Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 21. júlí 2010 miðvikudagur
DV hefur heimildir fyrir því að Hann-
es Smárason sé á landinu en lögheim-
ili hans er skráð í Lúxemborg. Hann-
es hefur haldið sig til hlés eftir hrunið,
þar sem hann var meðal aðalleikara
í gegnum félög eins og FL Group og
Oddaflug. Leitin að Hannesi hefur
staðið síðan upplýsingarnar bárust
fyrir helgi.
Blaðamaður DV fór á þá staði sem
Hannes hefur verið skráður til heimil-
is á hér á landi á undanförnum árum.
Hvorki tangur né tetur hefur þó fund-
ist af Hannesi. Hins vegar kom margt
annað í ljós við leitina. Vinaklíka út-
rásarvíkinganna er enn sterk.
Hús nágrannans
Fjölnisvegur 11 er ein þekktasta fast-
eignin sem Hannes Smárason keypti.
Húsið keypti Hannes eftir deilur
við fyrrverandi eiganda hússins, en
Hannes átti þá húsið við hliðina.
Þegar blaðamann bar að garði
svaraði Margrét Íris Baldursdóttir,
eiginkona Magnúsar Ármann, fyrr-
verandi stjórnarformanns í spari-
sjóðnum Byr. Magnús var fyrr á árinu
yfirheyrður af sérstökum saksóknara í
Imon-málinu ásamt Sigurjóni Árna-
syni, fyrrverandi bankastjóra í Lands-
bankanum. Magnús er hvað þekkt-
astur fyrir að vera viðskiptafélagi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og Hannesar
Smárasonar. Þeir Hannes eru miklir
vinir og hefur vinskap þeirra verið líkt
við bræðralag.
Magnús var stærsti hluthafinn í
Byr og var, eins og áður segir, stjórn-
formaður sparisjóðsins.
Magnús og Byr
Í umdeildri kosningu nýrrar stjórnar
Byrs eftir hrun fór Magnús með at-
kvæðisrétt Karenar Millen, en þau at-
kvæði skiptu sköpum um úrslit kosn-
inganna. Magnús situr einnig í stjórn
365 miðla sem meðal annars eiga og
reka fjölmiðlana Stöð 2, Fréttablaðið
og Bylgjuna.
„Ég bý erlendis, ég fékk að vera
hérna í sumar,“ sagði Margrét við
blaðamann og sagði að enginn byggi
í húsinu. Þegar blaðamaður spurði
hver ætti húsið og hefði gefið henni
leyfi til að vera í húsinu vildi hún
ekki segja neitt meir. „Vilt þú ekki
bara koma þér út af lóðinni, stubb-
ur!“ sagði Margrét og vísaði blaða-
manni og ljósmyndara út af lóðinni
við Fjölnisveg.
Glæsibílar í innkeyrslunni
Í vikunni sást til tveggja bíla fyr-
ir utan húsið. Eigandi annars bíls-
ins er Þorsteinn M. Jónsson, kallað-
ur Steini í Kók. Bíllinn sem Þorsteinn
er skráður fyrir er svartur og af gerð-
inni Range Rover, en bílar af þeirri
gerð voru óumdeilanlega vinsæl-
ustu bílarnir á meðal útrásarvíkinga.
Þorsteinn er vinur og viðskiptafélagi
Hannesar. Sjálfur býr hann steinsnar
frá Fjölnisveginum, á Laufásvegi.
Annar bíll sem sást í vikunni fyr-
ir utan Fjölnisveg 11 er silfurlitað-
ur Mercedes Benz sem skráður er á
Önnu M. Kristjánsdóttur, eiginkonu
Ágústs Ármann sem er bróðir Magn-
úsar Ármann.
Húsið í eigu Landsbankans
Landsbankinn leysti til sín húsið við
Fjölnisveg 11 ásamt öðrum eign-
um eignarhaldsfélagsins Fjölnisveg-
ur 9 efh., á seinni hluta síðasta árs.
Mánuðum áður hafði Hannes flutt
húsið af eigin nafni og yfir í eignar-
haldsfélagið Fjölnisvegur 9 ehf. Fast-
eignamat hússins er um 95 milljónir
króna en það er rúmir 433 fermetrar
að stærð.
Hannes keypti húsið á sjötíu
milljónir en borgaði þrjú hundruð
og fimmtíu milljónir fyrir breytingar
á því. Deilur Hannesar við nágrann-
ann í húsi númer 11, sem urðu til
þess að hann keypti húsið, voru ein-
mitt tilkomnar vegna fyrirhugaðra
framkvæmda Hannesar. Nágranninn
var ekki sáttur við bílskúr sem Hann-
es vildi byggja.
Engar upplýsingar
frá bankanum
DV hefur ekki getað fengið neinar
upplýsingar um það hjá Landsbank-
anum hvernig standi á því að Mar-
grét, eða nokkur annar, hafi aðgang
að húsinu. Skilanefnd gamla Lands-
bankans segir að Nýi Landsbank-
inn sjái um málið, en starfsmenn
Nýja Landsbankans sem blaðamað-
ur ræddi við segja að slitastjórn
gamla bankans sjái um það.
Húsið er ennþá skráð á eign-
arhaldsfélagið Fjölnisveg 11.
Hús eiginkonunnar
Þegar blaðamann bar að
garði við Fjölnisveg 9
svaraði eiginkona Hann-
esar og sagðist vera
á Íslandi til að sinna
persónulegum erinda-
gjörðum og að Hannes
væri ekki með í för.
Hannes keypti
Fjölnisveg 9 árið
2005 en færði húsið af sínu nafni yfir
á sambýliskonu sína Unni í lok árs
2007.
Svartur bíll af gerðinni Range
Rover stóð fyrir utan húsið um helg-
ina en Hannes er persónulega skráð-
ur eigandi bílsins.
Skattrannsóknarstjóri gerði úttekt
á því hvort Hannes og kona hans,
Unnur Sigurðardóttir, hefðu svik-
ið undan skatti þegar húseignin var
seld út úr eignarhaldsfélaginu Fjöln-
isvegur 9, en það hélt utan um eign
þeirra í Fjölnisvegi 11.
Gamla húsið
DV fékk ábendingu um að Hannes
væri í húsinu við Blikanes 9, en hann
er fyrrverandi eigandi hússins. Hann
og Steinunn Jónsdóttir, fyrrverandi
eiginkona hans, áttu húsið áður en
þau skildu. Þegar DV bankaði upp á
í Blikanesinu var þó ekki svarað og
engin merki þess að Hannes væri
þar.
Einn bíll var fyrir
utan húsið þeg-
ar DV kom þar
að, en sá bíll
var skráður
á eiganda
húss-
ins sem
er ekki
tengd-
ur
Hannesi svo að
blaðamanni sé
kunnugt.
Hannes í felum
Leitin að Hann-
esi bar ekki til-
ætlaðan árang-
ur en það sýndi
sig og sannaði
að útrásarvík-
ingarnir rækta
vinskapinn þrátt
fyrir hrun. Flott-
ir bílar og glæsi-
leg hús sem ein-
kenndu árin fyrir
hrun eru ennþá
partur af raunveru-
leika þessara manna.
Ekkert hefur breyst í
þeim efnum.
Hannes Smárason útrásarvíkingur er staddur á Íslandi samkvæmt heimildum DV en lögheimili hans er í
Lúxemborg. DV hefur leitað að Hannesi frá því fyrir helgi. Við leitina kom óumdeilanlega í ljós að vinaklíka
Hannesar og félaga hans er enn mjög sterk. Kona Magnúsar Ármann, vinar Hannesar, rak blaðamann DV út
af lóð við Fjölnisveg og kallaði hann stubb.
aðaLStEinn kjartanSSon
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is
Vilt þú ekki bara koma þér út af
lóðinni, stubbur!
Hannes Smárason Leitin að
Hannesi hófst fyrir helgi þegar
DV fékk upplýsingar um að
hann væri á landinu.
Fjölnisvegur 9 Heimili Hannesar Smárasonar
á Íslandi. Sambýliskona hans, Unnur Sigurðar-
dóttir, var í húsinu þegar DV bar að garði.
Myndir Hörður SvEinSSon
Leitin að Hannesi
Bíll Hannesar Svartur bíll af gerðinni
Range Rover var í innkeyrslunni við hús
númer 9 við Fjölnisveg. Bíllinn er skráður
á Hannes.
Bíll Steina í kók Svartur bíll af gerðinni
Range Rover sem skráður er á Steina í
Kók fyrir utan Fjölnisveg 11.
Blikaás Hannes og fyrrverandi
eiginkona hans, Steinunn Jónsdóttir,
bjuggu í húsinu.