Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR 21. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR „Kaupþing rændi mig,“ segir Stefán H. Hilmarsson, fyrrverandi fjár- málastjóri Baugs og núverandi fjár- málastjóri 365 miðla. Stefán segir að einkabankaþjónusta Kaupþings hafi rænt hann árið 2008 í viðskiptum með hlutabréf í bankanum. Hann segir að Kaupþing hafi tekið fimmt- án milljónir króna af reikningi hans sem bankinn hafi ekki átt réttmæta kröfu á og aldrei greitt þessa upphæð til baka. Arion banki, sem stofnaður var á rústum Kaupþings eftir bankahrunið 2008, hefur knúið Stefán í þrot fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna 160 milljóna króna skulda við bankann. Skuldirnar eru tilkomnar vegna við- skipta Stefáns við einkabankaþjón- ustuna á árunum 2007 og 2008. Stefán segist ætla að áfrýja úr- skurði héraðsdóms til Hæstaréttar auk þess sem hann gerir kröfu um að bankinn endurgreiði honum þá fjármuni sem hann tapaði vegna viðskipta sinna í gegnum einka- bankaþjónustu Kaupþings. „Já, ég tel möguleika á því,“ segir Stefán að- spurður hvort hann telji einhvern möguleika á því að Hæstiréttur snúi við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Hið merkilega við þessa gagn- rýni Stefáns á einkabankaþjónustu Kaupþings er að hann er einn fyrsti viðskiptavinur einkabankaþjónustu stóru viðskiptabankanna þriggja sem stígur fram og gagnrýnir það undir nafni hvernig starfsmenn bankanna sáu um mál hans. DV hefur fjallað nokkuð um mál viðskiptavina einka- bankaþjónustu Glitnis en minna um viðskiptavini Kaupþings. Eng- inn viðskiptavina einkabankaþjón- ustu Glitnis hefur viljað stíga fram og gagnrýna einkabankaþjónustuna undir nafni þar sem fólk skammast sín fyrir að hafa tapað peningun- um sínum með því að treysta starfs- mönnum Glitnis fyrir þeim. Töpuðu á skuldabréfaútboði Milestone Í viðtali við DV í desember í fyrra sagði einn viðskiptavina Glitnis, sem ekki vildi koma fram undir nafni, að starfsmenn eignastýringardeildar- innar hefðu fjárfest í skuldabréfum Milestone fyrir hans hönd síðla árs 2007 án þess að hann hefði verið lát- inn vita af því. Um var að ræða fjár- festingu upp á meira en tíu milljónir króna. Viðskiptavinurinn sagðist þá að- spurður ekki hafa fengið neinar skýr- ingar á því frá eignastýringunni af hverju skuldabréf Milestone hefðu verið keypt fyrir hans hönd á þess- um tíma. Þá var staða Milestone orð- in afar slæm og ekki hafði gengið að endurfjármagna félagið þó leitað hefði verið til margra erlendra fjár- málafyrirtækja. Um þetta sagði viðskiptavinurinn, sem síðar tapaði þeim peningum sem notaðir voru í skuldabréfakaup- in: „Skýringar? Allir sem ég talaði við þarna eru hættir... Ég er reiður út í þá af því að þetta átti ekki að geta gerst. Þetta er alveg rosalegt... En þetta er líka svolítið klikk hjá fólki eins og mér sem fylgist ekki betur með. Mað- ur treystir sínum banka og eignastýr- ingin segir manni hvað maður á að gera. En svo plata þeir mann bara. Ég veitti þeim þetta umboð og þá getur maður væntanlega engum um kennt nema sjálfum sér.“ Viðskiptavinurinn fyrrverandi undirstrikar að hann hafi einungis viljað að fjárfest yrði fyrir sig á öruggan hátt. Viðskiptavinurinn gerði svo kröfu í þrotabú Milestone til að fá peningana til baka. Krafan var ekki samþykkt og tapaði hann því fénu. Frásögn Stefáns verður því að skoða í samhengi við frásagnir ann- arra viðskiptavina eignastýringar- deildanna sem telja að starfsmenn þeirra hafi ekki stýrt fjárfestingum þeirra með hagsmuni viðskiptavin- anna að leiðarljósi. Gagnrýnir uppgjör viðskiptanna „Þetta skjal hérna er alveg með ólíkindum,“ segir Stefán og sýn- ir blaðamanni uppgjörsskjal merkt Kaupþingi sem á stendur „Lokun á skiptasamningi“. „Ég gerði níu mán- aða framvirkan samning við Kaup- þing um hlutabréf í bankanum í ágúst árið 2007 og átti að loka samn- ingnum í apríl árið 2008. Samning- urinn var það sem kallast höfuð- stólsvarinn þannig að ég átti að vera varinn fyrir lækkun á bréfunum en átti að fá hluta af hækkuninni á þeim sem gróða,“ segir hann en samn- ingurinn var upp á um 29 milljónir króna og fjármagnaði Stefán kaup- in með láni frá bankanum. „Ég vildi ekki tapa miklu á þessum viðskipt- um og þess vegna var afleiðan höf- uðstólsvarin.“ Framvirkir samningar um hluta- bréf, eða afleiðusamningar eins og þeir eru einnig kallaðir, ganga út á það að einstaklingar og fyrirtæki gera samning við fjármálafyrirtæki um kaup og sölu á hlutabréfum og að verð þeirra muni annaðhvort hækka eða lækka á tilteknu tímabili. Stefán gerði slíkan samning við Kaupþing því hann taldi að hlutabréfaverð í Kaupþingi myndi hækka á tímabil- inu. Svo varð hins vegar ekki og ljóst var að hann myndi ekki græða á við- skiptunum. Þegar viðskiptin voru gerð upp í byrjun apríl 2008 voru teknar rúmar 40 milljónir króna af vörslureikningi Stefáns þrátt fyrir að höfuðstólsvarða lánið sem hann fékk fyrir bréfunum hefði ekki verið upp á nema 29 millj- ónir. Staða vörslureiknings Stefáns fór við þetta niður í eina milljón í mínus. Kaupþing hefði ekki, að mati Stefáns, átt að geta tekið meira út af reikningi hans en sem nam höfuð- stól lánsins. Samt var tekin út upp- hæð sem var meira en tíu milljónum króna hærri. Stefán áttaði sig hins vegar ekki á þessu strax. Hann fékk uppgjörs- gögn frá Kaupþingi í kjölfar lokunar viðskiptasamningsins þar sem fram kom að samningurinn hefði verið gerður upp á núlli. „Samningnum er lokað af hálfu bankans á núlli. Þá var verðmæti samningsins orðið 40 milljónir, skuldin við bankann 40 milljónir og eignin 40 milljónir. Ég var bara í góðri trú með þetta,“ seg- ir Stefán sem sýnir blaðamanni upp- gjörið á blaði en þar kemur ekki fram að tekin hafi verið hærri upphæð af vörslureikningi hans en sem nam fjárfestingunni í bankanum upp á 29 milljónir. Áttaði sig ekki á muninum Stefán áttaði sig ekki á þessu fyrr en hann skoðaði skjöl frá héraðsdómi í máli sínu. „Síðar í apríl, einhverjum þremur vikum síðar, lögðu þeir rúm- ar 25 milljónir króna inn á reikninginn minn en það var eftir að þeir voru bún- ir að selja hlutabréfin í Kaupþingi sem lækkað höfðu í verði. En ég áttaði mig ekki á þessu strax. Það var ekki fyrr en ég byrjaði að skoða gögnin frá héraðs- dómi að ég sá hvað raunverulega hafði gerst. Það skiluðu sér inn um 25 millj- ónir og þeir tóku 15 milljónir í þóknun en það kom aldrei fram á uppgjörinu við bankann,“ segir Stefán sem ætlar að krefja Arion banka um mismun- inn á þeirri upphæð sem var tekin út af reikningi hans og upphæðinni sem var síðar lögð inn á hann. Stefán segist engar skýringar hafa fengið frá Arion banka á þess- um mismun. „Ég fæ engin svör. Það er þetta sem við erum að reka sem dómsmál í Héraðsdómi Reykjavíkur,“ segir Stefán. „Málið er að höfuðstólsvörnin þeirra var ekki að virka. Þetta er bara ekki að virka. Höfuðstólsvörnin sem þeir buðu upp á gekk ekki upp og var bara fals. Það er miklu meira tap af þessum viðskiptum en þeir lofuðu þegar þeir buðu upp á þessa höfuð- stólsvörn. Þess vegna senda þeir fals- uppgjör og taka svo allt annað út af reikningnum mínum því þeir gátu ekki staðið við gefin loforð.“ Annað atriði varðandi viðskipti einkabankaþjónustu Kaupþings sem Stefán gagnrýnir og hann vissi ekki um er hversu mikið af hlutabréfum í stærstu hluthöfum bankans voru keypt fyrir hans hönd. Um var að ræða kaup á hlutabréfum í Bakka- vör og Exista fyrir um 12,5 milljónir króna en félögin voru í eigu Lýðs og Ágústs Guðmundssona. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings. Stefáni var ekki kunnugt um að hann hefði keypt svo mikið af bréfum í Exista og Bakkavör fyrr en hann fór yfir vörslureikning sinn eftir hrun- ið. Hann telur að tilgangur bankans með þessum kaupum hafi verið að halda uppi genginu á bréfunum í Kauphöll Íslands og að þar með hafi bankinn verið að gæta eigin hags- muna en ekki Stefáns. Þetta er eitt af þeim atriðum sem Stefán ræðir um í greinargerð sinni í dómsmálinu gegn Arion banka. Þar segir hann meðal annars: „Bankinn og stærstu eigendur hans áttu mikla hags- muni undir gengi hlutafjár í þessum tveimur félögum.“ Stefán vill einnig fá þessar 12,5 milljónir til baka frá bankanum. Eiga að láta skoða reikninga sína Stefán telur að frásögn hans af við- skiptunum við einkabankaþjónustu Kaupþings sýni að aðrir viðskipta- vinir eignastýringardeildanna eigi að láta yfirfara þau gögn sem þeir eigi í fórum sínum um viðskiptin. „Hvað heldur þú að það séu margir viðskiptavinir bankanna sem lentu í þessu? Hinn almenni leikmaður, Pétur og Páll, áttar sig ekkert á þessu. Viðskiptavinir eignastýringardeild- anna eiga að fá fagmenn til að fara yfir reikninga sína,“ segir Stefán en aðrar sögur sem sagðar hafa verið af viðskiptavinum eignastýringardeilda bankanna benda til þess að rann- saka þurfi starfsemi þessara deilda sérstaklega þar sem margir almenn- ir borgarar töpuðu tugum milljóna á þeim viðskiptum sem starfsmenn deildanna stofnuðu til fyrir þá. Stefán var nokkuð stórtækur í við- skiptunum við Kaupþing og fjárfesti meðal annars fyrir lán upp á 50 millj- ónir króna sem hann fékk frá bank- anum. Kaupþing lánaði því Stefáni fyrir meirihluta þeirra viðskipta sem einkabankaþjónusta bankans sá um fyrir hann en hann byrjaði fjárfest- ingar sínar með eigið fé upp á 12 milljónir króna. „Munurinn á mér og mörgum öðrum er sá að ég fjár- festi fyrir lánsfé að mestu. Þannig að þegar eignirnar fóru sat lánið eftir og þeir hjóluðu síðan í mig. Hugsaðu þér ef ég hefði bara verið með eignir mínar undir. Einkabankaþjónustan hefði sagt við mig: „Já, en það hrundi allt.“ Þá hefði bara verið sagt „Ok, end of story“ og ekkert hefði verið skoð- að. Þá finnst þetta ekki. Þú finnur þetta ekki fyrr en þú ferð að rannsaka málið og af því að ég er endurskoð- andi er líklegra að ég átti mig á þessu. Svo hrundi bankinn með brauki og bramli nokkrum mánuðum síðar. Ég fór síðan að skoða þetta í kjöl- farið og ég gat ekkert gert. Venjulegt fólk áttar sig ekki á þessu þegar það fær uppgjörið á núlli heim til sín,“ segir Stefán en ástæðan fyrir því að krafa Kaupþings á hendur honum er svo há er sú að hluti skulda hans við bankann var gengistryggt lán. „Ef Kaupþing var með milljarða króna undir í svona höfuðstólsvörð- um afleiðum og öll uppgjörin voru svona, þá hefur bankinn haft gríð- arlega háar upphæðir af fólki. Mitt uppgjör var svona og flestir átta sig ekkert á þessu þegar þeir fá uppgjör- ið sent á núlli heim. Mér finnst þetta vera hálfgert skjalafals og lögbrot. Þetta tilfelli er lögreglumál. Ég ætla bara að halda baráttu minni áfram fyrir héraðs- dómi og ætla að vinna þetta mál fyr- ir dómstólum. Ég vil fá skorið úr um þetta fyrir dómi og mér finnst mjög ósanngjarnt að bankinn stingi mig í bakið með þessum gjaldþrotaúr- skurði. Núna þegar búið er að taka mig af lífi er ábending mín til þús- unda Íslendinga sem voru í viðskipt- um við þennan banka: Farið yfir gögnin ykkar. Ég er „down the drain“ [búinn að vera, innskot blaðamanns] en ég get þó bent öðrum á að kanna þetta hjá sér því ég tel mjög líklegt að aðrir hafi lent í þessu líka. Mér finnst ég hafa verið beittur ofbeldi. Það voru ákveðnir glæpir framdir í bönkunum INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Mér finnst þetta vera hálfgert skjalafals og lögbrot. Þetta tilfelli er lögreglu- mál. „KAUPÞING RÆNDI MIG“ Úr tölvupósti starfsmanns einkabankaþjónustu Kaupþings til Stefáns frá 4. júlí 2008: n„Hugmyndafræðinersúaðveitaefnameiri einstaklingumsinnviðskiptastjóratilað annastallaþáþjónustusemsnýraðafurðum Kaupþings.Hvortsemumeraðræða eignastýringu,fyrirtækjaráðgjöf,gjaldeyris- ogafleiðuviðskiptieðabarahefðbundin bankaviðskipti.[...]Éggætieinnigveltrúað aðþauviðskiptatækifærisemeruaðverðatil hérinnanhússgætunýstþértilaðnágóðri ávöxtun.“ Úr kröfugerð Stefáns gegn Arion banka þar sem hann talar um afleiðusamninginn: n„UndirritaðurgerðisamningviðKaupþingbankaíágúst2007umsvokallaðan höfuðstólsvarinnafleiðusamningumhlutabréfíKaupþingibanka.Umvarað ræða9mánaðaafleiðusamningþarsemundirritaðuráaðveravarinnfyrirlækkun ágengihlutabréfabankans.Viðlokauppgjörhinn4.apríl2008kemurframá uppgjöriafleiðusamningsfrábankanumaðmismunureignarogskuldasé0.Hins vegareruaðrarfjárhæðirteknarútafvörslureikningiundirritaðsogmismunur þesser14,7millj.kr.Gerðerkrafaumendurgreiðsluþeirrarfjárhæðar.“ Gætu nýst til að ná góðri ávöxtun nFjölmargirþeirraeinstaklingasemlýst hafakröfumíþrotabúeignarhaldsfélagsins Milestonekeyptuskuldabréfogvíxla MilestoneafeignastýringardeildGlitnis. Almennterumaðræðakröfurumupphæðir semnemanokkrummilljónumogalltuppí 30milljónirkróna.EigendurMilestone,Karl ogSteingrímurWernerssynir,vorustórir hluthafaríGlitniígegnumeignarhaldsfélag- iðÞáttInternational. nStarfsmenneignastýringardeildarinnarkeyptuskuldabréfinogvíxlanafyrir höndviðskiptavinanna,endaerþaðsvoaðtilgangureignastýringareraðávaxta fjármuniviðskiptavinanna.Viðskiptavinirnirþurftuþvíalmenntekkiaðgefaleyfi sittfyrirkaupunumábréfumíMilestone.SamkvæmtheimildumDVfjárfesti eignastýringardeildinaðallegaíbréfumMilestonefyrirhöndviðskiptavinanna haustið2007ogsíðar. nÞávarMilestonekomiðínokkrarekstrarerfiðleikaogþurftiaðverðasérúti umfjármagn,meðalannarstilaðstandaskiláerlendumlánum.Þaðvarmeðal annarsíþeimtilgangisemeignarhaldsfélagiðSvartháfurvarnotaðtilaðleppa milljarðalánveitingufráGlitnitilMilestoneíársbyrjun2008. Töpuðu milljónum Stefán Hilmar Hilmarsson, fyrrverandi fjármálastjóri Baugs, hefur verið keyrður í þrot vegna skulda við Arion banka, áður Kaupþing. Stofnað var til skuldanna í gegnum einkabankaþjónustu Kaupþings. Hann telur uppgjör á afleiðusamningi um hlutabréf í Kaupþingi sýna fram á að bankinn hafi rænt hann með skjalafalsi árið 2008. Stefán beinir þeim tilmælum til viðskiptavina einkabankaþjónustu Kaupþings að þeir skoði gögn um viðskipti sín við bankann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.