Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 21. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR Róbert Wessmann átti að greiða Háskólanum í Reykjavík 500 milljónir króna í sumar en segir að af því verði ekki. Hann gaf vilyrði fyrir milljarði króna árið 2007, greiddi skólanum helming þeirrar upphæðar en segist ekki ljúka við greiðsluna vegna efna- hagshrunsins. Fyrir upphæðina eignaðist Róbert 30 prósenta hlut í HR. Róbert Wessmann, fjárfestir og fyrr- verandi forstjóri samheitalyfjafyrir- tækisins Actavis, mun ekki leggja Há- skólanum í Reykjavík, HR, til þann hálfa milljarð króna í fjárstyrk sem hann gaf skólanum vilyrði fyrir í sept- ember 2007. Fjárfestirinn hefur nú þegar látið skólann fá hálfan milljarð króna en upphaflega átti þetta að vera einn milljarður króna. Róbert segir í samtali við DV að ástæðan fyrir þessu sé einfaldlega sú að efnahagshrunið hafi sett stórt strik í reikninginn hjá honum. Greiðslan frá Róberti kom í gegn- um eignarhaldsfélagið Bakhjarlar HR ehf. en hann átti tæp 80 prósent í félaginu á móti um 20 prósenta hlut Glitnis. Róbert lagði skólanum til þennan hálfa milljarð króna þegar stofnaður var sérstakur Þróunarsjóð- ur Háskólans í Reykjavík á haustmán- uðum 2007. Peningarnir voru not- aðir til að efla akademískan styrk HR með því að styðja við rannsóknarstarf í skólanum. Gæti misst eignarhlutinn Í staðinn fyrir fjárframlagið eignað- ist félag Róberts, Salt Investments, 30 prósenta hlut í skólanum og er félagið skráð fyrir þessum hlut í dag. Róbert fékk því eignarhlut í skólanum í stað- inn fyrir milljarðinn sem hann ætlaði að leggja skólanum til. Þess ber þó að geta að Róbert getur ekki hafa veitt skólanum þessa fjármuni í ágóða- skyni þar sem enginn arður er greidd- ur út úr skólanum. Samkvæmt upplýsingum frá Há- skólanum í Reykjavík mun Róbert missa eignarhlut sinn í skólanum þar sem hann getur ekki staðið við lof- orðið um greiðsluna. Bakhjarlar HR. ehf er nú skráð fyrir 38 prósenta hlut í skólanum. Þegar spurðist út að Róbert ætl- aði sér að leggja skólanum til milljarð króna var meðal annars smíðað um hann nýyrðið „góðjöfur“ og var það notað um hann á síðum Fréttablaðs- ins í september 2007. Stórmennska Róberts þótti slík að ekkert orð í ís- lenskri tungu var talið ná utan um gjafmildi hans. Greiðslan á gjalddaga í sumar Róbert segir að vegna efnahags- ástandsins á Íslandi muni hann ekki greiða Háskólanum í Reykjavík það sem eftir stendur. „Miðað við efna- hagsþrengingarnar og hvernig staðan er á öllu hér á Íslandi finnst mér ekki líklegt að ég klári það,“ segir Róbert. Hann segir að greiðslan á millj- ónunum 500 hafi þó ekki verið val- kvæð, hann hafi verið skuldbundinn til að greiða skólanum það sem eft- ir stendur. „Seinni hluti greiðslunnar var ekki skylda af minni hálfu. Ég gat valið um að borga seinni hlutann eða ekki. Þetta var þannig sem þetta var skilgreint. Miðað við efnahagsástand- ið á Íslandi núna tel ég minni líkur en meiri á að það komi til greiðslu,“ segir Róbert. Fjárfestirinn segir að hann hefði átt að ganga frá síðustu greiðsl- unni nú í júlí eða í næsta mánuði. „Þetta var gert samkvæmt ákveðnu greiðsluplani. Mig minnir að síðasta greiðslan hefði átt að vera núna í júlí eða í ágúst. Þannig að hún er ekki komin á gjalddaga ennþá,“ segir Ró- bert sem meðal annars hefur unnið sem stjórnarformaður bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen frá banka- hruninu árið 2008. Róbert fjárfesti í fyrirtækinu í gegnum alþjóðlegan fjárfestingarsjóð sem hefur sérhæft sig í fjárfestingum í samheitalyfjafyr- irtækjum. Róbert segir að þrátt fyrir að hann muni ekki greiða milljónirnar 500 sé upphæðin sú hæsta sem gefin hafi verið til skólamála á Íslandi. „Þetta er langhæsta fjárframlag sem gef- ið hefur verið til skólamála hér á Ís- landi. Þannig að við erum mjög stolt af því,“ segir Róbert en eins og áður segir eignaðist hann hlut í skólanum fyrir vikið. Vinnur í sínum málum Aðspurður hvernig hann standi fjár- hagslega um þessar mundir segist Ró- bert vera að vinna í sínum uppgjörs- málum. „Ég keypti auðvitað í Glitni og það hafði gríðarleg áhrif á mína stöðu,“ segir Róbert en félag hans, Salt Investments, átti rúmlega 2 prósenta hlut í Glitni þegar bankinn féll um haustið 2008. „En eins og staðan er núna sýn- ist mér að hlutirnir séu að klárast. Ég er að klára að gera upp þau mál öll. Þannig að staða mín er auðvit- að ekki eins sterk og hún var en ég er að klára að gera upp þessi skulda- og bankamál og auðvitað er ég með mikið af eignum. Þannig að ég held að ég komist í gegnum skaflinn en þetta eru búnir að vera mjög erfið- ir tímar. Ég get alveg sagt það,“ seg- ir Róbert. Miðað við efna-hagsþrenging- arnar og hvernig stað- an er á öllu hér á Íslandi finnst mér ekki líklegt að ég klári það. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Erfið staða Róbertsegiraðstaðaníefnahagslífinuhafiorðiðtilþessaðhanngeti ekkigreittHáskólanumíReykjavíkþær500milljónirsemhannhefðiáttaðgreiðaí sumar. n„FélagávegumRóbertsWessmanhafðiáformumaðsetjaalltaðeinnmilljarð íHRoghefurnúþegargreittum500milljónirafþví.Banka-ogefnahagshrunið hefurhinsvegarsettstrikíreikninginnogekkiöruggtaðupphaflegaráætlanir standist.Efþaðtekstekki,þámunnúverandiframlagRWstandasemgjöftil skólansánskuldbindinga,enþaðhefurþegarveriðnýttveltilaðbyggjaupp akademískanstyrkogeflakennsluíHR.“ SvarHáskólansíReykjavíkviðfyrirspurnDVumfjárframlagiðfráRóberti Wessmann Tapaði rúmum 19 milljörðum Félag Róberts, Salt Investments, tapaði rúmum 19 milljörðum króna árið 2008 samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir það ár. Ársreikningnum var skilað til ársreikn- ingaskrár ríkisskattstjóra í júní á þessu ári. nSamkvæmtársreikningnumáttifélagiðeigniruppátæplega7,5milljarða krónaogvareiginfjárstaðanneikvæðumtæplega9milljarðakróna.Staða félagsinsbreyttistgríðarlegaámilliáraþví2007varhagnaðurafstarfsemiSalt Investmentsuppátæplega11,5milljarðakróna.Eignastaðanárið2007varsömu- leiðissamkvæmtþessuþvííreikningnum2007vareignasafnfélagsinsmetiðá rúma22milljarðakróna.ÞegarlitiðertilþessaerekkiskrítiðaðRóberthaldiað sérhöndummeðgreiðslunatilHRþvístaðafélagsinseralltönnurenþegarhann gafskólanumvilyrðifyrirgreiðslunni. nÍársreikningnumkemurlíkaframaðSaltInvestmentsáhlutífjölmörgum félögumogerafarumsvifamikiðfélag.Meðalannarserumaðræðahlutinn íHáskólanumíReykjavík,hlutíLatabæogBakhjörlumogeinshlutiíeignar- haldsfélögumvíðaumheim,tildæmisíLitháen,áSpáni,íÞýskalandiogBrasilíu. Íársreikningnumkemurframaðumséaðræðafélögíverktakabransanum, heilbrigðisgeiranum,fasteignabransanumogásviðiviðskiptaráðgjafar. Hefur greitt 500 milljónir SKÓLINN FÆR EKKI 500 MILLÓNIRNAR Kvartað undan Landsbankanum Múrbúðin hefur sent kvörtun til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna yfirtöku Landsbankans á Húsa- smiðjunni. Telur Múrbúðin að yfirtaka og eignarhald Landsbankans feli í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu og er vísað í EES-samninginn. Enn fremur telur Múrbúðin að eignar- haldið feli í sér ólögmætan ríkisstyrk samkvæmt skilningi laga EES-samn- ingsins. Í kvörtun Múrbúðarinnar til ESA er bent á að hegðun Húsasmiðj- unnar á markaði bendi ekki til þess að Landsbankinn geri skýrar arð- semiskröfur til fyrirtækisins. Vill fund vegna rækjuveiða Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, hefur óskað eftir að boðaður verði fundur í sjávar- útvegsnefnd Alþingis sem fyrst. Ástæða þess er ákvörðun Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- ráðherra um að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Vill Jón að fulltrúar LÍÚ, auk fulltrúa starfshóps sjávar- útvegsráðuneytisins um veiðar á úthafsrækju, verði boðaðir á fundinn, ásamt fleirum. Ákvörðun sjávarútvegsráðherra er umdeild en hann hefur áður sagt að úthafs- rækjukvótinn hafi verið vannýtt- ur og brögð hafi verið að því að útgerðarmenn fengju kvótanum breytt í kvóta fyrir aðrar tegundir. Landsvirkjun styrkir Ómar Landsvirkjun hefur ákveðið að styrkja fjölmiðlamanninn Ómar Ragnarsson um tvær milljónir króna. Er markmið framlags Lands- virkjunar að styðja við „... upplýsta og vandaða umræðu um umhverfis- mál og nýtingu náttúruauðlinda, þar sem ólíkar skoðanir koma fram,“ að því er segir á vef Landsvirkjunar. Eftir að DV greindi frá fjárhags- vandræðum Ómars hafa fjölmargir ákveðið að styrkja hann, nú síðast Landsvirkjun. Vill stytta leigutíma Magma Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vill stytta leigutíma samnings Magma við Reykjanesbæ á jarðhitaréttindum. Samkvæmt samningnum hefur Mag- ma nýtingarrétt á jarðhita í 65 ár og getur framlengt hann um önnur 65, ef vilji er fyrir hendir. Í fréttum RÚV á þriðjudag var hins vegar greint frá því að Katrín vildi stytta þennan tíma og munu formlegar viðræður um málið hefjast innan skamms. Þá vill Katrín tryggja forkaupsrétt ríkisins að bréf- um í HS Orku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.