Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2011, Blaðsíða 11
Fréttir | 11Miðvikudagur 19. janúar 2011
Skráning í
áheyrnarprufur
í dag kl. 16:15
Við efnum til hæfileikadaga þar sem við leitum
að krökkum til að taka þátt í uppfærslu á Galdra-
karlinum í Oz sem frumsýnt verður næsta haust.
Við leitum að krökkum sem geta leikið, dansað eða
sungið – eða hvað annað sem sem kemur sér vel á
ferðalaginu til Oz.
Allir á aldrinum 8–18 ára geta tekið þátt. Prufurnar
sjálfar fara fram dagana 24. janúar til 14. febrúar.
Skráning fer fram í Borgarleikhúsinu í dag kl. 16.15–17.30.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Skráningablað og nánari upplýsingar á borgarleikhus.isanum fyrir 180 milljónir króna.
Viðskipti Birkis voru um tíu
sinnum stærri en viðskipti Baldurs
og hann var háttsettur starfsmaður
í bankanum sem hlutabréfin sem
hann seldi voru í.
Júlí 2008: 120.931.452 hlutir
Ágúst 2008: 0 hlutir
Hlutabréfaeign BK
1. Seldir þú nærri 121 milljón hluti í Glitni
í frá tímabilinu frá því í júlí 2008 og fram
í ágúst 2008?
2. Voru þessi viðskipti þín eðlileg að
þínu mati, miðað við þá stöðu sem þú
gegndir í bankanum?
3. Hver seldi bréfin og hver keypti þau?
Spurningar til Birkis
Yfirmaður í Glitni seldi
bréf sín rétt fYrir hrun
Seldi á heppilegum tíma Birkir
Kristinsson, starfsmaður Glitnis og fyrr-
verandi landsliðsmaður í knattspyrnu,
seldi rúmlega 1.800 milljóna króna
hlut í Glitni tveimur mánuðum fyrir
hrun. Hann sést hér fyrir leik íslenska
landsliðsins í knattspyrnu.
Óvissan er mikil á Flateyri eftir gjaldþrot Eyrarodda:
Flateyringar sendu út neyðarkall
Óvissa ríkir nú á Flateyri eftir að út-
gerðarfyrirtækið Eyraroddi var úr-
skurðað gjaldþrota á mánudag enda
áttu þorpsbúar mikið undir því að
fyrirtækið lifði af. En Flateyringar
sýndu samstöðu á þriðjudag þegar
þeir komu saman og sendu út neyð-
arkall frá bryggjunni. Tugir íbúa komu
þá saman og kveiktu á neyðarblysum
í táknrænni aðgerð fyrir þá neyð sem
Flateyri stendur nú frammi fyrir. Íbúar
halda þó í vonina um áframhaldandi
byggð á Flateyri og vonast til að neyð-
arkall þeirra í dag berist til þeirra sem
málið varðar.
Starfsmenn Eyrarodda voru 42 tals-
ins en þeim var öllum sagt upp í októb-
er. Íbúar Flateyrar voru 250 í upphafi
síðasta árs samkvæmt Hagstofunni
og því ljóst að áfallið er mikið fyrir at-
vinnustarfsemi í þorpinu.
Stjórn Eyrarodda hafði undanfar-
ið unnið að fjárhagslegri endurskipu-
lagningu fyrirtækisins í samvinnu við
kröfuhafa þess. Nauðasamningur var
samþykktur en ekki tókst að útvega
nægt fjármagn til að halda rekstrinum
áfram.
DV ræddi við Sigurð H. Garðarsson
útgerðarmann á þriðjudag um gjald-
þrot Eyrarodda og var hann ekki bjart-
sýnn. „Mér líst ekkert á blikuna. Það er
engin framtíð án þeirra, alls ekki.“
Sigurður, sem sjálfur gerir út tíu
tonna bát og er með harðfiskverkun á
Flateyri, segir að gjaldþrotið sé mikið
áfall fyrir þorpsbúa. „Það verður erf-
itt fyrir aðra að lifa í þessari grein án
þess að hafa þá,“ segir Sigurður sem
hefur nýtt sér þjónustu Eyrarodda.
Hann bætir við að svartsýnin sé mik-
il en bendir þó á að sögur séu á kreiki
í bænum þess efnis að mikill áhugi sé
á 300 tonna byggðakvóta Flateyrar. Eru
bundnar vonir við að einhverjir hefji
þar atvinnurekstur frá grunni. Að-
spurður hvort viðbúið sé að fólksflótti
fylgi gjaldþrotinu segist Sigurður ekki
búast við því. „Nei, í rauninni ekki.
Við höngum í voninni um að einhverj-
ir hafi áhuga á þessu. Það gefur okkur
byr undir báða vængi. En maður veit
svo sem ekki mikið á þessari stundu.“
mikael@dv.is
Neyðarkall af bryggjunni Tugir
Flateyringa komu saman við bryggjuna
á þriðjudag og kveiktu á neyðarblysum í
táknrænni athöfn.