Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Blaðsíða 22
22 viðtal 29. september 2010 miðvikudagur veikindin hófust smám saman án þess að ég gerði mér grein fyrir hvað væri í gangi. Ég fann bara fyrir miklum höfuðverk, ranghugmynd- um og vanlíðan,“ segir Hrafnkell Tryggvason viðskiptafræðingur sem greindist með geð- hvarfasýki árið 1988. Hann tók veikindum sín- um ekki alvarlega og segist líklega hafa verið í afneitun í 15 ár. „Ég vissi að ég væri veikur en neitaði að um svo alvarlegan sjúkdóm væri að ræða,“ segir Hrafnkell sem á þessum tíma drakk mikið ofan í lyfin og veikindin. Missti fjölskylduna Geðhvarfasýkin hefur haft gífurleg áhrif á líf Hrafnkels. Árið 1987 fór hann í fyrsta skipti á geðdeild en tókst að blekkja geðlækna til að trúa því að ekkert amaði að. Sama ár flutti fjölskyldan til Bandaríkjanna þar sem Hrafn- kell fór í MBA-nám við Rockford College. Þegar heim var komið var ástandið á honum mjög slæmt og fjölskyldulífið og hjónaband- ið farið í hundana. „Á þessum tíma var skiln- ingurinn gagnvart geðsjúkdómum enginn. Ég var bara geðveikur alkóhólisti og vondur maður og það hefur verið erfitt að losna við þann stimpil. Það erfiðasta við þetta allt sam- an var að missa fjölskylduna en konan skilaði mér þegar ég gat ekki framfleytt þeim lengur. Ég missti allt, konuna, börnin, húsið, æruna. Þetta hvarf allt saman,“ segir Hrafnkell. Maníukast í marga mánuði Árið 1989 stofnaði hann fyrirtæki um fjár- málaráðgjöf sem gekk vel til ársins 2004. „Þrátt fyrir almenningsálitið á mér samþykktu mig einhverjir því viðskiptavinir mínir létu veikindin ekki trufla þótt einhverjir þeirra hafi látið sig hverfa eftir að ég fékk maníukast. Árið 2004 fór að halla undan fæti en það ár fóru bankarnir að bjóða öllum lán sem vildu svo viðskipti við mig gufuðu upp. Það árið fékk ég síðasta alvarlega maníukastið og var veik- ur í marga mánuði. Ég var álitinn fjárglæfra- maður, svikahrappur og spurður hvort ég ætl- aði ekki að flýja land. Ég vissi að ég hefði tvo möguleika, að láta mig hverfa undir jörðu eða láta þetta yfir mig ganga og vinna mig upp. Ég hafði samvisku yfir einu máli, ekki öðru og þess vegna var ég keikur og hélt áfram,“ seg- ir Hrafnkell sem skráði sig í nám til að hafa eitthvað fyrir stafni. „Ég lét mig hverfa inn í Háskóla Íslands og ætlaði upphaflega að taka einn kúrs en er núna að ljúka tvöföldu BA- námi, í kvikmynda- og bókmenntafræði.“ Nýrnaveikur af lithium Árið 2003 fór Hrafnkell í eftirlit hjá Hartavernd þar sem kom í ljós að kreatín í blóði hans var of hátt. „Þáverandi geðlæknir minn hafði ekki fylgst með kreatíninu sem olli því að nýrun voru orðin óstarfhæf eftir áralanga notkun lyfsins lithium. Geðlæknirinn sem ég er hjá í dag er hins vegar frábær og fylgist vel með mér,“ segir Hrafnkell sem gekkst undir nýrna- ígræðslu í Svíðþjóð fyrr á árinu. „Aðgerðin gekk vel en það er alþekkt að svona aðgerð og lyfin sem henni fylgja geta kveikt á sjúkdóm- um eins og geðhvarfasýki. Ég fór því í létta maníu í sumar en skaðaði engan. Ég komst út úr henni í ágúst og nú er allt komið í rútínu aft- ur og ég reikna með að geta lokið náminu um áramótin. Þá hef ég náð mínum markmiðum.“ Hrafnkell bætir við að vegna veikindasögu sinnar sé hann ekki bjartsýnn á að fá vinnu þrátt fyrir þrjú háskólapróf. „Það þyrfti krafta- verk svo ég fengi vinnu. Ég er orðinn fullorð- inn auk þess sem ástandið í samfélaginu er ekki glæsilegt. Svo er það þessi saga mín. Þeg- ar maður er veikur er maður hvattur til að ná tökum á maníunni og fær alla mögulega hjálp og lyf. Svo er maður hvattur til að fara í nám og eftir frábæran árangur þar stoppar allt. Það vill enginn tala við þig með þetta rugl á bakinu og það er það sárasta, þessi höfnun. Fólk hafnar manni hægri, vinstri. Fólk sem hefur umgeng- ist mig þegar ég er í lagi snýr baki við mér ef það sér mig í maníu. Segir að ég sé geggjaður og að ég eigi aldrei að láta sjá mig aftur. Ég hef alltaf verið sjálfstæður og ætla að stofna mitt eigið fyrirtæki þegar námi lýkur. Sú leið verð- ur farin.“ Geðveikir ekki ofstopamenn Flestir sjúklingar með geðhvarfasýki þjást af miklu þunglyndi og oflæti eða maníu. Í til- felli Hrafnkels er ekki um þunglyndi að ræða heldur einungis maníu. Hann segir maníu- köstin laumast að sér án þess að hann geri sér grein fyrir að hann sé að veikjast. „All- ir í kringum mig sjá að ég er í maníu en ég fer í afneitun. Manían er mismikil, frá núll og upp í tíu. Þegar hún er mest er hún hræðileg, mikil keyrsla, líkamlegir verkir, lítill svefn og dómgreindarlaust rugl. Ég fer alltaf í sömu vitleysuna og fer að spá í stefnu Bandaríkja- stjórnar. Þess vegna hef ég lokað á allar fréttir og umræðu um heimsmálin en ég var kom- inn með allar fréttastöðvarnar, CNN, Fox, Al Jaazera og hvað þetta allt heitir. Nú hef ég lát- ið loka fyrir þær en það er einmitt hluti af bat- anum – að minnka áreitið. Fólk heldur að ég sé óhæfur til að gera hlut- ina og að ég sé í maníu í 365 daga á ári. Það er alls ekki svoleiðis. Síðast var ég í maníu í sex vikur en hafði þar á undan ekki farið í man- íu í sex ár. Góði tíminn á milli verður alltaf lengri á sama tíma og manían verður styttri. Ef ég hefði ekki farið í aðgerðina í vor hefði ég kannski sloppið en sem óvirkur alkóhólisti og geðhvarfasjúklingur þoldi ég ekki álagið. Að fá nýtt nýra var þess virði að fara einu sinni í maníu. Þetta var bara fórnarkostnaður,“ seg- ir hann og bætir við að margir óttist hann í maníu. „Karakterinn breytist, andlitið verður mjög slétt og stíft. Maður talar hratt og hreyf- ingarnar eru hraðar. Það er ekkert skrítið að þeir sem eru óvanir að umgangast geðsjúk- linga verði hræddir. En ég er ekki að fara að gera neinum neitt og hef ekki ráðist á neinn í áratugi eða lent í slagsmálum. Það er bara ekki rétt að allir geðveikir séu ofstopamenn. Það eru einfaldlega fordómar.“ Geðveiki alls ekki endalokin Hrafnkell Tryggvason greindist með geðhvarfasýki árið 1988. Hann segir veikindin hafa haft mikil áhrif á líf hans. Hann hafi verið stimplaður geðveikur alkó- hólisti og vondur maður og misst allt sem skipti hann máli. Í dag lifir Hrafnkell með sjúkdómi sínum. Hann er að ljúka sínu þriðja háskólaprófi og stefnir á að stofna eigið fyrirtæki þegar námi lýkur. Missti fjölskylduna Hrafnkell segir höfnun- ina sem hann upplifir vegna sjúkdóms síns það erfiðasta. Konan skildi við hann þegar hann greindist og börnin tala ekki við hann. Hann segir vonlaust að ætla að fá sér vinnu þar sem enginn vilji ráða mann sem hafi sögu um geðsjúkdóm á bakinu. MyNd SiGTryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.