Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 21. júlí 2010 FRÉTTIR 3
GRÍMSEYINGAR Í HÆTTU
það getur til að lifa af.“ Bjarni Gylfa-
son segir engan greifabrag á sínu
lífi. „Ég skal bara sýna þér reikning-
ana mína. Þeir þykja nú ekki glæsi-
legir. Við fiskum allt sem við eig-
um hérna og það er ekki verið að
leigja kvótann héðan. Okkur vantar
kvóta. Þetta snýst bara um það að
við höldum okkar vinnu og tekjum.
Eigum að éta og getum skroppið í
frí eina viku á ári – þá er þetta fínt,“
segir Bjarni.
Á móti útleigu kvóta
Margoft hefur umræða um leigu á
kvóta sprottið upp í samfélaginu.
Bjarni Gylfason hefur sterkar skoð-
anir á þeim mönnum sem leigja frá
sér kvótann. „Það er stór meirihluti
sem stundar sjómennskuna og veiðir
kvótann. Hinir sem leigja kvótann frá
sér eru að skemma fyrir okkur hin-
um. Það er bara þannig. Mér finnst
að þeir sem ekki stunda sjómennsku
og leigja frá sér kvótann eigi ekki að
hafa hann. Það á miklu frekar að láta
okkur sem viljum stunda þetta hafa
kvótann. Þessi tonn sem eru leigð
burt skipta þúsundum,“ segir Bjarni.
Óvissan verst
„Það er þessi óvissa sem fer mjög
illa með menn,“ segir Garðar spurð-
ur um stöðuna. „Það verður reynt
að hanga á þessu núna. Menn fá
enga peninga í rekstur, alveg sama
í hvað menn vilja fara. Ég sé bara
ekki hvað er fram undan. Menn
verða bara að fara að taka einhverj-
ar ákvarðanir í þessu svo allt sé ekki
í þessari djöfulsins óvissu. Ég myndi
bara vilja taka við skuldunum mín-
um aftur sem var stofnað til – ég get
séð um það – annars er þetta von-
laust dæmi.“
SEX MANNA FJÖLSKYLDA Í GRÍMSEY:
VILJA EKKI FARA
Rannveig Vilhjálmsdótt-
ir býr í Grímsey ásamt
Bjarna Gylfasyni eigin-
manni sínum og fjórum
börnum þeirra. Hún
segist vera með hnút í
maganum hvern einasta
dag yfir ástandinu í eyj-
unni. „Við eigum fjögur
börn og erum búin að
eyða stórum pening í
að gera upp hús og eig-
um allt okkar hér,“ segir
Rannveig og bætir því við
að unga fólkið sem búi í
Grímsey hafi áhyggjur af ástandinu. Það vilji enginn fara úr eyjunni. „Ég
þori ekki einu sinni að hugsa um það hvort við myndum fara úr eyjunni ef
allt fer á versta veg hér. Það er eitthvað sem ég forðast.“
Rannveig segir gott að búa í Grímsey þrátt fyrir einangrunina. „Ég klár-
lega hef það betra en margur annar þó ég búi í Grímsey. Það eru forrétt-
indi að fá að ala upp börn hérna. Ég kem sjálf úr sveit og mér finnst þetta
ekkert ósvipað. Þú ert ekki með allt við höndina og getur ekkert stokkið
til og gert það sem þú vilt. Þú þarft að finna þér eitthvað að gera og það er
mjög skemmtileg áskorun. Það er akkúrat það sem er heillandi við þetta
líf. Mér finnst það mjög sjarmerandi að búa á lítilli eyju úti í hafi.“
Lífið er saltfiskur Í Grímsey snýst nánast
allt samfélagið um sjávarútveg. Þar er mikið
unnið af saltfiski til útflutnings.