Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Blaðsíða 4
4 fréttir 21. júlí 2010 miðvikudagur
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir möguleikar
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
Framkvæmdir við snjóflóðavarnargarð í Bolungarvík töfðust:
Gallaðar snjóflóðavarnir
Framkvæmdir við snjóflóðavarnar-
garðinn í Traðarhyrnu í Bolungarvík
hafa tafist vegna mistaka sem ekki er
vitað hver ber ábyrgð á.
Síðastliðið haust tók að hrynja
úr bakhlið snjóflóðavarnargarðsins,
sem snýr að Traðarhyrnu, og var í
kjölfarið ákveðið að stöðva fram-
kvæmdir við varnargarðinn. Verk-
takafyrirtækið Ósafl ehf., dótturfélag
Íslenskra aðalverktaka, sér um fram-
kvæmdir á snjóflóðavarnargarðinum
en garðurinn er hannaður af Eflu ehf.
Óskar Valdimarsson, forstjóri
Framkvæmdasýslu ríkisins, segir að
ekki sé vitað hver ber ábyrgð á tjón-
inu en framkvæmdirnar hafa tafist
um tvo til þrjá mánuði. Grindurnar
sem eru notaðar til að binda garðinn
voru keyptar frá ítölskum framleið-
anda, Officine Maccaferrie.
„Það er ekki vitað hvort þær hafi
verið of veikar eða hvort þær hafi
verið vitlaust settar upp. Það eru tveir
dómskvaddir matsmenn að meta
núna hvað fór úrskeiðis og hver ber í
raun ábyrgð á þessu tjóni,“ segir Ósk-
ar. Framkvæmdir fóru aftur af stað
nú í júlí eftir að garðurinn var hann-
aður upp á nýtt af íslenskum hönn-
uðum í samráði við ítalska fram-
leiðandann. Hann segir ekki ljóst
hve mikið tjón hefur hlotist af þess-
um mistökum. Garðurinn sem nú
er í byggingu á að vera sjö hundruð
metra langur og fer mest í tuttugu og
tveggja metra hæð. Fyrirhugað er að
fara í áframhaldandi framkvæmdir
við snjóflóðavarnir í Traðarhyrnu en
sá garður verður rétt um tíu prósent
af lengd núverandi garðs og mest
fjórtán metra hár. birgir@dv.is
Mistök Stöðva þurfti framkvæmdir
við snjóflóðavarnargarð í Traðarhyrnu í
Bolungarvík þegar starfsmenn urðu varir
við hrun úr honum.
Barn drakk
terpentínu
Lögregla og sjúkralið voru kölluð að
húsi í Reykjanesbæ á þriðjudags-
morgun vegna ungs drengs sem
hafði drukkið terpentínu.
Að sögn lögreglu var drengurinn
fluttur á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja þar sem hann fékk viðeigandi
meðferð en ekki var talin þörf á að
flytja hann til Reykjavíkur. Sjúkra-
flutningamenn nutu þess í stað leið-
sagnar Eiturefnamiðstöðvar Land-
spítalans. Ekki er vitað um tildrög
þess að drengurinn drakk terpen t-
ínuna.
Víst grænn
flokkur
„Hann hefur bara ekki lesið allan
textann,“ segir Guðmundur Franklín
Jónsson, formaður Hægri grænna,
nýs stjórnmálaafls. Jónas Kristjáns-
son, bloggari og fyrrverandi ritstjóri,
gagnrýndi stefnuskrá hreyfingarinn-
ar og sagði að ekkert grænt væri við
þau atriði sem þar eru. „Við þurfum
ekki á meira siðleysi að halda,“ skrif-
aði Jónas á bloggsíðu sína og lagði
til að flokkurinn yrði kallaður Hægri
svartir í staðinn.
Guðmundur segir að hreyfingin
leggi áherslu á náttúruvernd en fyrst
þurfi að leysa efnahagsvanda þjóð-
arinnar.
Næturopnun
í Laugardalslaug
Opið verður í Laugardalslauginni
í fimm sólarhringa samfleytt, frá
og með miðvikudeginum 21. júlí,
klukkan 6.30, til klukkan 22.30
mánudaginn 26. júlí. Hugmyndin
kom fram á vefnum Betri Reykjavík
og er mikill stuðningur við tillög-
una. Er það ástæða þess að borgar-
yfirvöld gera tilraun með sundvöku
í Laugardalslauginni. Gjald fyrir
sundgesti á sundvöku verður eitt
þúsund krónur og er börnum yngri
en sextán ára bannaður aðgangur
að sundvökunni. Meðferð áfengis er
bönnuð að venju.
pappírsBaróN sigLdi
sNEKKJu tiL ísLaNds
Stórglæsileg lúxussnekkja liggur við festar í Reykjavíkurhöfn. Eigandi hennar er
nýsjálenski milljarðamæringurinn John Spencer en hann auðgaðist gríðarlega á
fjárfestingum í klósettpappírsbransanum. Samkvæmt nýsjálenskum fréttum hefur
snekkjan verið auglýst til sölu. Hún kostar litlar 7.000 milljónir íslenskra króna.
Ein glæsilegasta lúxussnekkja ver-
aldar liggur nú bundin við festar
í Reykjavíkurhöfn. Snekkjan, sem
ber nafnið T6, er búin þyrlupalli og
hefur rými fyrir 15 manns, áhöfn og
gesti. Nýsjálenski klósettpappírs-
baróninn John Spencer er eigandi
T6 en hann hefur nýlega sett hana
á sölu og vill fá 58 milljónir dollara
fyrir hana, andvirði um sjö milljarða
íslenskra króna.
Spencer vildi ekki ræða við
blaðamann á hafnarbakkanum
í Reykjavík og við vitum því ekki
hvaða erindi hann á hér á landi. Lík-
lega er þó klósettpappírsbaróninn
hér í fríi en samkvæmt heimildum
DV kom snekkjan hingað til lands
frá Noregi.
Hollenskur skipahönnuður teikn-
aði T6 eftir óskum Spencers en smíði
snekkjunnar tók alls um átta ár. Hún
var sjósett árið 2006. Myndir af T6
hafa birst víða í fagtímaritum um
skip og báta, enda er um óvenjulega
glæsilegan farkost að ræða.
Skipið getur gleypt þyrluna
„Ég nenni ekki að sitja hérna á rass-
inum allan liðlangan daginn og
drekka gin og tónik. Mig langar að
stýra fleyinu sjálfur,“ sagði John
Spencer við blaðamenn á meðan T6
lá við festar í smáríkinu Mónakó við
Miðjarðarhafið. Af þeim orðum að
dæma stendur milljarðamæringur-
inn sjálfur við stýrið á siglingum sín-
um um heiminn.
Hollendingurinn Pieter Beeld-
snijder hannaði snekkjuna. Hún
vegur 270 tonn og er 65 metra
löng. Þyrlupallurinn aftast á fley-
inu vekur athygli en undir þiljum
er þyrluskýli sem veitir farkostinum
fljúgandi nauðsynlegt skjól fyrir vá-
lyndum veðrum. Snekkjan er skráð
á Cay man-eyjum.
Nafn Johns Spencer hefur í ára-
tugi birst á listum yfir ríkustu Ný-
sjálendingana. Hann er einn rík-
asti maður Nýja-Sjálands en hann
hagnaðist gífurlega á klósettpapp-
írsframleiðslu í heimalandinu.
Hann er jafnan kallaður klósett-
pappírsbaróninn í nýsjálenskum
viðskiptafréttum.
Milljarðamæringar á Íslandi
John Spencer er ekki eini milljarða-
mæringurinn sem dvalið hefur á Ís-
landi síðustu daga því eins og DV
sagði frá á mánudaginn stóð óþekkt
glæsileg einkaþota á Reykjavíkur-
flugvelli í nokkra daga. Samkvæmt
upplýsingum DV komu fjórir arabar
á þotunni til landsins. Þeir dvöldu
hér á landi þar til á mánudaginn
og skoðuðu meðal annars virkjan-
ir á Suðurlandi. Einkaþotan stóð á
Reykjavíkurflugvelli á meðan arab-
arnir dvöldu hér. Þotan er skráð
á Bresku Jómfrúareyjum og hefur
áður sést hér á landi.
helgi hrafn guðMundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Ég nenni ekki að sitja hérna á
rassinum allan liðlang-
an daginn og drekka gin
og tónik. Mig langar að
stýra fleyinu sjálfur.
Klósettpappírsbarón John Spencer, hægra megin á mynd, er einn af auðugustu
mönnum Nýja-Sjálands. Ríkidæmi hans varð til með fjárfestingum í klósettpappírs-
verksmiðjum.
lúxussnekkja T6 er
ein glæsilegasta snekkja
veraldar og er metin á
7.000 milljónir króna.
Eigandinn, John Spencer,
vill selja hana.
Myndir hörður SveinSSon
Þyrlupallur Veglegur þyrlupallur
og skýli undir honum er óvenjulegur
munaður á farkosti sem þessum.