Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Side 2
2 fréttir 29. september 2010 miðvikudagur Þingmönnum var heitt í hamsi á Al- þingi á þriðjudaginn í kjölfar þeirr- ar niðurstöðu að einungis Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra, yrði ákærður fyrir vanrækslu í starfi en ekki þrír samráðherrar hans. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, sagði við at- kvæðagreiðsluna að það hefði verið vélað í bakherbergjum um að ákæra einn mann. Þingmaður Hreyfing- arinnar Þór Saari segir kosninguna sýna að flokkapólitíkin lifi enn góðu lífi og að endurreisnin sé greinilega afar stutt á veg komin. „Ég er fegin ef ég hugsa um sjálfa mig en þetta er engu að síður dap- urleg stund,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir við DV. Ekki náðist í Árna M. Mathiesen, fyrrverandi fjármála- ráðherra, og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra. Geir H. Haarde hefur tekið til varna í fjöl- miðlum. Pólitísk kosning Það er augljóst að atkvæðagreiðslan á þinginu á þriðjudag var pólitísk því miklu máli skipti hvernig þingmenn greiddu atkvæði í málinu. Þingmenn Vinstri grænna greiddu allir atkvæði gegn öllum ráðherrunum fjórum og þingmenn Sjálfstæðisflokks gegn ákæru. Þar gátu flokkslínur varla ver- ið skýrari. Þingmenn Samfylkingar voru hins vegar margklofnir í afstöðu sinni. Athyglisvert er að það eru helst nýir þingmenn Samfylkingarinnar sem greiða atkvæði með því að ákæra ráðherrana. Atkvæðagreiðslan er merkileg fyr- ir margra hluta sakir, þá allra helst þann tilfinningaþunga sem hef- ur einkennt umræðuna um ákæru. Flestir þingmanna virðast óánægð- ir með niðurstöðuna og málsmeð- ferðina alla í heild. Það mætti með sönnu segja að þeir einir séu ánægð- ir sem sleppa við ákæru þótt ánægj- an sé blendin. Vörn Geirs H. Haarde í fjölmiðlum virðist einnig þrungin til- finningum og yfirlýsingum um órétt- læti og ofstæki Alþingis. Veik vörn Jóni Ólafssyni heimspekingi þykir vörn Geirs H. Haarde veik. „Hvernig getur það blasað betur við að maður- inn er sekur?“ spyr Jón um þá niður- stöðu Alþingis að sækja Geir H. Haar- de til saka fyrir landsdómi. „Þetta er sú niðurstaða sem ég bjóst við sjálf- ur,“ segir Jón. „Hún er rökrétt bara vegna þess að það er mjög auðvelt að sjá alls konar lagalega annmarka á því að ákæra hina ráðherrana. Mér fyndist það mjög skrýtið ef stjórnvöld gerast sek um svona hrikaleg mis- tök að enginn beri lagalega ábyrgð og svari til saka fyrir það.“ Hann seg- ist þó spyrja sig hvort það sé endi- lega Geir H. Haarde sem beri mesta ábyrgð. „Er ekki einhver annar sem ber meiri siðferðilega ábyrgð, eins og til dæmis Davíð Oddsson eða Hall- dór Ásgrímsson? Tilfellið er að hann er forsætisráð- herra þegar þetta gerist. Lögin sem við höfum um ráðherraábyrgð eru mjög skýr og einföld og þau opna þessa leið fyrir löggjafann að ákæra og ég get ekki séð annað en einfalda rökvísi í því að hann sé ákærður. Síð- an verður gagnlegt að sjá hver fram- vindan verður. Hvernig hann ver sig og hvort hann verður sakfelldur.“ Ótrúlegt píp Jóni finnst fróðlegt að fylgjast með því hvernig ákærur gegn ráðherr- unum hafa orðið að hápólitískum slag. Þingmenn séu augljóslega að spinna málið pólitískt hver í sínum tilgangi. Sérstaklega finnst honum vert í því sambandi að fylgjast með þingmönnum gefa út yfirlýsingar um ákærurnar. Þær séu í flestum tilfell- um í besta falli vandræðalegar: „Einn þingmanna sagði að þetta væri öm- urleg niðurstaða og öllum til skamm- ar af því allir voru ekki ákærðir. Annar segir ákærurnar vera hráskinnaleik. Allir eru þeir hátíðlegir en þegar rýnt er í orð þeirra eru þau ótrúlegt píp!“ Jón segir það miður umræðunn- ar vegna að fjölmiðlamenn detti í að trúa þessum spuna þingmanna frek- ar en að skoða veruleikann í sam- hengi við liðna atburðarás frá því fyr- ir hrun. Ekkert tilefni til aðgerða Jóni finnst jákvætt að leikar hafi farið þannig að einhver ráðherranna hafi á endanum verið ákærður. Almenn- ingur verði að hugsa um aðdraganda hrunsins árið 2008 og þá ætti hann að rifja sérstaklega upp það þegar Geir H. Haarde var spurður hvað eftir annað hvað hann væri að gera til þess að verja hagkerfi þjóðarinnar gegn áföllum. Geir hafi aftur og aftur gef- ið þau svör í þinginu að ekkert tilefni væri til aðgerða. Ragnar Aðalsteinsson tekur und- ir með Jóni um að yfirlýsingar þing- manna varðandi ákærurnar séu bagalegar. Sér í lagi séu þær settar í samhengi við hversu léttvæg ákvörð- un það var að taka ákvörðun um að ákæra níumenningana fyrir að trufla störf Alþingis. „Það er svo auðvelt að ákæra það fólk, það er talið léttvægt verk að taka ákvörðun um það. Það er hins vegar talið þyngra að taka ákvörðun um að ákæra ráðherrana,“ segir Ragnar. GEIR EINN Í SNÖRUNNI BIRGIR GUÐMUNDSSON STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR: GAMALL UPPVAKNINGUR „Þetta eru söguleg tíðindi, að lands- dómur skuli vera vakinn upp,“ seg- ir stjórnmálafræðingurinn Birgir Guðmundsson um það að Alþingi hafi ákveðið að ákæra Geir H. Haar- de. „Þetta er hundrað ára gam- all uppvakningur sem enginn veit nákvæmlega hvað mun fela í sér í einstökum atriðum, menn hafa þó einhverjar hugmyndir. Atkvæða- greiðslan og þróunin, að Geir skuli einn sitja uppi með þennan svar- tapétur, eiga eftir að draga talsverð- an pólitískan dilk á eftir sér fyrir stjórnmálin hérna,“ segir Birgir í samtali við DV. Aðspurður hvers vegna málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér seg- ir Birgir að það sé aðallega vegna þess að Geir er talinn bera einn mestu ábyrgðina á ríkisstjórnarsam- starfinu. „Þar sem hefur ríkt jafn- ræði með flokkum. Það er í sjálfu sér svolítið nýtt að forsætisráðherra er talinn bera svona mikla ábyrgð,“ segir Birgir. Hann segir klofið þing taka þessa ákvörðun og því fáist ekki hreinar línur. „Ef við erum að tala um upp- gjör þá er það uppgjör sem er í þoku ennþá og með flokkspólitískan undirtón. Enda sér maður það strax á viðbrögðum hvernig það er. Þetta mun þýða það að andrúmsloftið hreinsast ekki af því að munurinn er svona lítill,“ segir Birgir sem segir málið eiga eftir að eitra samstarf flokkanna á þingi. birgir@dv.is Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra, verður einn dreginn til ábyrgðar fyrir landsdómi. Jón Ólafsson heimspek- ingur telur þetta vera rökrétta niðurstöðu og að sekt Geirs blasi við. Ragnar Að- alsteinsson lögfræðingur vekur athygli á því hversu léttvægt það þótti að taka ákvörðun um að ákæra níumenningana sem trufluðu störf Alþingis meðan ákæra á hendur ráðherrunum fjórum hafi verið þingmönnum þung byrði. kRISTJANA GUÐBRANDSDÓTTIR blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is Hvernig getur það blasað betur við að maðurinn er sekur?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.