmyndbönd og auglýsingar en strax í upphafsatriðinu er ljóst að þessi mynd er engin upplifun. Leikstjórinn bætir engu við sem máli skiptir nema þegar kemur að útliti og rödd Freddys. Það er farið út af sporinu þar, Freddy lít- ur út eins og eðla og hljómar eins og náunginn sem las inn á Die Hard-treilerana. Af hverju er ekki frískað upp á heildina? Af hverju er Freddy ekki kaþólskur prestur í þetta skiptið? Það væri nú eitt- hvað. Í staðinn fáum við „brot af því besta“ atriðum úr öllum hin- um myndunum við söguþráð fyrstu myndarinnar. Myndin rúllar áfram sem einn helsti gagnabanki hryllings- myndaklisja og virðist hafa þær flestallar. Eins og þegar fórnar- lambið vaknar af martröðinni og heldur að allt sé í fína en þá birtist Freddy á ný. Eins og þeg- ar fólk gengur markvisst beint í gildrur af miklum ásetningi og treður helst hausnum ofan í myrkur þaðan sem ógnin berst meðan kallað er „hello“. Sætar píur á náttfötunum hlaupandi út í garð, einnig kallandi „hello“ í átt að ógninni. Unglingarómant- ík, rafmagn sem fer af, fyrirsjá- anlegar bregðisenur, blikkandi flúorljós og börn í óhuggulegu samhengi. Vantar reyndar þrum- ur og eldingar á hættustundum til að klára nú runkið. Auðvitað inniheldur myndin síðan ýktustu hnífahljóð sem hafa heyrst síðan í Hrafninn flýgur. Brellurnar eru svo ekkert sérstakar, einna verst er að sjá að baugar svefnleysingj- anna eru í eitt skiptið bara svart- ar beinar línur undir augunum. Leikurinn er síðan undir meðal- lagi eins og flest annað hér. Það óhuggulegasta við mynd- ina er að sjá þessa útjöskuðu hugmynd ganga aftur, mynd eft- ir mynd. Ég held ég hafi sofnað í miðri ræmu því ég upplifði vissu- lega martröð. Þá martröð að vita að það væri von á enn einu fram- haldinu. Erpur Eyvindarson Martröð af l iðindum A NightmAre oN elm Street Leikstjóri: Samuel Bayer Aðalhlutverk: Jackie Earle Haley, Rooney Mara, Kyle Gallner, Thomas Dekker kvikMyndir Listamaðurinn Snorri Ásmunds- son er á leið í ferð með „kærleik- spíramíðann“ sinn til Ísrael og Gaza. Markmiðið með verkefninu er „... að breiða út ást og kærleika með bæna- stund í kærleikspíramíðanum. Pír- amíðinn verður eins konar rafhlaða kærleikans sem tengist inn á allar tíðnibylgjur,“ segir í tilkynningu. Ferðinni er heitið um Gaza- svæðið og til borganna Tel Aviv og Jerúsalem í Ísrael þar sem píramíð- inn verður settur upp á fjölförnum torgum. Inni í píramíðanum mun Snorri síðan hugleiða og biðja fyr- ir ást og kærleika til handa íbúum átakasvæðanna. Í tilkynningu seg- ir enn fremur að píramíðinn verði smíðaður úr skotheldu gleri. Með í för verður kvikmyndagerðarmaður- inn Friðrik Guðmundsson sem mun gera heimildarmynd um ferðina. Gjörningurinn hefur verið hald- inn áður í Reykjavík og Feneyj- um við góðar undirtektir. Fjáröflun á verkefninu er á byrjunarstigi og áætlað er að fara í lok september á þessu ári. Snorri er vel þekktur fyrir ýmsa gjörninga í gegnum árin, meðal annars framboð í forsetakosningum hér á landi og framboð stjórnmála- hreyfingarinnar Vinstri hægri snú í borgarstjórnarkosningum. Þá vakti athygli þegar Snorri hóf sölu bréfa sem fela eiga í sér syndaaflausn fyrir kaupandann. Snorri Ásmundsson hyggur á ferð til Gaza og Ísrael með „kærleikspíramíðann“ sinn: píramíði úr skotheldu gleri Í píramíðanum á Lækjartorgi Snorri hefur farið með „kærleikspíramíðann“ til Feneyja. Næstu viðkomustaðir eru Gaza, Tel Aviv og Jerúsalem.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.