Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2010, Qupperneq 19
VÍÐIR SMÁRI PETERSEN er tuttugu og eins árs laganemi og klarínettuleik- ari sem nýverið tók sæti á Alþingi yngstur allra sem hafa þar áður setið. Hann segir það vera mikinn heiður að vera á Alþingi og ber mikla virðingu fyrir Ronald Reagan. LANGAÐI AÐ VERA JÓN SIGURÐSON Fasískir femínistar Deilan um úthlutun fiskveiðiauð- lindarinnar hefur lengi verið afar snúin. Ekki vegna þess að málið sé flókið í eðli sínu, heldur vegna þess að það er viljandi flækt af hagsmuna- aðilum og skósveinum þeirra. Nú heyrast háværar öfugmælavísur úr líklegustu og ólíklegustu áttum varð- andi hina svokölluðu samningaleið, sem eðlilegra væri að kalla svikaleið- ina. Björn Valur Gíslason, þingmað- ur og skipstjóri hjá Brimi hf., hélt því fram í Kastljósi sjónvarpsins þann 10. september að samningaleiðin falli „eins og flís við rass“ að mark- miðum ríkisstjórnarinnar. Það gerir hún ekki, en fellur hins vegar vel að markmiðum vinnuveitanda hans, Brims hf. Málflutningur Björns Vals hefur enga tengingu við raunveru- leikann, líkt og sjá má á samstarfs- sáttmála ríkisstjórnarflokkanna þar sem meðal annars stendur: „Bregðast þarf frekar við áliti Mannréttindanefndar Samein- uðu þjóðanna, m.a. með því að gæta atvinnufrelsis og að tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlut- un afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind.“ Úthlutað til sömu aðila Hvernig getur sú ráðstöfun að út- hluta sameiginlegri auðlind í hendur afmarkaðs hóps til áratuga fallið eins og flís við rass að þeim skýru mark- miðum um að jafnræðis verði gætt við úthlutun og kvóta og aðgengi að auðlindinni? Menn sem halda slíku fram hljóta annað hvort að vera flón, eða trúa því staðfastlega að mikill meirihluti landsmanna séu það. Þeir halda sig geta haft þjóðina að fíflum og rænt dýrmætustu auðlind henn- ar um hábjartan dag með lélegum sjónhverfingum. Kvótinn er jú „inn- kallaður“ en er svo úthlutað aftur um leið, en til sömu aðila með samning- um til áratuga! Þessir menn virðast telja að það sé nægjanlegt að þjóðin fái afgjald fyrir notkun á auðlindinni, með því séu kröfur mannréttindanefnd- ar SÞ uppfylltar, jafnvel þó afgjaldið sé háð því að útgerðirnar sýni fram á greiðslugetu sína. Það munu þær hins vegar seint gera, enda munu þær halda áfram að skuldsetja sig upp í botn til að komast undan gjald- inu. Þeir munu síðan bíða þolinmóð- ir eftir því að verndarar þeirra komist aftur til valda. Þegar það gerist munu þeir vera með öll tromp á hendi, ör- ugga samninga um einkarétt á nýt- ingu auðlindarinnar til áratuga. Sviksamlegir samningar Hvað eftir annað hefur komið fram í viðtölum við fulltrúa stjórnmála- flokkanna í svikanefndinni að kýrskýrt loforð stjórnarsáttmálans sem fjallar um innköllun og endur- ráðstöfun á 20 ára tímabili muni ekki verða efnt, enda var það sett í hendur LÍÚ að ákveða hvort þeir væru reiðu- búnir að skila þessum forréttindum til fólksins í landinu. Nefndin ákvað upp á sitt einsdæmi að falla frá lof- orði ríkisstjórnarsáttmálans og fjall- aði því ekki um það hvernig þessi innköllun ætti að fara fram, heldur hvernig ætti að tryggja að hún gæti aldrei farið fram. Það verður tryggt með sviksamlegum samningum við útgerðirnar. Vernda forréttindi Kröfur stjórnarskrárinnar um jafn- ræði við takmörkun á atvinnufrelsi hafa heldur enga merkingu í hug- um þessara manna. Þeir telja nefni- lega að það dugi að kasta litlu beini í almúgann og éta svo steikina sjálf- ir. Það hyggjast þeir gera með því að afhenda að lágmarki 90 prósent auð- lindarinnar núverandi kvótahöfum með samningum til áratuga, í stað eins árs í senn eins og nú er. Jafnræð- is við takmörkun á atvinnufrelsi telja þeir að sé gætt með því að afgangur þjóðarinnar nagi beinið, þessi 5–10 prósent sem eftir standa, líkt og nú er. LÍÚ og skósveinar þeirra í „sátta- nefndinni“ hafa kveðið upp sinn dóm. Að hámarki 10 prósent jafnræði við úthlutun sameiginlegra auðlinda verður að duga Íslendingum, há- markið á Íslandi er 10 prósent mann- réttindi svo vernda megi þeirra eigin forréttindi. Sérhagsmunaöflin hafa því bersýnilega vald til að ákvarða hvort almennir borgarar þessa lands fái notið þeirra mannréttinda sem þeim annars ættu að vera tryggð samkvæmt stjórnarskrá og alþjóð- legum mannréttindasáttmálum. Slíkt þekkist hvergi í heiminum nema í löndum kenndum við banana. Þórður Már Jónsson er formaður Þjóðareignar, samtaka um auðlind- ir í almannaþágu. Finnbogi Vikar er fulltrúi Hreyfingarinnar í endurskoð- unarnefnd um stjórnun fiskveiða. 10% mannréttindi, 90% forréttindi 1 SKRIÐJÖKULL AF RUSLI GNÆFIR YFIR MIÐJARÐARHAFI Risastór haugur af rusli er við strönd einnar stærstu borgar Líbanons. 2 PETER JACKSON: ÉG FER ÞÁ BARA FRÁ NÝJA SJÁLANDI Leik- stjórinn er ósáttur við stéttarfélag kvikmyndaframleiðenda. 3 „HRÆSNI Í GANGI HJÁ ÍS-LENSKRI ÞJÓГ Bjarni Karlsson segir að Íslendingar séu fullir af hræsni í garð fátækra. 4 MEXÍKÓSKUR BÆJARSTJÓRI GRÝTTUR TIL BANA Morðið er talið tengjast átökum fíkniefnagengja. 5 SÆGREIFAR OG ARKITEKT HRUNSINS BANNA FÓLKI EKKI AÐ GREIÐA ATKVÆÐI Utanríkis- ráðherra um að, samkvæmt könnun, vilji fleiri halda ESB-viðræðum áfram. 6 EIRÍKUR JÓNSSON REKINN: „NO KOMMENT“ Eiríki Jónssyni, ritstjóra Séð og heyrt, var sagt upp störfum. 7 HALLARBYLTING Í VG Í REYKJA-VÍK Andstæðingar ESB gerðu hallar- byltingu á aðalfundi félagsins á mánudag. MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN Hver er maðurinn? „Víðir Már Petersen laganemi við HÍ, lögmaður á lögmanns- stofunni Lex og klarínettuleikari.“ Hvað drífur þig áfram? „Að gera það sem mér finnst skemmtilegt.“ Hver eru helstu áhugamálin? „Þau eru tónlist og pólitík og bara almenn gleði.“ Hvar ertu uppalinn? „Ég bjó fyrstu tvö ár ævi minnar í Reykjavík, en ólst svo að mestu leyti upp í Kópavogi.“ Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? „Ég ætlaði að verða bakarameistari þegar ég var mjög ungur, en seinna langaði mig mikið að vera Jón Sigurðsson.“ Hvaða tilfinning fylgir því að vera sestur á Alþingi aðeins 21 árs? „Þetta er mjög mikill heiður og mjög krefjandi, en ég er bara nokkuð sáttur.“ Hvaða stjórnmálamanni berð þú mesta virðingu fyrir? „Sterkustu stjórn- málamennirnir myndu að mínu mati vera Ronald Reagan og Winston Churchill.“ Hvaða eiginleika þarf góður stjórn- málamaður að hafa? „Trúverðugleika, heiðarleika, sannfæringu og hugsjónir.“ Hvaða málefnum vilt þú helst beita þér fyrir sem stjórnmálamaður? „Því miður fæ ég bara vera í nokkra daga á þingi, en ef ég hefði lengri tíma þá væri það helst atvinnu- og skattamál. Það að þegar ungt fólk kemur úr Háskóla hafi það atvinnu og hafa skattkerfið þannig að hægt sé að búa hérna án þess að þurfa sjá eftir stærstum hluta launanna í skatt.“ Hvar sérðu sjálfan þig eftir 10 ár? „Í góðri vinnu með börn og fjölskyldu, kannski búinn að fara til útlanda að læra eitthvað og ennþá að spila á klarínettu.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Atvinna og nýsköpun.“ MAÐUR DAGSINS KJALLARI „Já.“ ARNAR ÞÓR KRISTINSSON 22 ÁRA, MYNDLISTARNEMI „Já, núna þegar ég gekk í gegnum miðbæinn.“ LOGI KARLSSON 29 ÁRA, FYRIRSÆTA „Já, ég varð var við fátækt rétt í þessu.“ HARALDUR KARLSSON 18 ÁRA, ÞJÁLFARI „Já.“ RAGNHEIÐUR EYJÓLFSDÓTTIR 67 ÁRA, LÍFEYRISÞEGI „Já, en þó minna en ég bjóst við.“ SIGRÍÐUR A. STEFÁNSDÓTTIR 54 ÁRA, STARFSMAÐUR Á LEIKSKÓLA VERÐUR ÞÚ VAR/VÖR VIÐ FÁTÆKT Á ÍSLANDI? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR MIÐVIKUDAGUR 29. september 2010 UMRÆÐA 19 Öllum sinnt Allt fór vel þegar tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að fjölbýlishúsi við Hátún í fyrradag. Þessi reykkafari í fullum klæðum gat því gefið sér nokkrar mínútur til þess að ræða við yngstu kynslóðina á svæðinu. MYND SIGTRYGGUR FINNBOGI VIKAR skrifar ÞÓRÐUR MÁR JÓNSSON skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.