Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Page 12
12 fréttir 21. júlí 2010 miðvikudagur Ólíklegt er að hafist verði handa við að innkalla aflaheimildir við upphaf næsta fiskveiðiárs, þann 1. september 2010. Samráðshópur um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða er enn að störfum. Ekki er gert ráð fyrir að hann skili af sér tillögum sínum til sjávarútvegsráð- herra fyrr en um miðjan ágúst. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar er gert ráð fyrir að „áætl- un um innköllun og endurráðstöf- un taki gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. september 2010.“ Allt bendir því til þess að Jón Bjarnason, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi knappann tíma til að vinna úr tillögum nefndarinnar og móta að- gerðir í samræmi við þær eigi inn- köllunin að koma til framkvæmda á fiskveiðiárinu. Staðið verði við stjórnarsáttmála Á flokksstjórnarfundi Samfylk- ingarinnar þann 26. júní var lagt fram lögfræðiálit þar sem talið var skýrt að innköllunin ætti að hefj- ast í upphafi fiskveiðiárs miðað við orðalag stjórnarsáttmálans. „Ef það vefst aukinheldur fyrir einhverj- um hvað orðin að „taka gildi“ fela í sér þá er að finna skýringu á því í Lögfræðiorðabók með skýring- um, en þar kemur fram að „gildis- taka“ þýði „það að t.d. samningur eða lög taka gildi og eftir það þarf fólk að fara eftir þeim“. Í ákvæðinu felst því bersýnilega ekki eingöngu að áætlunin skuli liggja fyrir þann 1. september 2010, heldur skal hún taka gildi á þeim tíma, en í því felst að innköllun og endurráðstöfun skal hefjast á því tímamarki,“ segir í álitinu. Á fundinum voru lagðar fram tvær tillögur þar sem imprað var á að staðið yrði við ákvæði stjórnar- sáttmálans um fyrningarleiðina. Í annarri þeirra sagði að fara ætti þá leið sem kæmi fram í stjórnarsátt- málanum og að ekki yrði látið und- að þrýstingi sérhagsmunaaðila. Jafnframt var lagt til að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um fram- tíðarskipan fiskveiðimála þegar til- lögur þess efnis lægju fyrir. Grasrótin tók málið í sínar hendur Á fundinum greip hópur úr gras- rót Samfylkingarinnar fram fyrir hendurnar á flokksforystunni og veitti tillögunum brautargengi eft- ir að hafa mætt andstöðu hennar. DV hefur heimildir fyrir því að inn- an Samfylkingarinnar leggi viss- ir hópar mikla áherslu á að staðið verði við að innköllun aflaheim- ilda hefjist þann 1. september. Ekki sé nægjanlegt að þá liggi að- eins fyrir áætlun um hvernig stað- ið verði að innköllun þeirra. Innan Samfylkingarinnar eru uppi radd- ir um að forysta Samfylkingarinn- ar brjóti reglur flokksins verði ekki staðið við þessa tímasetningu. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, staðfestir að kröfur séu uppi innan flokksins um að hafist verði handa við inn- köllun aflaheimilda í upphafi fisk- veiðiársins. „Það eru mjög sterkar skoðanir á þessu í Samfylkingunni og ég hef líka mjög sterkar skoðan- ir á þessu. Það hefur komið fram á þessum fundi og þeim síðasta að það er sífellt spurt um þetta og lögð áhersla á að þetta gangi. Ég tek undir þau sjónarmið en tek fram að það er árangurinn að lok- um sem skiptir máli en ekki tíma- setningarnar í stjórnarsáttmálan- um,“ segir Mörður. Ekki sammála túlkuninni Guðbjartur Hannesson, formað- ur samráðshópsins um breyting- ar á lögum um stjórn fiskveiða, segist ekki sammála þessari túlk- un á stjórnarsáttmála Samfylk- ingarinnar og Vinstri-grænna. „Ég samdi nú þennan texta á sín- um tíma og það hafa mjög marg- ir skoðanir á því hvað við áttum við. Svo eru menn að vitna í lög- fræðinga með túlkun á þessu sem er náttúrulega bara grín því það hafa allir gert sér grein fyrir því að það tekur tíma að gera breyting- ar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Við settum okkur markmið um að vera búin að skila af okkur í júlí en við skýrum það í skýrslunni hvers vegna við tókum okkur aukinn tíma,“ segir Guðbjartur. Guðbjartur segir að samkvæmt stjórnarsáttmálanum sé aðeins miðað við að áætlun um innköll- un aflaheimilda liggi fyrir þann 1. september. Hann bendir á að sam- ráðshópurinn sé aðeins ráðgef- andi. Hann skili tillögum sínum til ráðherra sem síðan taki ákvarð- anir í framhaldi af því. „Lögin eru nú einu sinni þannig að kvótaár- ið byrjar 1. september. Það stóð aldrei til að vera búinn að breyta þessu fyrir þann tíma. Það hefði aldrei gengið upp. Við erum þriðji hópurinn sem fer í gegnum þetta og það hefur tekist að vinna þetta mál hratt,“ segir Guðbjartur. Verður unnið fljótt úr tillögunum Samkvæmt upplýsingum úr sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneyt- inu mun það reyna að vinna eins fljótt úr tillögum samráðshópsins og kostur er á og reyna að skila af sér áætlun áður en fiskveiðiárið hefst. Hinsvegar sé ljóst að sú vinna gæti dregist einhverja daga fram yfir 1. september. Aðspurður hvort ekki mæddi mikið á Jóni Bjarna- syni að vinna úr tillögunum mið- að við að þeim verði skilað í ágúst, játar Guðbjartur því. „Menn geta horft á dagsetningar en þetta væri þá hið fyrsta sem stæðist upp á dag. Það er auðvitað niðurstaðan sem skiptir mestu máli. Þar þurfum við að vanda okkur,“ segir Guðbjartur. Guðbjartur segir drög að meg- inefni skýrslunnar liggja fyrir en eftir eigi að útfæra nokkra hluta hennar nánar, þar á meðal um út- hlutun aflaheimilda. „Við ætlum að vinna betur úr hugmyndunum í þessari viku. Það er kominn upp heildarrammi að skýrslu en það tekur tíma að vinna úr textanum og taka afstöðu til einstakra atriða á lokasprettinum,“ segir Guðbjart- ur. Tuttugu manns eiga sæti í sam- ráðshópnum, allt frá þingmönnum til fulltrúa hagsmunahópa. Í hópn- um hefur verið kannað hvernig best sé að tryggja að auðlindin sé eign þjóðarinnar og að nýtingar- rétti sé úthlutað til tiltekins tíma og af honum sé tekið gjald. Í hópn- um hafa nokkrar leiðir og útfærsl- ur á þessu verið kannaðar. Með fyrningarleiðinni er vísað til þess að ákveðið hlutfall aflaheimilda sé kallað inn árlega og því endurút- hlutað. Ólíklegt er að innköllun aflaheimilda hefjist þann 1. september. Í stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna er miðað við að áætlun um innköllun taki gildi þá. Á flokksstjórnarfundi Samfylkingar- innar í júní var lögð áhersla á að innköllun hæfist á þeim tímapunkti. Guðbjartur Hannesson, formaður samráðshóps um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, segir að það hafi aldrei staðið til heldur aðeins að áætlun um slíkt lægi fyrir. flokksforysta sögð starfa óheiðarlega RóbERt HlynuR balduRSSon blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Einn af höfundum sáttmálans GuðbjarturHannessonsegirmargahafa skoðaniráþvíhvaðvaráttviðþegar stjórnarsáttmálinnvarsaminn. Staðfestir kröfur MörðurÁrnason, þingmaðurSamfylkingarinnar,segir sterkarskoðanirinnanSamfylkingar- innaráfyrningarleiðinni. nÍlögumogreglumSamfylkingarinnarkemurskýrtframaðflokkstjórnin farimeðæðstavaldíöllummálefnumSamfylkingarinnar.Hversásemtelsttil félagaoggegnirtrúnaðarstarfifyrirhanaverðuraðhlítafyrirmælumhennar ogúrskurðum. æðsta vald utan landsfundar Ég samdi nú þennan texta á sínum tíma og það hafa mjög margir skoðanir á því hvað við áttum við. telja forystuna brjóta reglur flokksins HópurinnanSamfylkingarinnarteluraðforysta flokksinsbrjótireglurhanshefjistinnköllun aflaheimildaekkiíhaust.Hópurinntelur stjórnarsáttmálannskýran.Þarsegiraðáætlun uminnköllunskulitakagildiíseptember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.