Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 19. janúar 2011 Miðvikudagur Neytendasamtökin gera athugasemd við fréttaflutning: Sáttavilji fyrirtækja mikilvægur Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is AIR-O-SWISS rakatækin Bæta rakastig og vinna gegn: • Slappleika og þreytu • Höfuðverkjum • Augnþurrki • Astma Auka vellíðan og afköst Verð 23.950 kr. Aðalmeðferð í máli níumenning- anna: Glefsaði í löggu í ofsahræðslu „Ég flaug inn á vængjum ástarinnar,“ sagði Jón Benedikt Hólm, einn níu- menninganna sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi og fleiri sakir þann 8. desember 2008. Við vitnaleiðsl- ur við aðalmeðferð málsins voru sakborningarnir spurðir af saksókn- ara hvernig þeir hefðu komist inn í bygginguna. Jón Benedikt bætti síðan við, eftir að svör hans höfðu vakið kátínu viðstaddra í réttarsal, að vissulega hefði hann bara gengið inn í þinghúsið. Aðalmeðferð í máli þeirra níu sem ákærðir eru fór fram á þriðju- dagsmorgun. Níumenningarnir báru vitni fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur og var fjölmenni í salnum. Nokkrir sakborninganna neituðu alfarið að tjá sig um spurningar ákæruvaldsins. Nær öll voru þau sammála um að þau teldu sig ekki hafa verið í heim- ildarleysi í þinghúsinu þennan ör- lagaríka dag. Ekkert þeirra kannaðist við að hafa heyrt eða séð einhverja tilkynningu þess efnis að þingpöll- um væri lokað þegar þau fóru þar um. Enginn sakborninganna kvaðst hafa beitt ofbeldi gagnvart lögreglu eða þingvörðum heldur hafi þeir frekar sætt ofbeldi lögreglu. Nær allir voru sakborningarnir því sammála að þeir hafi ekki verið upplýstir um hverjar sakargiftir væru þegar þeir voru handteknir og færðir til yfir- heyrslu hjá lögreglu. Andra Leó Lemarquis er gefið að sök að hafa bitið lögreglumann í höndina og bitið lögreglukonu í öxlina. Andri Leó vildi ekki kann- ast við að hafa bitið en hann kunni að hafa glefsað frá sér. Þar hafi verið um ofsahræðsluviðbrögð að ræða. Lögreglumaðurinn hafi gripið um andlit hans þegar hann hugðist að- stoða unga stúlku sem vildi komast út vegna innilokunarkenndar. Hann sakaði lögreglumanninn um að hafa hrint sér á andlitið niður stigann og þar hafi lögreglukona, að honum sýndist,sparkað á eftir honum með það fyrir augum að koma honum niður stigann. Sakborningarnir neituðu því aðspurðir að hafa verið vopnaðir og fæstir könnuðust við fyrirmæli þingvarða eða lögreglumanna um að fara ekki upp á þingpallana eða að yfirgefa svæðið. mikael@dv.is n Ríkisstjórnin velur aðila sem þurfa ekki að greiða áfengisgjald n Borga 3.352 krónum minna fyrir vodkaflösku en almenningur n „Eðli- legt þótti að biskup hefði sömu heimildir og ráðherra til kaupa á víni.“ Guðaveigar fást á sérkjörum fyrir út- valda hjá Áfengis- og tóbaksversl- un ríkisins, en í lögum um gjald af áfengi og tóbaki segir meðal annars að áfengisgjald skuli fellt niður eða endurgreitt við innflutning og sölu áfengis til aðila sem njóta skattfrels- is hér á landi samkvæmt alþjóða- samningum og aðila sem ríkisstjórn- in ákveður. Þeirra á meðal er Biskupsstofa, sem fékk árið 1990 heimild frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu til að kaupa vín á svokölluðum ráðherra- kjörum. Ragnhildur Benediktsdótt- ir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, segir að það hafi komið til vegna þess að: „Biskupsstofa er að hluta opinber stofnun og eðlilegt þótti að biskup hefði sömu heimildir og ráðherra til kaupa á víni hjá ÁTVR.“ Þar með þarf Biskupsstofa ekki að greiða áfengisgjald, sem ræðst annars af styrk alkóhóls, og getur því fengið áfengi á mun betri kjörum en almennir borgarar. Áfengisgjaldið ræðst af styrk alkóhóls Eins og fyrr segir þá ræðst áfengis- gjaldið af styrk alkóhóls þannig að áfengisgjald af rauðvíni sem inni- heldur 13 prósent alkóhól er lægra en af rauðvíni þar sem alkóhólinnihald- ið er 14 prósent. Samkvæmt lögum leggjast 86,90 krónur ofan á hvern sentilítra umfram 2,25 sentilítra á verð með virðisauka þegar um er að ræða öl eða blöndu af öli og áfengum drykk. Ofan á verð með virðisauka á víni og gerjuðum drykkjarvörum leggjast 78,15 krónur ofan á hvern sentilítra umfram 2,25 sentiltítra svo fremi sem alkóhólmagnið sé undir 15 prósentum. Ofan á verð með virð- isauka á öðru áfengi leggjast 101,74 krónur á hvern sentilítra. Árshátíð í vændum Nú er áætlað að halda árshátíð Bisk- upsstofu í febrúarlok og er ætlunin að gera eitthvað kreppuvænt líkt og í fyrra. Þá bauð Biskupsstofa engu að síður upp á vínið, en starfsmannafé- lagið greiddi niður matinn þó að hver starfsmaður hafi samt sem áður þurft að greiða lága upphæð fyrir kvöldið, eins og gengur. Starfsmenn greiddu 2.000 krónur en makar 3.000 krónur. Árshátíðin var haldin 6. mars 2010 í Garðaholti, sem kvenfélag Garða- bæjar rekur. „Í boði voru tveir pott- réttir frá Múlakaffi, annar kjúklinga en hinn lamba og með þeim voru borin fram hrísgrjón svo og salat. Í desert voru franskar súkkulaðikökur sem starfsfólkið bakaði sjálft. Í for- drykk var freyðivín og hvítt og rautt með mat,“ segir Ragnhildur. Prestar drukku í boði Biskupsstofu Síðast keypti Biskupsstofa vín í nóv- ember og þá fyrir móttöku í Bisk- upsgarði sem haldin var í lok kirkju- þings. Gestir voru um sextíu talsins og flestir þeirra kirkjuþingsmenn. Keyptar voru um fjörutíu flöskur af léttu víni fyrir boðið. Þess má geta að fjárveiting- ar ríkisins til Biskupsstofu árið 2010 námu rúmum 1.400 milljónum króna samkvæmt fjárlögum. Var þessum fjár- munum ætlað að greiða rekstur Þjóðkirkjunnar, laun biskups, presta og annarra starfsmanna Þjóðkirkjunnar. Borga mun minna en almenningur Tökum dæmi: Rauð- vín kostar 1.799 krón- ur í verslunum ÁTVR. Biskupsstofa og aðrir sem þurfa ekki að borga áfengisgjald- ið fá rauðvín- ið aftur á móti á 971 krónu. Mismunur- inn á verðinu sem Biskups- stofa greiðir fyrir flöskuna og hinn al- menni borgari er því 828 krón- ur. Verðmunur- inn eykst ef um sterkara vín er að ræða. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Biskupsstofa er að hluta opinber stofnun og eðlilegt þótti að biskup hefði sömu heimildir og ráðherra til kaupa á víni hjá ÁTVR. Guðaveigar á sérkjörum Verð með vsk. og áfengisgj. Áfengisgjald Verð með vsk. Rauðvín 1.799 kr. 828 kr. 971 kr. Bjór 319 kr. 150 kr. 169 kr. Vodka 4.699 kr. 3.352 kr. 1.347 kr. Koníak 8.299 kr. 3.575 kr. 4.724 kr. Sérkjör Biskupsstofu miðað við almennt verð Heimild frá ríkinu Lög heimila ríkinu að velja þá sem fá áfengis- gjöldin niðurgreidd. Biskupsstofa er þar á meðal og fær vín því á mun betri kjörum en almennir borgarar. Neytendasamtökin gera athuga- semd við frétt sem birtist í blaðinu á mánudaginn var og bar yfirsögnina „Leynd yfir svörum lista.“ Þar segir frá árlegri skýrslu Neytendasamtak- anna þar sem teknar eru saman upp- lýsingar um fyrirspurnir og kvartan- ir neytenda. DV óskaði upplýsinga um hvaða fyrirtæki væru þar efst á lista yfir kvartanir en þau svör feng- ust að slíkar upplýsingar væru ekki uppgefnar. Geta má þess að rætt var við Gísla Tryggvason, talsmann neyt- enda, sem sagði að það væri ákveð- ið sjónarmið að koma upp svörtum lista og það gæti verið gagnlegt fyrir neytendur. Í athugasemd frá Neytendasam- tökunum segir að engur slíkur listi sé til og því vandséð hvernig hægt væri að afhenda fjölmiðlum hann. Eins og tekið var fram í frétt DV telja samtökin að slíkar upplýsingar gætu gefið skakka mynd þar sem til dæm- is mætti gera ráð fyrir að fyrirtæki sem flestar kvartanir fá séu stærst á markaði. Fara þyrfti fram ítarleg greining á kvörtunarmálum því við- komandi fyrirtæki hafi í mörgum tilvikum ekki gert neitt rangt. Eins segir að í flestum tilvikum takist að leysa kvörtunarmál með sátt á mill- li samtakanna og viðkomandi fyr- irtækis og hætta er á að sáttaviljinn fari fyrir lítið verði birtur ítarlegur listi yfir öll þau fyrirtæki sem kvart- að er yfir. Neytendur Neytendasamtökin: flest kvörtunarmál leysast á milli samtakanna og viðkomandi fyrirtækis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.