Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Qupperneq 17
miðvikudagur 29. september 2010 erlent 17
Dmitry Medvedev, forseti Rúss-
lands, rak óvænt Yuri Luzhkov, borg-
arstjóra Moskvu, á þriðjudaginn.
Hann er valdamikill andstæðingur
forsetans sem gagnrýndi stjórnvöld
í Kreml og neitaði svo að segja af sér.
Luzhkov hefur stjórnað Moskvu
frá 1992 og er einn valdamesti
stjórnmálamaður Rússlands. Hann
reitti Medvedev til reiði með því að
leggja til að landið þyrfti á sterk-
ari og ákveðnari leiðtoga að halda
– og þótti þannig beina jákvæðum
straumum til Valdimírs Pútín for-
sætisráðherra.
Luzhkov er frægur fyrir að bera
pottlok sem algengt er innan verka-
mannastéttarinnar. Hann er gríð-
arlega vinsæll hjá alþýðufólki, sér í
lagi fyrir að leggja áherslu á velferð-
arþjónustu og háan ellilífeyri. Hann
hefur þó oft verið sakaður um spill-
ingu, sérstaklega í tengslum við um-
svif eiginkonu sinnar sem er vell-
auðug.
Stjórnmálaskýrendur segja deil-
ur þessara valdamiklu manna vera
prófsteinn á sjálfstæði Medvedevs
sem margir telja að muni þurfa að
víkja fyrir Vladimír Pútín eftir for-
setakosningarnar árið 2012.
Medvedev, sem er staddur í op-
inberri heimsókn í Kína, lýsti því
yfir að Luzhkov væri á förum í sjón-
varpsviðtali. Sagt er að borgarstjór-
inn hafi þá fyrst frétt af brottrekstr-
inum.
„Sem forseti Rússlands hef ég
glatað trausti mínu til Yuris Mikhai-
lovich Luzhkov sem borgarstjóra
Mosvku. Ég mun ákveða hver stýrir
Moskvu,“ sagði Medvedev við blaða-
menn í Sjanghæ.
helgihrafn@dv.is
Medvedev reiður:
Rak borgarstjóra Moskvu
LoðfíLabein í
stað fíLabeins
KRÓnPRinsinn VaLinn
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur að mati sérfræðinga
valið son sinn Kim Jong-un sem eftirmann sinn með því að skipa
hann hershöfðingja. Hann er 27 ára, menntaður í Sviss og hefur
aldrei gegnt herþjónustu.
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu,
hefur skipað son sinn Kim Jong-un
hershöfðingja og þykir stöðuhækk-
unin sterk vísbending um það sem
lengi hefur verið talið líklegt, að son-
urinn muni leysa föður sinn af hólmi
þegar hann stígur til hliðar. Flokks-
þing norðurkóreska Verkamanna-
flokksins hófst á mánudag og var
þetta meðal þeirra fregna sem borist
hafa af því.
Kim Jong-il, sem orðinn er 68
ára gamall, er sagður við afar slæma
heilsu eftir að hafa fengið heilablóð-
fall árið 2008. Hann tók við af föður
sínum Kim Il-Sung heitnum, sem
titlaður er „eilífðarforseti“ landsins.
Menntaður í Sviss
Sky-fréttstofan segir heimildir sömu-
leiðs herma að Kim Jong-il hafi gert
systur sína að hershöfðingja. Flokks-
þingið er sjaldgæfur atburður og það
sem nú stendur yfir sagt það stærsta
í 30 ár. Kim Jong-il var endurkjörinn
í embætti þjóðarleiðtoga á þinginu
samkvæmt fréttum ríkisfjölmiðla í
kommúnistaríkinu.
Kim Jong-un er orðinn hershöfð-
ingi þrátt fyrir að hafa aldrei sinnt
herþjónustu. Hann hlaut mennt-
un í Sviss en lítið annað er vitað um
hann. Óljóst er hversu gamall Kim
Jong-un er en hann er sagður vera á
þrítugsaldri, líklega fæddur 1982 eða
1983. Hann er talinn hafa skotið eldri
bræðrum sínum tveimur ref fyrir rass
í kapphlaupinu stöðu föður þeirra,
sem sjálfur tók við embættinu úr
hendi afa þeirra, en Kim Il-sung, sem
lést árið 1994, stofnaði kommúnista-
ríkið og stjórnaði því til dauðadags.
Krónprinsinn valinn
Kim Jong-il fékk heilablóðfall fyrir
tveimur árum. Hann fór í læknis-
meðferð til Kína, en ekkert hefur
þó verið gefið upp um hvernig til
tókst. Yfirvöld í Pyongyang, höfuð-
borg Norður-Kóreu, hafa ekkert vilj-
að segja um heilsufar leiðtogans og
sömu sögu er að segja um kínversk
stjórnvöld. Í frétt ríkissjónvarpsins
í Norður-Kóreu var aðeins sagt frá
því að Kim Jong-il hefði verið endur-
kjörinn og honum hefði verið fagnað
með dynjandi lófataki.
„Sonurinn verður krónprinsinn.
Staðfest. Það leikur enginn vafi á
því,“ sagði dr. Kongdan Oh, sérfræð-
ingur í málefnum Norður-Kóreu hjá
Brookings-stofnuninni í Washington
í samtali við breska blaðið Guardian.
En hún bætti við: „Faðir hans hef-
ur sveipað soninn dýrðarljóma – en
spurningin er hvað gerist þegar Kim
Jong-il deyr. Það verður áhugavert.“
Eilífðarforsetans minnst
Sjónvarpsstöðvar í Norður-Kóreu
sýndu hátíðahöld í Pyongyang sem
skreytt var með fánum og skiltum í
tilefni flokksþingsins. Fundarmenn
mættu sumir í jakkafötum en aðrir í
herbúningum.
Fundargestir gengu til Kumsu-
san-minningarhallarinnar á mánu-
daginn og minntust Kim Il-sung
stofnanda Norður-Kóreu og föður
Kim Jong-il.
Í valdatíð Kim Jong-il hefur enn
aukist á einangrun landsins og hefur
landið misst nær öll tengsl við um-
heiminn. Hann hefur skapað algjör-
an átrúnað á sig og fjölskyldu sína
á meðan hagkerfi Norður-Kóreu er
í lamasessi og þjóðin þjáist vegna
matar- og vöruskorts.
Faðir hans hefur sveipað soninn
dýrðarljóma – en spurn-
ingin er hvað gerist þeg-
ar Kim Jong-il deyr. Það
verður áhugavert.
hElgi hrafn guðMundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
rekinn Borgarstjórinní
Moskvu,YuriLuzhkov,var
rekinnáþriðjudaginn.Hann
hefurstýrtMoskvufrá1992.
MYnd rEuTErS
skriðjökull af rusli
Ruslafjallið sem hér sést er að finna
á strönd þriðju stærstu borgar Líb-
anon, Sidon, og hefur til fjölda ára
verið þyrnir í augum umhverfis-
verndarsinna og nágrannalanda
Líbanon. Haugurinn, sem líkist
einna helst skriðjökli af rusli þar
sem hann gnæfir allt að 20 metra
yfir Miðjarðarhafinu, hefur ítrekað
hrunið að hluta til út í hafið. Rusla-
eyjunum hefur þá skolað að strönd-
um nágrannalanda og hafa yfirvöld
Kýpur, Sýrlands og Tyrklands kvart-
að sáran yfir sóðaskapnum.
Ruslahaugurinn stendur nærri
skólum, sjúkrahúsum og íbúðar-
húsnæði í Sidon. Hann ógnar heilsu
rúmlega 200 þúsund íbúa borgar-
innar, sjávarlífi og lífsviðurværi fiski-
manna. Á myndinni hér að ofan sem
Reuters-fréttastofan birti sést ein-
mitt sjómaður að störfum við rusla-
hauginn sem yfirvöld virðast ekkert
vera á þeim buxunum að láta hverfa.
trúleysingjar fróð-
ari um trúarbrögð
Það fólk sem veit hvað mest um
trúmál trúir ekki á neitt. Í nýlegri
könnun sem framkvæmd var í
Bandaríkjunum kom þetta í ljós. Þeir
sem heitast trúðu vissu áberandi
minnst um trúmál.
„Þetta er fólkið sem hugsaði mik-
ið um trúna,“ segir einn þeirra sem
framkvæmdi könnunina um trúleys-
ingjana. „Trúleysingjarnir voru líka
almennt vel menntaðir.“ Hann segir
að líklegasta skýringin á þessu sé að
þeir einstaklingar sem hefðu tek-
ið ákvörðun um að fylgja engri trú
hefðu kynnt sér málin betur en aðrir.
Gyðingar og mormónar voru þeir
trúarhópar sem vissu mest um trú
af þeim sem teknir voru fyrir í könn-
uninni. Könnunin náði ekki til mús-
líma og hindúa.
Krónprinsinn Suður-Kóreu-
mennhorfaásjónvarpsskjá
semsýnirandlitKim
Jong-un,yngstasonarKim
Jong-Il,leiðtogalandsins.
Flestbendirtilþessað
honumséætlaðaðtakavið
embættiföðursíns.
MYnd rEuTErS