Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2010, Qupperneq 17
miðvikudagur 21. júlí 2010 erlent 17 Íraksstríðið mistök Innrásin í Írak jók umtalsvert líkurn- ar á hryðjuverkaárásum í Bretlandi. Þetta segir barónessan Manning- ham-Buller, fyrrverandi yfirmaður MI5, bresku leyniþjónustunnar. Hún segir að stríðið hafi gert heila kyn- slóð ungs fólks að „róttæklingum“ og þar á meðal breska þegna. Af þess- um sökum telur hún að búast hefði mátt við því að breskir ríkisborgarar fremdu hryðjuverk, líkt og gerðist hinn 7. júlí 2005 þegar fjöldi manns lést í sprengjuárásum í strætisvögn- um og neðanjarðarlestinni í Lund- únum. Hún telur einnig að ekki hafi bent nægilega mikið til þess að Írak væri svo hættulegt land að stríðið hefði verið réttlætanlegt. Manning- ham-Buller telur að hættan, sem Bretland var í vegna Íraks, hafi verið mjög takmörkuð. Þetta kom fram á þriðjudaginn við yfirheyrslur hjá rannsóknarnefnd sem skoðar að- draganda Íraksstríðsins. Hefði orðið verra en í Oklahoma Þúsundir hefðu týnt lífi í New York ef Faisal Shahzad hefði náð að sprengja bílinn sinn eins og hann hafði áætlað. Orkan sem losnað hefði úr læðingi hefði mölvað rúður í öllum byggingum í næsta nágrenni. Þúsundir manna hefðu skorist til bana eða lent undir mannhafinu á flótta, á hinu geysivinsæla Times Square. Þetta er niðurstaðan úr rannsókn FBI. Embættismenn telja að hryðjuverkið hefði orðið meiri harmleikur en þeg- ar Timothy McVeigh sprengdi höf- uðstöðvar FBI í Oklahoma í loft upp árið 1995, en þá létust 168 manns. Faisal Shahzad, þrítugur Bandaríkja- maður, hefur játað sig sekan um að hafa staðið að sprengjutilræðinu. Faisal Shahzad, sagði tilræðið hafa verið „að hluta til svar við aðgerð- um Bandaríkjanna gagnvart löndum múslíma og múslímum.“ Átján frusu í hel í Bólivíu Kalt loft frá Suðurskautslandinu kælir nú suðurhluta Suður-Amer- íku, þar sem nú er hávetur, og hefur valdið miklum skaða. Átján hafa látist víðsvegar í Bólívíu og þar hefur skólum og vegum verið lokað.Lög- regluyfirvöld í Paragvæ segja að átta borgarar hafi dáið á síðustu dögum úr ofkælingu. Stjórnvöld komu upp neyðarskýlum og sóttu heimilislausa á herjeppum. Einnig hafa um 1.000 kýr frosið í hel í landinu. Tugir hafa látist í Argentínu í fimbulkulda, að- allega í Patagóníu, suðurhluta lands- ins. Búist er við því að kalda loftið frá suðurpólnum plagi Suður-Ameríku- búa í nokkra daga í viðbót. Gætu erft milljarða Norsk fjölskylda í Kristianstad fékk í fyrra leyfi yfirvalda til þess að grafa upp afa sinn (og langafa) Hugo Kö- hler sem lést árið 1945. Í kjölfar- ið voru tekin DNA-sýni úr hinum látna. Nú krefjast fjölskyldumeð- limir mannsins þess að grafir aust- urríska furstans Leópolds 2. og konu hans Maríu Antóníu sem bæði létust á nítjándu öld verði opnaðar. Þau liggja í keisaragrafhýsinu í Vín, hinum heilaga grafreit Habsborg- araættarinnar. Norðmennirnir vilja bera saman erfðaefni Köhlers við erfðaefni aðalsmannanna. Þeir telja að sonur Leópolds 2. og Maríu Ant- óníu og Hugo Köhler hafi verið einn og sami maðurinn. Sá hét Jóhann Salvator, var erkihertogi af Habs- borgaraætt og hvarf í Suður-Amer- íku árið 1890. Ef Köhler þessi reynist hafa verið Jóhann Salvator munu hinir norsku afkomendur hans erfa konungshöll í Austurríki og auðæfi sem metin eru á marga tugi milljarða íslenskra króna. Umsjónarmaður keisara- grafhýsisins vill ekki opna það. Vilja ekki opna gröfina Norðmennirnir Jóhann Köhler-Ni- elsen, 83 ára, og Henrik Danielsen, 28 ára, eru barnabarn og barna- barnabarn Hugos Köhler. Köhler sagði börnum sínum, þegar hann lá fyrir dauðanum árið 1945, að hann væri í raun hinn sterkefnaði erkiher- togi Jóhann Salvator sem hvarf árið 1890. Þeir kröfðust þess árið 2007 að sannreynt yrði með DNA-prófi hvort þetta væri rétt. Og sem fyrr segir voru jarðneskar leifar Köhlers grafnar upp í fyrra til þess að ná úr þeim lífsýni. Nú vantar hins vegar erfðaefni úr foreldrum Jóhanns Sal- vator og hafa Norðmennirnir ráðið lögfræðing í Vín sem á að fara fram á að grafhýsi keisaranna verði opn- að. Afkomendur Habsborgaranna vilja þó ekki gefa leyfi fyrir því og því síður umsjónarmaður grafhýsisins, séra Gottfried. „Habsborgaraættin er á móti því að opna grafirnar, og við erum sammála því. Þetta snýst bara um að svala forvitni einhvers fólks úti í bæ,“ segir séra Gottfried í samtali við austurríska dagblaðið Nachrichten. „Ég var á vegum Norðmannanna í keisaragröfinni, en ég starfa ekki lengur fyrir þá. Ég held að ekki sé lagalegur grundvöllur fyrir því að láta opna grafirnar ef aðstandend- ur eru því mótfallnir,“ segir lögfræð- ingurinn í samtali við Nachricht- en. Hann myndi persónulega ekki veðja á að grafirnar verði opnaðar. Kvæntist dansmær Jóhann Salvator, erkihertogi af Austurríki og prins af Toskana, var fæddur árið 1852 og alinn upp í glæsilegum höllum Habsborgar- anna og við hirð keisarans af Aust- urríki. Hann varð ungur herforingi og efnilegur maður. Árið 1889 kvæntist hann ungri dansmær af fátæklingaættum í Lundúnum, Milly Stubel að nafni, sem þótti ekki sæma aðalsmanni. En hann vildi ekki yfirgefa Milly Stubel og afsalaði sér öllum völd- um, breytti nafni sínu í John Orth og sigldi til Suður-Ameríku með henni. Árið 1890 voru þau í Montevideo í Úrúgvæ. Þaðan ætluðu hjónakorn- in svo til Valparaísó í Chile með skipi sínu og áhöfn. Ekkert spurðist opinberlega til þeirra síðar og þótt- ist Habsborgaraættin vita að skipið hefði sokkið við Hornhöfða, syðsta annes Suður-Ameríku. Myrtur af smáglæpamönnum? Háværar sögusagnir hafa þó ver- ið í gangi allt til vorra daga um hin raunverulegu örlög Jóhanns Sal- vator. Ein sagan hermir að hjónin hafi stigið á land í argentínska hluta Patagóníu og sest þar að. Þau hafi búið þar hamingjusöm í nokkur ár þangað til Milly Stubel hvarf spor- laust á kvöldgöngu. Jóhann hefði svo leitað hennar um gjörvalla Arg- entínu en endað flakk sitt í hinu al- ræmda glæpahverfi Boca í Buen- os Aires. Þar hefði prinsinn dagað uppi auralaus og heltekinn af sorg á dimmum knæpum og verið myrtur af smáglæpamönnum árið 1915. Árið 1945 höfðu flestir gleymt Jó- hanni Salvator, hann var löngu tal- inn af og ekki þótti lengur skipta máli hvernig dauða hans hefði bor- ið að. Það kom því heldur betur á óvart þegar Hugo Köhler lá á dánarbeðin- um í Kristiansand í Noregi og viður- kenndi fyrir börnum sínum og eig- inkonu að hann væri enginn annar en Jóhann Salvator. Hann hafi ekki dáið á neinu fylliríi, heldur flutt til Noregs eftir áralangt flakk í Argent- ínu, Paragvæ og Úrúgvæ. Þetta snýst bara um að svala for- vitni einhvers fólks úti í bæ. helgi hrafn guðMundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Norskir afkomendur manns sem lést árið 1945 segja að hann kunni hafa verið sterkefnaður austurrískur erkihertogi sem hvarf sporlaust í Suður-Ameríku árið 1890. Þeir vilja að graf- hýsi austurrísku keisaranna í Vín verði rofið til að ná lífsýnum úr líkum sem þar liggja. Jóhann salvator Sterkefnaður erkihertogifráAusturríkisemhvarf sporlaustíSuður-Ameríkuárið1890. hugo Köhler LéstíKristianstadíNoregiárið 1945ogtjáðifjölskyldunniádánarbeðinumað hannværihinnlöngutýndiJóhannSalvator. stærðarinnar höll Norðmennirnir munuerfaþessahöll,SchlossOrth,en húntilheyrðiJóhanniSalvatoroger metinámilljarða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.