Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Qupperneq 8
8 fréttir 29. september 2010 miðvikudagur Fjórtán ára á rúntinum Sumir virðast vera ansi óþreyjufull- ir þegar bílprófið er annars vegar. Lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu barst um helgina tilkynning um fjórtán ára pilt sem var á rúntinum í Hafnarfirði. Kauði var kominn til síns heima áður en lögreglan náði til hans og hafði þá skilað bæði bílnum og sjálfum sér heilum á húfi. Betur fór því en á horfðist enda uppátækið stórhættulegt, að því er fram kem- ur í dagbók lögreglu. Pilturinn fékk orð í eyra og sömuleiðis jafnaldri hans sem var með í för. Sá yfirgaf bílinn þegar rúnturinn stóð sem hæst en viðkomandi var handsam- aður þar sem hann reyndi að fela sig í húsagarði. Verðmæti eigna Kaupþings eykst Verðmæti eigna Kaupþings banka jókst að raunvirði um 119 milljarða króna, eða um fimmtán prósent, á fyrri helmingi ársins 2010. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum sem skilanefnd Kaupþings hefur birt í kröfuhafaskýrslu sinni. Nafnvirði heildareigna Kaup- þings nam 2.650 milljörðum króna í lok árshelmingsins en óveðsett- ar eignir bankans eru metnar á 833 milljarða. Þóknanatekjur af lánasafni bankans námu rúmum 800 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þær tekjur standa straum af nær öllum rekstrarkostn- aði Kaupþings utan aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, það er launum, húsaleigu og öðrum kostnaði. Þókn- anatekjur árið 2009 voru um 1.300 milljónir króna. Heildarkostnaður við rekstur Kaupþings banka á fyrstu sex mánuðum ársins var 3,7 millj- arðar króna Lögreglan á Akranesi lagði hald á virka handsprengju á föstudaginn í síðustu viku, sem 18 ára dreng- ur í bænum hafði í bakpoka sín- um. Samkvæmt lögreglu hafði hann verið að sýna félögum sínum sprengjuna skömmu áður. Lögregl- an telur að drengurinn hafi ekki vit- að að sprengjan væri virk og þar af leiðandi stórhættuleg. Hann hafi því verið að fíflast með sprengjuna með félögum sínum. Talið er að sprengjan hafi verið stofustáss í hillu á heimili fjölskyldu í bænum áratugum sam- an. „Kjánagangur,“ segir varðstjóri lögreglunnar, um ástæður þess að drengurinn var með handsprengjuna á sér. Sprengjusérfræðingar Land- helgisgæslunnar voru kallaðir til og gerðu handsprengjuna óvirka. Upp komst um málið þegar ungl- ingur í bænum kom inn á lögreglu- stöðina og sagði frá því að annar unglingur í bænum væri með hand- sprengju á sér sem hann væri að sýna öðrum ungmennum. Lögreglan fór í kjölfarið og tók sprengjuna af drengn- um sem sýndi mikinn samstarfsvilja. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvernig virk handsprengja komst í hendur fjölskyldufólks á Akranesi, en vitað er að hún er bandarísk. Vitað er að bandaríska varnarliðið hélt vopn- aðar heræfingar um allt land á árum áður og ekki er útilokað að hand- sprengjan hafi ratað inn á heimilið í tengslum við þær. Áður hafa fundist virkar handsprengjur á víðavangi á svæðum sem varnarliðið æfði á, sam- kvæmt upplýsingum frá Landhelgis- gæslunni. Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl- unnar, segir heppni að sprengjan skyldi ekki hafa orðið fyrir hnjaski öll þau ár sem hún var inni á heimilinu á Akranesi. „Lögreglan á Akranesi ósk- aði eftir því að sprengjusérfræðing- ar kæmu á staðinn til þess að skoða sprengjuna. Hún var gerð örugg til flutninga á lögreglustöðinni og síð- an fluttu þeir hana á stað í nágrenni Akraness til eyðileggingar,“ segir Hrafnhildur. Lögreglan á Akranesi segir að málinu verði fylgt eftir sem broti á vopnalögum, enda er handsprengju- eign ólögleg hér á landi. valgeir@dv.is Landhelgisgæslan gerði handsprengju á Akranesi óvirka: 18 ára með handsprengju Handsprengja Virk bandarísk hand- sprengja var notuð sem stofustáss á heimili á Akranesi áratugum saman. Guðmundur Hauksson, þáverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis, keypi stofnfjár- bréf í sjóðnum í nafni látinnar móð- ur sinnar í maí árið 2005, samkvæmt heimildum DV. Móðir Guðmundar, Ragnhildur Guðmundsdóttir, átti bréf í sparisjóðnum þegar hún lést snemma árs 2004. Í maí 2005 var svo keypt stofnfé í hennar nafni í stofn- fjárútboði sem þá fór fram. Heim- ildir DV herma að starfsmönnum sparisjóðsins hafi gengið nokkuð erfiðlega að ganga frá kaupunum á bréfunum á kennitölu Ragnhildar og að þeir hafi furðað sig á viðskiptun- um. Slík viðskipti í nafni látins aðila geta verið fullkomlega lögleg ef þau eru gerð í nafni dánarbús viðkom- andi, og þar af leiðandi á kennitölu hans, áður en skiptum í dánarbú- inu lýkur. Þegar einstaklingur fellur frá flytjast eignir og réttindi viðkom- andi yfir í dánarbú hans, þar með talin réttindi til að taka þátt í stofn- fjárútboðum vegna stofnfjáreignar einstaklingsins. Réttindin sem fylgja stofnfjáreign viðkomandi kennitölu eru hins vegar bundin við að við- skiptin fari fram á meðan dánarbúið er ennþá til og skipti hafa ekki farið fram á því. Eftir að skiptum úr dánar- búinu lýkur fellur úr gildi sú heimild sem búið hafði til að stunda viðskipti í nafni hins látna. Kæra í farvatninu Heimildir DV herma að kæra sé í far- vatninu þar sem Fjármálaeftirlitinu verði bent á að athuga þessi viðskipti og hvort þau hafi verið eðlileg. Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra hefur rannsakað viðskipti stjórnar- og ráðamanna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis með stofn- fjárbréf í sparisjóðnum um sumarið 2007. Þar á meðal eru viðskipti eig- inkonu Guðmundar, Áslaugar Bjarg- ar Viggósdóttur, með stofnfjárbréf á þessum tíma en hún seldi þá 10 milljón hluti í sparisjóðnum. Nokkr- um mánuðum síðar hrundu bréf- in í verði eftir að sparisjóðurinn var skráður á markað sem hlutafélag og þeir aðilar sem keyptu bréfin töpuðu á fjárfestingu sinni. Rannsókn embættisins beinist meðal annars að því að athuga hvort því hafi verið haldi leyndu fyrir kaupendum bréfanna að tengdir að- ilar hafi selt bréfin og eins hvort þeir stjórnendur sem seldu bréfin hafi haft betri vitneskju um stöðu spari- sjóðsins og þess vegna hafi þeir selt með það fyrir augum að græða. Heimildir DV herma að nú styttist í niðurstöðu hjá embættinu í þessari rannsókn en afar erfitt getur verið að sanna að stjórnendur sparisjóðsins hafi misnotað aðstöðu sína í málinu. Staðfestir ekki kaupin Guðmundur Hauksson vill ekki stað- festa að bréfin í stofnfjárútboðinu 2005 hafi verið keypt í nafni móður hans en staðfestir að hann hafi eign- ast þau bréf sem hún átti. „Þegar móðir mín lést þá gengu þessi bréf yfir til mín og þar með áskriftarrétt- ur,“ segir Guðmundur en stofnfjár- eigendur hafa almennt séð rétt á að bæta við sig hlutum í stofnfjárút- boðum í ljósi þess að þeir eiga bréf í sparisjóðunum. Guðmundur segir að þetta hafi þó ekki átt við í þessu stofnfjárútboði þar sem það hafi einnig verið opið öðrum fjárfest- um. Stofnfjáreign í sparisjóðnum var því ekki skilyrði samkvæmt því sem Guðmundur segir. Aðspurður hvort bréf móður hans hafi verið orðin hans eign þegar stofnfjárútboðið fór fram segir Guð- mundur. „Ég man ekki hvort þau voru komin yfir á mitt nafn eða ekki og sé ekki að það skipti máli. Ég man ekki alveg hvernig þetta gekk fyrir sig, hvenær nafnbreytingin var gerð,“ segir Guðmundur. Því liggur ekki ljóst fyrir hvort dánarbú móður Guðmundar keypti bréfin eða hvort búið var að ganga frá skiptum á búinu þegar það var gert. KEYPTI STOFNFÉ Í NAFNI MÓÐUR SINNAR Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, eign- aðist bréf í sjóðnum sem höfðu áður verið í eigu móður hans. Keypt var stofnfé í nafni móður Guðmundar eftir að hún lést. Heimild er fyrir því að stunda slík viðskipti meðan gengið er frá skiptum í dánarbúi. Guðmundur getur ekki svarað hvort slíkt hafi verið raunin í þessu tilfelli. Kæra vegna málsins er í farvatninu samkvæmt heimildum DV. inGi f. vilHjálmSSon fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Ég man ekki hvort þau voru komin yfir á mitt nafn eða ekki og sé ekki að það skipti máli. Heimildir DV herma að kæra sé í farvatninu. móðir hans og eiginkona stofnfjáreigendur Bæði móðir Guðmundar Haukssonar sparisjóðsstjóra og eiginkona hans áttu stofnfjárbréf í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Keypt voru stofnfjárbréf í nafni móður Guðmundar eftir að hún lést. Sterar og dóp í Breiðholti Fíkniefni fundust við húsleit í fjöl- býlishúsi í Breiðholti á föstudag. Um var að ræða nokkur hundruð grömm af marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á stera og tölu- vert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefna- sölu. Húsráðandi, karl á þrítugs- aldri, var handtekinn í þágu rann- sóknarinnar en hann hefur játað að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og telst málið upplýst. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lög- reglu. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði. Aðgerðin er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna, en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkni- efnamál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.